Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.2003, Side 11
11
MÁNUDAGUR 14. APRÍL 2003
■}
ARSFUNDUR
Húsbréf
Eftirlaunasjóður fyrrverandi
starfsmanna Útvegsbanka íslands
boðar til ársfundar miðvikudaginn 30. apríl 2003, kl. 17.15,
á Grand Hótel, Hvammi, 1. hæð.
Dagskrá: Skýrsla stjórnar. Breytingar á reglugerð sjóðsins. Önnur
hefðbundin ársfundarmál.
AUir sjóðfélagar eiga rétt til setu á ársfundi, með málfrelsi og
tillögurétti. Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta. Qrnjn
Innlausn
húsbréfa
Frá og með 15. apríl 2003 hefst innlausn
á útdregnum húsbréfum í eftirtöldum flokkum:
1. flokki 1991
3. flokki 1991
1. flokki 1992
2. flokki 1992
1. flokki 1993
3. flokki 1993
1. flokki 1994
1. flokki 1995
1. flokki 1996
2. flokki 1996
3. flokki 1996
- 45. útdráttur
- 42. útdráttur
-41. útdráttur
- 40. útdráttur
- 36. útdráttur
- 34. útdráttur
-33. útdráttur
- 30. útdráttur
-27. útdráttur
- 27. útdráttur
-27. útdráttur
Innlausnarverðið er að finna í Morgunblaóinu
mánudaginn 14. apríl.
Innlausn húsbréfa fer fram hjá íbúðalánasjóði, í bönkum,
sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum og liggja þar einnig
frammi upplýsingar um útdregin húsbréf.
íbúðalánasjóður
Borgartúni 21 I 105 Reykjavík I Sími 569 6900 I Fax 569 6800 I www.ils.is
Fréttir
X>V
Hörmulegt slys í París
Áriö 2000 létust 113 manns þegar Concorde-þota flugfélagsins Air France hrapaði tii jaröar skömmu eftir fiugtak. Eftir það
hefur aösókn stórminnkaö og hafa Concorde-vélar bæöi Air France og British Airways veriö reknar meö tapi síöan þá.
Sportbuxur
NQ sending
tískuverslun
Rauðarárstíg 1, síml 561-5077
Ferðamátl rika og fræga fólkslns
Ríka og fræga fólkiö sættir sig oft ekki viö annaö en þaö besta og hefur
feröamátinn sem Concorde býöur upp á reynst afar vinsæll. Hér hellir tónlist-
armaöurinn Sting kampavíni 1 glas Pierse Morgans, samfarþega síns.
Breyttir tímar
Enda þótt ímynd Concorde hafi
verið sú að þama ferðuðust bæöi
rokkstjömur og konungborið fólk
treystu flugfélögin mestmegnis á
viðskiptamenn sem þurftu að
flakka heimshornanna á milli á
skömmum tíma. Og reksturinn
náði sér aldrei almennilega á strik
aftur eftir að svokallaðri dot-com-
sprengingu lauk, þegar fjárfesting-
araðilar þurftu að þeysast á milli
staða til að ljúka samningum, oft á
sama degi, en með aukinni notkun
fartölva og flugsíma er hægt að
koma meiri vinnu í verk um borð
í flugvélunum sjálfum.
Kröfur markaöarins eru skýrar.
Viðskiptavinirnir vilja miklu
fremur lágt miðaverð en þægindi
um borð og jafnhraðskreiðan far-
arskjóta og Concorde-vélarnar
eru. Minni vélar sem eyða minna
eldsneyti eru langvinsælustu vél-
arnar hjá flugvélaframleiðendun-
um Boeing og Airbus SAS. „Það
lítur ekki út fyrir að markaður sé,
eins og málin standa núna, fyrir
þá þjónustu sem slíkar vélar
veita,“ segir Todd Blecher, tals-
maður Boeing. Fyrirtækið lagði
nýverið til hliðar teikningar að
nýrri flugvél sem getur flogið
nærri hljóðhraða, þar sem lítil eft-
irspurn er eftir slíkum vélum.
Airbus hyggst hins vegar koma á
markaðinn nýrri 555 sæta risa-
flugvél, A380, árið 2006, og gæti
fyrsta farrýmið á þeirri vél laðað
að sér þá sem flugu með Concorde-
vélunum.
Safngripur
Annar möguleiki fyrir þá sem
vilja ekkert nema það besta er
hreinlega að leigja sér flugvél eins
og kanadíski framleiðandinn
Bombardier býður upp á, fyrir um
350 þúsund kr. fyrir hverja
klukkustund. Þetta gæti verið
lausnin fyrir þá sem setja öryggi
ofar öllu þegar kemur að flugferð-
um eftir hryðjuverkin í Bandaríkj-
unum. En Concorde-flotinn mun
líklega aðeins sóma sér á söfnum í
framtíðinni og slást þannig í hóp
þeirra 2000 flugvéla sem flugfélög
heimsins hafa þurft að leggja til
hliðar á síðustu tveimur árum. Þá
hefur ævintýramaðurinn Richard
Branson, eigandi Virgin-flugfé-
lagsins, boðist til að kaupa
Concorde-flota British Airways,
sem samanstendur af 7 vélum, á
eitt pund. Að verði af þeim kaup-
um verður þó að telja heldur ólík-
legt.
En stjórnarformaður Air
France, sem á 5 slíkar vélar, telur
að fólk muni áfram dást að
Concorde-vélinni, þó svo að hún
taki sig aldrei á loft aftur. „Ég er
sannfærður um að Concorde-þot-
an mun halda áfram aö fljúga í
ímyndunarflugi fólksins. Maður-
inn hefur aldrei áður skapað neitt
eins fagurt og Concorde-þotuna."
AÐEINS