Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2003, Qupperneq 2
2
Laugardagur 26. apríl2003
ILAR
B&L frumsýna nýjan
Hyundai Getz
Getz, nýi smábíllinn frá
Hyundai, verður frumsýndur hjá
B&L helgina 26. og 27. apríl nk.
Að sögn Steinars Arnar Ingi-
mundarsonar sölustjóra verður
af því tilefni sett upp lífleg sýn-
ing á þessari nýjustu viðbót við
Hyundai-fjölskylduna.
Hannaöur fyrir kröfuharða
„Getz er ungur bíll í þeim
skilningi að honum er ætlað að
koma til móts við verulega kröfu-
harðan hóp. Hann er því afar vel
útbúinn af smábíl að vera, með
verulega hástæð sæti, ABS-
hemla, fjarstýrðar samlæsingar
og fjóra loftpúða, svo að dæmi séu
nefnd, og eitt mesta innanrými
meðal sambærilegra bíla,“ segir
Steinar. Þar sem grunnverðið er
lágt, en Getz fæst frá 1.150.000
krónum, segir hann bílinn enn
fremur afar fýsilegan kost sem
fyrsta bíl ungs fólks eða viðbótar-
bíl fyrir heimilið. „Þá veitir þetta
lága grunnverð hverjum og ein-
um verulegt svigrúm hvað auka-
búnað varðar. Það má þvi auð-
veldlega setja saman óskabílinn
með hliðsjón af t.d. filmum, sól-
lúgu eða stærri felgum."
Ungfrú Island.is á Getz
Upphaflega stóð til að frum-
sýna Getz um miðjan febrúar en
þar sem fyrsta sendingin af bíln-
um seldist upp var frumsýning-
unni frestað. „Getz hefur verið
gríðarlega vel tekið í Evrópu,
enda hannaður alveg sérstaklega
fyrir þann markað. Það er því
ekki bara hér á landi sem heilu
sendingarnar hafa selst upp á
methraða,“ segir Steinar. Hin ár-
lega keppni Ungfrú ísland.is
verður haldin að þessu sinni í
sýningarsal B&L föstudagskvöld-
ið 25. apríl og verður Getz því
frumsýndur í kjólfar hennar. „í
febrúar var ijóst að þetta tvennt
yrði líklega um svipað leyti.
Þarna er því um skemmtilega til-
viljun að ræða en mikil stemning
hefur jafnan fylgt keppninni Ung-
frú ísland.is Og að sjálfsögðu
keyrir sigurvegari kvöldsins
heim á Getz sem hún fær til af-
nota í eitt ár sér að kostnaðar-
lausu."
Siv Friðlciðsdóttír tók fjTstu skóflustuuguiia að brautínni sem komin er til að vera.
DV-mynd NG
Ný motocrossbraut
á Álfsnesi
Vélhjólaíþróttaklúbburinn get-
ur nú horft fram til bjartari daga
eftir að hafa fengið úthlutað var-
anlegu svæði fyrir starfsemi sína
á Álfsnesi. Fyrsta skólfustungan
að nýju brautinni var tekin á
þriðjudag og var það Siv Friðleifs-
dóttir, umhverfisráðherra sem tók
hana. Að sögn Þórðar Valdimars-
sonar, mælingarmeistara VÍK, er
landið, sem um ræðir, 1,4 hektar-
ar. „Við erum með fjármagn til að
jafna út jarðveginn en til þess að
gera þetta almennilega þurfum við
að keyra í þetta sand og grús. Við
áætlum að verða búnir með fyrsta
verkhluta eftir mánuð og vonumst
til að geta keppt hérna strax í
sumar“ sagði Þórður. Til þess þarf
þó allt að ganga upp hjá þeim VÍK-
verjum og óskum við þeim alls
hins besta. -NG
Aukin sala á
notuðum bílum
Mikil aukning hefur verið milli
ára í sölu notaðra ökutækja. Bílaþing
Heklu hefur á árinu selt tæplega 650
notaðar bifreiðir en á sama tima í
fyrra voru þær um 400. Söluaukning
milli ára er því ríflega 60%. Nokkur
breyting hefur orðið á þessu tímabili
á viðskiptum með notuðu bílana.
Aukin áhersla er nú lögð á rekstrar-
leigu og nú síðast einkaleigu. Að sögn
Jóns Trausta Ólafssonar, kynningar-
og blaðafulltrúa Heklu, er nú mjög
gott framboð á notuðum, nýlegum
bílum þar sem rekstrarleigusala und-
anfarinna ára felur i sér endurkaup
bifreiðaumboðanna og fást þeir bílar
nú notaðir á hagkvæmu verði.
BS0 50 ára
BSO, Bifreiðastöð Oddeyrar, varð
50 ára sl. þriðjudag og í tilefni dags-
ins buðu strákamir og stelpumar á
stöðinni Akureyringum í kaffi og
kökur, auk þess sem þau buðu Akur-
eyringum 50% afslátt af akstri.
Bifreiðastöð Oddeyrar var fyrstu 3
árin við Ráðhústorgið á Akureyri en
flutti sig um 200 metra niður á hom
Strandgötu og Glerárgötu árið 1956,
þar sem stöðin er starfrækt í dag á
áberandi stað í bæjarlífmu á Akur-
eyri. Þess má geta að alla tíð hefur
rekstur stöðvarinnar verið á sömu
kennitölunni. -ÆD
Toyota Gorolla var valinn bíll ársins í fyrra en hér er hann við eina af
þeim prófunum sem gerð var á þeim bíluin sem komust í úrslit í valinu þá.
Bíll ársins á íslandi
valinn innan skamms
Nú styttist
óðum í það að bíll
ársins á íslandi
2003 verði valinn
en tilkynnt verð-
ur um úrslit 8.
maí næstkom-
andi. Eins og í
fyrra er keppt í
þremur flokkum,
flokki smábíla og minni milli-
stærðarbíla, stærri fjölskyldubíla
og lúxusbíla og loks flokki jeppa
og jepplinga. Valinn er bíll ársins
í hverjum flokki og sá sem hlýtur
flest stig af þeim fær síðan titilinn
„Bíll ársins 2003“ og Stálstýrið til
geymslu í eitt ár. Að þessu sinni
eru í dómnefnd flmm bílablaða-
menn frá fjórum fjölmiðlum sem
allir eru með sérefni um bíla.
Tveir þeirra eru frá DV-bílum,
þau Njáll Gunnlaugsson og Helga
Sigrún Harðardóttir, Sigurður
Már Jónsson frá Viðskiptablað-
inu, Stefán Ásgrímsson frá FÍB-
blaðinu og Karl Gtmnlaugsson frá
bílaþættinum Mótor á Skjá einum.
Hér fyrir neðan má sjá lista yfir
þá bíla sem eru í valinu að þessu
sinni en í næsta blaði verður búið
að fækka í hverjum flokki niður í
þrjá bíla sem komast þá í undan-
úrslit.
Smábílar og minni millistærð-
arbílar:
Renault Mégane II
Nissan Micra
Ford Fiesta
Citroen C3
Honda Jazz
Hyimdai Coupé
Hyundai Getz
Fiat Stilo
Stærri fjölskyldu- og lúxusbílar:
Mazda 6
Subaru Forester
Nissan Primera
Opel Vectra
Chrysler PT Cruiser
Daewoo Tacuma
Honda Stream
Honda Accord
Toyota Avensis
Kia Carens
Jeppar og jepplingar:
VW Touareq
Porsche Cayenne
Volvo XC90
Toyota Land Cruiser 90
Kia Sorento
Ssangyong Rexton
Range Rover
Nissan Double Cab
Jeep Cherokee
Honda CR-V
Nýr slökkvibíll til Bolungarvíkur
Slökkvilið Bolungarvíkur hefur
nýverið fengið afhenta nýja MT-
slökkvibifreið sem verið hefur í
smíðum undanfarna mánuði hjá
MT-bílum á Ólafsflrði. Starfs-
menn MT-bíla fóru vestur til Bol-
ungarvíkur með nýju bifreiðina
og efndu til kynningar fyrir fé-
laga í slökkviliðinu.
Nýja bifreiðin leysir af hólmi
áratugagamla slökkvibifreið af
Bedfordgerð. Sigurjón Magnús-
son, framkvæmdastjóri MT-bíla,
afhenti bílinn Sofflu Vagnsdóttur,
starfandi forseta bæjarstjórnar
Bolungarvíkurkaupstaðar. Bif-
reiðin var síðan afhent slökkvi-
liðinu til afnota eftir að Agnes
Sigurðardóttir, sóknarprestur í
Bolungarvík, hafði blessað hana.
Slökkvibifreiðin er af MAN LE
280-E gerð, 4x4. Heildarþyngd
hennar er 14 tonn. Yfirbyggingin
er hönnuð og smíðuð af MT-bíl-
um og er úr trefjaplasti. í henni
er 4000 lítra vatnstankur, 150 lítra
froðutankur, 3000 lítra Ziegler-
dæla, FP30/8, með háþrýstiþrepi,
tvær 19 mm háþrýstislöngur á
loftdrifnum slönguhjólum, 5
metra ljósamastur, útdraganlegar
hillur, rafstöð og fleira. -GG