Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2003, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2003, Blaðsíða 5
Laugardagur 26. apríl2003 5 > »lfÍ BÍLAR Nýr Mitsubishi Outlander í ímyndarherferð Mitsubishi Motors Europe (MME) hefur um miðjan maí nýja auglýsingaherferð til að kynna nýj- an jeppling frá Mitsubishi sem hlot- ið hefur nafnið Outlander. Auglýs- ingaherferðin verður tilbreyting frá hefðbundnum auglýsingum. Henni er ætlað að undirstrika að þessi nýi bíll Mitsubishi, sem brúar bilið á milli hefðbundinna fólksbíla og jeppa, sé fullkomið móteitur gagn- vart þeim leiðindum sem mörgum finnst akstur inn og út úr borgum vera. Hekla mun kynna Outlander hér á landi á sama tíma og hann verður kynntur víðs vegar um Evr- ópu. stöðvar hann til að taka upp putta- ferðalang við veginn. í framhaldinu þýtur bílhnn áfram eftir borgar- strætunum og ökuferðin breytist í villtan akstur um miklar bugðóttar hraðbrautir, um krókótt stræti og yfir miklar hraðahindranir - allt til að undirstrika hvemig Outlander tekst á við umhverfi stórborgarinn- ar án þess að hika. Konan, yfirveg- uð og brúnhærð, lítur út um glugg- ann á borgina, skýjakJjúfana. Þar ber ekkert á kvíða eða hræðslu sem sýnir hvemig það er að ferðast í Outlander. Fyrir puttaferðalanginn er þetta ein mest spennandi ökuferð sem hann hefur farið í. Þá fáum við að sjá hárin rísa á handlegg putta- ferðalangsins sem er með svip sem nánast biður um bros. Tónlistin er hin mjög svo grípandi „Town Calied Malice“ eftir Paul Weller og Jam. Fyrir úthverfabúa Nýja auglýsingaherferðin er hönnuð af StrawberryFrog, alþjóð- legu auglýsingafyrirtæki sem hefur aðsetur í Amsterdam og verður leiðandi í nýrri ímyndarherferð MME. Herferðinni verður einkum beint að íbúum úthverfa evrópskra borga, sérstaklega þeim sem áhuga hafa á ævintýrum. Notað verður sjónvarp, prentað mál, umhverfís- auglýsingar og Netið til að koma því til skila að Outlander sé afar meðfærilegur bíU og njóti sín ekki síður á steinlögðum strætum en í óbyggðum. Önnur skilaboð herferð- arinnar era hönnun og stíll og ekki síður létt áhersla á líf úthverfanna. Herferðin leggur einnig áherslu á íþróttir nútímans og tísku, öfugt við flestar hefðbundnar bílaauglýsing- ar. Fýrsti bíll nýrrar kynslóðar Þegar Stefan Jacoby, aðalstjóm- andi MME, fjallaði um þessa her- ferð sagði hann: „Outíander er fyrsti bíll nýrrar kynslóðar Mitsu- bishi Motors í Evrópu, með ný við- horf, sterk einkenni stíls og mögu- leika á að hrista upp í hefðbundn- um hugmyndum. Auglýsingar hans munu sanna þetta, þökk sé góðri samhæfmgu af hálfú samstarfsaðila okkar hjá StrawberryFrog: fyrsta herferðin af mörgum sem mun sanna fyrir evrópskum kaupendum að bílamir frá Mitsubishi Motors veki áhuga." Nýja herferðin mun í prentuðu máli og á plakötum koma því til skila að ökuferð í Outlander geri borgaraksturinn að ævintýri. Nýju auglýsingamar vora allar telúiar í Suður-Afríku. Herferðin sýnir hvemig Outlander hefur áhrif á daglegt líf ökumanna á milli borg- arhluta, við aksturinn í skólann, til skrifstofúnnar, að sækja föt í hreinsunina eða á leið í stórmark- aðinn. 14 bílar á 5 árum Stefan Jacoby bætir við: „Rann- sóknir sýna að fólk er tilbúið að eignast bíl sem gerir meira en að nýtast því til aksturs - bíl sem er vel smíðaður en líka spennandi í akstri og hannaöur til að koma manni í gott skap. Slíkir bílar era að skapi æ fleiri og Outlander getur gert þetta allt saman eins vel og þeir 14 nýju bílar sem við munum kynna í Evrópu á næstu 5 árum.“ í blöðum og á plakötum verður Outlander sýndur sem tákn þess sem brýtur leiðindin í innanbæj- arakstri á bak aftur. „Við setjum Outlander á stall til að undirstrika hönnun hans og stil. Þetta er bíll sem er hár: nokkuð sem á vel við þegar farið er inn í þennan nýja Mitsubishi,“ segir Scott Goodson, hönnunarstjóri StrawberryFrog. „Town called Malice" Það verður væntanlega í sjón- varpi sem viðhorf Mitsubishi Motors mun koma best fram. Þar mun Outlander láta umhverfi víð- áttunnar lönd og leið og sleppa sér lausum á malbikuðum borgarstræt- um. Kona undir stýri á Outlander . Eitt af best varðveittu leyndarmálunum á jeppamarkaðnum er Suzuki Grand Vitara XL-7. Mbl 19.02.03 Þetta er jeppi i besta skilníngi þess orðs; byggður á sjálfs grind, með háu og lágu drifi, sjálfskiptur, tekur sjö manns og er með feykilega skemmtilegri 173 hestafla, V6 bensíi Og verðið er rétt um 3,3 milljónir kr. fyrir sjálfskiptan bíi. Mbl 19.02.03 1 ,5T. * . , * -; ;MÍÍSÖÍ . . Grand Vitara 3ja dyra verö frá 2.115, Grand Vitara 5 dyra verd frá 2.435.OC Grand Vitara XL-7 verð frá 3.090.000 $ SUZUKI HUGTÖK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.