Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2003, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2003, Side 12
+ Bílar 12 Laugardagur 26. APRÍL2003 Laugardagur 26. APRÍL2003 13 Reynsluakstur Njáll Gunnlaugsson [9 KIA CARENS 1,8 ES Vél: 1,8 lítra bensínvél Rúmtak: 1794 rúmsentímetrar Ventlar: 16 Þjöppun: 9,4:1 Gírkassi: 4ra þrepa sjálfskiptur UNDIRVAGN: Fjöðrun framan: MacPherson Fjöðrun aftan: Tveqqja arma Bremsur: Loftkældir diskar/diskar, ABS Pekkjastaerð: 195/60 R15 YTRI TOLUR: Lengd/breidd/haeð: 4493/1748/1650 mm Hjólahaf/veghaeð: 2560/155 mm Beygjuradíus: 10,6 m INNRI TOLUR: Farþegar m. ökumanni: Fjöldi höfuðpúðéi/öryggispúða:_________6/2 Farangursrými:______________420-1010 lítrar HAGKVÆMNI: Eyðsla á 100 km: 9,1 lítrar Eldsneytisgeymir: 55 lítrar Ábyrgð/ryðvörn: 3/6 ár Grunnverð: 1.890.000 kr. Verð prófunarbíls: 1.990.000 kr. Umboð: Kia ísland Staðalbúnaður: 2 öryggispúðar, rafdrifnir speglar og rúður, upphituð framrúða og útispeglar, hæðarstillanlegt ökumannssæti, þjófavörn, samlæsing, geislaspilari og útvarp, álfelgur, spólvörn, upphituð framsæti, armpúðar í miðjusætaröð, þriðja sætaröðin, toppbogar. SAMANBURÐARTÖLUR: Hestöfl/sn.: 126/6000 Snúninqsvæqi/sn.: 162 Nm/4900 Hröðun 0-100 km: 15 sek. Hámarkshraði: 170 km/klst. Eigin þyngd: 1427 kq Heildarþyngd: 1905 kq ■ ■■ í ■ . jb'-? ■ ■- , Fjölnotabíll með sinn eigin karakter Kostir: Aðgengi, miðjusœtaröð, verð Gallar: Hljóðeinangrun, útsýni Kia á íslandi hefur hafiö sölu á nýjum bíl, Carens, sem óhætt er aö segja aö líklst engum öðrum bíl. Um sex sæta íjölnotabíl er að ræða en þaö sem gerir hann sérstakan er að sætaraðimar eru þrjár, með tveimur sætum í hverri röð. Þannig útbúinn kemur hann hing- að en einnig hefur verið hægt að fá hann fimm eða sjö sæta. Hans helstu keppinautar eru bílar eins og Opel Zafira, Renault Scenic og Citroén Picasso. Gott aðgengi um stórar hurðir Kia Carens er með frekar sérstakt byggingarlag sem greinir hann frá öðrum bílum. Hann er hár á vegi, með stórar hurðir en frekar stuttan afturenda. Þess vegna minnir hann nokkuð á ofvaxinn smábíl í útliti. Samt er margt nýtískulegt í fari hans eins og sjá má í marg- spegla ljósum. Stórar hurðimar tryggja gott aðgengi, einnig aftur í. Innstig er þægilegt í fremstu tvær sæt- araðimar en það er ágætis jógaæfmg fyrir fullorðinn að komast í öftustu sætarööina, sem er frekar ætluð smáfólkinu. Höfuðpúðamir þar em hins vegar í full- orðinsstærð og hamla því útsýni út um afturglugga. Fótarými þar er nánast ekkert með miðjusætaröðina í öftustu stöðu, en hún er á sleða sem færa má fram og aftur. Það auðveldar reyndar innstigið aðeins. Öftustu sætaröðina er hægt að fella á einfaldan hátt niður í gólflð þannig að hún leggst nánast flöt og þannig er far- angursrýmið þónokkurt. Hægt er að fella bök á miðju- sætum fram til að auka flutningsrými en einnig er hægt að leggja miðjusætin flöt þannig að þau búa til svefnpláss fyrir tvo með öftustu sætaröðinni. Einnig er flutningshólf í gólfrnu aftast og er það staðalbúnaður í EX-útgáfunum. Þægileg aftursæti Það fer hins vegar vel um flesta i hinum fjórum sæt- um bilsins. í miðjusætaröðinni em tveir stólar með þremur armpúðum þannig að hver farþegi hefur stuðn- ing fyrir báðar hendur. Það er reyndar dálítið furðu- legt þegar það er haft í huga að engir em armpúðam- ir í framsætum þar sem þeir em venjulega helst í boði. Gott pláss er í framsætum og þar er mikið af hólfum og hirslum í kringum ökumann. Sem dæmi um það eru fjögur glasastatíf auk flöskustatífs í hvorri hurð. Útlit mælaborðsins er jafn sérstakt og annað í útliti bílsins. Miðja þess er skjaldarlaga og þar er snyrtilega komið fyrir hljómtækjum og miðstöð. Hins vegar virðist tökk- um fyrir sætisupphitun, spólvöm og afturrúðuþumku vera aðeins ofaukið og er þeim frekar illa komið fyrir vinstra megin við stýri og í miðjustokki. Innréttingin er að mestu úr harðplasti og ekki sömu gæðin og til dæmis í Sorento-jeppanum. Gírstöngin er „amerísk" og er hægra megin við stýri þannig að hún skyggir á takka fyrir þokuljós í akstursstillingu sinni. Enginn kappakstursbíll Það fyrsta sem að ökumaður tekur eftir í akstri er að bíllinn er frekar þungur f stýri, miðað við aðra sam- bærilega bíla. Það þarf reyndar ekki alltaf að vera galli þótt það auðveldi ekki snúninga í stæðum en fyrir vik- ið er hann stöðugri á vegi. Fjöðrunin er í þægilegri kantinum en bílnum er ekki ætlað að vera í neinum kappakstri því að hann leggst nokkuö til hliðanna í beygjum. Vélin í próf- unarbílnum var 1,8 lítra og skilar þokkalegasta upptaki þegar hún er komin á snúning. Þá er hún hins veg- ar farin að láta heyra nokkuð í sér og hljóðeinangrun af öðra tagi mætti einnig vera betri því að það er nokk- urt veghljóð í bílnum. Sjálfskiptingin mætti vera mýkri en skilar vel sínu líkt og bremsur, enda era diskar bæði að framan og aftan. Verðið sér á parti líka Verðið á bílnum er kannski einn af hans aðalkost- um, ef svo má segja, enda sér á parti líka. Fyrir litlar 1.890.000 kr. fær kaupandinn ágætlega búinn, sex manna fjölnotabíl fyrir fjölskylduna, en það getur oft verið erfitt fyrir sex manna fjölskyldur að finna bíl við hæfi og þá á rétta verðinu. Bílamir sem að Carens vill bera sig saman við eru allir mun dýrari. Opel Zafira kostar sjálfskiptur 2.490.000 kr. Renault Scenic 2.140.000 kr. og Citroen Picasso kostar þannig búinn 2.249.000 kr. en sjálfskiptur er hann aðeins fáanlegur með tveggja lítra vél. Þessir frönsku era reyndar báðir bara fimm sæta en Zafiran sjö. Nefna má annað dæmi um sex manna bíl sem reyndar er mun stærri, en það er Toyota Previa sem kostar 2.899.000 kr. með 2,4 lítra vél og sjálfskiptingu. -NG Q 1,8 lítra vélin skilar þokkalegu afli en er frekar liávær. Með öll sætín uppi er farangursrýmið ekki inikið en undir gólfinu er reyndar farangursliólf. i| Með öftustu röðina fellda ofan í gólfið stækkar farangursrými til muna og einnig er hægt að fella fram sætisbök á miðjusætaröð. Q Fótapláss f\rir fullorðna er af skornunt skamintí í öftustu sætaröðinni. Álfelgur eru staðalbúnaður og diskabremsur líka, að framan og aftan. Q Framendi bflsins er nýtískulegur. Q Innréttingin er með sérstöku lagi eins og sjá má á skjaldarlaga miðju- einingu. □ Takkar fyrir afturrúðuþurrku, spólvöni og Ijósastillingar eru frekar illa staðsettír. + c

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.