Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2003, Side 22

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2003, Side 22
\ ESMbílar 22 Laucardacur 26. apríl 2003 E'| ■■ ^i -V"*> 'h , rí i & * JÍhR y"‘ I.; * ‘ 1 Glæsilegustu tækin frá upphafi Glæsilegir sýningarbílar og geysiöflug keppnistæki fylltu sýningarsal B&L við Grjótháls um páskahelgina en þá hélt Kvartmíluklúbburinn þar bíla- sýningu sína, „Bíladella 2003“. Kominn var tími á að Kvartmílu- klúbburinn héldi bílasýningu enda munu vera liðin um 10 ár síðan klúbburinn hélt síðast sýn- ingu. Ingólfur Arnarson, formað- ur Kvartmíluklúbbsins, vonaðist > til að þessi sýning myndi bæta aðeins fjárhagsstöðu klúbbsins en búið er að panta nýjar full- komnar tímatökugræjur fyrir Kvartmílubrautina í Kapellu- hrauni auk þess sem búið er að auka öryggi brautarinnar mjög með því að slétta 50 metra svæði út frá brautinni í allar áttir. Það er því bætt og betri kvartmílu- braut sem bíður keppenda þegar keppnistímabilið hefst í næsta mánuði. -*» Vertu með réttindi til Öll ökurétfindi Aukin ökuréttindi Öil vinnuvélaréttindi Hægt að byrja alla föstudaga, helgarnám s.5884500 að skapa þitt eigið góðærí Upplýsingar gefur Svavar Svavarsson öku- og vinnuvélakennari f sfma 6884600 og 8983903 Skoðaðu www.et.is og kannaðu verð og fyrirkomulag Tveir fallegastir Að öðrum bílasýningum Kvartmíluklúbbsins ólöstuðum má segja að þessi hafi verið sú glæsilegasta enda greinilegt að mikill uppgangur er í kvartmíl- unni og öllu því sem tengist Kvartmíluklúbbnum. Búið er að flytja til landsins fjöldann allan af stórglæsilegum keppnis- og sýningartækjum auk þess sem eldri tæki hafa verið gerð upp. Athygli vakti hversu mikiUi natni hafði verið beitt við upp- gerð margra tækjanna og mikil áhersla lögð á hvert smáatriði. Að vanda voru það gestirnir sem völdu fallegasta tækið á sýning- unni en að þessu sinni fengu tvö tæki jafn mörg atkvæði en þau voru 1955 Chevrolet sem kom frá Svíþjóð og 1934 Ford sem Jón Trausti Harðarson hefur smíðað á listilegan hátt. -JAK Jón Trausti Harðarson lireppti fyrstu verðlaun á sýningunni en 1934 Ford HotRod bíll hans fékk jafn raörg atkvæði og guli Lettinn. Allur frá- gangur á Fordinunt var óaðfinnanlegur og smíði lians einkenndist af slíkri fagmennsku að annað eins hefur ekki sést. Gestir sýningarinnar völdu þennan Ghevrolet Two Door Sedan, árgerð 1955, annan tveggja fallegustu tækjanna á sýningunni. Bíllinn var fenginn frá Svíþjóð á sýninguna og var hann óvenjulega glæsilegur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.