Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2003, Blaðsíða 4
Pablo Francisco til
ÍSLANDS
Enn bætist í hóp frægra
uppistandara sem vilja sækja
okkur Islendinga heim. Fókus
hefur nú heyrt af því að næstur
í röðinni verði Pablo Francisco
sem frægur er fyrir skets sinn
þar sem hann gerir grín að
kvikmyndatrailerum í stíl Jerry
Bruckheimer. Mun Pablo þessi
mæta hingað til lands á haust-
dögum, að öllum líkindum f
september en nákvæm dag-
setning hefúr ekki enn verið
negld niður.
Loksins Maus
Strákamir í Maus em loks-
ins famir að brosa aftur. Illa
hefur gengið að fá plötuna
Musick kláraða og í búðir
hingað til lands þrátt fyrir að
hún sé löngu tilbúin en nú sér
loks fyrir endann á því. Á
þriðjudaginn greindu þeir frá
því á heimasíðu sinni að þeir
fengju plötuna senda í þessari
viku og vonuðust til að hún
kæmis í búðir fyrir helgina.
Um að gera að fylgjast með því
og eins útgáfútónleikum þeirra
sem verða í Iðnó á fimmtudag-
inn í næstu viku.
Það er stolt hvers karlmanns að geta safnað myndarlegu yfirvaraskeggi. Unga
og óharðnaða pilta dreymir jafnan um að geta fylgt í fótspor hetjanna úr kvik-
myndunum í skeggvexti og er það jafnan taiinn góður mælikvarði á þroskastig
hvers karlmanns hversu myndarlegri mottu hann nær að safna. Tom Selleck er
gjarnan talinn hafa rutt brautina síðustu ár á þessum vettvangi og það er hon-
um til heiðurs sem nokkrir ungir athafnamenn hafa stofnað til Tom Selleck-
keppninnar sem haldin er í annað sinn í ár.
Fegur8ar(mottu)samkeppni
Þátttakendur f fyrstu Tom
Selleck-keppninni ífyrra. Frá
vinstri eru Buckmaster, Pres-
ident Bongo (báðir liðsmenn
Gus Gus) og svo Raggi
Selleck úr Botnleðju sem
sigraði í keppninni.
Jón Atli hárskeri og Raggi í Botnleðju
taka þátt f keppninni f ár.
M
% n
£ . \ í \
„Við vorum þrfr sem tókum þátt f fyrra þegar keppnin var hald-
in í fyrsta sinn. Þetta voru auk mín President Bongo og svo Raggi
úr Botnleðju sem sigraði í keppninni," segir Buckmaster úr Gus
Gus sem stendur að Tom Selleck-keppninni f ár. Hann segir að
það hafi lítið farið fyrir keppninni í fyrra
en úrslit hennar hafi verið fljót að
spyrjast út. Urðu þeir félagar varir
við mikinn áhuga á keppninni og
af þeim sökum verður hún haldin
með breyttu og stærra sniði f ár.
Unglingamottur velkomnar
„Keppnin verður haldin á Sirkus þann 24- júní næstkom-
andi og við sem tókum þátt f fyrra verðum allir með í ár. Svo
hafa margir bæst í hópinn og ég geri ráð fyrir að þetta verði
um 25 manns í það heila,“ segir Buckmaster og bætir við að
keppnin sé öllu veglegri heldur en hún var í fyrra. „Þetta er
alltaf að stækka í sniðum. Við verðum með dómnefnd og
kynni og allt saman í ár.“
Hvemig er dæmt í keppninni?
„Þetta fer bara fram eins og fegurðarsam-
keppni. Þátttakendur spóka sig um gólf —
staðarins og það er tekið tillit til ýmissa
hluta. Okkur finnst til dæmis ekki
verra ef mottan nær yfir efri vörina
eins og á Tom Selleck. Það geta samt
allir átt séns í keppnina enda gefin
stig fyrir ýmislegt. Unglingamottur
geta meira að segja gengið, svona
hýjungur," segir Buckmaster og
híær við.
Ætti að geta orðið spennandi
KEPPNI
Auk þeirra sem áður hafa verið
nefndir má búast við fjölda
þekktra þátttakenda. Nafn Jóns
Atla Helgasonar, hárskera á Gel,
hefúr heyrst í þessu samhengi og
það sama gildir um Harrý á Kaffi-
bamum að sögn Buckmaster.
„Þetta verður mikið af fólki úr
listageiranum og fólki í kringum
okkur. Svo höfúm við fengið fúllt
af fólki sem hcfur verið alskeggjað
lengi til að raka á sig mottu þetta
kvöld. Þetta ætti að geta orðið
spennandi keppni.“
Munið
umarleikinn
í blaðinu!
MmM
s^í|!®t
||g| , ,
Lífíð virðist aldrei vera tilgangslausara en
framan vídeórekkann og fínnur ekki neitt.
þegar maður stendur fyrir
-0
f ó k u s
4
I3.júní2003