Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2003, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2003, Blaðsíða 10
vrir vern < Músiktilraunir voru haldnarí 21. skipti í ár. Þessi plata. sem var tekin' upp á úrslitakvöldinu í Austurbæ, markar tímamót því að þetta er í fyrsta skipti sem plata með þátttakendum er gefin út. Hér eru Lokbrá, Heimskir synir, Dáðadrengir, Fendrix, Drain, Bet- lehem, Enn ein sólin, Doctuz, Danni og Dixielanddvergarnir.Still Not Fallen, Delta 9, Amos og Brutal. Platan inniheldur 14 lög, eitt lag með öllum þeim sem komust í úrslit, tekið upp á úrslitakvöldinu sjálfu og svo hljóðversupptöku af laginu Allar stelp- ur úr að ofan með sigursveitinni Dáða- drengjum. Tónlistin er nokkuð fjöl- breytt. Hér er bæði hip-hop, djass og elektró, en rokkið er samt ráðandi, 10 lög af 14 tilheyra rokkflórunni. Árið 2003 hentar vel til þess að fara af stað með útgáfu af þessu tagi þar sem ólíkt því sem stundum hefur gerst í sögu tilraunanna komust engar hand- ónýtar hljómsveitir í úrslit. Hins vegar vantar besta lagiö í ár, „Jesús er í Nin- tendo tölvunni minni", með Dáða- drengjum, en þeir eru væntanlega að geyma það fyrir sína fyrstu plötu sem kemur vonandi út seinna á árinu. Þessi plata er sérstaklega vel heppn- uð og eiguleg. Hljómurinn er góður og mikið lagt í umbúðir og alla vinnu viö útgáfuna. A.m.k. helmingur laganna hér er líka í háum gæðaflokki. í uppá- haldi hjá mér eru Dáðadrengir, Enn ein sólin, Doctuz, Amos, Brutal og Heimskir synir sem hljóma töluvert betur hér en á úrslitakvöldinu sjálfu. trausti júlíusson Langþráð og umtöluö sjötta hljóðvers- skifa Radiohead. Þetta er platan sem breska pressan hefur talað upp sem „OK Computer 2", platan sem lak á Netiö fyrir nokkru og platan sem Thom Yorke hefur kallað jákvæöustu plötu sveítarinnar i mörg ár. Radiohead mætir hér meö bestu plötu sína síöan OK Computer kom út. Eftir gerð OK Computer fengu Radiohead- liðar leið á hefðbundnu grtarrokki sem hafði verið aðal þeirra fram til þessa. Þess i stað komu Kid A og Amnesiac, tvær tik raunakenndar skifur þar sem liðsmenn stokkuðu upp hljóðfæráskipanina og léku sér að dans- og raftónlist. Hér blanda þeir saman hefðbundna gftarrokkinu og til- raunamennskunni sem einkenndi tvær sið- ustu plötur og gera það einstaklega vel. Frægt er orðið aö nafn plötunnar visar tii þess hvemig George Bush „stal sigrin- um" í forsetakosningunum í Bandarikjun- um. Thom Yorke segist hafa fylgst mikið með heimsmálunum undanfarið og er ekki alls kostar sáttur við framgang Bush og Blair og félaga. Platan var kláruð á sjö vikum sem er miklu skemmri tími en á siðustu plötum þar sem endalausar stúd- íópælingar töfðu útgáfuna. Það kunna að vera einhverjum vonbrigði að Radiohead skuli ekki mæta með aðra OK Computer. Ég er hins vegar ekki sammála því þessi blanda af gítarrokki og „óhefðbundnari' tónsmíðum gengur afar vel upp. Bestu lög eru 2+2=5, Sit Down. Stand Up, Sail To The Moon, there, There, I Will og Scatterbrain sem standa upp úr á annars frábærri plötu. höskuldur daðl magnússon Hér er komin endurútgáfa af hinni sí- gildu plötu Sonic Youth, Dirty frá 1992. Þetta er svokölluð „deluxe" út- gáfa sem er tvöföld og inniheldur, auk laganna 15 sem voru á upprunalegu útgáfunni, 8 b-hliðar, 12 áöur óútgefin lög frá hljómsveitaræfingum fyrir gerð plötunnar og bækling með margvísleg- um fróðleik um gerð hennar og timabil- ið sem hún tilheyrir. Dirty var pródúseruð af Butch Vig sem er þekktastur fyrir að hafa pródúserað Nevermind með Nirvana. Platan er að- gengilegri en margar aðrar plötur Son- ic Youth og inniheldur m.a. smáskifu- lögin 100%, Sugar Kane og Yopth Aga- inst Fascism. Ómissandi fyrir harða aðdáendur, en lika ágætis byrjunar- reitur fyrir þá sem vilja kynna sér hljómsveitina. Eitt af þvi jákvæða við MP3-downioad byltinguna er að plötufýrirtækin eru farin að leggja meira i einstakar útgáf- ur en áður. Platan sjálf verður eiguleg- ur hlutur, ekki bara tónlist (sem hægt er að sækja á Netið). Dirty er fyrst í röð deluxe-útgáfa með Sonic Youth. Næst koma Daydream Nation og snilldarverkið Goo. Góðar fréttir þaö! Sonic Youth er ein af höfuðsveitum tí- unda áratugarins. Dirty, sem er senni- lega poppaðasta Sonic Youth-platan, hefur elst ágætlega þó að hún sé kannski ekki besta plata sveitarinnar. Aukaefnið (sem Butch Vig pródúseraði ekki) er mjög bitastætt og sýnir vel hvaða áhrif Nirvana pródúsentinn hafði á sveitina. Fin plata og frábær útgáfa. trausti júlíusson skemmtileaar niðurstaða staðreyndir hva 8 plö^udómar H U£ r ’ ';- /v* M', Y Flytjandi: Radiohead ^lssvP! piatan: Haii SÚ Útgefandi: Par M“fimm . MHRJ Lengd: 56 37 SH ** 'Flífe'4^1 BB flSCAO ÍMiEúípSr'#; lophone/Skífan Flytjandi: Ýmsir Platan: Útgefandi: Hitt/Edda Lengd: 63:11 mín. Flytjandi: Sonic Youth Platan: Útgefandi: Geffen/Skífan Lengd: 139:55 mín. (2 diskar) S f r Y 0 0 N U 1 T " - 'J flSlfl Ekkert stöðvar 50 Cent Það virðist ekkert geta stöðv- að Queens rapparann 50 Ccnt. Hann hlaut nýlega 10 tilnefningar till Billboard hip-hop/röb verð- launanna sem afhent verða í ágúst og platan hans Get Rich Or Dte Tryin’ er langmest selda plat- an á árinu vestanhafs. Fram undan hjá honum er tónleika- ferð ásamt Jay-Z, en hún kemur við í 34 borgum f Bandarfkj- unum og er af mörgum talin stærsti viðburðurinn á tónleika- sumrinu vestanhafs. Hún á örugglega eftir að bæta nokkrum milljónum 50 senta inn á bankareikning þetrra fé- laga. Fyrir stuttu kom t verslanir nýtt DVD með 50 Ccnt. Það heitir The New Breed og auk myndefnisins fylgir geisladisk- ur með 3 nýjum tögum. DVÐ-ið sjáift er 2 tfmar á lengd og inniheldur heimildarmyndir, öll myndböndin ásamt þáttum um gerð þeirra, tónleika í Detroit o.f I. Flottur pakki. Það má svo að lokum geta þess að þessa dagana stendur Shady Records, plötufyrirtæki Eminem sem m.a. gefur út 50 Cent, fyrir söluátaki út um allan heim, þ.á m. hér á landi. Ef þú kaupir tvær af útgáfum fyrirtækisins færðu mix-disk í kaup- bæti. Á honum eru 8 lög með Eminem, DI2, 50 Cent og öðrum stjörnum Shady Records. Mikill markaðsmaður Eminem ... NÝ Maiden-plata oc DVD Iron Maiden er ein af vinsælustu þungarokkshljómsveitum síðustu ára. Hún er nú komin á fullt aftur eftir nokkurt hlé. Hún spilar víða í sumar, m.a. á Hróarskeldu, og ný plata sveitarinnar, Dance Of Death, kemur út 9. september. Þetta er 13. stúdíóplatan þeirra og inniheldur 11 lög. Aðdáendur sveitarinnar geta hitað upp fyrir nýju plötuna með tvöfaldri DVD-plötu, „Visions Of the Beast“, sem kom út í síðustu viku. Þessi nýja útgáfa inniheldur öll myndbönd sveitarinnnar, 31 talsins, og spannar allan ferilinn, allt frá hinu frumstæða Women In Uniform frá 1980 til Brave New World sem var tekið upp á frægum ofurtónleikum sveitarinnar á Rock In Rio-hátíðinni í Brasilíu f janúar 2001. Reyndar er stór hluti af myndböndun- um tekinn upp á tónleikum og þannig er hægt að fylgja sveitinni ígegnum marga ógleymanlega tónleika, t.d. Donn- ington 1988 og 1992. Á meðal 40 mín. aukaefnis eru Camp Chaos teiknimynda-útgáfur af 6 tögum og falið efni, en það hefur færst f aukana að setja falið efni á DVD-útgáfu. Leið- beiningar um það hvernig hægt er að finna það er yfirlcitt hægt að ná f á Netinu. Og líka ... Fyrrum Roxy Music-meðlimurinn og U2-pródúsentinn Brian Eno er búinn að gefa út nýja plötu. Hún heitir January 07003 Bell Studies For the Clock Of the Long Now og er einungis fáanleg á Net- inu, t.d. á www.enoshop.co.uk... Morrissey er farinn að vinna að nýrri plötu sem verð- ur hans fyrsta síðan Malajusted kom út árið 1997. Hún verður gefin út hjá fyrir- tækinu Attack Records, gömlu reggf útgáfufyrirtæki sem gaf út menn eins og I Roy og Gregory Isaacs á árunum 1969-1980 en hefur ekki verið starfrækt síðan. Morrissey mun Ifka gefa út efni með nýjum listamönnum að eigin vali ... Norah Jones er búin að hljóðrita 11 lög fyrir sfna næstu plötu sem kemur út á næsta ári. Hún lýsir þeim sem „heldur hraðari og meira fönkT’ en lögin á fyrstu plötunni ... San Francisco raf-dúettinn Matmos, sem er að spila með Björk í sumar, er búinn að klára nýja plötu. Hún á að heita The Civil War og kemur út hjá Matador 23. september... Finlay Quaye er tilbúinn með sína þriðju plötu. Hún kemur út í september og heitir Much More Than Much Love ... 60's dúóið Lee Hazelwood og Nancy Sinatra, sem gerði lög eins og Some Velvet Morning og Summer Wine fræg, kom aftur saman í vetur og tók upp nýja plötu... Á safnplötunni 1993-2003 með Chemical Brothers, sem kemur út í haust, verður nýtt lag, The Golden Path, sem þeir gerðu með The Flaming Lips ... Englendingurinn Kieran Hebden, öðru nafni FourTet, er örugglega einn af athyglisverðustu tónlistarmönnum dagsins í dag. Trausti Jöll- usson kynnti sér kappann nýlega þegar hann sendi frá sér plötuna Rounds sem Radiohead valdi fyrir stuttu bæði til að endurvinna lag af Hail To the Thief og til að hita upp fyrir sig á tónleikum. Framsækhnog feskur „Mesta óvirðing sem þú getur sýnt tónlist sem þú dáir er að herma eftir henni,“ segir enski tónlistarmaðurinn Kieran Hebden, öðru nafni Four Tet, í nýlegu viðtali. Það heyrist vel ef hlustað er á nýju plötuna hans, Rounds, að hann lifir eftir þessu mottói. Tónlist dagsins í dag einkennist að mjög miklu leyti af endurgerð á tónlist fyrri ára. Þetta á við um nýju rokk- bylgjuna, hvort sem við erum að tala um Strokes, Hives, Yeah Yeah Yeahs eða Interpol og þetta á við um electro clash tón- listina sem hefur verið áberandi í danstónlistar- heiminum undanfarna mánuði. Það getur verið mjög skemmtilegt að upp- færa gamla tónlist til nýrra tíma, en það er líka nauð- synlegt að heyra eitthvað alveg nýtt og ferskt. Four Tet platan Rounds fellur undir það síðamefnda. 36 mInútna smáskífu- LAG OG DJASSSKOTINN FRUMBURÐUR Eins og áður segir heitir Four Tet réttu nafni Kieran Hebden. Hann er 25 ára Englendingur, gítarleikari í síð-rokk sveitinni Fridge sem varð til á menntaskóla- árum hans og hefúr gefið út nokkrar ágætar plötur, t.d. hina ágætu Happiness sem kom út fyrir tveimur árum. Four Tet varð til árið 1997 þegar aðrir meðlimir Fridge, þeir Adem Ilham bassa- leikari og Sam Jeffers trommuleikari voru önnum kafhir i öðrum verkefhum. Kieran hafði keypt sér tölvu fyrir námslán sem hann fékk og var byrjaður að fikta við að sampla. Hann hafði alltaf verið áhugasamur um hip-hop tónlist, en það var áhugi sem hinir meðlimir Fridge deildu ekki með honurn. Hann fór að prófa sig áfram með tölvuna og blandaði m.a. saman hljóð- brotum sem hann sótti á Netið og órafmögnuðum hljóðfærum. Ur þessu varð mjög nýstárleg blanda sem var bæði ffamtíðarleg og hlý og hlaut seinna viðumefhið „folktronica". Fyrstu tvær smáskífumar sem Four Tet gaf út, Thir- tysixtwentyfive (sem innihélt 36,25 mín. langt lag) og Misnomer voru báðar valdar smáskífur vikunnar hjá NME. Þær komu út hjá plötufyrirtæk- inu Output sem er rekið af Trevor Jackson. Það gerði líka fyrsta stóra patan, Dialogue. sem kom út árið 1999. Á henni blandaði Kieran saman nútíma-djass sömplum, hörpuleik og ýmsum óvanalegum hljóðbrotum. Útkoman þótti mögnuð. Kieran Hebden er nýbúinn að senda frá sér sfna þriðju plötu sem Four Tet. Hún hefur fengið frábaera dóma og er af ýmsum talin ein af plötum ársins hingað til. Folktronica-stimpillinn. Næsta plata, Pause, kom svo út hjá Domino árið 2001. Hún var mjög folk-skotin og það var með henni sem folktronica nafnbótin náði fótfestu. I framhaldinu fóru poppskrfbentar að draga ýmsa aðra raftónlistarmenn í sama dálk, t.d. Manitoba, Lali Puna og Gorodisch and the Memory Band, en allir eiga þessir tónlistarmenn það sameiginlegt að þó að þeir noti tölvur og séu kenndir við raftónlist er hljómurinn hjá þeim hlýr og mannlegur, en ekki kaldur og vélrænn. Orðspor Kierans fór mjög víða eftir útkomu Pause og ýmsir tónlistar- menn fengu hann til þess að remixa fyrir sig. Þar á meðal má nefha Aphex Twin, David Holmes, Cinematic Orchestra, Beth Orton og Badly Drawn Boy. Kieran teng- ist BDB reyndar meira því að hann spilaði á bassa á tónleikaferðalaginu sem sá síðamefndi fór í kjölfar Hour Of the Bevilderbeast plötunnar. Hann var líka fenginn til þess að spila á tónleikaferð með Super Furry Animals og þegar Radiohead prófuðu efnið sem átti að fara á Hail To the Thief á tónleikum á Spáni og f Portúgal f fyrra- sumar fengu þeir Four Tet til að hita upp. Þeir fengu hann svo aftur til að spila með sér á nokkrum tón- leikum f vor og hann á að remixa a.m.k. eitt lag af Hail To the Thief. Besta platan hingað TIL. Nýja platan, Rounds, þykir best heppnaða Four Tet platan hingað til. Á henni segir Kieran að hluta til skilið við folktron- ica hljóminn og heldur á nýjar og áður ókannaðar slóðir. Platan sameinar hið framsækna - frumleg hljóð og takta og óvenjulegar samsetningar og eitthvað sem höfðar strax til flestra - fallegar melódíur og vel gerðar lagasmíðar. Rounds hefur fengið vægast sagt frábæra dóma, t.d. fullt hús í Uncut og 9 af 10 mögulegum í NME og dotmusic. Eftir tónleikana með Radiohead fór hann svo í tónleikaferð um Bandaríkin ásamt nokkrum öðrum framvörðum úr tilrauna- deildinni, Scott Herren (öðru nafni Prefuse 73), Dan Snaith (öðru nafni Manitoba) og Boom Bip. Ekki slæmur félagsskap- ur það! 10 I3.júní2003

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.