Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2003, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2003, Blaðsíða 15
í kvöld fagnar Smekkleysa i6 ára afmæli sínu með opnun sýningar í Listasafni Reykjavíkur sem fengið hefur heitið Humár eða frægð. Þar verða dregnir fram ýmsir munir og myndir sem ekki hafa litið dagsins Ijós í þónokkurn tíma. Rokkbelja og sokkar í flösku Einar Öm Benediktsson, fyrr- verandi Sykurmoli og einn eig- enda Smekkleysu, segir nafn sýn- ingarinnar vera beina tilvísun í sönglagatexta eftir Sykurmolana. „Nafnið Humar eða ffægð kemur úr lagi sem heitir Regína. Þar sagði orðrétt: „Ég vil ekki humar eða frægð.“ Þessi sýning fjallar í raun og veru um sögu og aðdrag- anda Smekkleysu. Þar með erum við komin aftur til ársins 1981. Þetta er sögusýning þar sem fjall- að er um Tappa tíkarrass, Purrk pillnik, Medúsu og Kukl og allt eftir það.“ YFIR 100 HUÓMSVEITIR Á 17 ÁRUM „Á sýningunni eru dregnir fram ýmsir munir frá þessum tíma, myndir og minningar. Ólaf- ur Engilbertsson sýningarstjóri hefúr séð um það. Rokkbeljan fræga er meðal þess sem dregið er fram í dagsljósið en hana bjugg- um við til á einum tónleikunum. Hún var kvödd á veitingastaðn- um Safarí fyrir allmörgum árum, dregin frarn í kistunni sinni og haldin vegleg útför við undirleik Sykurmolanna. Auk hennar er á sýningunni að finna sokka r flösku og ýmislegt fleira." Smekkleysa hefur gefið út efhi eftir yfir 100 hljómsveitir undan- farin 17 ár og því koma margir við sögu á sýningunni. „í tengsl- um við sýninguna hefur verið tek- in saman bók þar sem er að finna ýmis minningabrot þeirra sem hafa tengst Smekkleysu í þessi 17 ár. Þetta er hálfgerð sýningar- skrá.“ Sekur saklaus Spurður um ástæður þess að Smekkleysa ákvað að halda sýn- ingu til að halda upp á afmælið, í stað þess að halda tónleika eða grilla pylsur, segist hann oft ekki vita hvemig hlutimir fari í gang. „Við byrjuðum að halda upp á þetta með því að gefa út geisladisk f fyrra sem hét Alltaf sama svínið. Svo vatt þetta upp á sig og allt í einu var komin sýning inn á borðið. Það er svo oft sem maður veit ekkert hvemig hlutimir byrja, þeir eru bara allt í einu komnir í gang. Síðan stendur maður sekur saklaus eftir." Sýningin í Listasafhinu er opin daglega til ágústloka. Jón Atli Helgason, Kirk Hammett, hátrsnyrtir og bassaleikari. gítarleikari í Metallicu. * f- t'

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.