Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2003, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2003, Qupperneq 12
NOFX, Sasha oc Atmosphere á Gauknum Næsta vika verður viðburðarík í tónleika- og skemmtanalífinu í Reykjavík. Á mánudags- kvöldið verða tveir stórir viðburðir og annar á fimmtudagskvöldið 19. júní. Héma ættu flestir að finna eitthvað við sitt hæfi því atburðimir eru allir úr mismunandi geirum. Á mánudagskvöld- ið spilar bandaríska pönksveitin NOFX á Gauknum í tilefni af 10 ára afmæli X-ins. Til upphitunar em Innvortis og Brain Police. Hús- ið opnar klukkan 20 og forsala miða er í Skíf- unni. Klúbbafólk fær líka eitthvað fyrir sinn snúð á mánudagskvöldið og vel það. Þá mætir hinn of- urffægi plötusnúður, Sasha, og skemmtir á Gauknum eins og honum er einum lagið. Sasha er þekktur um allan heim og viðumefhið „Son- ur guðs“ segir allt sem segja þarf um drenginn. Hann var fyrsti plötusnúðurinn til að gera mix- disk sem gekk svo vel að hann braut ísinn fyrir þessa nýju tegund safnplata. Sem pródúsent og endurhljóðblandari hefur hann gefið ffá sér yfir 100 smáskífur og eina breiðskífú og unnið með listamönnum eins og Madonnu, Pet Shop Boys, Simply Red, Chemical Brothers og Gus Gus. Grétar G hitar upp fyrir drenginn á mánu- dagskvöldið, forsala miða er hafin í Þrumunni. Verðið er 2.500 krónur en 2.900 við hurð. Sasha hefur leik eff ir miðnætti. Að síðustu er ein af heitari rapphljómsveitum heims í dag á leið hingað til lands. Átmosphere mætir hingað ásamt Blueprint (Soul Position) og Mr. Dibbs og treður upp á Gauknum á fimmtudagskvöldið í næstu viku. Fróðir menn segja að þetta verði eitt af betri hip-hop kvöld- um sumarsins. Húsið opnar klukkan 21 og er opið til 1 eftir miðnætti. Til upphitunar eru For- gotten Lores og Twisted Mindz Crew. Miðaverð er 1.500 krónur og aldurstakmarkið er 18 ár. Fyrir þá sem ekki komast á tónleikana verða Atmosphere og félagar í versluninni Voka í Smáralind klukkan 16 á fimmtudeginum, taka nokkur lög og gefa eiginhandaráritanir. Jacúar fagnar þjóðhátíð Hljómsveitin Jagúar ætlar að fagna þjóðhátíð- ardegi íslendinga og svala fúnk- og diskóþyrst- um Islendingum með spilamennsku í Þjóðleik- húskjallaranum á mánudag, aðfaranótt 17. júní. Það er vissara fyrir áhorfendur að drífa sig á stað- inn því ekki er ljóst hvenær Jagúar leikur aftur vegna mikilla anna. Á morgun verða strákamir staddir í Hollandi þar sem þeir fá gesti Mundial-tónlistarhátfðar- innar til að hrista sig en undanfarna mánuði hafa þeir verið önnum kafhir við spilamennsku víðs vegar um Evrópu, meðal annars á Jazzcafé í London, Moods í Zúrich og ABConcerts í Brussel. í sumar er annað eins ffam undan en þá munu meðlimir hljómsveitarinnar leika á Swingin’ Groningen og Gentse Feesten tónlist- arhátíðunum á milli þess sem þeir loka sig inni í hljóðveri við upptökur á nýrri plötu sem kem- ur út í haust. Eigendur Café Victors, Sólons og Galíleós hafa fest kaup á Thorvald- sen og eru þar með orðnir einn stærsti aðilinn í veitingahúsa- og skemmtistaðabransanum. fildrei hættir Sögusagnir hafa verið um að eigendur Café Victors hafi fest kaup á Thorvald- sen og skemmtistaðnum Felix sem áður hét Sportkaffi, en báðir staðimir voru í eigu SkjásEins-gengisins svokallaða. Tómas Kristjánsson, Tommi, einn fjögurra eigenda Café Victors, sagði í samtalið við Fókus að aðeins hálf sagan væri sönn. Þeir félagamir hefðu ekki keypt Felix og sögusagnir um það væru algjörlega úr lausu lofti gripnar. Hins vegar hefðu þeir keypt Thorvaldsen. Fyr- ir eiga fjórmenningamir Sólon og veit- ingastaðinn Galíleó auk Café Victors og eru því orðnir einn stætsti aðili á þessu sviði á landinu. Tommi segist þó ekki halda að með nýjustu viðbótinni hafi þeir verið að fara í samkeppni við sjálfa sig. „Ef við hefðum ekki keypt Thorvaldsen hefði einhver annar gert það og kúnnahópamir em mjög ólíkir á þessum fjómm stöðum. Þeir styrkja hver annan ef eitthvað er. Rekst- ur sem þessi er áhættusamur, eins og reyndar allur rekstur, þetta fer upp og niður.“ Tommi segir Thorvaldsen vera ungan stað sem bjóði upp á mikla mögu- leika. „Það er búið að vera mikið að gera á þessum stað frá upphafi og það verða eng- ar áherslubreytingar af okkar hálfú. Vð ætlum bara að „sjæna“ þetta upp í róleg- Fjórmenningarnir sem stofnuðu Café Victor fyrir fjórum árum hafa stöðugt bætt við sig stöðum og nú síðast Thorvaldsen Bar. heitum og laga til það sem þarf að laga.“ hættur. Ef skemmtileg tækifæri bjóðast Tommi útilokar ekki að þeir félagar skoðar maður þau alltaf." eigi eftir að færa kvíamar enn meira út á komandi misserum. „Maður er aldrei Það tók meira en hálft ár að framleiða myndbandið og loksins þegar það var tilbúið mátti ekki sýna það. Fólk fær því ekki að sjá nýja Rottweiler-myndbandið í sjónvarpi en það er komið á vefinn. Blautt malbik á vefnum Við sögðum frá því í Fókusi fyrir mán- uði að von væri á langþráðu myndbandi ffá XXX Rottweiler við lagið Blautt mal- bik. Myndbandið hafði verið í ffamleiðslu frá því sxðasta haust eða vel yfir hálft ár og því margir famir að hlakka til að sjá það. Hundunum hafði verið lofað að mynd- bandið yrði sýnt í 70 mínútum en hætt var við það og það fæst nú hvergi sýnt. Er það vegna hótana um lögfræðiaðgerðir af hálfú stúlku sem lék í myndbandinu. Rottweilerhundamir hafa nú gefist al- farið upp á þessu veseni og hægt er að sjá myndbandið á www.kvikmynd.is... Nýja Rottweiler- myndbandið fæst ekki sýnt vegna þess að ein stúlkan sem lék f því vildi eftir á ekki að hún sæist t því. Stúlkan á myndinni er þó ekki eins feimin og þið getið séð meira af henni á www.kvikmynd.is. Sumarleikurinn vinsæll Sumarleikur Vokal í Smáralind, Sport- hússins og Fókus hefur farið vel af stað. Góð þátttaka var fyrstu vikuna og það eru augljóslega margir sem vilja tryggja sér veglega vinninga. Vinningshafar fyrstu vikuna voru Sólveig Anna Þorvaldsdótt- ir, Guðjón Ingi Sigurðsson og Ingibjörg Antonsdóttir og hafa þau unnið sér inn 5.000 króna úttektir í Vokal og Sport- húsinu. Leikurinn heldur áffam f allt sumar og í hverri viku verða dregnir út sams konar vinningar og í sumarlok fara allir þátttakendur í pott þegar dregið verður um lokavinninginn. Það eina sem fólk þarf að gera er að fylgjast með í Fókus í hverri viku og svara laufléttum spum- ingum með sms-i. í tengslum við leikinn mun hip-hop hljómsveitin O.N.E. koma fram í Vokal í Smáralind á morgun, laug- ardag, klukkan 15. Fyrstu þrfr vinningshafarnir hafa verið dregnir út og fengur þeir sooo króna úttektir íVokal og Sporthúsinu. 12 I3.júnf2003

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.