Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2003, Page 12
lafur Páll Torfason (Opee) gekk til liðs við
uarashi í byrjun sumars og Mess it up,
n*sta lag hans með hljómsveitinni, hefur
áð miklum vinsældum. Hann er ekki nýr í
ransanuin því hann hefur rappað með
jómsveitinni O.N.E. um árabil. í viðtali
ð Fókus talar Óli um útskriftarferð til
tar, Quarashi, Menntaskólann í Reykja-
, þunglyndi og þyngdarsveiflur.
„Þessa dagana er ég bara að dunda mér með Quarashi og
O.N.E. en við erum að vinna að íyrstu plötunni okkar, One
Day," segir Óli, spurður um atburði liðinna daga. „Bara að
vinna mína tónlist og að lifa lffinu, skemmta mér og
djamma. Ég var að koma úr útskriftarferð til Krítar en ég út-
skrifaðist frá MR í vor. Áður en ég fór út var ég að vinna hjá
gatnamálastjóra við að slá gras á umferðareyjum og víðar.
Svo vinn ég í sjoppu á sunnudögum til að eiga peninga fyrir
kóki, símanum og sígó. Það er ágæt þynnkuvinna."
Oghvemig var ferðin? Einhverjar krassandi sögur?
„Ferðin var nákvæmlega eins og allar útskriftar-
ferðir eiga að vera, allir að drekka mikið og
allir með öllum. Ég vil fara varlega í sögurnar
en án þess að nefna nein nöfn get ég sagt þér
að einn úr hópnum endaði með tveimur
nórskum hnátum niðri á strönd strax á þriðja
degr. Það var mikið um svoleiðis „aktívítet" en
ég kem ekki nálægt slíku," segir Óli, glottandi.
Suarti sauðurinn i fjölskyldunni
ÓIi er á náttúrufræðibraut 2 í MR sem er að
hans sögn auðveldasta brautin. „Það er bara
svona þegar metnaðurinn liggur annars staðar.
Það væri kannski öðruvísi ef maður væri búinn
að fmna eitthvað sem mann langar virkilega að
læra.
MR var „hell" fyrst en hefur batnað eftir að ég
kynndst krökkunum. Ég elti ekki vinina eins og
margir gera heldur fór í þennan blessaða skóla til
að virða fjölskylduhefðina. Ég ætlaði alltaf annað
en endaði þarna enda hefði ég annars verið álit-
inn svarti sauðurinn í fjölskyldunni. Kannski sá ég
samt bara til þess með því að verða rappari!"
Óli bætir því við að MR sé líka næst heimili hans en hann
er fæddur og uppalinn í Vesturbænum. „Ég hef búið í 107
alla mína ævi og mun ekki flytja þaðan. Maður fer ekkert af
hótel mömmu fyrr en maður þarf þess. Fyrir utan það á ég
enga peninga," segir Óli og hlær.
Hvað með allar Quarashi-milljónirnar?
„Sá hluti tónlistarmennskunnar er stórlega ofmetinn á ís-
landi og mér finnst alltaf jafnfyndið þegar fólk spyr mig
hvort ég hafi ekki mikið upp úr henni."
Fauk ef einhuer hnenaði
Óli segist reikna með því að enda í Háskóla íslands, í hug-
vísindadeild, næsta haust. Þar ætlar hann að reyna að kom-
ast til botns í eigin vandamálum. „Ég er þunglyndur og mér
er alveg sama þótt þú nefnir það í blaðinu. Eg vil tala opin-
skátt um þetta. Einhver sagði einhvern tímann að maður
gerði ekki góða tónlist nema þegar maður væri óhamingju-
samur. Tónlistin hefur alltaf verið mitt tjáningarform og
hefur eiginlega verið mín meðferð við þungíyndinu í langan
tíma. Það gekk upp þangað til botninum var náð um síðustu
jóL"
Óli segist líka stefna á að koma sér í gott form. „Ég hef
bara tekið gömlu góðu harmoníkuna í þeim efnum. Grenn-
ast í sex mánuði og fitna í sex. Hef aldrei náð að halda mér í
sömu þyngd. Ég tók syrpu fyrir ári og fór þá úr því að vera 70
kg í að vera 56 kg ræfill. Ef einhver hnerraði nálægt mér fauk
ég. Svo heyrði ég seinna að fólk hefði haldið að ég væri kom-
inn í neyslu svo þetta er nokkuð sem ég mæli ekki með ..."
Treystir ekki á rappið
Rapparar í háskóla passa einhvern veginn ekki inn f
staðalfmyndina en Óli segist hafa verið ákveðinn í því frá
upphafi ferilsins að drífa framhaldsskólann af og fara í há-
skóla. „Það borgar sig ekki að loka neinum dyrum fyrir
framtíðina. Það er fínt að rappa en það er ekki neitt sem
maður treystir á að geta hafa framfæri af í framtíðinni. Að
lifa af tónlistinni er erfiðara en að vinna í lottóinu."
Er ekki hálíþartinn eins ogað vinna ílottói að fá tækifæri
til að rappa með Quarashi?
„Jú, þetta er mjög gott tækifæri og ég hef lært eitthvað
nýtt á hverjum degi, hluti sem ég hefði ekki getað lært ann-
ars staðar. Þessir menn eru snillingar. Þeir hafa verið í þessu
svo lengi og eru „prófessjónal" á öllum sviðum," segir Óli
sem vill samt ekki meina að líf sitt hafi tekið stakkaskiptum
við samstarfið. „Ég hef ekki tekið eftir neinum miklum
breytingum við það að vera kominn í sviðsljósið. Það var
helst um daginn þegar einhver kona kom upp að mér með
strákinn sinn, sagði að „Mess it up“ væri uppáhaldslagið
hans og bað mig um að heilsa honum. Hann hefur verið
svona fjögurra ára. Mér fannst það flott. Annars reyni ég
bara að spá ekki mikið í athyglina af því að það er tónlistin
sem skiptir máli."