Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.2003, Side 13
FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 2003 FRÉTTW 13
Gáfu Geðhjálp 50 þúsund
GÓÐGERÐAMÁL Á um-
dæmisþingi Kiwanisum-
dæmisins fsland-Færeyjar,
30. ágúst var samþykkt að
styrkja Geðhjálp um 50
þúsund krónur í tilefni Við-
eyjarsunds bræðranna Jó-
hannesar Páls og Ara Gunn-
arssona. Þeir syntu til minn-
ingar um bróður sinn og
söfnuðu um leið áheitum til
styrktar Geðhjálp. Tók Sig-
ursteinn Másson, formaður
Geðhjálpar, við styrknum.
Voru honum einnig afhent
1000 eintök af Lífs-vísi sem
er í bókamerkisformi og
hefur að geyma leiðbein-
ingar til að sporna gegn
sjálfsvígum. Lífs-vísirinn er
unninn í samstarfi við Land-
læknisembættið.
NYTSAMLEG BÓK: Ásmundur G. Vilhjálmsson með bók sína um skatt á fyrirtæki sem nýtkomin er út. Bókin er hugsuð sem uppflettirit og
handbók fyrir atvinnulífið þar sem meginmál er stutt neðanmálsgreinum sem hafa að geyma eitt þúsund dóma og úrskurði í
skattattamálum. DV-mynd Pjetur
Ný bók um skatt á fyrirtæki eftirÁsmund G. Vilhjálmsson:
Allra fóta
Heildsölu ^ ^13
dreifing Jtfg
Snyrtistofan °9 allra handa áburður
HRUND simi: 5544025
Eykur réttaröryqgi
í skattamálum
Ásmundur G. Vilhjálmsson, hér-
aðsdómslögmaður og forstöðu-
maður skattasviðs endurskoð-
unarfyrirtækisins GrantThorn-t-
on, hefur skrifað bókina Skattur
á fyrirtæki sem nýkomin er út.
„Þetta er handbók fyrir atvinnu-
lífið, uppflettirit sem getur komið
öllum þeim sem koma að bókhaldi
og skattamálum fyrirtækja í góðar
þarfir, sem og einstaklingum. í
bókinni eru yfir eitt þúsund dómar
og úrskurðir í skattamálum í neð-
anmálsgreinum sem tengjast beint
efni bókarinnar. Á þann hátt getur
notandinn lesið um raunveruleg
dæmi þar sem t.d. hefur komið upp
ágreiningur um frádráttarliði, eitt
helsta ágreiningsatriði sem upp
kemur varðandi fyrirtæki og
skatta," sagði Ásmundur í samtali
viðDV.
Bókin skiptist í þrjá hluta. Fyrsti
hluti fjallar um hugtakið atvinnu-
rekstur, hvaða tekjur tilheyra hon-
um og hvenær. f öðrum hluta er
fjallað um frádrátt frá tekjunum, al-
mennan rekstrarkostnað og af-
mörkun hans gagnvart útgjöldum
sem ekki má draga frá tekjum eins
og einkakostnaði og fjármuna-
kostnaði. Loks er fjallað ítarlega um
skattlagningu einstakra fyrirtækja-
forma eins og hlutafélaga, sam-
eignárfélaga og einstaklingsfyrir-
tækja og skattfrjálsa umbreytingu
þeirra úr einu rekstrarformi í ann-
að.
Bókin eykur réttarör-
yggi í skattamálum þar
sem fólk er ekki algjör-
lega upp á skattayfir-
völdkomið varðandi
skilning og túlkun á
skattalögum.
Ásmundur segir bókina í raun
byggða upp eins og rekstrarreikn-
ing. Neðanmálsgreinamar styðja
meginmálið en sem dæmi má taka
tilvitnanir í dóma og úrskurði um
frádráttarliði eins og veiðiferðir,
venjulegan kiæðnað, áfengiskaup,
líkamsrækt, förðun og fleira.
„Bókin er á venjulegu íslensku
máli og neðanmálsgreinar með
dómum og úrskurðum setja efnið í
samhengi og auðvelda notandan-
um að skilja það. Menn geta ein-
faldlega raldð sig áfram í úrskurð-
unum. Ef fyrirspurn kemur frá
skattinum má í einu vetfangi sjá
hvaða afgreiðslu slík mál hafa feng-
ið. Bókin eykur réttaröryggi í
skattamálum þar sem fólk er ekki
algjörlega upp á skattayfirvöld
komið varðandi skilning og túlkun
á skattalögum.1'
Með vefsíðu
Það er fyrirtækið Skattvís sem
gefur bókina út en Ásmundur
stofnaði það sérstaklega um útgáf-
una. Fyrirtækið er með vefsíðu,
www.skattvis.is, þar sem finna má
margvíslegan fróðleik um skatta-
mál. Þar er einnig skattagetraun
sem áhugasamir geta spreytt sig á
með von um verðlaun.
Ásmundur hefur áður gefið út
bækur og ýmis rit um skattamál. En
hvað rekur hann áfram?
„Ég græði ekki mikið á þessu.
Þótt bókin seljist vel fæ ég lítið fyrir
þá vinnu sem ég inni af hendi en
svona bók er lengi í smíðum. Þvf
má segja að ég hugsi frekar um að
fræða en græða. Annars á ég heil-
mikið efni, t.d. í bók um skatt á ein-
staklinga," segir Ásmundur og bæt-
ir við að framtíðarútgáfumál séu
enn óráðin.
hth@dv.is
Nýtt heimilisfang
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið
flytur í Skuggasund
(áður húsnæði Hagstofu íslands)
19.septembernk.
Afgreiðslan verður lokuð þann dag,
en svarað verður í síma: 545 9000.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið
Skuggasundi 150Reykjavík
sími: 545 9000 bréfasími: 552 7340
netfang: postur@dkm.stjr.is
www.domsmalaraduneyti.is
Útlandasímtöl
5
frá kr. ,90 á mín.
úr heímilissíma
He»im£» • fyrírframgreidd símaþjónusta
HPlms-rr-lSí
Aittað/upto 200M,nútUf/MlnuteS
ntln
kr. 1000,-
300 mmutas to Germany. Swcdcn. UK. usa
international Calling Card
Co :o tne weosite www.sínwköi’tJs for rate tabie to otner ccuntnes
A neimasfíhjnni y.vAv s!makort is er 3ð finna gjaiasKra t« annarra Santw.
Hringiö mjög ódýrt til útlanda úr
heimilissíma í heimilissíma
Fæst hjá flestum:
Bensínstöðvum
Matvöruverslunum
Söluturnum
www.simakort.is