Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.2003, Side 16
16 TILVERA FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 2003
+
FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 2003 TILVERA 17
Tílvera
Fólk ■ Heimilið •_ Dægradvöl
Netfang: tilvera@dv.is
Sfmi: 550 5824-550 5810
Madonna tilbúin að leggja í
KOSSINN BLAim: Madonna segist
reyna að halda börnunum frá kláminu.
Hin léttgeggjaða Madonna,
sem kynnti nýja barnabók sína
um síðustu helgi, segist stað-
ráðin í að eignast sitt þriðja
barn þó hún sé orðin 45 ára.
Hún neitar því þó að vera ófrísk
og segir að hún og eiginmaður-
inn Guy Ritchie, sem er um tíu
árum yngri, séu að undirbúa
ílögnina en fyrst verði hún að fá
grænt Ijós frá lækninum sínum.
„Vegna allra æfinganna og
vegna hins og þessa þá hef ég
eiginlega fokkað upp öllum
tíðahringnum hjá mér og þarf
því fyrst að fá þau mál í lag áð-
ur en iengra verður haldið,"
sagði Madonna sem nýlega
hneykslaði heimsbyggðina
þegar hún kyssti Britney Spears
einn blautan á MTV-verðlauna-
hátíðinni.
Aðspurð hvort slíkt athæfi væri
við hæfi hjá tveggja barna
móður, sagðist Madonna vilja
vernda börnin sín fyrir öllu sem
héti öfgafullt kynlíf eða klám,
einkum þó dóttur sína Lourdes,
sem væri sjö ára. „Ég hef sagt
henni hvaðan börnin koma en
læt það duga þartil hún verður
eldri," sagði Madonna.
Nicole Kidman bítur frá sér
Destiny's Child á leið í hljóðver
Óskarsverðlaunaleikkonan Nicole
Kidman er hreint ekki hrifin af
vangaveltum fjölmiðla í Bretlandi
undanfarnar tvær vikur um
holdafar hennar. Nicole þykir svo
mögur að ástæða sé til að ætla
að eitthvað meira en lítið sé að.
„Vissuð þið að ég var skinn og
bein og á grafarbakkanum? Ég á
kannski ekki kærasta um þessar
mundir og blöðin hafa því ekkert
að skrifa um. En þau finna alltaf
eitthvað," er haft eftir Nicole.
Vangavelturnar um heilsufar
leikkonunnar byrjuðu eftir að
mynd birtist af henni á leið úr
leikhúsi í New York. Greinilegt var
að hún hafði lagt töluvert af og
var þá kannski ekki af miklu að
taka. Haft hefur verið eftir vinum
Nicole að hún sé ekki nema 48
kíló að þyngd. Þessir sömu vinir
hafa áhyggjur af því að hún vinni
svo mikið að hún gleymi hrein-
lega að setjast niður og fá sér að
borða.
AðdáendurTexas-stúlknanna í
Destiny's Child hafa fagnað yf-
irlýsingu hinnar forkunnar-
fögru Beyoncé Knowles um að
þær stöllurnar séu á leið í
hljóðver. „Destiny's Child fer
aftur í hljóðver í janúar," segir
Beyoncé. Og finnst mörgum
tími til kominn. Stúlkurnar hafa
ekki tekið upp nýtt efni saman
síðan á árinu 2001 þegar þær
gáfu út plötuna Survivor.
Söngkonurnarfóru hver sína
leið undir árslok 2001 til að
freista gæfunnar á eigin spýtur
og hefur það gengið svona
upp og niður.
Á meðan sveitin var upp á sitt
besta naut hún gífurlegra
vinsælda, ekki bara í
heimalandinu heidur úti um
allar trissur.
Þægilegt ogfrjálst
íbland við hefðina
NARCISO RODRIGUE2: Þessi
glæsilegi kvöldkjóll er hannað-
ur af Narciso Rodriguez.
SUNDFÖT:
Sundfatatískan
tekur ekki
miklum breyt-
ingum, eins og
þessi hönnun
Luella Bartley
sýnir.
Þessa dagana stenduryfir tískuvika í New York þar sem tískuhönnuðir sýna
hönnun sína fyrir næsta sumar. Margir hönnuðir
hafa látið Ijós sitt skína og margir eiga eftir
að sýna hvað í þeim býr en tískuvikunni
lýkur um helgina. Eins og ávallt er
klæðnaðurinn jafn mismunandi
og höfundarnir eru margir.
Þarna hefur getið að líta frjáls-
legan klæðnað frá Kimora Lee
r Simmons einn daginn og
svo hefðbundinn og klass-
ískan klæðnað frá Calvin
Klein næsta dag. Umsagnir
um tískuna hafa verið mis-
f' jafnlega jákvæðar; sumum
er hælt og sumum ekki. Hér
gefur að líta dálítið sýnishorn af
fatnaðinum.
CALVIN KLEIN: Mínipils og jakki í stíl.
PÁFUGLSFJAÐRIR: Alek Wek heitir módel-
ið sem ber þetta sérkennilega höfuðdjásn
sem gert er úr páfuglsfjöðrum.
BUGS
BUNNY: Það
er ekki Play-
boy-kanínan
sem er á
bolnum
heldur gamli
góði Bugs
Bunny.
KIMORA LEE SIMMONS: Satínpils og opinn
fjaðratoppur.
GLÆSILEIKI: Calvin Klein er þekktur fyrir glæsilegan fatnað og
hann brást ekki aðdáendum sínum frekar en fyrri daginn.
Tískuvikan íNewYork:
LUELLA BARTLEY: Léttur sumarklæðnaður,
buxur og opin skyrta, hannað af Luella
Bartley.
NÁTTKJÓLAR: Glæsileg náttföt hönnuð af
Betsy Johnson.
Bíófrumsýningar:
Stormviðri, viðburðaríkur
föstudagurog vondir strákar
Fjórar ólíkar kvikmyndir verða frum-
sýridar á morgun. Stormviðri er ís-
lensk/frönsk kvikmynd sem vakið
hefur mikla athygli, Freaky Friday er
um kostulegar mæðgur, Bad Boys II er
ein af stórum framhaldsmyndum
sumarsins og Alex og Emma er fyrir
rómantískar sálir
Stormviðri
Sólveig Anspach vakti fyrst athygli
fyrir fjórum árum þegar hún sendi
frá sér Haut le coeurs. Með nýjustu
kvikmynd sinni, sem er ís-
lensk/frönsk, hefur hún vakið enn
meiri athygli, en myndin hefur að-
eins verið sýnd á kvikmyndaháú'ð-
um þar til nú að hún er tekin til al-
mennra sýninga á íslandi. Myndin
fjallar um samband fransks geð-
læknis við einn sjúkling sinn sem
reynist vera íslenskur. Það er skáld-
konan Didda Jónsdóttir sem leikur
sjúklinginn. Franska leikkonan
Elodie Bouches leikur lækninn.
BAD BOYSII: Will Smith og Martin
Lawrence leika vondu strákana.
Bad Boys II
Þeir eru mættir aftur, Mike
Lowrey og Marcus Bennett sem
gerðu garðinn frægan f Bad Boys.
Nú stjóma þeir hópi lögreglumanna
sem rannsaka cilsælu-flæði inn í Mi-
ami. Leit þeirra endar á hættulegum
höfuðpaur glæpahrings sem hefur
komið af stað stríði í undirheimun-
um. Á meðan hitnar í kolunum hjá
STORMY WEATHER: Didda Jónsdóttir í hlutverki Lóu.
FREAKY FRIDAY: Mæðgurnar sem Jamie
Lee Curtis og Lindsay Lohan leika.
Lowrey og Syd, systur Marcusar.
Það er Michael Bay sem leikstýrir
myndinni eins og þeirri fyrri.
Freaky Friday
Freaky Friday er byggð á skáld-
sögu Mary Rodgers og til gamans
má geta þess að þetta er einnig end-
urgerð af samnefndri kvikmynd sem
skartaði leikumnum Barböm Harris
og Jodie Foster.
Jamie Lee Curtis leikur dr. Tess
sem nær ekki alveg sambandi viðl5
ára dóttur sína. Þær rífast stöðugt og
flmmtudagskvöld nokkurt nær rifr-
ildið algjöm hámarki. Eftir þetta rifr-
ildi gerist eitthvað dularfuUt og þær
vakna í líkama hvor annarrar. Því
þurfa þær að taka sig á og skilja hvor
aðra betur tU að koma öUu í rétt horf
svo að Tess geti gifst Ryan næsta
laugardag.
Jamie Lee Curtis sýnir að hún get-
ur leikið hvað sem er enda á hún
eldd langt að sækja hæfileikana því
að hún er dóttir Tonys Curtis og
Janet Leigh. Aðrir leikarar í mynd-
ALEX OG EMMA: Ástarsaga með Kate
Hudson og Luke Wilson í aðalhlutverkum.
inni em Lindsay Lohan, Mark
Harmon (Chicago Hope læknirinn),
Chad Murray ( GUmore Girls og
Dawson’s Creek) og gamanleUcar-
inn Stephen Tobolowsky.
Alex og Emma
Hugljúf kvilcmynd með Kat Hud-
son og Luke WUson í aðalhlutverk-
um. Þar segir frá rithöfundinum
Alex Sheldon sem kemur ekki staf á
blað, er á hausnum og skuldar
glæpamanni 100 þúsund dollara
sem hann á að borga eftir 30 daga
annars verður hann drepinn. Eina
leiðin tU að eignast slíka peninga er
að klára skáldsögu sína. Þar sem
hann er sjálfur með ritstíflu kaupir
hann þjónustu setjarans Emmu
sem hann telur hafa hæfileUca tU að
skrifa. LeUcstjóri myndarinnar er
Rob Reiner, sem hóf glæsUegan feril
með This Is Spinal Tap, Stand by Me
og When Harry Met Sally, svo ein-
hverjar séu nefndar, en hefur ekki
haft erindi sem erfiði með síðustu
myndir sínar.
Djass á Café Central:
Nýr staður, frum-
samin tónlist
Kvintett Eyjólfs Þorleifssonar
mun spila í kvöld á Café Central.
Tónleikarnir hefjast klukkan 21.30
og miðaverð er 1000 kr. Einn drykk-
ur fylgir miðanum. Eingöngu verð-
ur flutt frumsamin djasstónlist eftir
reynda tónlistarmenn. Kvintettinn
skipa Eyjólfur Þorleifsson saxófón-
leikari, Jóhann „Mezzoforte" Ás-
mundsson bassaleikari, Eric Quick,
sænskur trommuleikari, Agnar Már
Magnússon, „B3“ Rhodes píanó-
leikari, og Sigurður Rögnvaldsson
gítarleikari. Erfitt er að fá jafngóða
tónlistarmenn til að flytja djass-
músflc og spennandi verður að fá
að heyra frumsamda efnið þeirra.
Café Central er nýr staður í kjall-
aranum undir veitingahúsinu
Skólabrú, gegnt Dómkirkjunni. „Ég
mæli með því að fólk mæti
snemma til að fá að upplifa alvöru
djassstemningu," sagði Eyjólfur
Þorleifsson, „það mun enginn sjá
eftir því." Þetta er einn af fáum
stöðum á landinu sem eru algjör-
lega tilvaldir fyrir flutning þessarar
tegundar tónlistar og því eru svona
tónleikar vandfundnir í Reykjavík-
urborg. Þess má geta að á Menn-
ingarnótt rambaði þekktur erlend-
ur tónlistargagnrýnandi inn og lýsti
yfir hrifningu sinni. Hann mun
hafa fallið algjörlega fyrir staðnum
og sagt að þetta væri með þeim
skemmtilegri sem hann hefði litið
inn á. Lítill staður en þægilegt and-
rúmsloft og alveg frábært umhverfi. c-
Tónlistarunnendur og aðrir ættu
ekki að láta þetta fram hjá sér fara.
+