Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.2003, Síða 8
8
Magasín
Fimmtudagur 18. september 2003
Kvikmyndir Kate Hudson í Alex and Emma:
Fer sínar eigin leiðir
Þrátt fyrir að hafa alist upp í
kringum stórtækar kvikmynda-
stjörnur kom aldrei annað til
greina hjá hinni 24 ára gömlu
Kate Hudson en fara sínar eigin
leiðir. Hún er dóttir stórstjörn-
unnar Goldie Hawn og fóstur-
dóttir Kurts Russells sem einnig
er vel þekktur i kvikmynda-
heiminum.
í rómantfsku gamanmyndinni
Alex and Emma leikur Kate á móti
Luke Wilson sem er í myndinni rit-
höfundurinn Alex. Hann lendir í
ógöngum þegar hann tapar mikl-
um peningum í fjárhættuspilum og
ætlar okurkarlinn hans að láta
„stúta" honum ef skuldin verður
ekki greidd að fullu innan 30 daga.
Alex verður því að ljúka við skáld-
sögu sína á mettíma til að fá rit-
launin sín. Til að flýta fyrir verkinu
ræður hann hraðritarann Emmu til
að koma sögunni á blað en þar sem
Emma er gagnrýnin að eðlisfari fer
sagan að öðlast nýtt líf en kynni
þeirra beggja líkjast æ meir annarri
ástarskáldsögu.
Allt í haginn
Kate Hudson er fædd árið 1979
og því ekki nema 24 ára. En þrátt
fyrir þennan unga aldur á hún að
baki Golden Globe verðlaun, til-
nefningu til óskarsverðlauna og
fyrir kvikmyndina How to Lose a
Guy in 10 Days fékk hún dágóða
summu í laun eða 4,5 milljónir
dala. Það er því deginum ljósara að
þarna er á ferð ein eftirsóttasta
unga leikkonan í Hollywood í dag,
erida greinilega stúlka sem kann
sitt fag og íðilfögur að auki. Það má
til sanns vegar færa því að þeirri
mynd var afar vel tekið í Bandaríkj-
unum og náðust inn meira en 100
milljónir dala í miðasölutekjum.
Alex and Emma gekk þó ekki eins
vel.
Þegar Kate var aðeins nokkurra
mánaða gömul skildu foreldrar
hennar, Goldie Hawn og tónlistar-
maðurinn Bill Hudson. Upp frá því
kom téður Bill ekki mikið við sögu í
lífi þeirra mæðgna og kallar hún
reyndar núverandi maka móður
sinnar, Kurt Russell, pabba sinn
enda hefur hann verið inni á heim-
ili hennar frá 3 ára aldri.
Hún hefur þó sjálfsagt erft eitt-
hvað af sönghæfileikum raunveru-
legs föður síns sem var bæði þekkt-
ur sjónvarps- og tónlistarmaður á
8. áratugnum en hann var f hljóm-
sveit með bræðrum sínum sem
gáfu út fáeina smelli á þessum
tíma. Sjálf ku Kate vera hörkugóð
söngkona enda tróð hún upp á hin-
um ýmsu skemmtunum ung að
aldri þar sem hún söng og dansaði.
Fyrstu kynni hennar af kvik-
myndabransanum urðu snemma
en 7 ára gömul var hún varaleikari
fyrir stúlkuna sem lék dóttur Goldie
Hawn í myndinni Wildcats frá ár-.
inu 1986. Það hefur sjálfsagt eflt
áhuga hennar á leiklistinni en hún
hefur sagt að það hafi verið ædun
hennar frá unga aldri að starfa í
kvikmyndum. 10 árum sfðar hvatti
fósturpabbi hennar, Kurt, hana til
þess að sækja áheyrnarprufu fyrir
eitt hlutverkið í myndinni Escape
from LA sem Kurt lék aðalhlutverk-
ið í. Hún hafði ekki erindi sem erf-
iði en engu að síður hvatti þetta
hana til að leita sér að öðrum kvik-
myndahlutverkum.
Sagði nei við NYU
Kate hefur nefnilega ætíð einsett
sér að slá í gegn á eigin forsendum
en leita ekki hjálpar mömmu og
pabba í hvert sinn sem snurða
hleypur á þráðinn. Árið 1997 út-
skrifaðist hún úr Crossroads-lista-
háskólanum og var veitt innganga í
hina eftirsóttu leiklistardeild New
York háskóla. Þrátt fyrir að fjöl-
skylda hennar þrýsti á hana um að
sækja skólann vildi hún frekar
stinga sér beint í djúpu laugina f
hinni stóru Hollywood.
Fyrsta hlutverk hennar sem at-
vinnuleikkonu var smáhlutverk í
sjónvarpsþáttunum Party of Five.
Persóna hennar kom þó ekki fyrir í
nema einum þætti og ílengdist hún
því ekki þar. Fyrstu tvö kvikmynda-
hlutverk hennar voru í tveimur lítt
þekktum myndum, Desert Blue og
Ricochet River. Stóra tækifærið
kom hins vegar þegar hún var ráðin
til að leika hina saklausu Cindy í
ungstjörnumyndinni 200 Cigar-
ettes. Meðai meðleikara hennar
voru bræðurnir Ben og Casey Af-
fleck, Courtney Love og laneane
Garofalo. Myndin fékk reyndar slæ-
lega aðsókn og gagnrýnendur voru
ekkert yfir sig hrifnir en voru þó
sammála um að frammistaða Kate
Hudson væri eftirtektarverð og
einn af fáum ljósum punktum í
myndinni.
Þáttaskil árið 2000
Árið 2000 átti eftir að verða eftir-
minnilegt hjá Kate. Það árið lék
hún í 4 myndum, hverri annarri
ólíkari. Fyrst kom gamanmyndin
About Adam sem vakti reyndar ekki
mikla athygli en margir muna ef til
vill eftir henni sem Naomi Preston í
spennumyndinni Gossip þar sem
hún lék vellauðuga stúlku sem
verður fórnarlamb orðróms sem á
eftir að hafa svakalegar afleiðingar í
för með sér. Myndin skartaði
einnig lames Marsden og loshua
lackson í aðalhlutverkum.
Þá kom lukkupotturinn. Leik-
stjórinn Cameron Crowe hafði
slegið í gegn með lerry Maguire
(Tom Cruise og Renée Zellweger)
og var næstu myndar hans beðið
með mikilli eftirvæntingu. Það var
myndin Almost Famous sem
Crowe fékk reyndar óskarsverðlaun
fyrir út á handritið sitt. Kate hafði
verið ráðin í lítið aukahlutverk og
ætlaði Crowe leikkonunni Sarah
Polley hlutverk grúpppíunnar
Penny Lane. Polley hætti hins veg-
ar við, meðal annars til að leika að-
alhlutverkið f Monster (No Such
Thing) eftir leikstjórann Hal
Hartley þar sem ísland kom mikið
við sögu og meðal framleiðanda
var okkar eigin Friðrik Þór Friðriks-
son. Sú mynd fór hins vegar ofan
garðs og neðan á meðan Kate sló í
gegn í Almost Famous. Fyrir
frammistöðu sína hlaut hún ein-
róma lof gagnrýnenda, Golden
Globe verðlaun og óskarstilnefn-
ingu.
Upp frá því varð Kate ein
„heitasta" unga leikkonan í
Hollywood og getur enginn efast
um hæftleika hennar. Robert Alt-
man réð hana til að leika í Dr. T and
the Women og nú nýverið lék hún
eitt aðalhlutverkið í The Four
Feathers ásamt Heath Ledger. Hún
hafði reyndar hafnað boði um að
leika Mary lane Watson í kvik-
myndinni um köngulóarmanninn
en svo fór að Kirstin Dunst tók það
hlutverk að sér.
Það verður því seint sagt um
þessa frambærUegu stúlku að hún
hafi potað sér áfram f kvikmynda-
bransanum með klíkuskap. Þvert á
kom hún sér á framfæri á eigin
verðleikum sem eitt og sér er afar
virðingarvert. eirikurst@dv.is
Dómar
Once Upon a Time in Mexico***
„Once Upon a Time in Mexico er
sterk upplifun, sem hefur bæði kosti
og galla, kostimir hafa yfirhöndina. “
-HK
The Life of David Gale
„Myndin er langt frá því að vera
leiðinleg, fléttan heldur og er hún öll
hin fagmannlegasta. “ SG
The League of Extraordinary
Gentlemen *★
„Myndin er því miður meiri
brellusýning heldur en spennu-
mynd." HK
Daddy Day Care ★
„Eddie Murphy er ekki svipur hjá
sjón og er nánast eins og umgjörð
utan um ólæti krakkanna. “ -HK
Væntanlegt
Um helgina:
• Alex and Emma
• Bad Boys 2
• Freaky Friday
Næstu helgi:
•Jeepers Creepers II
• Matchstick Men
3. október 2003:
• Seabiscuit
• Underworid
10. október 2003:
• Holes
• Kill Bill
.Q
--------y--------.
MHHMHWmI MMmiMMMMIlÍ
Sportbarinn
Fat
Fat Sam s CylícTl’löt 5, er í göngu feri fyrir vel
ík?slci. Veitinguhúsið Fat Sam's S{)Qrtb'áó er góö
víöbót í glaðun Cmt'arvog oger aljt í senn
hveiíiskrá, matsölustaður, sjiortbarog
skemmtistaður með skemmtifegt umhverfi og
gott andrúmsloft, htísið rúmar 450 manns.
S/>or+ tar
Gr * f aryoýi
ALLIR DJAMMA HJA FEITA SAMMA !!!
Fat SíM’f • övlfðfiot 5 • íiM SÍ7 ttOO