Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.2003, Page 12
12
Magasín
Fimmtudagur 18. september 2003
Brúðhjón vikunnar
Ég kolféll fyrir honum
„Það er ákaflega vinsælt hjá
brúðhjónum að láta gefa sig saman
í Garðakirkju á Álftanesi. Kannski
af því að hún er svo mátulega stór,
en gestir okkar voru um sextíu tals-
ins. Sjáif vildi ég líka endilega þessa
kirkju þar sem staðsetningin þarna
við sjóinn minnti mig svo mjög á
heimslóðir mínar á Skagaströnd,"
segir Rakel Petrea Finnsdóttir.
Fallegustu augun í bænum
Hún og eiginmaður hennar,
Brynjar Sverrisson, gengu upp að
altarinu í kirkjunni í Görðum þann
30. ágúst sl.
„Við kynntumst þegar við vorum
bæði í Fjölbrautaskólanum í Breið-
holti. Það var fyrir sex árum. Mér
fannst þetta strax skemmtilegur
strákur en hann þurfti þó svolítið til
að sannfæra mig. Það sem ég kunni
að meta við hann var að hann var
einlægur og á endanum fóru leikar
svo að ég alveg kolféll fyrir honum,"
segir Petrea og heldur áfram:
„Brynjar er með blá augu og fafleg.
Augun hans eru bara þau fallegustu
í öllum bænum."
Sá markahæsti í Stjörnunni
Petrea er förðunarfræðingur að
mennt og starfar sem slík - auk
þess sem hún vinnur á smáauglýs-
ingadeild DV. Brynjar er prentari
og vinnur í Svansprenti. „Sfðan er
hann líka í fótboltanum og spilar
með Stjörnunni í 1. deildinni, hefur
skorað sjö mörk í sumar og er sá
„Hann var einlægur.“
markahæsti í sínu félagi," segir
Petrea og ekki fer á milli mála að
hún er stolt af sínum manni.
Petrea brosir þegar hún er spurð
um framtíðaráform þeirra hjón-
anna. ,Ætli þau séu eldci bara helst
þau að vera hamingjusöm, góð
hvort við annað og eignast börn.
Vera líka óspör á að krydda tilver-
una,“ segir Petrea - og segir að þar
komi sér vel að þau Brynjar eigi
mörg sameiginleg áhugamál. Eins
og til dæmis að spila saman golf „...
vera með kisunum okkar. Við eig-
um þrjár persneskar kisur sem eru
eiginlega eins og börnin okkar - en
við eigum engin enn þá.“
-sigbogi@dv.is
o
uj
l
fc.
Q
PETREA OG BRYNJAR: „Góð hvort við annað," segir Petrea hér í viðtalinu.
Gefin voru saman í Árbæjarkirkju í
Reykjavík þann 9. ágúst sl„ af sr. Sigur-
jóni Árna Eyjólfssyni, þau Sesselja
Anna Ólafsdóttir og Jón Pétur Einars-
son. Heimili þeirra er að Hraunbæ 58 í
Reykjavík.
Gefin voru saman í Seljakirkju í Breið
holti þann 10. maf sl„ af séra Bolla
Bollasyni, þau Ragnheiður Ingibjörg
Þórólfsdóttir og Samúel Guðmundur
Sigurjónsson. Heimili þeirra er að
Stífluseli 5 í Reykjavík.
Foreldrar vikunnar
HAMINGJUSÖM: Kristján Björn og Kristín með soninn sem var afmælisgjöf ömmu sinnar.
Sefur í vöggu sem
fannst niðri í fjöru
„Sonur okkar fæddist rétt fyrir
miðnætti þann 10. þessa mánaðar
og náði því að koma í heiminn á af-
mælisdegi ömmu sinnar. Það var
mikil ánægja með það þótt mestu
skipti auðvitað að hann er vel skap-
aður og heilbrigður," segja foreldr-
ar vikunnar, þau Kristín Þórsdóttir
og Kristján Björn Tryggvason.
Drengurinn sem er fyrsta barn
þeirra, er líka hinn pattaralegasti,
52 cm að lengd og tæpar sextán
merkur að þyngd. Fæðingin gekk
eins og í sögu, að sögn foreldranna.
Kristín kveðst hafa farið upp á fæð-
ingardeild kl. 16 og þá verið komin
með 4 í útvíkkun en leiðst að bíða
þar lengi svo hún hafi skroppið í
heimsókn til frænda sfns og komið
svo aftur á deildina um kl. 18.
Þar hafi þau Kristján svo látið
fara vel um sig, enda í Hreiðrinu
þar sem aðstæður eru allar hinar
heimilislegustu, hjónarúm, Lazy-
boy stóll og heitur pottur. „Við
pöntuðum þetta strax í upphafi
meðgöngu og þeim þægindum
fylgir líka að sama ljósmóðirin
fylgdist með mér allan tímann og
gerir enn, þótt önnur hafi tekið á
móti drengnum af því að hin var
ekki á vakt,“ segir Kristín.
„Veit ekki hvernig mað-
ur hefði farið að ef þetta
feðraorlof hefði ekki
verið komið í lög“.
Sængurföt með fangamarki
langommu
Þegar spurt er hvort sveinninn
ungi sofi vel á nóttunni játa foreldr-
arnir því, enda sofi hann á milli
þeirra. Á daginn er hann hins vegar
í vöggu sem fannst fyrir 40 árum
niðri f fjöru á Seltjarnarnesi og
fjöldi barna í fjölskyldunni hefur
notað síðan, m.a. Kristín og systkini
hennar. Ekki spillir heldur ævafom
rúmfatnaðurinn sem er bróderaður
og með fangamarki langömmu
hans. Margar góðar gjafir hafa
borist litlu fjölskyldunni. „Sonur-
inn er kominn með helling af föt-
um og öðru sem hann þarf fyrstu
mánuðina, meðal annars þrjá eins
útigalla," segir Kristján Björn bros-
andi.
Feðraorofið stórkostlegt
Kristín er að læra hárgreiðslu en
gerir hlé á náminu um sinn. Krist-
ján Björn er rútubílstjóri en tók sér
fæðingarorlof og finnst það stór-
kostlegt. „Ég veit ekki hvernig mað-
ur hefði farið að ef þetta feðraorlof
hefði ekki verið komið í lög, ég gæti
ekki hugsað mér að missa af þess- •
um fyrstu dögum með baminu,"
segir hann. En hverjum skyldi svo
frumburðurinn lfkjast? „Ja, okkur
finnst hann bara líkur sjálfum sér
en allir aðrir þykjast sjá svip með
honum og einhverjum öðmm í
ættinni," segir Kristín. Þótt búið sé
að velja hinum nýfædda nafn þá
verður það ekki opinberað fyrr en í
lok mánaðarins, er hann verður
vatni ausinn. gun@dv.is
Utiföt frá Finnlandi
Fyrir börn 0-9 ára
Stæröir 56-134
Vind- og vatnsheld, sterk
og notaleg föt
Húfur, lúffur, tvískiptir gallar,
úlpur og kuldagallar
Laugavegi 72
Sími: 551 0231