Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2003, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2003
I
OTGÁFUFÉLAG: Útgáfufélagið DV ehf.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: örn Valdimarsson
AÐALRITSTJÓRI: Óli Björn Kárason
AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jónas Haraldsson
; DV: Skaftahlíð 24,105 Rvík, sími: 550 5000
: Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550
5020 - AÐRAR DEILDIR: 550 5749
i Rltstjóm: ritstjorn@dvJs - Auglýslnganauglys- ■
ingar@dvJs. - Dreifing: dreifing@dv.is
Akureyri: Hafnarstræti 94, simi: 462 5000,
fax: 462 5001
Setning og umbrot Útgáfufélagið DV ehf.
Plötugerð og prentun: Árvakur hf.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í
stafrænu formi og í gagnabönkum án endur- j
gjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl |
við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim.
Efni blaðsins
Handtekinn rúmlega
300 sinnum
- frétt bls. 4
Heitasta sumar í 500 ár
- frétt bls. 6
Guðrún Einarsdóttir
opnar sýningu í i8
- Menning bls. 13
Smákrimmar og
seinheppinn framagosi
- Tilvera bls. 16
Mikilvægur heimasigur
Valsstúlkna gegn ÍBV
- DVSportbls. 30-31
Hárið varð grænt
eftir sundsprettinn
Níu farþegar á breska lúxusfar-
þegaskipinu Oceana máttu þola
það um daginn að hárið á þeim
varð skærgrænt eftir að þeir
höfðu fengið sér sundsprett í
einni sundlaug skemmtiferð-
skipsins.
Ástæðan fyrir græna litnum
var að bilun hafði orðið í hreinsi-
búnaði laugarinnar með þeim
aíleiðingum að óhóflegt magn af
klór komst f sundlaugarvatnið.
Fólkinu varð að öðru leyti ekki
meint af klórbaðinu en vanda-
málið var að ná aftur eðlilegum
lit á hárið áður en skipið næði
höfn í Southampton.
Það verkefni fékk sérleg hár-
greiðsludama skipsins og síðast
þegar fréttist voru þau græn-
hærðu í litun á
hárgreiðslustofunni.
Halldór hitti Bush
NEWYORK: Halldór Ásgríms-
son utanríkisráðherra hitti
George W. Bush Bandaríkjafor-
seta í boði á vegum Allsherjar-
þings Sameinuðu þjóðnanna á
þriðjudag. Halldór segir í sam-
tali við Morgunblaðið að Bush
hafi gefið sér góðan tíma til að
ræða við sig. Þeir hafi meðal
annars talað um varnarmálin
og segir utanríkisráðherra Ijóst
að Bandaríkjaforseti muni
áfram fylgjast með málinu og
hann geri sér grein fyrir því
hversu viðkvæmt það sé. (við-
talinu kveðst Halldór þess full-
viss að umræða um varnarmál-
in muni fara fram í vinsamlegu
andrúmslofti og á grundvelli
gagnkvæmrar virðingar. Menn
væru hins vegar ekkert að flýta
sér.
Banaslys
SLYS: Annartveggja ökumanna
sem slösuðust í hörðum árekstri
á Reykjanesbraut lést á Land-
spítala háskólasjúkrahúsi í gær.
Maðurinn sem lést var tæpra 64
ára. Hinn ökumaðurinn, sem er
tæplega tvítugur, slasaðist jafn-
framt og verður áfram undir
eftirliti lækna. Ekki er unnt að
greina frá nafni hins látna að svo
stöddu.
Fyrrum sjóðstjóri Kaupþings og utanaðkomandi aðstoðarmenn ákærðir:
Milljóna verðbréfasvik
og peningaþvætti
Sjóðstjóri Kaupþings kominn í gæsluvarðhald t
Brot talin hafa
staðið yfir mán-
uðum saman
Fyrrum sjóðstjóri hjá Kaupþingi
- tæplega þrítugur maður sem
starfaði við eignastýringu
stofnanafjárfesta hjá verð-
bréfafyrirtækinu - hefur verið
ákærður fyrir brot á lögum um
verðbréfaviðskipti. Tveir aðrir
menn eru ákærðir fyrir pen-
ingaþvætti með því að hafa að-
stoðað Kaupþingsmanninn og
lagt til bankareikninga í því
skyni að milljónasvik kæmust
ekki upp.
Hér er um að ræða mál sem ríkis-
lögreglustjóri hefur rannsakað sem
auðgunarbrot en upphæðir f þeim
efnum nema milljónum króna. Mál-
ið varð opinbert undir lok nóvem-
ber árið 2001 en þá var sjóðstjórinn
úrskurðaður í gæsluvarðhald í eina
viku. Þegar lögreglan sleppti honum
hafði hann viðurkennt og gert grein
fyrir sínum málum með fullnægj-
andi hætti. í ljós kom þegar við upp-
haf rannsóknarinnar að brotastarf-
semi mannsins hefði staðið yfir svo
mánuðum skipti.
Ríkislögreglustjóraembættið
sagði strax við upphaf rannsóknar-
innar að málið væri einstakt og al-
varlegt. Hér hefði verið um að ræða
mál sem varðaði innviði starfsemi
verðbréfafyrirtækis. Rannsóknin
hefúr ávailt beinst að því hvort
sjóðstjórinn fyrrverandi hefði á
þessum mánuðum verið að gera
kaup í þeim tilgangi að hagnast
sjálfur.
Grunur lék strax á að
maðurinn hefði misnotað
aðstöðu sína til að kaupa
bréfá verði sem hann
sjálfur taldi hæfilegt
Rannsókn ríkislögreglustjóra
hefur beinst að því hvort sjóðstjór-
inn hafi keypt bréf en síðan selt þau
aftur samdægurs á óeðlilega háu
verði á gráa markaðnum svokall-
aða en þar lágu viðmiðunarupplýs-
ingar um rétt verð ekki fyrir hverju
sinni. Grunur lék strax á að maður-
inn hefði þannig misnotað aðstöðu
sína til að kaupa bréf á verði sem
hann sjálfur taldi hæfilegt - að því
loknu hefði hann svo keypt bréfin
aftur í nafni sjóða sem honum
hafði verið treyst fyrir. Þá hefði
maðurinn bætt ofan á gengi bréf-
ana. Mennirnir sem ákærðir eru
fyrir peningaþvætti voru því eins
konar leppar en þeir lögðu fram
bankareikninga og aðra aðstoð í
þvf skyni að flytja ágóðann svo að
svikin kæmust ekki upp.
Sigurður Einars-
son, forstjóri Kaupþings, sagði við
DV þegar málið kom upp að skjól-
stæðingar fyrirtækisins myndu ekki
skaðast vegna þessa sakamáls.
Hann benti á að Kaupþing hefði
sjálft átt frumkvæði að því að kæra
starfsmanninn til lögreglu.
Mál umrædds sakbornings og
hinna tveggja mannanna er þing-
fest fyrir Héraðsdómi Reykjavikur í
dag.
ottar@dv.is
Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra um fyrirhuguð úrræði vegna geðsjúkra:
Lokuð geðdeild og stækkun BUGL
GRIPIÐ T1L AÐGERÐA: Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra hitti forsvarsmenn Geðhjálpar í gær. Hann boðar ákveðnar aðgerðir í málefn-
um geðsjúkra.
Vonir standa til að hægt verði
að taka í notkun lokaða geð-
deild á næsta ári, að sögn Jóns
Kristjánssonar heilbrigðisráð-
herra. Þá er unnið að stækkun
Barna- og ungiingageðdeildar
Landspítala-háskólasjúkra-
húss.
Á fundi sem heilbrigðisráðherra
átti með forsvarsmönnum Geð-
hjálpar í gær kom fram að ekki yrði
um að ræða framlengingu á þjón-
ustusamningi ráðuneytisins og
Geðhjálpar. Ráðherra sagði við DV
að samningurinn hefði verið bund-
inn við iðjuþjálfa. Á fundinum
hefði verið farið yfir hvernig ráðu-
neytið gæti styrkt starf Geðhjálpar.
Væri þá horft til ráðgjafar og viðlíka
þjónustu. Á næstu dögum yrði farið
yfir ýmsar ieiðir þar að lútandi.
Ráðherra sagði að hvar
sem deildin yrði þá
væri hlutverk hennar
að hýsa þá sem væru
hættulegir sjálfum sér
og öðrum.
„Við ætlum ekki að minnka þjón-
ustuna," sagði ráðherra í morgun,
„helst ætíum við að bæta hana.“
Aðspurður um þjónustu við
slæm bráðatilvik sagði ráðherra að
vonast væri til þess að hægt yrði að
taka lokaða geðdeild og stækkað
húsnæði BUGL í notkun á næsta
ári. Hann sagði enn fremur að hvað
staðsetningu lokuðu geðdeildar-
innar varðaði væri einkum horft til
Arnarholts á Kjalarnesi. Þar stæði
húsnæði sem væri nær ónotað. Það
þarfnaðist töluverðra breytinga en
gera mætti ráð fyrir að þar fengjust
um 20 pláss. Þá hefðu forráðamenn
Sogns lagt fram hugmyndir um að
þar væri hægt að bæta við bygging-
'um sem gætu hýst lokaða geðdeild.
Ráðherra sagði að hvar sem deildin
yrði þá væri hlutverk hennar að
hýsa þá sem væru hættulegir sjálf-
um sér og öðrum.
Jón sagði að fleira væri að gerast á
geðheilbrigðissviðinu. Nú væri
starfandi nefnd þriggja ráðuneyta,
þ.e. dómsmálaráðuneytis, félags-
málaráðuneytis og heilbrigðisráðu-
neytis. Hennar hlutverk væri að fara
með þau mál þar sem kæmi til álita
að svipta fólk sjálfræði vegna geð-
sjúkdóma. Um væri að ræða flókið
ferli en í sumum tilvikum væri shkt
nauðsynlegt til að grípa inn í. JSS