Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2003, Síða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2003, Síða 24
4 -+ 24 TILVERA FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2003 íslendingar Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson Netfang: aettir@dv.is Sími: 550 5826 Afmæli 85 ára Sextíu ára Sigríður Ragna Sigurðardóttir dagskrárfulltrúi barnaefnis hjá Sjónvarpinu Sigríður Ragna Sigurðardóttir, * dagskrárfulltrúi barnaefnis hjá Sjónvarpinu, Skildinganesi 48, Reykjavfk, er sextug í dag. Starfsferill Sigríður Ragna fæddist í Höfn á Selfossi og ólst þar upp. Hún lauk stúdentsprófi frá MR 1964 og kenn- araprófí frá KÍ 1965. Sigríður Ragna var kennari við Alftamýrarskóla 1965-73 og við Melaskólann 1981-84, var þula við Sjónvarpið frá upphafi 1966-72 og hefur verið fulltrúi barnaefnis Sjón- varpsins frá 1985. Sigríður Ragna sat fyrir mennta- málaráðuneytið í samnorrænni nefnd um barnamenningu á veg- um norrænu ráðherranefndarinnar 1983-87, sat í stjórn Hvatar og var varaformaður félagsins um skeið, sat í stjórn Félags sjálfstæðismanna í Nes- og Melahverfi, var formaður þess 1995-2000, hefur setið í kjör- nefndum á vegum Sjálfstæðis- flokksins vegna framboðslista í borgarstjórnar- og alþingiskosn- ingum, sat í skólasafnanefnd á veg- um Reykjavíkurborgar 1982-86, sat í foreldraráði Melaskóla, er for- maður Þjóðhátíðarsjóðs frá 2001, situr í skólanefnd FÁ, hefúr setið í stjórn Alfa-deildar Delta-Kappa- Gamma, félags kvenna í mennta- og fræðslustörfum frá 1999 og er formaður hennar frá 2001, situr í stjórn Prýðifélagsins Skjaldar, hverfafélags Skerfirðinga, sunnan flugvallar, og er varaformaður þess. Börn Sigríðar Rögnu og Hákonar: Kristín Martha, f. 27.4. 1973, verk- fræðingur, MS í hagnýtri stærð- fræði og vinnur nú að doktorsverk- efni í straumfræði; Sigurður Óli, f. 2.10. 1975, BS í hagfræði og sjóðs- stjóri hjá Kaupþingi Búnaðar- banka, býr með Sveinbjörgu Jóns- dóttur félagsfræðinema og eru börn þeirra Sigríður Ragna, f. 9.11. 1996, og Jón Helgi, f. 23.2. 2000; Hrefna Þorbjörg, f. 21.1.1984, nemi við MR. Systur Sigríðar Rögnu: Þorbjörg, f. 24.3. 1927, húsmóðir á Selfossi, gift Kolbeini Inga Kristinssyni, fyrrv. framkvæmdastjóra, og er sonur þeirra Sigurður Kristinn Kol- beinsson viðsldptafræðingur; Ragnheiður, f. 3.5. 1929, d. 22.7. 1929; Sigríður, f. 18.3. 1931, d. 24.7. 1932. Foreldrar Sigríðar Rögnu voru Sigurður Óli Ólafsson, f. 7.10. 1896, d. 15.3. 1992, kaupmaður, fyrsti oddviti Selfosshrepps, alþm. og forseti efri deildar, og k.h., Kristín Guðmundsdóttir, f. 8.2. 1904, d. 9.6. 1992, húsmóðir. Fjölskylda Sigríður Ragna giftist 8.2. 1969 Hákoni Ólafssyni, f. 21.9. 1941, verkfræðingi og forstjóra Rann- sóknastofnunar byggingariðnaðar- ins. Hann er sonur Ólafs Þorsteins Þorsteinssonar, yfirlæknis á Siglu- firði, og k.h., Kristine, dóttur Haakons Glatved Prahl, verk- smiðjueiganda í Alversund í Nor- egi. Ætt Sigurður Óli var sonur Ólafs, b. og söðlasmiðs í Naustakoti á Eyrar- bakka Sigurðssonar, snikkara á Syðri-Steinsmýri Sigurðssonar, b. á Eintúnahálsi Jónssonar, b. á Fossi á Síðu, bróður Nikulásar, langafa Sveins íVölundi, afa Haralds, fyrrv. framkvæmdastjóra Morgunblaðs- ins. Móðir Ólafs söðlasmiðs var Gyðríður Ólafsdóttir, b. á Syðri- Steinsmýri Ólafssonar. Móðir Sigurðar Óla var Þorbjörg, systir Svanhildar, móður Sigurgeirs biskups, föður Péturs biskups. Þor- björg var dóttir Sigurðar, formanns í Naustakoti Teitssonar. Móðir Sig- urðar var Guðrún, systir Ólafar, langömmu Jóns, föður Hannesar Jónssonar sendiherra. Guðrún var dóttir Sigurðar, b. á Hrauni í Ölfusi Þorgrímssonar, b. í Holti í Stokks- eyrarhreppi Bergssonar, ættföður Bergsættar Sturlaugssonar. Móðir Guðrúnar var Ólöf Jónsdóttir, hálf- systir Þorkels, langafa Salome Þor- kelsdóttur, fyrrv. alþingisforseta. Kristín var systir Lárusar Blöndal bóksala, föður Kjartans, fyrrv. for- stjóra Ferðaskrifstofu íslands. Kristín var dóttir Guðmundar, kaupfélagsstjóra á Eyrarbakka, bróður Sigurðar kaupmanns, afa Þorsteins Pálssonar sendiherra. Guðmundur var sonur Guðmund- ar, bóksala á Eyrarbakka Guð- mundssonar, bókbindara á Minna- Hofi Péturssonar. Móðir Guð- mundar bóksala var Ingigerður Ólafsdóttir, b. í Þjóðólfshaga Lofts- sonar, og Guðrúnar Jónsdóttur, hreppstjóra á Stóru-Mörk Guð- mundssonar. Móðir Kristínar var Ragnheiður Blöndal, systir Jósefínu, móður Lárusar Jóhannessonar, alþm. og hæstaréttardómara, og ömmu Matthíasar Johannessens skálds. Bróðir Ragnheiðar var Haraldur Blöndal ljósmyndari, afi Halldórs Blöndal alþingisforseta. Ragnheið- ur var dóttir Lárusar Blöndal sýslu- manns Björnssonar, sýslumanns í Hvammi og ættföður Blöndalsætt- ar Auðunssonar. Móðir Ragnheiðar var Kristín Ásgeirsdóttir, bókbind- ara á Lambastöðum, bróður Jak- obs, pr. í Steinnesi, langafa Vigdísar forseta. Móðir Kristínar var Sigríð- ur, systir Þuríðar, langömmu Vig- dísar forseta. Sigríður var dóttir Þorvalds, pr. og skálds í Holti Böðv- arssonar, pr. í Holtaþingum Högnasonar, prestaföður á Breiða- bólstað Sigurðssonar. Sigríður og Hákon taka á móti gestum að heimili sínu, Útnesi, Skildinganesi 48, laugardaginn 27.9. frá kl. 17.00. Fjörutíu ára Guðni Örn Hauksson sparisjóðsstjóri Guðni Örn Hauksson, sparisjóðsstjóri, Fjarðarvegi 5, Þórshöfn, er fertugur í dag. Starfsferill Guðni fæddist í Reykjavík, bjó fyrstu fjögur árin á Hólmavík en fór þaðan til Reykjavfkur. Hann varð stúdent frá Menntaskólanum við Sund 1983, útgerðartæknir frá Tækniskóla íslands 1986 og rekstrarfræðingur frá Samvinnuháskólanum á Bifröst 1990. Guðni stundaði sjómennsku á togurum á milli skóla. Árið 1990 fór hann til Þórshafnar og starfaði hjá Hraðfrystistöð Þórshafnar við ýmis skrifstofustörf til 1988. Þá tók hann við sem sparisjóðsstjóri hjá Sparisjóði Þórshafnar og nágrennis. Fjölskylda Guðni hóf sambúð með Hrafnhildi L. Þorleifsdóttur frá Fjallalækjarseli f Þistilfirði árið 1990 en 1999 giftu þau sig. Dóttir þeirra Guðna og Hrafnhildar er Eva Guðný, f. 24.5. 2000. Alsystir Guðna er Hugrún Rós, f. 3.1.1967, matráðskona í Reykjavík, sambýlismaður hennar er Ásgeir Gunnarsson líffræðingur. Hálf- systur Guðna, samfeðra eru Bryndís, f. 18.5. 1957, á Hólmavík og Agnes Ýr, f. 12.4. 1979, í Reykjavík. Foreldrar Guðna eru Ólöf Oddsdóttir, f. 4.10. 1944, matráðs- kona í Reykjavík og Haukur Sigurðsson, f. 30.12. 1936, fyrr- verandi verkamaður, Hólmavík. Opið hús verður heima hjá Guðna og konu hans, Hrafnhildi Þorleifsdóttur á laugardaginn 27.9. Foreldrar hennar eru Þorleifur Gunnarsson, fyrrverandi bóndi í Fjallalækjarseli og VOborg Þóroddsdóttir húsmóðir. Sjötugur Ólafur Árni Bene- diktsson, fyrrverandi bóndi Stóra-Vatnshorni, Búðardal. I tilefni dagsins verða hann og eiginkona hans, Guðrún Ágústsdóttir, með opið hús í Árbliki, félagsheimili Suðurdala, frá kl. 20 iaugardaginn 27.9. Sjötugur Pálmi Sæmundsson, Laugarholti, Stað, fyrrverandi sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Hrútfirðinga, Borðeyri, Hann tekur á móti gestum laugardaginn 27.9. kl. 20 í grunnskólanum á Borðeyri. Andlát Jónfna Margrét Jónasdóttir, Suðurgötu 51, Siglufirði, andaðist á Sjúkrahúsi Siglufjarðar 18.9. . Jónas M. Lárusson, Sóltúni 2, Reykjavík lést 23.9. Þorsteinn Axelsson, Teigaseli 3, Reykjavík, lést 21.9. Gróa Þorvarðardóttir, frá Bakka á Kjalarnesi, Esjugrund 55, Reykjavík, lést 14.9. Jarðarfarir Andri Snær Óðinsson verður jarðsunginn frá Landakirkju 27.9. kl. 11. Kristfn Sigurbjörnsdóttir, Ásgarði, Húsavík, verður jarðsungin frá Húsavíkurkirkju 27.9. kl. 14. Edith Gerhardt Ásmundsson, Reynimel 76, Reykjavík, verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju 26.9. kl. 13.30. Petrfna Jónsdóttir, Hólsvegi 13, Bolungarvík. 80ára Jónas Þórðarson, Öldugranda 1, Reykjavík. Hann tekur á móti ættingjum og vinum í sal Félagsþjónustunnar, Hvassa- ieiti 56-58, Reykjavík, á afmælis- daginn, 25.9. kl. 18.00-20.00. Egill Guðmundsson, Guðrúnargötu 6, Reykjavík. 75 ára Finnbogi Ólafsson, Áshamri 23, Vestmannaeyjum. Ingibjörg Jónsdóttir, Húnabraut 30, Blönduósi. Marfa Rósinkarsdóttir, Melseli 8, Reykjavík. Þorbjörg Þorsteinsdóttir, Einibergi 17, Hafnarfirði. 70 ára Hulda Þorláksdóttir, Fellsmúla 22, Reykjavík. Katrín Gunnarsdóttir, Hafnarstræti 3, Þingeyri. Lillian Kristin Andrésson, Bakkatjörn 3, Selfossi. Pacifico Sacala Magno, Hlíðartúni 15, Höfn. 60 ára Anton S. Gunnlaugsson, Mímisvegi 30, Dalvík. Guðbjörg Jóna Sigurðardóttir, Heiðmörk 74, Hveragerði. Ingibjörg Jónsdóttir, Villingadal, Akureyri. Kristjana Ingvarsdóttir, Breiðvangi 35, Hafnarfirði. Sigurbjörg Kristfn Magnúsdóttir, Aðalgötu 8, Blönduósi. 50 ára Guðlaugur J. Gunnlaugsson, Hofgerði 3, Vogum. Guðrún Helga Andrésdóttir, Borgarvík 7, Borgarnesi. Hjalti K. Kristófersson, Vesturgötu 113, Akranesi. Hrefna S. Ingibergsdóttir, Valþúfu, Búðardal. Hreggviður B. Sigvaldason, Blikabraut 6, Keflavík. Jo Anna Hearn, Álfhólsvegi 19, Kópavogi. Jón Erlendsson, Hrauntungu 48, Kópavogi. Karl Árnason, Garðavegi 3, Hafnarfirði. Pálmi Helgason, Kríuási 45, Hafnarfirði. Pétur Jóhannesson, Rauðalæk 47, Reykjavík. PéturJónsson, Fiskakvísl 30, Reykjavík. Stefán Sigurbjörnsson, Strandaseli 4, Reykjavík. Valgerður Jana Jensdóttir, Seiðakvísl 16, Reykjavík. Þórður Jónsson, Austurströnd 12, Seltjarnarnesi. 40 ára Einar Björn Hjelm, Breiðvangi 14, Hafnarfirði. Guömundur K. Sigurbjörnsson, Vallholti 15, Akranesi. HolgeirJónsson, Kelduhvammi 5, Hafnarfirði. Jónfna Kristfn Kjartansdóttir, Álfaskeiði 89, Hafnarfirði. Leifúr Geirsson, Sunnuhlíð, Höfn í Hornafirði. Oddur Ingi Ingason, Marargrund 7, Garðabæ. Ólafur Týr Guðjónsson, Túngötu 18, Vestmannaeyjum. Sigurbjörn Gfsli Aðalsteinsson, Fornastekk 1, Reykjavík. Snæbjöm Magnússon, Melasíðu 2d, Akureyri. 4

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.