Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2003, Qupperneq 31
FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2003 DVSPORT 3 7
Valsliðinu sem skaraði fram úr -
allar áttu þær sína spretti. Berglind
fris tók nokkra mjög mikilvæga bolta
í markinu og Hafrún Kristjánsdóttir
var örugg á línunni. Vamarleikurinn
var þéttur á köflum og þar var Brynja
Steinsen fremst í flokki.
Eyjastúlkur hafa oft leikið betur og
þurfa að verjast betur og sýna betri
markvörslu en í kvöld, ætli þær sér
langt.
„Þetta var virkilega sætur sigur,"
sagði Guðríður Guðjónsdóttir,
þjálfari Vals. „ÍBV er með klassalið, 6
útlendinga, enda sagði ég við
stelpurnar að þetta væri einfaldlega
landsleikur og við yrðum að standa
okkur vel,“ sagði Guðríður.
„Ég var rosalega ánægð með vörn-
ina í fyrri hálfleik þegar við fengum
aðeins 9 mörk á okkur, sérstaklega
þar sem við vorum 70% tímans í
vörn. Sóknarleikurinn gekk illa og
við löguðum það f seinni hálfleik, en
á kostnað varnarinnar." eirikunt@dv.is
Dómarar:
Vilberg F. Sverrisson
og Brynjar Einarsson
7,10
Gæði leiks:
6/10
Áhorfendur:
120
Bestá vellinum:
Brynja Dögg Steinsen, Val
Gangur leiksins:
0-2, 3-3, 3-5,6-5,8-8, (9-9), 12-9,15-11,
19-14, 20-17, 23-18, 26-21, 28-22, 28-27,
29-27.
VALUR i-U-rí'.íe^ .i: .
Mörk/ þar af vlti (skot/vfti) Hraðaupphl.
Dlana Guöjónsdóttir 5/3 /<• 2
Hafrún Kristjánsdóttir 5(7)2
Sigurlaug Rúnarsdóttir 4 '5)0
Hafdís Inga Hinriksdóttir 4 :9) 0
Elfa Björk Hreggviösdóttir 3 (4: o
Drífa Skúladóttir 3:-. 1
Brynja Dögg Stelnsen 2(8)0
Anna María Guðmundsdóttir 1 (1)0
Árný Isberg 10
Arna Grímsdóttir 1 (3) 1
Berglind Iris Hansdóttir ! 0
Samtals: 29/3 152/3) 6
Fiskuð víti
Hafrún Kristjánsdóttir 2
Brynja Dögg Steinsen 1
Varin skot/þar af vlti Iskot á stg/vftl)
Berglind Iris Hansdóttir 19(46/3 41%
Brottvlsanir: 10 mlnútur.
ÍBV
Mörk/ þar af víti (skot/vfti) Hraöaupphl.
Birgit Engl 7 (9) 2
Anna Yakova 7/3(13/3)0
Alla Gorkorian 6112/1)2
Guðbjörg Guðmannsdóttir 3(5) 1
Elisa Sigurðardóttir 2 1
Anja Nielsen 1 (4)0
Sylvia Strass 1 15 0
Samtals: 27/3 (48/4) 6
Fiskuð vfti
Sylvia Strass 2
Birgit Engl 1
Guðbjörg Guðmannsdóttir 1
Varin skot/þar af víti (skot á sig/viti)
Julia Gantimusova 11 (40/3)28%
Brottvfsanln 0 mlnútur.
BIKARDRÁTTURINN
Karlar:
Selfoss-KA
World Class-Valur
Víkingur 2-SÁ
Grótta/KR 2-Afturelding
Stjarnan-Víkingur
Hunangstunglið-Valur 2
Haukar 2—ÍR
(BV-Þór, Akureyri
FH 2-UMF Bifröst
Grótta/KR-FH
HR-Fram
ÍR 2-Breiðablik
ÍBV 2-Höttur
Fylkir-Strumparnir
Haukar og HK sitja hjá í 1. umferð
Konur:
Fylkir/ÍR—KA/Þór
FH-Valur
Grótta/KR-Víkingur
Fram-Valur 2
Haukar, ÍBV, Stjarnan og FH 2 sitja
hjá í fyrstu umferð
Dregið í SS-bikarnum:
Stórleikur FH
og Gróttu/KR
Dregið var í fyrstu umferð SS-
bikarkeppninnar í myndveri
Sjónvarpsins í gærkvöld. Nú
þegar er Ijóst að 3 úrvalsdeild-
arlið munu falla úr leik á meðan
5 „neðrideildarlið" eru örugg
áfram í næstu umferð.
Leikirnir þrfr, þar sem
úrvalsdeildarlið mætast, eru
Selfoss-KA, Stjarnan-Víkingur og
Grótta/KR-FH, sem verður að
teljast stórleikur umferðarinnar.
Hjá konunum eru aðeins 2 lið í
bikarnum sem ekki eru í RE/MAX-
deild kvenna. Það eru Valur 2 og FH
2 en síðarnefnda liðið mun sitja hjá
í 1. umferð ásamt þremur öðrum
liðum. eirikurst@dv.is
Öflug vörn
Skilaði Gróttu/KR góðum sigri ó Víkingi
Frá því að flautað var til leiks
var Ijóst hvort liðið hafði
hungur til að vinna. Stúlkurnar í
Gróttu/KR dönsuðu fram hjá
stöðum Víkingum, sem vissu
hvorki í þennan heim né annan.
Máttlitlar tilraunir þeirra
strönduðu á öflugri vörn
gestgjafanna og þá bolta sem
fóru þar fram hjá tók besti
maður vallarins, Hildur
Gísladóttir.
Seltirningar komust f 5-0 og það
var ekki fyrr en eftir fimmtán
mínútna leik sem Víkingar komust
á blað. Staðan í hálfleik var 9-3 fyrir
heimamenn. Eitthvað slökuðu
Gróttu/KR-stúlkur á klónni í síðari
hálfleik og leikurinn jafnaðist. En
Grótta/KR var mun öflugra lið og
vann öruggan sigur. Hildur
Gísladóttir og Ragna Karen
Sigurðardóttir, sem lék
hundraðasta leik sinn fyrir
Gróttu/KR, voru bestar í liði
heimastúlkna en í liði Víkinga átti
Natasa Lovic einna skástan leik.
Eva Björk Hlöðversdóttir, fyrirliði
Gróttu/KR. sagði eftir leikinn:
„Sigurinn var góður, vörnin í góðu
lagi en sóknin var heldur stirð.
Hildur kveikti í okkur og það er ekki
hægt að tapa þegar markvörður
liðsins ver tuttugu skot."
Það er þó rétt að geta óvenju
slakrar dómgæslu í þessum leik.
Nokkuð sem fór mikið f skapið á
Óskari Ármanssyni, þjálfara
Víkinga, sem var spjaldaður eftir
aðeins sex mínútna leik.
SKK
GROTTA/KR-VIKINGUR
21 - 14(9-3)
Dómarar:
Arnar Sigunónsson
og Svavar O. Pétursson
2/10
Gæ8i leiks:
6/10
Ahorfendur:
160
Best á vellinum: rrm Hildur Glsladóttir, Gróttu/KR Gangur leiksins: 5-0, 5-3, (9-3), 9-4, 11-5,15 18-12,19-13,21-13,21-14. -7, 17-9,
HH|
Mörk/ þar af vfti (skot/vftl) Hraðaupphl.
Eva Björk Hlöðversdóttir 6/2 (9/2) 1
Eva Margrét Kristinsdóttlr 5(7)1
Ragna Karen Sigurðardóttir 4 - 4
Kristln Þóröardóttir 3 ;6) 2
Brynja Jónsdóttir 10
Arndls María Erlingsdóttir 1 (1)1
Alge Stefane 1 4)1
Anna María Halldórsdóttir (1)0
Samtals: 21/2(39/2)10
Fiskuð vfti
Eva Björk Hlöðversdóttir 2
Varin skot/þar af viti (skot á sig/víti)
Hildur Gfsladóttir 19 2) 58%
Brottvfsanir 6 mlnútur.
VÍKINGUF t
Mörk/ þar af vfti (skot/vfti) Hraðaupphl.
Helga Birna Brynjólfsdóttir 4/3 (7/ 3 0
Guörún Þórey Hálfdánardóttir 3 íö) 0
Helga Guömundsdóttir 2 1:0
Ásta Björk Agnarsdóttir 2 (610
Anna Kristín Árnadóttir 1 (4; 0
Linda Björk Hilmarsdóttir 1 (4) 0
Margrét Egilsdóttlr 1 (8) 1
Steinunn Þorsteinsdóttir (1)0
Iris Dögg Haröardóttir 0
Samtals: 15/2(34/3)1
Fiskuð viti
Ásta BJörk Agnarsdóttir 2
Anna Kristln Árnadóttir 1
Varin skot/þar af víti (skot á sig/vfti)
Natasa Lovic 9 0/2) 30%
Brottvlsanln 2 mínútur.
Haukastelpur unnu öruggan
sigur á Framstelpum í Safa-
mýrinni í gærkvöld í annarri
umferð RE/MAX-deildar
kvenna í handknattleik. Loka-
tölur urðu 24-29 í leik sem var
á heildina litið alveg ágætis
skemmtun og það var hvergi
gefið eftir - leikmenn beggja
liða gengu talsvert hart fram
og dómarar leiksins voru
stundum í mesta basli með
baráttuglaðar stelpurnar.
Gestirnir byrjuðu miklu betur,
skoruðu fjögur fyrstu mörkin og
fram undan virtist algert rót-
burst. Það voru þær bláklæddu
ekki alveg til í að samþykkja og
komust smám saman betur inn í
leikinn. Þær breyttu vörninni -
færðu hana mun framar og hófu
að taka Ramune Pekarskypé úr
umferð. Þetta gaf góða raun og
þegar flautað var til leikhlés mun-
aði aðeins tveimur mörkum,
12-14. Haukastelpur komu síðan
mun ákveðnari til leiks í síðari
hálfleik - settu þrjú fyrstu mörkin
og úrslitin voru sfðan fljótlega
ráðin. Mestur varð munurinn tíu
mörk, 18-28, en á lokakafla leiks-
ins slaknaði aðeins á gestunum.
Heimastelpur minnkuðu mun-
inn jafnt og þétt og að endingu
varð hann ekki nema fimm mörk.
Ragnar Hermannsson, þjálfari
Hauka, leyfði flestum stelpunum
að spreyta sig - stelpum sem eru
að koma upp og taka við stærra
hlutverki af sterkum leikmönn-
um sem eru farnar á brott.
Bryndís Jónsdóttir var allan
tímann í markinu og stóð sig vel -
sérstaklega þegar haft er í huga
Hjó hinum ungu
heimastelpum var
Ásta Birna Gunnars-
dóttir mjög frísk í
vinstra horninu og
Kristín B. Gústafs-
dóttir átti fína spretti í
því hægra.
að 6-0 vörn Haukastelpna var
ekki mjög traustvekjandi.
Ramune Pekarskypé hélt áfram
uppteknum hætti og hefði getað
skorað mun meira - var hvíld
talsvert auk þess sem hún spilaði
upp á aðra leikmenn. Harpa Mel-
sted var að venju mjög sterk og
tók alltaf af skarið þegar á þurfti
að halda.
Hjá hinum ungu heimastelp-
um var Ásta Bima Gunnarsdóttir
mjög frísk í vinstra horninu og
Kristín B. Gústafsdóttir átti fína
spretti í því hægra.
Vita upp á sig skömmina
Andrés Gunnlaugsson, þjálfari
Framstelpna, hafði eftirfarandi
að segja í stuttu spjalli við DV
Sport að leik loknum: „Munurinn
er nákvæmlega reynslan - af
fjórtán stelpum f mínu liði hafa
einungis fjórar spilað meistara-
flokksleiki og fram undan er lang-
ur og strangur vetur. Við verðum
bara að vinna áfram á fullu og á
meðan stelpumar em tilbúnar að
vinna og hlýða er ég mjög ánægð-
ur og hef engar áhyggjur. Barátt-
an var góð f liðinu en það sem fór
helst úrskeiðis var það að við vor- +
um að gera alltof marga boltafeila
og þeim verður refsað með því að
þær þurfa að fara út að hlaupa á
morgun - þær vita upp á sig
skömmina í þessu tilviki og
spurðu bara hvenær þær ættu að
mæta. Þær vita hvað þær mega
gera og hvað ekki - svo einfalt er
það," sagði ákveðinn Andrés. SMS ^