Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2003, Side 3
LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 2003 DVBÍLAR 33
Mótorhjólasýningin í Mílanó
Bl Intermot
"giö
Intermot-mótorhjólasýningin í
Mílanó er haldin á hverju hausti
og þar keppast framleiðendur
við að kynna hjól næsta árs.
Sýningin í ár var engin undan-
tekning á því og þótti fjölbreytt
miðað við frekar einhæfar sýn-
ingar síðustu ár. Mestar fram-
farir hingað til hafa orðið í tor-
færuhjólum en framleiðendur
eru aftur farnir að veita götu-
hjólum þá athygli sem þau
þurfa. Einnig var meira um það
en áður að framleiðendur sýndu
tilraunahjói og margar frumleg-
ar hugmyndir eru þar á ferðinni.
Mótorhjól með „tvöfaldan
persónuleika"
Kawasaki frumsýndi nýja módel-
línu á mótorhjólasýningunni í
Mílanó í vikunni en það sem kom
mest á óvart frá þeim var nýtt til-
raunahjól sem hugsanlega fer fljót-
lega í framleiðslu. Hjólið, sem var
sýnt blaðamönnum síðastliðinn
miðvikudag, heitir ZZR-X og er
með „tvöfaldan persónuleika" ef
svo má að orði komast. Með
nokkrum einföldum aðgerðum má
breyta hjólinu úr sporthjóli í ferða-
hjól með töskum og sæti fyrir tvo.
Vindkúpan er þá einfaldlega stækk-
uð með því að smella framlengingu
á hana. Hjólið er með einföldum
afturgaffli og láréttum framgaffli,
líkt og í Yamaha GTS 1000 hjólinu.
KTM með alvöru götuhjól
næsta sumar
KTM frumsýndi nýtt götuhjól á
Intermot-mótorhjólasýningunni í
Mílanó í síðustu viku. Hjólið kallast
Duke 990 og fer í framleiðslu og
kemur strax næsta sumar á mark-
að. Vélin er sama LC8 vélin og úr
Adventure 950 hjólinu en er tjúnuð
upp í 122 hestöfl í götuhjólinu. Vél-
in er mjög létt, aðeins 58 kíló sem er
KAWASAKIZZR-X: Þetta frumlega hjól frá Kawasaki er enn þá á tilraunastiginu.
um 20% minna en nokkur sam-
keppnisaðili getur boðið upp á að
sögn talsmanna KTM-verksmiðj-
anna. Þar af leiðandi er hjólið sjálft
líka létt og er þurrvigt þess aðeins
179 klló. Króm-Moly grindin í hjól-
inu er til dæmis aðeins 9 kíló.
Nýtt GSX-R 750 hjól frá
Suzuki
Suzuki kom mörgum á óvart á
mótorhjólasýningunni í Mílanó
með því að frumsýna nýtt GSX-R
750 sporthjól. Suzuki er því eini
framleiðandinn til að halda áfram
að framleiða 750 hjól eftir að hætt
var að keppa í þeim flokki í Super-
bike-heimsmeistarakeppninni.
Nýja hjólið, sem kemur á markað á
næsta ári, ætti þó að freista margra
því að það er aðeins 163 kíló og
skilar 148 hestöflum sem er nóg til
að keppa við R1 eða Fireblade 1000
hjólin.
DUKE 990: Nýja hjólið er bæði létt og öflugt.
tækni
;*•’ v • ' ’ý>- /’ -
U VARTA
ViSurkenndir rafgeymar
við allar aðstæður
Vilt þú vera með öruggt start?
Einstök Silfur-tækni Varta rafgeyma er bæði í Bláu og frábæru
Silfur-línunni. Silfurinnihald gefur öflugt start og lengir líftíma
geymanna um 20% (u.þ.b. 1 ár) í samanburði við venjulega
rafgeyma. Rafgeymarnir eru algerlega viðhaldsfríir. Silfur-línan
hefur þar að auki 30% meiri startkraft. Vertu viss um að næsti
rafgeymirinn þinn sé Varta rafgeymir með silfri.
Við eigum rafgeymana á lager.
Skiptu tímanlega og forðastu vandræði í ræsingu.
B estir í raun!
Borgartúni, Reykjavík Dalbraut, Akureyri Smiðjuvegi, Kópavogi
Bíldshöfða, Reykjavík Grófinni, Keflavík Radíóþjónusta Bílanausts
Dalshrauni, Hafnarfirði Lyngási, Egilsstöðum Síðumúla, Reykjavík
Hrísmýri, Selfossi Álaugarvegi, Hornafirði RSH.is, Dalvegi, Kópavogi