Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2003, Page 6
40 DVBÍLAR LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 2003
L
~T
Með mun öflugri dísilvél en áður
REYNSLUAKSTUR
Njáll Gunnlaugsson
njall@dv.is
Suzuki Grand Vitara hefur nú
fengið nýja og öfluga dísilvél
og veitti ekki af. Gamla vélin
skilaði aðeins 87 hestöflum en
sú nýja, sem kemur frá PSA og
er Peugeot-vél, bætir við rúm-
um 20 hestum og skiiar hún nú
108 hestöflum.
Reyndar hefur verið bætt við
hestöflin, líka ( V6-bensínvélinni
sem er komin í 181 hestafl, en báð-
ar nýju gerðirnar verða kynntar hjá
umboðinu um helgina. Dísilvélin
verður í boði bæði í Grand Vitara
og Grand Vitara XL-7 en þannig
reyndum við bflinn í vikunni.
Ferskara útlit
Fyrst ber þó að nefna þá andlits-
lyftingu sem bfllinn hefur fengið.
Framsvipurinn er nokkuð breyttur
og mun nýtískulegri en áður. Ljósin
hafa stækkað mikið og grillið
sömuleiðis sem gerir bflinn mun
gerðarlegri en áður. Stærra loftinn-
tak á vélarhlíf spillir ekki heldur og
er ávitull um það sem undir liggur.
Annað hafa þó hönnuðir Suzuki að
mestu leyti látið óbreytt eins og aft-
urendann sem er sá sami og áður.
Innréttingin er nánast óbreytt líka
en stutt er síðan hún fékk nýjan
svip með nýju, baklýstu mælaborði
og meiri búnaði en áður. Reyndar
hefur loksins einu verið bætt við
innréttinguna sem er þriðji höfuð-
púðinn í miðjusætaröð og er þá
armpúði fyrir neðan hann. Aftur-
sætisfarþegar geta þá látið fara vel
um sig því að sætaröðin er á sleða
og í öftustu stöðu er fótapláss með
besta móti.
Gott hlutfall afls og þyngdar
Nýja dísilvélin er einbunu-dfsil-
vél með millikæli og forþjöppu og
því mikil framför frá þeirri sem fyr-
ir var, enda bætir hún 25% við aflið
sem er töluvert. Mestu máli skiptir
þó aukið tog sem er nú 270
Newtonmetrar við 1.750 snúninga
og slagar því hátt í togið í bflum
eins og Toyota Land Cruiser og
Kostir Gailar
Hjólhaf, tog Farangursrými ( 7 sæta b(l
Nissan Terrano með þriggja lítra
vélunum. Vélin í Suzuki-jeppanum
er hins vegar aðeins tveggja lítra og
bfllinn því mun léttari, 1.735 kfló að
eigin þyngd sem er aðeins 55 kfló-
um meira en bfllinn með V6-bens-
ínvélinni. Þegar þessi hlutföll eru
skoðuð í samhengi sést vel að hér
Þegar hlutföll afls og
þyngdar eru skoðuð í
samhengi sést vel að
hér er loksins sam-
keppnishæfur dísilbíll
frá Suzuki á ferðinni.
er loksins samkeppnishæfur dísil-
bfll frá Suzuki á ferðinni. Fyrir þá
sem spá í breytingar ætti þessi bfll
því að vera eftirtektarverður kostur
þar sem hann er nokkru ódýrari en
ofangreindir samkeppnisaðilar.
Hljóðlátari vél
Annar kostur við nýju dísilvélina
er sá hversu hljóðlát hún er og til-
tölulega laus við glamur sem oft er
fylgifiskur slíkra véla. f akstri er,
eins og gefur að skilja, töluverður
munur á bflnum með dísilvélinni
gagnvart bensínvélinni. Hann er
seinni af stað því að togið byrjar
íyrst að taka við sér í um það bil
1.500 snúningum. Bfllinn virkar
líka þyngri í beygjum þótt aðeins 55
kfló hafi bæst við frammi í bflnum.
Fjöðrunin virkar líka mýkri en áður
sem er kostur þar sem hún verður
þægilegri í akstri á grófúm vegum.
Á heildina litið er lftið hægt að setja
út á bflinn í akstri en bremsur
mættu þó vera öflugri í bfl sem
verður sífellt þyngri og stærri með
hverju árinu sem líður.
Samanburðurinn Suzuki ívil
Samanburður á verði verður
Suzuki Grand Vitara nokkuð hag-
stæður en Suzuki Grand Vitara XL-
7 kostar 3.050.000 með nýju vél-
inni. Ódýrasti Toyota Land Cruiser
jeppinn með þriggja lítra dísilvél-
inni er á 3.990.000 kr. en nokkru
getur munað um meiri búnað
Toyota-jeppans. Eins er þriggja
lítra Nissan Terrano á 3.789.000 kr.
og Hyundai Terracan með 2,9 lítra
vél á 3.090.000 kr. Meira að segja
Kia Sorento er dýrari en Suzuki-
jeppinn en ódýrasti bfllinn með
dísilvél kostar 3.190.000 kr.
Kóresku keppinautarnir eru þó ekki
fáanlegir með þriðju sætaröðinni
eins og þeir japönsku.
njall@dv.is
SUZUKI GRAND VITARA XL-7
Vél: 2 lítra, 4 strokka dísilvél
Rúmtak- 1.997 rúmsentímetrar
Ventlar: 16
Þjöppun: 17,3:1
Gírkassi: 5 gíra, beinskiptur
UNDIRVAGN:
Fjöörun framan: Sjálfstæð MacPherson
Fjöðrun aftan: Fimm arma, heill öxull
Bremsur Loftkældir diskar/skálar, ABS
Dekkjastærö: 235/60 R16
YTRITÖLUR:
Lengd/breldd/hæö: 4.760/1.780/1.740 mm
Hjólahaf/veghæö: 2.800/183 mm
Beygjuradfus: 11,8 metrar
INNRI TÖLUR:
Farþegar m. ökumanni: 7.
Fjöldi höfuöpúöa/öryggispúöa: 7/2
Farangursrými: 121-1.492 lítrar
HAGKVÆMNI:
Eyðslaá lOOkm: 8 lítrar
Eldsneytisgeymir: 66 Iftrar
Ábyrgö/ryðvörn: 3/8 ár
Grunnverö: 3.050.000 kr.
Umboö: Suzuki-bílar hf.
Staöalbúnaöur: 2 öryggispúðar, fjarstýrt útvarp/geislaspilari með 4 hátölurum, hæðarstillanlegt ökumannssæti með mjóbaksstillingu, rafdrifnar rúður og speglar, upphitaðir speglar og framsæti, fjarstýrðar samlæsingar, álfelgur,
armpúði f aftursæti og milli framsæta
SAMANBURÐARTÖLUR:
Hestöfl/sn.: 108/4.000
Snúnlngsvægi/sn.: .,-j Hröðun 0-100 km: 270 nm/1750 15,2 sek.
Hámarkshraði: 155 km/klst.
Eigin þyngd: 1.735 kg.
Heildarþyngd: 2.350 kg.
J Framsvipurinn er nýr og mun gerðarlegri en áður.
Plássið snarbatnar þegar þriðja sætaröðin er felld niður en einnig má fella niður
miðjusætaröðina.
3 Innréttingunni var nýlega breytt á þann hátt að nú eru baklýstir mælar og betri
búnaður eins og geislaspilari og fleira.
2 Eins og sjá má er ekki mikið pláss eftir þegar þriðja sætaröðin er í notkun.
J Bíllinn er á álfelgum sem staðalbúnaði.
j| Búið er að bæta við þriðja höfuðpúðanum í miðjusætið.
□ Tveggja Iftra dísilvélin frá Peugeot er togmikil og hljóðlát.
1
1