Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2003, Page 8
8 DVBlLAR LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 2003
Vistakstur spar-
ar bensíneyðslu
um allt að 20%
Vistakstur þýðir aukið öryggi í
umferðinni, minni kostnað við
rekstur bifreiða og síðast en ekki
síst minni mengun en einn mesti
umhverfisvandinn nú á dögum er
aukin losun koldíoxíðs sem ýtir
undir gróðurhúsaáhrif. Útblástur
bifreiða er þar drýgsti þátturinn en
einn lítri af bensíni myndar 2.350 g
af koldíoxíði og einn lítri af dísilolíu
2.660 g af koldíoxíði þegar hann
brennur.
Sigurður Helgason, sviðsstjóri
umferðaröryggissviðs Umferðar-
stofu, segir vistakstur vera ákveðið
aksturslag sem miðar að því að aka
með sem jöfnustum hraða og
stöðva helst ekki á rauðu ljósi. Þeir
sem hafa tileinkað sér vistakstur
hafa minnkað bensíneyðslu bif-
reiða sinna um allt að 20%, brems-
ur duga lengur og allir slitfletir
duga mun lengur. Að sama skapi er
óhagkvæmt að vera á olíugjöflnni
alveg inn að umferðarljósum eða
auka hraðann niður brekku og
þurfa svo að stíga á bremsuna. Jafn
akstur er bestur; minna stress fyrir
bflstjóra og farþega.
Fyrirtækið Hópferðir skilar sér
mjög vel. Þórður Ingi Bjarnason,
bflstjóri hjá Hópferðum, segir að
komið hafi á óvart hversu mikill
munurinn hafi verið á eyðslu bfl-
anna eftir að tekinn hafi verið upp
vistvænn akstur. Sá hugsanagangur
sé að hröðu undanhaldi að það
skipti engu máli hvemig bifreið sé
ekið; þvert á móti skipti aksturslag-
ið öllu máli. „Svo fer vistvænn akst-
ur mun betur með bflinn,“ segir
Þórður Ingi Bjarnason.
Notkun hreyfilhitara dregur um
helming úr skaðlegum útblásturs-
lofttegundum á bflastæðinu og í
nánasta umhverfi. Við hverja
kaldræsingu eykst eldsneytiseyðsl-
an og jafnframt eykst losun útblást-
ursefna. Álag á hreyfilinn þegar bfll
er kaldræstur í miklum kulda sam-
svarar 5 til 600 km akstri svo að
notkun hreyfilhitara dregur úr sliti
SPARNAÐUR; Jafnvel 20 manna hópferða-
bíl er hægt að aka sparlega eins og mynd-
in af maelinum ber með sér. Eftir 13 mfn-
útna akstur var meðaleyðsla hans aðeins 4
lítrar miðað við 100 km akstur. Eknir voru
10,16 km og meðaleyðsla á þeirri leið 13
lítrar miðað við 100 km akstur. Alls eyddi
bíll Hópbíla 1,32 lítrum. Grísinn neðst á
mælinum táknar að hámarkshagkvæmni
er viðhöfð þegar myndin er tekin.
á bflvélinni. Með notkun hreyfil-
hitara minnkar bensíneyðsla við
hverja gangsetningu um u.þ.b. 0,1
til 0,3 lítra. Vistvænn ökumaður STEKKJARBAKKI: Jafnvel í mikilli umferð eins og þarna er undir væntanlegri göngubrú við
hitar upp hreyfilinn til að draga úr hlið Stekkjarbakkabrúar er hægt að ná fram hagkvæmni.
útblæstri. gg@dv./'s
Inoitiddur i'kki PTE'K (Tcfl*'*"-
úwmist |mr .sein btirn n;i1
*** fttl W) «*M A VK) HVtR onusari'
kvnhald: 473 ml (16 únw)
Fæst á öllum smur- og bensínstöðvum
www.stilling.is
DALSHRAUN113 • SÍMI 5551019
EYRARVEGI 29 • SÍMI 483 1800 SKEIFUNNI 11 • SlMI 520 8000
SMIÐJUVEGI 68 • SlMI 544 8800 BlLDSHÖFÐA 16 • SlMI 577 1300
Stilling
tíí öryggis