Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2003, Side 8
8 LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2003
Fréttir DV
Jón Ólafsson hefur selt allar eigur sínar á íslandi.
Meðal þessara eigna eru hlulur Jóns í fjölmiðlafyrir-
tækinu Norðurljósum, húseignir fyrirtækja hans
við Laugarveg og Krókháls, byggingarland hans
á Arnarnesi og einbýlishús við Stigahlíð.
Skattayfirvöld hafa nú um nokkurt skeið
rannsakað skattamál Jóns og má ætla að
vangoldinn skattstofn í ríkissjóð séu um
tveir milljarðar króna.
Samkvæmt heimildum DV er skatt-
rannsókninni lokið. Ríkisskattstjóri hef-
ur málið til meðferðar til að áætla opin-
ber gjöld. Þó er ekki loknum þeim þætti
hjá embætti skattrannsóknastjóra að
ákvarða hvort málið fari í það ferli að úr
verði lögreglurannsókn eða farin verði
leið stjórnsýslusekta.
Ef niðurstaða skattrannsóknar
verður sú að Jón verði ákærður kann
að reyna á ýmis lagaleg álitaefni og
jafnvel milliríkjasamninga, þar sem
Jón hefur lögheimili á Bretlandi.
Má sýsla með eigur
að vild
Þeir sem sæta skattarann-
sókn eru frjálsir ferða sinna og
geta sýslað með eigur sínar að
vild á meðan mál þeirra eru í
rannsókn. Ekkert hindrar þá í að
selja allar eigur sínar í því landi
sem skattrannsóknin fer fram og
flytja peningana úr landi.
Þeir sérfræðingar á sviði
skattamála sem DV ræddi við
sögðu að það væri erfitt að inn-
heimta vangoldin gjöld af ein-
staklingum sem hafa lögheimili
erlendis. Það er hægt samkvæmt
lögum en málin geta verið ákaf-
lega flókin.
Allir viðmælendur blaðsins
bentu á að aðstæður í slíkum mál-
um réðust fyrst og fremst af því í
hvaða landi maðurinn ætti lög-
heimili og hvort ríkisvaldið hefði
gert innheimtusamning við viðkom-
andi ríki.
Ekki samningur við Bretland
Innheimtusamningar kveða á um rétt ríkja til þess
að heimta inn vangoldin'gjöld þegna sem búsettir eru
erlendis. Slíkir samningar eru afar sjaldgæfir og ís-
land hefur til að mynda ekki gert slíkan samning við
Bretland.
Þetta þýðir einfaldlega að ef einstaklingar sem
skulda opinber gjöld yfirgefa landið er mjög erfitt fyrir
ríkisvaldið að innheimta skuldina. Island og Bretland
em reyndar bæði aðilar að Lúganósamningnum um
dómsvald og fullnustu dóma í einkamálum en sá
samningur tekur ekki til skattamála, tollamála og
stjómsýslumála. Því getur verið nánast ómögulegt að
ná fram fullnustu íslensks dóms á þeim sviðum sem til-
heyra undantekningum Lúganósamningsins.
Hin hraða þróun alþjóðlegra fjármagnsmarkaða
kann einnig að gera yfirvöldum erfiðara fyrir að sækja
mál vegna vangoldinna gjalda. Skattaparadísir sem
falla ekki undir neina milliríkjasamninga um skattamál
gera það að verkum að auðvelt er fyrir eignamenn að
fela eignir sínar eða koma þeim þannig fyrir að kröfu-
hafar geta ekki komist að þeim. Lítið er um slíkar
skattaparadísir í Evrópu en þó má finna þær á Bret-
landi, nánar tiltekið á eyjunum á Ermarsundi. Þessar
eyjar tilheyra bresku krúnunni og tilvist þeirra gerir það
að verkum að einstaklingar geta haft lögheimili á meg-
inlandi Englands en samt sloppið við að borga skatt
renni fé þeirra gegnum bankastofnanir á eyjunum.
Auðvelt að sleppa við sektir
Það er því tiltölulega auðvelt að komast hjá því að
borga sektir vegna skattabrota sé viljinn fyrir hendi.
Vissulega getur sú staða komið upp að brot tengd
skattalagabrotum séu svo stórfelld að það leiði til
fangelsisrefsingar. Engum slíkum ásökunum hefur
verið beint gegn Jóni Olafssyni. í alvarlegum tilvikum
gilda hefðbundnir framsalssamningar sé sakborning-
ur búsettur á erlendri grund. Önnur möguleg niður-
staða úr svona málum er sú að málinu sé skotið til yf-
irskattanefndar. Hún getur beitt sektarheimildum en
sé viðkomandi búsettur í öðru landi, ræðst það vænt-
anlega af lögum þess lands, hvernig farið verður að
því að innheimta sektir.
Séu engar eignir til á íslandi getursá sem fer með
innheimtu sektar ekki beitt heimildum um Ijárnám,
uppboð og eftir atvikum gjaldþrot.
ornam@dv.is
kgb@dv.is
Ef niðurstaða skattrannsóknar
verður sú að Jón verður
ákærður kann að reyna á
ýmis lagaleg álitaefni á
sviði, og jafnvel
milliríkjasamn-
inga, þar sem Jón
hefur lögheimili
á Bretlandi.
Ferill Jóns
Ferill Jóns er algerlega einstakur. Jón ólst
upp hjá ömmu sinni I Keflavlk og hóf sig
þaðan upp úr litlu i að verða sannkallað
stórveldi í Islensku viðskiptalífi. Sól Jóns
hefur þó sigið hratt til viðar á undanförn-
um misserum samfara erfiðleikum I
rekstri Norðurljósa hf. og gagngerrar
skattarannsóknar yfirvalda.
FJórtán ára tónleikahaldari
(bók Pálma Jónassonar,
fslenskir milljarðamær-
ingar, sem kom út fyrir
aðeins tveimur árum var
áætlað að heildareignir
Jóns næmu allt að 10
milljörðum króna. Þó skuldirnar væru vís-
ast miklar líka væri óhætt að „telja Jón
með allra auðugustu mönnum landsins."
I