Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2003, Blaðsíða 32
32 LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2003
Fókus DV
Þegar jólahátíðin nálgast hrúgast
safnplötur af ýmsum toga inn á
markaðinn, enda fara safnplötur
með uppáhalds tónlistarmannin-
um eða hljómsveitinni sérstaklega
vel í jóiapakkanum. Kíkjum á
nokkrar og byrjum á þeirri sem
flestir hafa lfldega beðið eftir.
Gítarrokkið til vegs og
virðingar
Hljómsveitin REM var stofnuð í
* Athens í Georgíu árið 1980. John
Michael Stipe söngvari hitti gítarleik-
arann Peter Buck þegar sá síðar-
nefndi var að vinna í plötubúð sem
hann fór oft í. Þegar þeir komust að
því að þeir höfðu svipaðan tónlist-
arsmekk og langaði báða að fara að
búa til tónlist, ákváðu þeir að stofna
hljómsveit. Þeir fengu til liðs við sig
bassaieikarann Mike Miils og
trommuleikarann Bill Berry. Þeir
byrjuðu að spila í Suðurríkjunum og
gáfu út fyrstu smáskífu sína, Radio
Free Europe, árið 1981. í upphafi var
REM ekta neðanjarðar-gítarhljóm-
sveit en vakti smám saman aukna at-
hygli. Fyrstu plöturnar þeirra, Murm-
ur (1983), Reckoning (1984), Fables
v of the Reconstruction (1985) og Lifes
Rich Pageant (1986), fengu góðar við-
tökur hjá gagnrýnendum en það var
með plötunni Document, sem kom
út 1987, sem sveitin sló í gegn. Á
henni var lagið The One 1 Love sem
naut mikilla vinsælda um allan heim.
1988 gerði REM samning við Warner
upp á sex milljónir dollara. Nýja safn-
platan, in Time: The Best of REM,
1988-2003, nær yfir ár sveitarinnar
hjá Warner. Fyrsta platan þeirra fyrir
fýrirtækið, Green, sem kom út 1988,
gekk vel og í kjölfarið fór sveitin í
mikla tónleikaferð. Með næstu
v, tveimur plölum, Out Of Time (1991)
og Automatic For The People (1992),
varð REM ein af stærstu hljómsveit-
um heims. Á þeirri fyrri var hið geysi-
vinsæla Losing My Religion og á
þeirri seinni smellirnir Drive, Man
On the Moon og Everybody Hurts.
Síðustu fjórar REM-plötur hafa feng-
ið ágætar viðtökur þó að engin þeirra
teljist á meðal bestu verka sveitarinn-
ar. Það besta af fyrri hluta ferilsins
kom út á safnplötunni The Best Of
REM árið 1998, en nýja platan er
fyrsta safnplatan sem spannar Warn-
er-árin.
, In Time: The Best Of REM
1988-2003 verður í byrjun fáanleg
tvöföld. Á fyrri plötunni eru 17 af
bestu lögum sveitarinnar síðustu 15
árin og eitt nýtt lag sem þegar er farið
að hljóma látlaust á flestum útvarps-
Nú er árstíð safnplötunnar runnin upp og
plötuútgefendur keppast við að setja saman
eigulegar yfirlits- og ferilplötur, oftar en ekki
frá mönnum sem eru hér um bil komnir
fram yfir síðasta söludag. Trausti Júlíusson
kynnti sér útgáfuna í ár og staldraði við nýjar
safnplötur með REM og Peter Gabriel.
Strákarnir í REM hafa aðeins lát-
ið á sjá síðan þeir gáfu út fyrstu
plötu sína fyrir 20 árum en þeir
eru þó enn nógu hressir til að
gera aðdáendur sína brjálaða
eftir nýjum plötum.
stöðvum, Bad Day. Á seinni piötunni
eru ýmsar fágætar upptökur, demó-
útgáfur, tónleikaupptökur, lög úr
kvikmyndum og breyttar útgáfur.
REM hefur aldrei átt í vandræðum
með að setja saman grípandi og eftir-
minnileg smáskífulög. Plata sem
safnar saman helstu smellum sveit-
arinnar getur því varla orðið neitt
annað en pottþétt hlustun frá upp-
hafi til enda.
Tónlistarlegur ofurhugi
Breski tónlistarmaðurinn Peter
Gabriel á að baki magnaðan feril.
Hann stofnaði hljómsveitina Genesis
ásamt hljómborðsleikaranum Tony
Banks árið 1965, þegar þeir voru 15
ára skólapjakkar í Surrey á Englandi.
Genesis varð ein af merkisberum
prog-rokksins („þunga og þróaða
deildin"). Peter Gabriel var söngvari
hennar á fyrstu sex plötunum. Hann
var aðalhvatamaðurinn að því að
tónleikar Genesis voru eins og leik-
sýningar. Eftir útkomu meistara-
verksins The Lamb Lies Down On
Broadway árið 1974 og tónleikaferð-
ina sem fylgdi í kjölfarið lýsti hann
því yfir í maí 1975 að hann væri hætt-
ur í hljómsveiúnni. Með fyrstu fjór-
um sólóplötunum hans, sem allar
báru nafn hans, Peter Gabriel 1
(1977) PG2 (1978) og PG3 (1980) og
PG4 (1982), kom í ljós að hann var
kominn út í allt aðra sálma en með
Genesis. Þetta var enn rokk, en núna
blandað tilraunamennsku, raftónlist
og heimstónlistartöktum. Smáskíf-
urnar Games Without Frontiers og
Biko af PG3 og Shock the Monkey af
PG4 nutu töluverðra vinsælda, en
það var hins vegar með fimmtu plöt-
unni, So frá 1986, sem Peter náði
metsölu úti um allan heim. Platan
innihélt m.a. smáskífumar Dont Give
Up, sem hann söng með Kate Bush,
og Sledgehammer, sem var óður Pet-
ers til Stax soul-útgáfunnar. Mynd-
bandið við það lag þykir enn í dag eitt
það flottasta sem hefur verið gert í
sögunni. Peter stofnaði plötuútgáf-
una Real World árið 1989 til þess að
gefa út heimstónlist. Hann hefur í
auknum mæli snúið sér að pólitískri
baráttu (t.d. með WOMAD og Am-
nesty International), kvikmyndatón-
list og ýmsum tilraunaverkefnum í
seinni tíð. Síðasta platan hans, Up,
sem kom út í fyrra olli nokkmm von-
brigðum.
Nýja safnplatan með Peter
Gabriel heitir Hit. Hún er tvöföld og
skiptist í Hit sem safnar saman öllum
helstu smellunum sem hafa elst mjög
vel og Miss sem er safn af lögum af
sólóplötunum hans sem ekki vom
smáskífur, lögum af kvikmyndaplöt-
um og öðmm fágætum upptökum.
Þetta er flottur pakki sem gefur góða
innsýn í feril þessa merkilega tónlist-
armanns.
Fjölbreytt útgáfa fram undan
En það er hellingur af öðrum
safnplötum á leiðinni. Smáskífu-
lagasafn hljómsveitarinnar Suede,
Singles, er nýkomið út. Það er troð-
fullt af smellum. Gömlu jálkarnir í
The Eagles, sem eiga fyrir mest seldu
plötu sögunnar í Bandaríkjunum,
safnplötuna Greatest Hits, vom að
senda frá sér uppfærða útgáfu, The
Complete Greatest Hits, sem er tvö-
föld og kemur með mjög flottum
bæklingi þar sem þeir Don Henley &
Glenn Frey riija upp tilurð laganna.
(Það voru lfldega ekki margir sem
vissu að Hotel California var upphaf-
lega instrumental lag sem hét Mexic-
an Reggae.) Þá er nýtt John Lennon
safn, Legend, nýkomið út, bæði á CD
og DVD. Á næstunni er líka von á
safnplötum frá Underworld
(1992-2002), Red Hot Chili Peppers
(Greatest Hits), TLC (Still Crazy: The
Hits), Bmce Springsteen (Essential),
Pet Shop Boys (PopArt The Best of)
og Michael Jackson (Number Ones),
að ógleymdum erkitöffurunum í
Primal Scream en þeirra safn, Dirty
Hits, verður að sjálfsögðu sjálfkrafa
skyldueign á öllum heimilum sem
rokka. Og listinn er rétt að byrja ...
Gráir og guggnir
en enn hressir
Plötudnmrir
fvrir hvem?____skemmtileaar__niSurstaSa
Flytjandi: Eivor
Pálsdóttir
Platan: Krákan
Útgefandi: 12 tónar
Lengd: 54:27 mín.
Flytjandi: Bang Gang
;; Útgefandi: 2112
. . Lengd: 47:14 mín.
r'F-j
Krákan er önnur plata færeysku söng-
konunnar Eivarar Pálsdóttur undir eig-
in nafni, en hún á einnig aö baki eina
plötu meö hljómsveitinni Clickhaze.
Krákan er gerö meö þeim Pétri Grét-
arssyni slagverksleikara, Eövarö
Lárussyni gítarleikara og Birgi Braga-
syni kontrabassaleikara. Lög og textar
eru eftir Eivbru, nema tvö sem eru
færeysk þjóðlög
Hér er komin önnur plata eins manns
hljómsveitarinnar Bang Gang, en hin
fyrri, You, kom út fyrir fimm árum.
Bang Gang er Barði Jóhannsson.
Hann semur flest lögin, leikur á hljóö-
færi, útsetur og syngur nokkur þeirra
líka. Aörir söngvarar eru Esther Talía
Casey, Phoebe Tolmer, Keren Ann,
Daníel Ágúst Haraldsson og Nicolette.
sfaðreyndir
Tónlistin á Krákunni er svolítiö sér á
báti. Hér er ekki verið að eltast viö
tískustraumana. Þetta er einhvers kon-
ar sambland af þjóðlagadjassi, rokki og
poppi. Þaö sem hins vegar setur mest-
an svip á útkomuna er söngur og túlkun
Eivarar sjálfrar. Þetta er plata sem ætti
að höfða til allra þeirra sem hafa áhuga
á framsækinni og metnaðarfullri tónlist
sem er flutt af ástriðu.
Þetta er ósvikiö nútímapopp sem
minnir stundum á gullaldarpopp frá
sjöunda áratugnum og stundum á trip-
hop-sveitir eins og Massive Attack og
Portishead. Þó að það sé mjög mikið
lagt í hljóminn og stemninguna hér þá
eru lagasmíðarnar líka vel gerðar og
gætu alveg gengið með söng og ein-
um kassagítar. Plata fyrir þá sem vilja
vandað og vel gert popp.
Það er valinn maður í hverju rúmi á
Krákunni. Pétur Grétarsson hefur spilað
inn á margar af athyglisveröari djassplöt-
um síðustu ára og bæði meö Sinfóní-
unni og Stuömönnum. Birgir Bragason
hefur spilað með Millunum og ótal öðr-
um ólíkum tónlistarmönnum og Eðvarð
Lárusson er meðlimur í JJ Soul Band,
Kombóinu og Dýrunum í Hálsaskógi og
hefur spilaö með ótal djasssveitum
Barði hefur ekki gefið út plötu í 5 ár,
en nú er hann ekki bara að senda frá
sér þessa nýju Bang Gang plötu held-
ur er nýkomin út plata með dúóinu
Lady & Bird sem eru aukasjálf Barða
og frönsku tónlistarkonunnar Kerenar
Ann. Sú plata inniheldur 8 lög eftir
þau tvö og svo Lou Reed-lagið Steph-
anie Says og MASH-slagarann Suicide
Is Painless.
Það tekur smátíma aö njóta þessarar plötu
til fulls. Maður heyrir strax einstakan söng
Eivarar og hugmyndarikan gitarleik Eð
varös, en platan fer samt ekki að .renna"
almennilega fyrr en eftir nokkur skipti. Þá
hættir hún að vera fiamandleg og verður
að samfelldri veislu fyrir hlustimar. Ómót-
stæðilegt sambland af hinu gamla og þjóð
lega og hinu nýja og framsækna.
trausti júliusson
Þetta er flott plata og miklu betri heldur
en fyrri platan. Barði sjálfur syngur nokk-
ur lög og gerir það býsna vel. Gesta-
söngvararnir auka flölbreytnina samt
mikið og gefa lögunum hverju sinn
karakter. Rest lögin eru góö, en Inside,
There Was a Whisper, Rnd What You
Get og Supremes-smellurinn Stop in the
Name of Love eru í mestu uppáhaldi.
trausti Júlíusson