Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2003, Blaðsíða 12
72 ÞRIÐJUDAGUR 25. NÓVEMBER 2003
Fréttir DV
Ódýrt bensín
bannað
„Ástæða þess að hér
býðst ekki sams konar
bensín og í Bandaríkjunum
er tilskipun frá Evrópusam-
bandinu," segir Magnús
Ásgeirsson, sem sér um
eldsneytiskaup fyrir Olíufé-
lagið. Bensín sem selt er í
Bandaríkjunum, á margfalt
lægra verði en hér, hefur
lægri oktantölu en bensín
sem íslensku félögin selja.
Venjulegt bensín þar í landi
er 87 oktan en bensín-
stöðvar bjóða einnig svo-
kallað „gæðabensín" sem
er 93 oktan. Á íslandi er 95
oktan bensín það lægsta
sem í boði er.
Magnús segir að eftir-
spurn hér á landi eftir öðru
en 95 og 98 oktan bensíni
sé nánast engin. „Við seld-
um 92 oktan bensín í lang-
an tíma en í dag er sala á
því innan við eitt prósent af
markaðnum."
Hærri
verðlaun
Sá sem fær íslensku
barnabókaverðlaunin á
næsta ári fær hálfa milljón
króna fyrir. Verðlaunin hafa
verið hækkuð í tilefni af því
að þau verða veitt í tuttug-
asta sinn á næsta ári. Frest-
ur til að skila inn handrit-
um í samkeppni næsta árs
er til 1. febrúar.
Verðlaunasjóður ís-
lenskra barnabóka veitir ís-
lensku barnabókaverðlaun-
in árlega. Markmið sjóðsins
er að stuðla að auknu fram-
boði á vönduðu íslensku
lesefni fyrir æsku landsins.
Að Verðlaunasjóði ís-
lenskra barnabóka standa
Vaka-Helgafell, fjölskylda
Ármanns Kr. Einarssonar,
IBBY á Islandi og Barna-
vinafélagið Sumargjöf.
Stofnað var til verðlaun-
anna í tilefni af 70 ára af-
mæli Ármanns árið 1985.
Sr. Hjálmar
Jónsson
Hjálmar þykir bráðgáfaður maður
sem er fljótur að gripa stemningu
stundarinnar. Þar kemur meðal
annars til skáldagáfan, sem m.a.
hefur gefið honum mannlegt inn-
sæi. Á góðri stundu er Hjálmar
hrókur alls fagnaðar - fyrir svo
utan að hann er trygglyndur og
bregst ekki þeim sem á hann stóla.
Kostir & Gallar
Hjálmar þykir stundum tækifæris-
sinnaður og ofurlltið framagjarn.
Annar galli Hjálmars felst, að mati
kunnugra, iþvi að taka sig ofhá-
tiðlega og formlega á stundum.
Segja mennað hann mætti sýna
meira afprakkaranum og
húmoristanum sem hann hefurað
geyma.
Michael Jackson er sagður hafa boðið foreldrum
Gavins Arvizo peninga fyrir að draga kæru á hendur sér
til baka. Gavin Arvizo, sem er tólf ára, hefur sakað
Michael Jackson um að hafa beitt sig kynferðislegu of-
beldi í Neverland.
Mál Michaels Jacksons hefur trölliðið fjölmiðlum
um allan heim síðustu daga. Greint var frá þvf í gær að
lögregla hefði undir höndum ástarbréf og ljóð sem álit-
ið er að Jackson hafl skrifað til Arvizos. Umfangsmikil
húsleit var gerð á heimili Jacksons í liðinni viku og
fundust umrædd bréf við þá leit. Einnig munu hafa
fundist myndbönd í tugatali sem sýna heimsóknir
ungra drengja í Neverland. Efni myndbandanna mun
þó á engan hátt sýna neitt ósiðlegt.
Jackson gengur nú laus gegn tryggingu og hefjast
réttarhöld í Santa Barbara í byrjun næsta árs. Talsmað-
ur söngvarans sagði í gær að Jackson myndi berjast af
hörku í málinu. „Honum ofbjóða hreinlega þessar
ásakanir. Að öðru leyti ber hann sig vel og er þakklátur
aðdáendum sínum fyrir veittan stuðning," sagði tals-
maðurinn. Eftir því var tekið um helgina að góðvinkon-
ur Jacksons, þær Liza Minelli og Lisa Marie Presley,
virðast ekki styðja við bakið á honum. Það gerir hins
vegar Elizabeth Taylor sem loks lét í sér heyra í gær. „Ég
trúi að Michael Jackson sé saklaus," sagði Elizabeth
Taylor.
Jackson opnaði vefsvæði í gær fyrir stuðningsmenn
sína á slóðinni www.mjnews.us.
Jackson gengur nú laus
gegn tryggingu og hefj-
ast réttarhöld í Santa
Barbara í byrjun næsta
árs. Talsmaður söngvar-
ans sagði í gær að
Jackson myndi berjast
afhörku í málinu.
Anna Mjöll Söngkonan hefur
búið í Kaliforniu síðustu árin. Hún
segir mikið af peningagráðugu
fólki i Los Angeles, fólki sem
svífist einskis.
Anna Mjöll Ólafsdóttir segir
barnaníðingsákæru á hendur
Michael Jackson sorglega
Sá Michael
sem ég þekkti
hefði ekki gert
flugu mein
„Mér finnst þetta mjög sorglegt allt sarnan," segir
Anna Mjöll Ólafsdóttir, söngkona í Los Angeles, um
ákæru á hendur Michael Jackson en honum er gefið
að sök að hafa beitt ungan dreng kynferðislegu of-
beldi.
Anna Mjöll þekkir vel til skemmtanaiðnaðarins t
Kaliforníu. Hún heimsótti Jackson á búgarð hans,
Neverland, fyrir tíu árum. Hún segir fólk í stöðu
Jacksons eiga það stundum á hættu að ruglast í rím-
inu.
„Ég veit líka að það er mikið af pemngagraðugu
fólki, ekki síst hér í Los Angeles. Þetta fóUc svífst
einskis og kærir jafnvel besta vin sinn ef það sér
möguleika á góðum hagnaði," segir Anna.
Hún segir jafnframt ljóst að sumir lögreglumenn
fái „kikk" út úr þessu máli. „Þeir fá mynd af sér í blöð-
unum. Það var til dæmis fáránlegt að setja Michael í
handjárn. Þetta var bara leikrit og ég held að þeir
hætti ekki fyrr en þeir eru búnir að gera út af við
hann.“ . ,
Anna rifjar upp fund sinn og Michaels fyrir tiu
árum og segir að þá hafi hann haft mestan áhuga á að
gera börnin í kringum sig hamingjusöm.
„Hann gaf börnum gjafir og leyfði þeim að leika í
tívolíinu í Neverland. Sá Michael sem ég hitti fýrir tíu
árum hefði ekki getað gert flugu mein. Ef maður frem-
ur þann glæp sem Michahel er sakaður um þá geta
ekki allir peningar heimsins bætt fyrir það og engin
refsing er nógu hörð. Aftur á móti hef ég ákveðið að
trúa ekki að Michael hafi framið þennan glæp fyrr en
annað verður sannað," segir Anna Mjöll Olafsdóttir.
arndis@dv.is