Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2003, Qupperneq 24
Fréttaskot Við tökum v\ð fréttaskotum allan
sólarhringinn. Fyrir hvert fréttaskot sem birtist, eða
er notað íDV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta
fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur.
Fullrar nafnleyndar er gætt. 550 5090
SKAFTAHLÍÐ24 105RBYKJAVÍK[STOFNAÐ 1910 ] SÍMI5505000
Lyklunum stolið
Jagúarinn til Manchester
• Sjónvarpsfréttir geta haft
** umtalsverð áhrif á börn sem
kunnugt er. Nú er
svo komið að börn
víða um land neita
að fara að sofa af því
að þau eru hrædd
við Kaupþing Bún-
aðarbanka eða jafn-
vel íslandsbanka.
Hafa foreldrar lent í vandræð-
um með að snúa ofan af þess-
ari vitleysu í börnunum en það
getur tekið nokkra daga...
• Fastagestir í Ræktinni á Sel-
tjarnarnesi hafa margir hverjir
undrast afl það sem
Mörður Ámason al-
þingismaður sýnir
** þar við æfingar; sér-
staklega þó í lyfting-
um. Eftir að Mörður
hafði lokið lyftingum
einn daginn laum-
uðust tveir aðrir í lóðin hans og
reyndu en gátu vart hreyft.
Kom í ljós að þyngd lóðanna
var 150 kíló og höfðu menn á
orði að Mörður hlyti að vera
geimvera. Sjálfur kannast
Mörður ekki við að lyfta svona
ósköpum reglulega...
Bergur Guðnason lögfræðingur er í
vandræðum. Bíllyklunum af Jagúarnum
hans var stolið á Bflasölu Reykjavíkur og
nú stendur hann frammi fyrir því að
þurfa að fara með bflinn alla leið til
Manchester til að fá nýjan lykil.
„Þetta er grátlegt,“segir Bergur sem
reyndar átti aukalykil sem er þeirrar
náttúru hjá Jagúar að hann rennur út eft-
ir ákveðna notkun. Ekkert virkar því í
Jagúarnum og hefur Bergur því þurft að
parkera honum heima hjá Guðna fót-
boltakappa, syni sínum. Bflinn ædaði
hann að selja á 2,9 milljónir króna en
gerir það ekki lyklalaus:
„Það er engin þjónusta hér á landi
fyrir Jagúar enda bflarnir í landinu ekki
nema 83 talsins. Þegar ég setti mig í sam-
band við söluaðilann í Manchester var
mér sagt að ekki væri annað ráð en að
koma með bflinn út og láta laga þetta.
Það þykir mér heldur langt ferðalag fyrir
mig og bflinn út af einum lykli," segir
Bergur sem botnar ekki í hvað vaki fyrir
mönnum sem brjótast inn á bflasölu,
taki lykla og láti þar við sitja. „Ég heiti
góðum fundarlaunum því hér er mikið í
húfi,“ segirhann.
Raunir Bergs má í raun rekja til þess
hversu góð þjófavörnin í Jagúar er. Aðal-
lykillinn er með fjarstýringu og gengur
að öllu. Aukalykillinn er hins vegar að-
eins skammtímaiausn og nú útrunninn
hjá Bergi. Bfllinn er því ónothæfur og í
raun lítils virði nema Bergur fái bfllyk-
lana sína aftur - eða fari með bflinn alla
leið til Manchester. Skilaboðin til þjóf-
anna eru því þessi: Skilið Jagúarlyldun-
um og sparið þar með Bergi bfltúrinn til
Manchester. Það gæti borgað sig.
Bergur við Jaguar
inn Biður þjófana
að skila lyklunum.
Aukalykillinn rann
út og virkar ekki
lengur
l'tK
vSl
• I framhaldi af fréttum þess
efnis að Vigdís Finnbogadóttir,
fyrrum forseti ís-
lands, styðji Færey-
inga ekki í sjálfstæð-
isbaráttu þeirra, seg-
ir Vigdís og áréttar:
„Að gefnu tilefni vil
ég táca fram að ég er
einlægur vinur Fær-
eyinga og Grænlendinga og
styð þá heilshugar í öllu þeim
ákvörðunum sem þeir sj álflr
taka í sjálfstæðismálum sín-
um.“
Þá fer það ekki á milli mála...
Getur hann ekki
tekið strætó?
|---!----
Strætókórinn Sterkar karlmannsraddir sameinast í söng.
Strætókórinn
Raula oft á leiðinni
Strætisvagnabílstjórar raula oft á leiðinni þegar lftið annað er við að vera en
að aka. Þeir raula þó aldrei í hátalarakerfið en ættu kannski að gera. Fyrir far-
þegana. í frístundum syngja þeir margir í Strætókórnum sem stofnaður var
fyrir 45 árum og ráðgera tónleika í Ými í Skógarhlíð annað kvöld klukkan 20:00:
„Það eru enn tveir bflstjórar með okkur sem byrjuðu í kórnum upphaf-
lega. Þeir syngja enn þó löngu séu hættir að keyra strætó," segir Guðmund-
ur Sigurjónsson, formaður kórsins, en Sigurjón ók leið 4 í 19 ár. Nú er hann
kominn á skrifstofuna hjá Strætó. „Þetta eru hressar og kraftmiklar karl-
mannsraddir sem hafa yndi af söng,“ segir formaðurinn.
Stjórnandi Strætókórsins til margra ára er Guðmundur Ómar Óskarsson,
organisti í Lágafellskirkju, og á söngskránni eru öll helstu karlakórslög lands-
ins og líka Smaladrengurinn eftir Skúla Halldórsson en Skúli var lengi skrif-
stofustjóri hjá Strætó.
Það kostar 500 krónur inn á tónleikana hjá Strætókórnum í Ými á morg-
un.
PfC
'foNer^K NS-VKS990 K^.169.900.~
Magnari 450W (6 x 75W) RMS • Bassabox 75W • Spilar ölj svæði • DVD-Audio, SACD, MP3, DVD-R, DVD-RW, CD, CD-R, CD-
RW, JPEG. • NXT hátalarar • Stilling á Bassa og Diskant • Útvarp með 30 stöðva minni og RDS • Dolby digital / DTS / Pro logic
II • AUX inngangur og TV inngangur • "Optical" stafrænn inngangur, Super VHS útgangur
450W (6 x 75W) RMS • Bassabox 75W • Spilar öll svæði • DVD-Audio, SACD, MP3, DVD-R, DVD-RW, CD, CD-R, CD-
PEG. • Stilling á Bassa og Diskant • Útvarp með 30 stöðva minni og RDS • Dolby digital / DTS / Pro logic II • AUX
inngangur og TV inngangur • AUX útgangur • "Optical" stafrænn inngangur, Super VHS útgangur
pfoNeeK
.900.-
Magnari 6 x 75 W RMS • Bassbox 75 W RMS • Spilar öll svæði: DVD-R, DVD-RW, CD, CD-R, CD-RW, MP3, JPEG
1 Stilling á Bassa og Diskant • Útvarp meö 30 stöðva minni og RDS • Dolby Digital / DTS / Pro logic II • AUX útgangur Et
inngangur og TV inngangur • "Optical" stafrænn inngangur • Super VHS útgangur •
©ORMSSON
MODcL
PáDIONAUsl
b KóMVu NÚ
HLoSTAOo Á
AKRANESI ÁRMULA 9 • SÍMI 530 2800 • WWW.ORMSSON.IS AKUREYRI
1