Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2003, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2003, Page 2
2 MÁNUDAGUR 22. DESEMBER 2003 Fréttir 0V Útgáfufélag: Frétt ehf. Útgefandi: Gunnar Smári Egilsson, ábm. Ritstjóran lllugi Jökulsson MikaelTorfason Fréttastjórar Kristinn Hrafnsson Kristján Guy Burgess DV: Skaftahlíð 24, Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjóm: 550 5020 - Aðrar deildir. 550 5749 Ritstjóm: ritstjorn@dv.is - Auglýsing- an auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifmg@dv.is Setning og umbrot Frétt ehf. Prentvinnsla: ísafoldarprentsmiðja DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagna- bönkum án endurgjalds. 40 þúsund í Kringlunni Um 40 þdsund manns komu í Kringluna í gær á síðasta sunnudegi fyrir jól. Að sögn Arnar Kjart- anssonar, fram- kvæmda- stjóra Kringlunn- ar, var fólk tiltölulega rólegt og skipulagt í innkaupum sínum. Þó var áberandi að fólk virtist ætla að veita sér meira fyrir þessi jól en mörg undan- farin. Sýndist Erni sem gestir Kringlunnar væru að versla fyrir 10 prósent meira að jafnaði en í fyrra. Strax eftir áramót taka útsölurnar við í Kringlunni og svo verður allt rólegt í febrúar. Keiko minnst Hvalamiðstöðin á Húsa- vík stóð fyrir minningar- athöfii um hvalinn Keiko á föstudaginn en þá var vika liðin frá dauða hans. Var bömum boðið að koma og sjá myndir af Keiko auk þess sem sýnt var brot úr kvikmyndinni Free Willy en þar lék Keiko sem kunnugt er aðalhlut- verkið. Þá flutti Ásbjörn Björgvinsson, forstöðu- maður Hvalamiðstöðv- arinnar, ávarp við góðar undirtektir barnanna. Milljónir í skóla Seltjarnarnesbær gerir ráð fyrir að verja um 65 milljónum króna á næsta ári til viðhalds og nýfjárfest- inga í skóla- mannvirkj- um. Þar af verður 9 milljónum varið til við- halds og framkvæmda við Valhúsaskóla. Með- al annars á að ljúka við anddyri skólans sem reist var í sumar. 30 milljónir fara í Mýrar- húsaskóla og 20 millj- ónir í stækkun tónlist- arskólans á Nesinu. <V <U ca Lengri dagur ~ Myrkrið er á undan- n haldi; dag er farið að ■“ lengja efdr stysta sólar- „ gang sem var í gær. Þó E ekki muni miklu ™ færumst við þó nærri sumri og birtu um eitt « hænufet á dag til að - byrja með sem endar svo « í risastökkum og albirtu áður en langt um lfður. >- Verri en Vítisenglar Til þess eru Víúsenglar að varast þá. Það getum við lært af mistökum löggæzlu annars staðar á Norðurlöndum. And- varaleysi stjómkerfisins á fyrri árum hefur gert vélhjólagengjum kleift að verða ríki í rík- inu. Þarlend yfirvöld sjá eftir linkind sinni og vara okkur við að lenda í sömu ógæfu. ísland er eyja með góðri aðstöðu til að hafa hemil á innflutningi hættulegs fólks og hættu- legs vamings. Rétt er að nota þessa aðstöðu til að vísa frá landinu fólki, sem tengist þraut- reyndum glæpasamtökum á borð við Vít- isengla, og hafa strangt eftirlit með aðdáend- um þeirra innanlands. Vítísenglar eru sams konar fyrirbæri og maf- ían. Þau leggja til atlögu við ríkisvaldið með því að verða ríki í ríkinu. í undirheimum þeirra ríkja lög og reglur, sem meira eða minna stangast á við lög og reglur þjóðskipu- lagsins og ógna öryggi skjólstæðinga þess, hinna almennu borgara landsins. Á jaðri undirheimanna em fíklar, sem fjár- magna neyzlu sína með innbrotum, ránum, ofbeldi og aðstoð við dreifingu eiturefiia og síðast en ekki sízt með því að þegja um vit- neskju sína. Þetta jaðarfólk er hræddara við handrukkara og ofbeldismenn undir- heimanna en við verði laga og réttar. Þannig myndast vemdarhjúpur utan um gengin, sem grafa undan lögum og rétti. Hér á landi hefur gengið illa að rjúfa þennan hjúp, þótt flestir glæpir, sem komast upp, tengist neyzlu vímugjafa. Lögreglunni hefúr gengið illa að rekja sig upp eftir söluþráðum til köngulóa fíkniefnamarkaðarins. Hingað til hafa hér á landi einkum verið kló- festir milligöngumenn og smásalar, en fáir heildsalar, nema þá bjánar, sem ekki kunnu að dyljast, notuðu til dæmis stéttartákn á borð við BMW-bfla. Lögreglan hefúr náð of litlum ár- angri í að negla höfuðpaura undirheimanna. Norrænir vítísenglar em harðari í hom að taka en þeir, sem hingað til hafa verið gripnir hér. En þeir em sömu bjánamir, bera til dæm- is tákn, sem auðvelda gagnaðgerðir. Auðvelt er að finna þá og snúa þeim frá, sem hafa áður verið myndaðir með einkennistáknum glæpa- gengja í bak og fyrir. Aðgerðum gegn Vítisenglum ber að halda áfram af krafti. En þeir standa ekki efstir á glæpahaugnum. Lögreglan þarf að finna leiðir til að rekja sig upp eftir markaðsþráðum fíkni- efnaheimsins og finna þá, sem em enn verri og dyljast í einkennisbúningi jakka og bindis góð- borgarans. Mikilvægast er í fyrstu að fá jaðarmenn til að segja frá. Til þess þarf að vera hægt að tryggja öryggi þeirra og aðstandenda þeirra fyrir refs- ingum undirheimanna. Jónas Kristjánsson Fyrst og fremst um Caterpillar-vinnuvélar í „heimildarmynd" Landsvirkjunar um Kárahnjúkavirkjun. Og Mogg- inn er ekki síður fullur aðdáunar í nákvæmri upptalningu sinni á „af- rekum" og „ævi“ Miklabors: „Borinn sjálfur er 600 tonn að þyngd og 120 metra langur, en hann kom hingað með skipi í pörtum. Verkstæðiseining og matsalur er meðal þess sem má finna f bomum sjálfúm. Borinn var áður notaður til þess að bora göng undir Queens í New York Borinn er einn af þremur sem til landsins koma vegna Kára- hnjúkavirkjunar og kostar hver þeiira 1,2 milljarða króna. Umrædd- um bor verður ætlað að heilbora alls um 50 kflómetra löng göng. Sams konar borar hafa verið notaðir við mjög stór verkefni um allan heim, en fleiri kflómetrar hafa verið boraðir með þessarri tegund bora en nokkrum öðrum borum í heimin- um. f því samhengi má nefna Ermarsundsgöngin, göng vegna lisastíflu í Lesotho í Suðurhluta Afr- íku, göng vegna stíflugerðar í Gulá í Kína, endumýjun holræsakerfis Hong Kong og neðanjarðarlestar- göng í Brooklyn í New York. „ Það hefði ef til vill veríð fróð- legra að heyra nánar af „afrekum" borsins og þá ekki síður Impreglio, fyrírtækisins sem stendur að komu hans, á þeim svæðum sem hann hefur veríð að störfum. Getið er þess að „borinn mikli" hafí starfað í Lesotho í Suðurhluta Afríku. Ekki er þó minnst á að vegna þeirrar framkvæmdar rísu upp dómsmál þar sem ráðgjafí Impregilo játaði mútugreiðslur fyr- ir hönd ítalska verktakans. Lesa má um þessa forsögu á blaðsíðu 12 í blaðinu í dag. Mögulega var þessi Miklibor einnig í Nepal þar sem Impregilo komst í fréttir fyrir að fara 13 milljarða umfram verkáætl- un við virkjunarframkvæmd en tókst með lagaklækjum að sækja það fé til „Landsvirkjunnar" þeirra Nepalbúa. Ef til vill var Kárahnjúkaborinn einnig í Pakistan þar sem Impreglio stóð í stórræðum í baráttu gegn verkalýðnum. Alþjóðasamband Verkalýðsfélaganna í Brussel segir til dæmis að „Impregilo hafi með hjálp lögreglu yfirbugað 5.000 óá- Um leið og menn fagna komu borsins stóra ereftil vill rétt að huga að því hvaða hugarfar fylgir stjórn- endum borsins úr öðr- um verkum. Um það má reyndar lesa á bls. 12 í blaðinu í dag. nægða verkamenn, látið handtaka stóran hluta þeirra sem og einnig ættingja verkalýðsforingjanna. Þann 22. desember gaf forseti Pakistans, að beiðni Impregilo, út skipun um að allir 130.000 starfs- menn fyrirtækisins yrðu sviptir öll- um stétta- og verkalýðsfélagarétt- indum sínum og heyra þar með beint tmdir herinn." Um leið og menn fagna komu borsins stóra er ef til vill rétt að huga að því hvaða hugarfar fyigir stjómendum borsins úr öðrum verkum. Fjölmiðlar hafa um helgina flutt vertflega ítarlegar, að við segj- um ekki æsilegar fregnir af því að „borinn mikli" sé kominn til landsins, en svo hefur apparatið verið kallað af kynningarstofum. Bor þessi er vissulega nokkuð stór í sniðum og mun fá það hlutverk að bora aðveitugöng við Kára- hnjúka. Fréttastofur sjónvarps- stöðvanna, og Morgunblaðið fluttu miklar fréttir af komu bors- ins og flutningi uppá virkjana- svæðið. Á netmiðlum var hægt að fylgjast grannt með uppskipun borsins „mikla" og iiggur við að honum hafi verið fylgt hvert spottakom sem farið var með þessi herlegheit. Lfldegast hafa ekki verið fluttar jafn nákvæmar fréttir af íslandskomu nokkurs fyr- irbæris síðan Keikó kom til Vest- manneyja frá Oregon í Bandaríkj- unum. Koma Keikós vakti að vísu al- þjóðlega athygli með beinum sjónvarpssendingum um heim all- an. En sé farið lengra aftur tímann komast atburðir á borð við heim- komu handritanna eða síðasta geirfuglsins helst í námvmda við þá miklu athygli sem Miklibor fékk. Og svo leiðtogafundurinn í Höfða 1986. Það varlíka gaman hversu fjálg- lega ferð Miklabors var lýst. Fréttamaður RÚV á Austuríandi lýsti því fyrir áhorfendum í sjón- varpsfréttum hvernig svo hefði virst sem þjóðhöfðingi væri á ferð, enda bílalestin öll í lögreglufylgd. Var varía að undra þótt fréttamað- urinn gripi til þeirrar samlíkingar, nema hvað borinn fékk satt að segja meiri athygli en margur þjóðhöfðinginn sem gist hefur landið og gerst íslandsvinur með hingaðkomu sinni. Borinn stóri fær hlutverk í einni umdeildustu og stærstu fram- kvæmd íslandssögunnar. Það virt- ist því vera fátt sem landsmenn þurftu EKKI að vita um þennan stórmerka borflutning, að minnsta kosti að mati Morgunblaðsins sem fjallaði um málið á vefsíðu sinni og sagði að lokum - svo fagnað- arstunan var næstum heyranleg um Ijósvaka Internetsins: „Borinn mikli kominn að Kárahnjúkum. “ Vrð höfum þegar bent á af hversu mikilli aðdáun var fjallað Borinn mik

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.