Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2003, Síða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2003, Síða 3
MÁNUDAGUR22. DESEMBER2003 3 DV Fréttir Stríð í samfélaginu Gunnlaugur Jónsson Vill semja frið Sigurjón er dálítið grófur karakt- er. Hann les klámblöð, stundar hnefaleika og reykir mikið. Honum er aftur á móti illa við homma. Hánn telur samkynhneigð af hinu illa og ef hann fengi einhverju ráðið, væri hún bönnuð. Hann vill ekki að börn séu alin upp við að samkynhneigð sé í lagi. Sigurjón er ekki trúaður, og er á móti trúarofstæki, eins og hann kallar það. Hann heldur að söfnuðir séu að heilaþvo fólk, og vildi gjarnan setja þeim skorður með lögum. Guðfinna er lesbía. Hún hefur áhyggjur af þeim miklu áhrifum sem íjölmiðlar hafa á ungar stúlkur. Þær fá rangar hugmyndir um lífið og til- veruna að hennar mati. Hún vill setja fjölmiölum skorður, svo þeir hafi rétt áhrif á fólk, sérstaklega unga fólkið. Hún vill einnig ýmis önnur boð og bönn, sérstaklega til þess að veita konum tækifæri í sam- félaginu. Guðfinna er ekki fremur en Sigurjón hrifin af starfi ýmissa trúar- söfnuða. Halidóra er frelsuð. Hún sækir reglulega samkomur hjá söfnuðin- um. Hún fylgir orði Guðs eins og hún getur og iðrast ef hún fer út af sporinu. Hún vildi gjarnan móta samfélag sem fylgir orði Guðs. Hún vill banna klám og samkynhneigð. Hún er jafnframt á þeirri skoðun að konur sýni vinnumarkaðnum of Kjallari mikinn áhuga, þeirra staður sé á heimilinu. Hún myndi gjarnan vilja aðgerðir ríkisins til þess að hvetja konur til að vera meira hjá börnun- um sínum. Vígvöllur lýðræðis Sigurjón, Guðfinna og Halldóra búa í lýðræðissamfélagi. Þau nota kosningarétt sinn til að reyna að stjórna hvert öðru. Öllum finnst þeim þau sjálf hafa rétt fyrir sér. Svo fara lögin í landinu eftir því hvort það eru nógu margar Guðfinnur og Halldórur til að banna klám, nógu margir Sigurjónar og Guðfinnur til að setja trúarbrögðum skorður og hvort það eru nógu margar Halldór- ur og Sigurjónar til að banna sam- kynhneigð. Á vígvelli lýðræðisins mætast þessir hópar. Þeir hafa allir sína hug- mynd um lífið og tilveruna. Fólk verður alltaf ósammála, því verður ekki breytt. Átök af þessu tagi munu halda áfram. Eða hvað? Geta hópar sem hafa mismunandi skoðanir lifað í sátt og samlyndi? Geta þeir hætt að reyna að banna athafnir hver annars? Já, það held ég. Skoðun manns á lífinu þarf ekki að fela í sér að maður vilji þvinga henni upp á annað fólk. Semjum frið Hvernig væri að gera sáttmála? Semja frið? Hvernig væri að Guð- finna fái að stunda kynlíf með þeim hætti sem hún kýs og losni einnig við kvaðir um að vera í hefðbundnu íjölskyldumynstri? Á móti fær Sigur- jón að skoða klámblöð og reykja. Svo fær Halldóra að stunda trúar- brögð sín í friði. Væri þetta ekki upp- lagt? Svo geta allir rætt málin, reynt að hafa áhrif á hvern annan. Það væri friðsamlegra. Auðvitað gera allir mistök. En það er skárra að gera mistök sjálfur, en að aðrir geri mis- tök fyrir mann, þvingi einhverju upp á mann, sem kannski er rangt. Getum við búist við því að fá frelsi til þess að gera það sem við viljum, ef við erum stöðugt að berj- ast gegn frelsi annarra? Ég held ekki. Það verður ekki friður, fyrr en hann er gagnkvæmur. Við verðum að vera tilbúin að semja frið við aðra, til að njóta frelsis sjálf. Spurning dagsins Hvað kosta jólin? Taumlaus hamingja „Hátíðin kostar tiltekt, stress og peninga. Og nýja hrærivél, því eig- inmaðurinn sem tók að sér bakst- urinn fyrirþessi jóleyðilagði vél- ina sem við áttum fyrir. En allt skilarþetta sérsíðan í taum- lausri hamingju á aðfanga- dagskvöld." „Alltofmikið. Margir sem ekki hefur tek- ist að gefa af séryfirárið- jafntog þétt- ætla að gera það með veg- legum gjöfum um jólin. En svo einföld er veröldin ekki, að slíkt sé hægt." „Þau kosta alltofmikið. En mestu máli í sambandi við jólin skiptir hinsvegar fjöl- skyldan og hún kostar ekkert." Hrafnhildur Óðinsdóttir, Jón Már Héðinsson, starfsmaður í 10 -11 skólameistari MA. „Jólin kosta bæði krónur, þrautir og erf- iði, en efvel gengur er upp- skeran hins- vegar ættingj- ar sem eru bæði saddir og sætir." „Hátíðin kostar meira en flestir eiga og því fylgir höfuð- verkur fram á vor við að borga Visa- reikninginn.Að minnsta kosti hjá sumum. En vonandi skilarþetta sér íþeirrijólagleðisem vænst er." Baldvin Albertsson, starfsmaður í 10 -11. Sigurður Helgason, Umferðarráði. Jólaljósin lýsa skært „Búið erað halda uppá jólin með pomp og pragt siðan í októ- ber, meðan alltof margir svelta hér," segir hér igreininni. Gjafir handa öilum E.Jóhannsdóttir skrifar: Bráðum koma jólin. Gjafir handa öllum. En hvað með jólagjöf handa afmælisbarninu. Til eru samtök einsog SOS, ABC og Börne fonden Lesendur og þau hjálpa börnum í vanþróuð- um löndum. Hvernig væri að taka að sér eitt eða tvö börn fyrir þessi jól og verða stuðningsaðili. Það eru milli 950 kr. til 1900 kr. á mánuði sem duga þessum börnum í heilan mán- uð fyrir skólagöngu, mat og læknis- hjálp. En það er til fólk hér sem á meira en nóg. Ætti að vera aflögufært til að styðja einstæðar mæður eða aðra se'm minna mega sín á íslandi, því fátækin er mikil. Því miður er ríkis- stjórnin ekki tilbúin að reka stéttir fátæklinga og hækka laun láglauna- fólks. í staðinn fara þeir um rænandi og ruplandi og kreista síðustu krónurnar út úr sjúkum og gamal- mennum. Hryllilegt og óttalegt er það sem við ber í landinu, þar sem fólksfjöldi er aðeins 280 þúsund manns. Af hverju geta ekki allir lifað í sátt og samlyndi með mannsæmandi laun handa öllum, þegar við erum ein ríkasta þjóð heims. Er ekki leng- ur til mannkærleikur í þessu landi, þar sem við erum öll meira og minna skyld hvert öðru. Búið er að halda uppá jólin með pomp og pragt síðan í október, meðan alltof margir svelta hér. Góðærið svokallaða er aðeins fyrir fáa útvalda. Hvernig myndi Kristur horfa á þetta þjóðfélag hér. Ég er hrædd um að hann myndi gráta, einsog hann grét yfir Jerúsalem forðum. Hann sem sagði. „Svo framlarlega sem þér hafði ekki gert þetta einum þessara minnstu bræðra, þá hafið þér ekki heldur gert mér það.“ Ég fékk um 22.000 kr. í desember- uppbót, en skatturinn tók af mér 20.000 kr., svo þessi svokallaða des- emberuppbót er nákvæmlega 1.908 kr. Og þetta verður gert við okkur ár eftir ár. Ríkið gefur, en það tók aftur. En ráðherrar þurfa að fá meira og meira og enn meira. Samt vinna þeir aðeins hluta úr árinu. Hvenær mun alþýða á íslandi vakna og rísa upp á móti þessu hrópandi óréttlæti og botnlausu græðgi stjórnmála- manna. Ég bara skil þetta ekki. ítölsksaga Tryggvi Ólafsson hringdi: Forsætisráðherra hefur undan- farið lýst yfir áhyggjum sínum af eignarhaldi fjölmiðla á íslandi. Hann vill deila yfir þeim og drottna - að því er virðist - fyrir utan að Sjálf- stæðisflokkurinn stjórnar RÚV. Þetta minnir óneitanlega á hinn ítalska veruleika þar sem Berlusconi á fjölda fjölmiðla og er æðsti yfirmaður ríkisútvarpsins í landinu. Davíð vill því ná ítölskum tökum á fjölmiðlun á íslandi - og þó hafa stjórnmál og stjórnarfar í Ítalíu hingað til ekki þótt fyrir fyrir- myndar. DV tekur við lesendabréfum og ábendingum á tölvupóstfanginu lesendur@dv.is. DV áskilur sér rétt til að stytta allt það efni sem berst til blaðsins og birta það í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Jólin eru reynast mörgum dýr - en ekki er allt falt með aurum. **■' ' *t hann skilið Viper Hægindastóll meö stillanlegum hnakkapúða. Verð áður tauáklæSi ^arfÖOr Nú 87.900,- VerS áður leðuráklæði UZr90Or Nú 109.900,- Ekki missa af þessu! Birkline stillanlegur hnnlrlrnnúði VerÓ áður tauáklæSi^0*906^Nú 58.900,- VerÓ áSur leöuráklæðLS^r90O7- Nú 72.900,-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.