Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2003, Síða 4
4 MÁNUDAGUR 22. DESEMBER 2003
Fréttir DV
Framóknar-
menn álykta
á móti Davíð
Tveir útlendingar hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 9. janúar en mennirn-
ir eru grunaðir um að hafa ætlað að stunda fjársvik hér á landi. Fyrir rétti í gær
kom fram að mennirnir voru að koma hingað í annað sinn.
Ungir framsóknarmenn
vilja ekki drepa Saddam
Hussein. Þetta kemur fram
í fréttatil-
kynningu
sem þeir
sendu frá sér
í gær. Þeir
vara við því
að fara á
sama plan og
grimmdar-
seggir eins og
Saddam Husein. „Mikil-
vægt er að beita ekki blóð-
hefndinni heldur halda fast
í lýðræðishefðir og beita
þeim til að sigrast á andlýð-
ræðislegum öflum,“ segir í
ályktuninni.
Ekki í anda
stjórnarskrár
Framsóknarmenn á að
það sé bundið í Stjórnar-
skrá íslands að dauðarefs-
ingar skuli
vera bannað-
ar og hvetja
ríkisstjórnina
til að koma
þeirri stefnu
á framfæri
við aðrar
þjóðir.
„Ummæli
Davíðs voru rædd á fundi í
gær,“ sagði Haukur Logi,
formaður ungra framsókn-
armanna. „Menn voru
sammála um að vera á
móti þeim og vildu sýna þá
skoðun í verki með að út-
búa þessa ályktun."
Taka af lífi
nokkrum sinnum
I viðtali á Bylgjunni
fannst Davíð miður að
Saddam hefði ekki haft
manndóm f
sér til að falla
fremur en að
nást lifandi
eins og synir
hans. „Ja, ég
myndi nú
halda miðað
við allt og allt
að þá þyrfti
að taka hann af lífi
nokkrum sinnum til þess
að það væri hægt að láta
sér lynda við það, þannig
að hann á ekkert gott skilið
þessi karl,“ sagði Davíð
orðrétt.
Enga pólitíska
hentistefnu
Miklar deilur eru um það
hvar eigi að rétta yfir
Saddam. Arabaríkin hafa
mörg hver
ekki viður-
kennt stjóm
fraks og
margir telja
að það sé úti-
lokað að
hann fengi
sanngjarna
dómsmeð-
ferð í sínu eigin landi. Ungir
Framsóknarmenn vara við
því að láta pólitíska henti-
stefnu ráða för og segja það
skyldu alþjóðasamfélagsins
að sjá til þess að vandað
verði til verka. Hvort von er
á frekari átökum innan
stjórnarflokkanna er óljóst
en eins og Haukur Logi seg-
ir þá er þessi ályktun fyrsta
skrefið. Ekki liggur fyrir
hvort Halldór Ásgrímsson,
formaður
Framsóknarflokksins er
sammála ungliðunum í
eigin flokki.
Náðu sér í íslenska
kennitölu og stofn-
uðu ðankareikninga
Tveir útlendingar, karlmenn um þrítugt, voru
í gær úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 9. janúar en
mennirnir eru grunaðir um að hafa haft um-
fangsmikil íjársvik hérlendis í bígerð. Mennirnir
komu hingað til lands frá París síðastliðinn
föstudag. Annar mannanna, sem sagður er Afr-
íkubúi, var stöðvaður í Leifsstöð og kom f ljós að
hann var með falsað vegabréf. Félagi mannsins
var handtekinn á gistiheimili í Reykjavík á laug-
ardagskvöld. Hann var með belgískt vegabréf
upp á vasann en það reyndist við skoðun vera
falsað.
Mennirnir tveir voru leiddir fyrir dómara hjá
Héraðsdómi Reykjaness í gær. Þeir viðurkenndu
að hafa framvísað fölsuðum vegabréfum; annar
við komuna til landsins og hinn við handtöku.
Þá kom upp úr dúrnum að mennirnir voru
ekki í sinni fyrstu ferð hingað til lands. Þeir komu
hingað í nóvember síðastliðnum og hvor um sig
náði sér í íslenska kennitölu hjá Hagstofunni.
Þeir notuðu síðan íslensku kennitölurnar til að
stofna bankareikninga hérlendis. Þeir viður-
kenndu að hafa framvísað fölsuðum skilríkjum á
Hagstofunni og í íslenskum bönkum. Hvað vakti
fyrir mönnunum liggur ekki fyrir en mennirnir
verða yfirheyrðir frekar næstu daga.
Til þess að fá íslenska kennitölu þurfa útlend-
ingar að hafa uppáskrift einhvers sem búsettur
hefur verið hérlendis í einhvern tíma. Lögreglan
verst fregna af því hvort mennirnir tveir hafi átt
samverkamenn hérlendis. Lögreglan hefur rök-
studdan grun um að mennirnir hafi haft í hyggju
að stunda fjársvikastarfsemi hérlendis. Jóhann
R. Benediktsson, sýslumaður á Keflavíkurvelli,
sagði í samtali við DV í gærkvöld að rannsókn
málsins væri á frumstigi. Pappírar sem mennirn-
ir hefðu haft í fórum sínum bentu hins vegar til
að þeir hefðu haft fjársvik í hyggju.
Þá mun lögregla ætla að skoða hvort tvímenn-
ingarnir tengist tveimur Nígeríumönnum sem
handteknir voru á Keflavíkurvelli fyrir rúmri viku.
Þeir voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald og rennur
það út í dag. Heimildir DV herma að farið verði
fram á framlengingu þess. Nígeríumennirnir
voru teknir með á annan tug greiðslukorta og
fölsuð persónuskilríki. Persónuskilríkin pössuðu
við kreditkortin. Grunur lögreglu beindist meðal
annars að því að mennirnir hygðust kaupa vörur
út á kortin hérlendis en úttektarheimildir kort-
anna voru mjög ríflegar.
arndis@dv.is
Leiddir fyrir Héraðsdóm Reykjaness Tveir útlendingar eru grunaðir um að hafa skipulagt fjársvik hérlendis. Þeir viðurkenndu fyrir dómi að hafa framvísað fölsuðum skilrikjum á Hagstofu
Islands og i bönkum hérlendis. DV Myndir Teitur
Dularfull áhrif Stefáns Baldurssonar, Part II
Svarthöfði skrifaði um daginn svo-
lítinn pistil, þar sem hann vakti at-
hygli á einu best varðveitta leyndar-
máli íslenskrar samtímasögu, sem sé
hinum dularfulla áhrifamætti sem
Stefán Baldursson Þjóðleikhússtjóri
hefur á ótrúlegustu sviðum. Þar vakti
Svarthöfði athygli á þeirri ótrúlegu
„tilviljun" að skömmu eftir að Stefán
lét taka til sýninga leikritið Með fulla
vasa af grjóti, þá var maður nokkur
tekinn með fulla vasa af grjóti í
námunda við leikhúsið og endaði á
Kvíabryggju eins og frægt er orðið. Og
nú í haust, þegar Stefán ákvað að
sýna leikritið John Gabriel Borkman
eftir Henrik Ibsen og frumsýna á um
jólin, þá leið ekki á löngu þangað til
bankamenn í landinu ollu miklu
hneyksli og fjölmiðlafári - en Bork-
man fjallar einmitt um bankamann
sem veldur miklu hneyksli og fjöl-
miðlafári.
Skömmu eftir að greinin, þar sem
.......
Svarthöfði kom fyrstur manna upp
um hin dularfullu áhrif Stefáns Bald-
urssonar á íslenskt þjóðlíf, þá barst
Svarthöfða símtal frá aðila sem
kvaðst geta komið upp um enn dular-
fyllri ítök sem Stefán hefði í samfélag-
inu. Þessi aðili vildi ekki láta nafns
síns getið og harðneitaði að gefa
Svarthöfða frekari upplýsingar í
gegnum síma.
„Maður er ýmsu vanur af þessum
Þjóðleikhússtjórum," sagði hinn
ónafngreindi heimildarmaður.
„Manstu ekki þegar Sveinn Einarsson
var gripinn með hlustunartæki á
skrifstofunni sinni?"
Svo Svarthöfði féllst á að hitta
þennan „Deep Throat" að kvöldi til í
bílastæðahúsinu skáhallt á móti
Þjóðleikhúsinu. Og óhætt er að segja
að upplýsingarnar sem Svarthöfði
fékk þar hafi orðið til þess að honum
rann kalt vatn milli skinns og hör-
unds.
„Þú veist hvað er næsta leikrit sem
Stefán ætlar að láta frumsýna?"
spurði „Deep Throat". „Nei?“ Það er
Vegurinn brennur eftir Bjarna Jóns-
son, þann sem skrifaði Kaffi. En
veistu hvað það leikrit hét upphaf-
lega?“
Svarthöfði varð að játa sig sigrað-
an.
„Jú, það hét Laugavegur brennur!
Og veistu hvers vegna var skipt um
nafn á því?“
Svarthöfði hristi grímuna.
„Jú, rétt eftir að fyrst var tilkynnt
um að leikritið yrði sýnt í Þjóðleik-
húsinu, manstu hvað gerðist þá? Jú,
það varð stórbruni við Laugaveg. Þú
manst, Lalli greyið Johns var tekinn
grunaður um brunann. Þegar þessi
„tilviljun" átti sér stað, þá þótti Stef-
áni Baldurs-
syni einsýnt
að upp
kæmist um
nánast dul-
ræn áhrif sín
á samfélagið
og einkum
og sér í lagi
glæpamál.
Hann gerði
þess vegna
Bjarna Jónssyni tilboð sem hann gat
ekki hafnað og lét hann breyta um
nafn á leikritinu. En vittu til, það er
Laugavegurinn sem er þessi „vegur
sem brennur" í leikritinu."
Svarthöfði staulaðist miður sín af
fundi „Deep Throat". Hvað næst,
hvað næst? Hann einsetti sér að
kanna vandlega verkefnaskrá Þjóð-
leikhússins á næstunni. Bara til að
vera við öllu búinn!
Svarthöfði