Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2003, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2003, Qupperneq 8
8 MÁNUDAGUR 22. DESEMBER 2003 Fréttir DV Kvenna kyn- þokkafyllst Sænska prinsessan, Madeleine, er kynþokka- fyllst sænskra kvenna að mati lesenda Aftonbladet. Madeleine, eða Madde eins og Sví- arnir kalla hana, skýtur sænskum fegurðardís- um á borð við Izabellu Scorupco og Victoriu Silvstedt ref fyrir rass. Það eru ekki bara Sví- ar sem kunna að meta feg- urð prinsessunnar því spænska útgáfa Hello hefur útnefnt prinsessuna sem fallegustu konu heims um þessar mundir. Tekinn með amfetamín Keflvíkingur á þrítugs- aldri var tekinn með um sjötíu grömm af am- fetamíni á föstudagskvöld. Að sögn lögreglu var mað- urinn í ökuferð þegar hann var stöðvaður við hefð- bundið eftirlit. Á honum fannst lítið magn fíkniefna og var leitað á heimili hans í kjölfarið. Þar fannst am- fetamínið. Tveir ungir menn sem voru staddir í íbúð mannsins voru einnig handteknir. Þeim var sleppt að loknum yfirheyrslum á lögreglustöð. Málið telst upplýst. Áhyggjuraf HÍ Stúdentaráð Háskóla ís- lands hefur áhyggjum af al- varlegum ijárskorti Háskóla íslands og yfirvofandi aða- haldsaðgerðum. Segir í ályktun að ef ekkert veðri gert blasi við víðtækar fjöldatakmarkanir sem geta haft alvarlegar afleið- ingar. Skólgjöldum er mót- mælt, sem og víðtækum fjöldatakmörkunum, og sagt að því sé aukinn stuðningur stjómvalda við Háskólann sé nauðsyn. Tómas Ingi Olrich Tómas Ingi Olrich, fráfarandi menntamálaráðherra, þykir að upplagi vera vinnusamur, réttsýnn og verklaginn maður. Hann setur sig vel inn í við- fangsefni sín og nálgastþau jafnvel út frá nákvæmni vís- indamannsins. Sömuleiðis þykir hann sáttfús maður - og velviljaður. Kostir & Gallar Tómasi Inga er fundið til lasts að vera ópersónulegur - og halda fólki í fjarlægð. Eiga til að vera hrokafullur og enginn afgerandi húmoristi. Þá geti hann stundum sett sig í kenn- arastellingar gagnvart ólíkleg- asta fólki, en sjálfur var Tómas menntaskóiakennari á Akur- eyri i um tuttugu ár. Dauðri kú og rolluhræjum ásamt sláturúrgangi var sturtað í fimm hlössum á land ferðaþjónustunnar á Hofi í Snæfellsbæ á meðan heimilisfólkið brá sér til útlanda. Hætta er sögð á salmónellusmiti. Lögreglu ofbauð viðbjóðurinn þegar hún kom loks á vettvang og vill að heilbrigðisfulltrúi fjarlægi úrganginn Hræjum sturtað á land íerðabónda Alls kyns úrgangi ægir saman i fjöruborðinu i landi ferðaþjónustujarðarinnar Hofs i Snæfellsbæ. Verstur er þó fjöldi dýrahræja og siáturúrgangur sem dregur að sér varg aföllum mögulegum sortum; hrafna, veiðibjöllur og tófur. „Það em dauðar skepnur niðri í fjöru og hrúga af alls konar öðm drasli. Þetta er ófögur sjón og lyktin er ekki betri," segir Sigurður Narfason, ferðaþjónustubóndi á Hofi í Snæfellsbæ á vestan- verðu Snæfellsnesi. Sigurður brá sér ásamt eiginkonu sinni til út- landa fyrr í haust. Þau komu heim á Hof um miðj- an nóvember. Hann segir það þó ekki hafa verið fyrr en nýlega að þeim varð ljóst að ekki væri allt með felldu á landareigninni. Grunar ákveðinn mann „Það bönkuðu ferðamenn hér upp á og sögðu okkur að fjaran væri full af dauðum hræjum. Ég trúði því nú varla en fór samt strax að skoða. Þá blasti við ein dauð kýr, slatti af kindahræjum og sláturúrgangur. Að auki mikið af timbri og öðrum allra handa úrgangi," lýsir Sigurður aðkomunni um 300 metra frá bæ sínum. Að sögn Sigurðar virðist úrganginum hafa ver- ið sturtað að minnsta kosti fimm hlössum á um 50 metra kafla í fjöruborðinu. Hann segist hafa grun um hver valdur sé að þessu óhæfuverki en haldi þeim grun fyrir sig að svo stöddu. Aðspurður seg- ist hann telja að viðkomandi hafi einfaldlega ætl- að að spara sér ómak. Ekki sé um persónulega að- för að ræða. Lögregiu ofbauð ógeðið „Það hefur verið í þessu mikið af hrafni og veiðibjöllu og svo er tófan komin í þetta líka. Ég hringdi strax í heilbrigðisfulltrúa Vesturlands sem sagði mér að af þessu stafaði mikil mengunar- hætta, ekki síst væri hætta á að vargurinn bæri úr þessu salmónellusmit. Þá væri nú ekki gæfulegt ef sjórinn færi að dreifa þessu hér um allar strandir," segir Sigurður sem setti sig í samband við lögregl- una að ráði heilbrigðisfulltrúans: „Þetta er alvarlegur mengunarglæpur sem Sigurður Narfason „Ég vill að þetta sé fjarlægt,"segirSigurður ferðabóndi á Hofi. varðar ekki mig einan. Ég tilkynnti lögreglunni um þetta. Hún kom ekki fyrr en á föstudag; sagð- ist hafa haldið að þetta væri ekki svona mikið. Þeim ofbauð ógeðið og sögðust ætla að beina því til heilbrigðisfulltrúans að hann léti fjarlægja þetta," segir Sigurður. Fólk gerir ekki svona lagað Vetrarhlé er í augnablikinu hjá ferðaþjónust- unni á Hofi og bíða 35 auð rúm næstu gesta. Sig- urður segir að reglulegt ferðamannatímabil hefj- ist að nýju um páskana. Áríðandi sé að losna áður við hinn ógeðslega úrgang úr íjörunni. Allir sem séð hafi séu sammála um hversu viðbjóðsleg að- koman sé. „Fólk gerir ekki svona lagað. Það er alls staðar „Þá væri nú ekki gæfulegt ef sjórinn færi að dreifa þessu hér um allar strandir." gámar til að henda drasli og skepnur á að urða. Ég vil að þetta sé fjarlægt," segir Sigurður Narfason. gar@dv.is Lynda Nixon elskar son sinn en getur ekki fyrirgefið honum. Sonur minn á að fara í gálgann Lynda Nixon, móðir Ians Huntley, segist enn elska son sinn en hún geti ekki fyrirgefið honum að hafa myrt litlu stúlkurnar, Holly Wells og jessicu Chapman. „Ég vildi óska að dauðarefsingar væru við lýði. Hann er barnið mitt og ég elska hann. Sonur minn á hins vegar ekk- ert annað skilið en að deyja fyrir það sem hefur gert. Ég vildi óska að við hefðum rafmagnsstól til að binda endi á líf hans," segir Linda í viðtali við breska blaðið Daily Mirror. Huntley var dæmdur í tvöfalt lífs- tíðarfangelsi fyrir morðin á Jessicu og Holly. Lynda heldur áfram í við- talinu og kveðst harma að tiiraun Huntleys til að svipta sig lífi í fang- elsinu hafi mistekist. Huntley tók of stóran skammt af þunglyndislyfjum og var fluttur í skyndi á sjúkrahús. „Ég minnist þess að hafa sagt lækn- unum að ég vildi að hann dæi. Nú sé ég að það hefði ekki verið sann- gjarnt. Foreldrar Holly og Jessicu þurftu að fá vitneskju um hvað kom fyrir dætur þeirra." Þegar réttarhöldin yfir Huntley hófust henti Lynda öllum ljósmynd- um af syni sínum. Hún lýsir játningu sonarins: „Hann hvíslaði: Mamma, ég gerði þetta. Þetta var slys." Hún sagðist því hafa orðið mjög undr- andi þegar hann neitaði fyrir rétti að hafa banað stúlkunum. „Ég hélt það myndi líða yfir mig. Ég ■ náði vart andanum." Daily Mirror greindi frá því að lögmenn Huntleys hefðu tjáð hon- um að hann myndi deyja í fangelsi. Þeir segja að hann muni aldrei öðl- ast rétt til að óska eftir náðun. Huntley mun hafa tekið tfðindunum án þess að sýna nokkur viðbrögð. Orðrómur er á kreiki um að Huntley hafi reynt að svipta sig lífi eftir dómsuppkvaðninguna. Tals- maður fangelsisins segir þetta rangt. „Hann er einn í klefa. Það hefur ekki verið ráðist á hann og hann hefur ekki reynt að skaða sig." Þá berast fregnir um að fyrrum unnusta Hunt- leys, Maxine Carr, hafi orðið fyrir árás í kvennafangelsinu þar sem hún dvelur. Líklegt þykir að Carr þurfi lögregluvernd það sem eftir er ævinnar en hún sleppur að líkind- um úr fangelsi að einu og hálfu ári liðnu. arndis@dv.is lan Huntley Lögmenn hans sögðu honum i gær að hann myndi deyja i fangelsi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.