Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2003, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2003, Síða 9
DV Fréttir MÁNUDAGUR 22. DESEMBER 2003 9 Jacques Vergés vill verja Saddam Hussein 1 komandi réttarhöldum. Hann segist munu kalla alla leið- toga vestrænna ríkja í vitnastúkuna. hver let hann fa byssuna? Franski lögfræðingurinn, Jacques Vergés, kveðst fús að verja Saddam Hussein í kom- andi réttarhöldum, verði þess óskað. Hann sagðist jafnframt myndu kalla alla leiðtoga vestrænna ríkja fyrir réttinn en það er talið geta orðið neyðarlegt fyrir lönd á borð við Bandaríkin og Bretland. Hvort íslenskir ráðamenn yrðu kallaðir til er óvíst en alls ekki ómögulegt. Verges sagðist myndu byggja vömina með- al annars á þeirrj staðreynd að Saddam hafi notið stuðnings n'fergra þjóða þegarhann réð-.. ist gegn Kúrdum í Halabaja. „Þjóðir hins vestræna heims seldu írökum vopn og sömu ríki hvöttu Saddam til að fara stríð við íran,“ segir Vergés. Hann segir það verða grundvallarspurningu í réttarhöldunum að sömu menn og nú koma fram við Saddam eins og úrhrak hafi áður verið „vinir" hans. Saddam hafl tekið í gikkinn en spurt verði hver lét hann fá byssuna? Hver benti honum á óvininn fyrir stríðið við íran? Vergés hefur að undanförnu dvalið í Jórdaníu þar sem hann hefur undirbúið sig fyrir vörn Tariq Aziz, fyrrum aðstoðarforsætis- ráðherra íraks, en hann gaf sig fram við bandaríska hermenn þegar Bagdad féll í aprfl síðastliðnum. frr- Löng réttarhöld Ákæran gegn Saddam er talin verða í nokkrum liðum og verður að líkindum miðað við nokkra lykilatburði í blóði driflnni sögu landsins; svo sem stríðið gegn íran á árunum 1980 til 1988, útrýmingu Kúrda, innrásina Kúveit árið 1990 og baráttuna við uppreisnar- menn Kúrda árið 1991. Talið er að réttarhöld- in yfir Saddam muni taka að minnsta kosti fimm ár. Háttsettur maður innan fram- kvæmdastjórnarinnar í Irak segir það alltof langan tíma. „Við bindum vonir við að réttar- höldin geti hafist í lok næsta árs en það er ómögulegt að segja hvað þau eiga eftir að taka langan tíma." Hvað réttarhöldin sjálf áhrærir hefur fyrir- komulag þeirra ekki verið endanlega ákveðið. Líklegast er þau fari fram í írak undir alþjóð- legu eftirliti. Mannréttindasamtök víða um heim hafa hins vegar kallað eftir því að réttað verði yfir Saddam fyrir stríðsglæpastólnum í Haag. Hápunktur ferilsins Jacques Vergés er 78 ára og á að baki skraut- legan feril í lögmennsku. Hann varði hermdar- verkamanninn illræmda, Sjakalann Carlos, árið 1994. Hann hefur löngum verið talinn einn snjall- asti lögfræðingur Frakklands og er þekktur fyrir að taka að sér mál sem aðrir lögfræðingar vilja ekki. Hann varði til að mynda Klaus Barbie, yfir- mann Gestapo, sem hafði verið dæmdur tvívegis til dauða fyrir stórfellda stríðsglæpi. Þá varði hann einnig eiginkonu Sjakafens, Magdalenu Kopp. Hún var félagi í Rauðu herdeildinni í Þýskalandi. Nýverið hefur Vergés setið í nefnd lögfræðinga sem annast vöm’Slobodans Milos- evich fyrir mannréttindadómstóli Evrópu. Taki Vergés að sér vörn Saddams Hussein verður það vafalaust hápunktur á löngum ferli hans. Hittust eftir 65 ár Það voru fagnaðarfundir í bænum Kfar %ba í ísrael um helgina þegar systkini hittust í fyrsta sinn í 65 ár. Þetta voru þau Shoshana November og Benny Shilon. Þau fæddust í Póllandi og voru börn að aldri þegar hel- förin hófst. Fjölskylda þeirra tvístraðist og þau fóru hvort í sína áttina. Þau lifðu stríðið af en höfðu ekki hugmynd um af- drif annarra fjölskyldumeðlima fyrr en nýverið. Borðstofustóll/Leður Lúxus slökunarstóll m/ áklæði á frábæru verði Æ Litir: flöskugrænt, rústrautt mffff C Eldhússtólar ) Vandaður hornsófi Stærð: 270x190 sm. Leðursófasett 3+1+1 Vandað ítalskt sófasett á frábæru verði! Sófasett 3+3+3 m/leðri Sófasett 3+3+3 m/áklæði Svefnsófar V.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.