Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2003, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2003, Side 10
70 MÁNUDAGUR22. DESEMBER2003 Fréttír DV Fullur f lucj- stjóri tekinn Richard Harwell, 55 ára flugstjóri hjá Virgin-flugfé- laginu, var handtekinn í Washington á föstudag. Harwell var að búa sig undir flug til London þeg- ar öryggis- verðir urðu þess áskynja að hann ang- aði af brennivíni. Hann var látinn blása í blöðru og kom í ljós að flugstjórinn var í engu ástandi til að sinna starfi sínu. Farþeg- arnir biðu klukkustundum saman í vélinni á meðan annar flugstjóri var kallaður út. Talsmaður Virgin sagði atvik sem þetta aldrei hafa komið upp hjá félaginu. Harwell á að baki 14 ára farsælan feril hjá félaginu en lfldegt er að sá ferill verði ekki lengri. Gore tekinn með kannabis A1 Gore III, sonur fyrrum varaforseta, hefur verið ákærður fyrir að hafa kannabis í fórum sín- um. Gore var stöðvaður af lögreglu fyrir helgina þar sem hann ók um á ljós- lausum bfl að kvöldi til. Það vakti athygli lögreglu- manna að Gore og tveir fé- lagar hans sátu í bflnum með alla glugga galopna - þrátt fyrir að úti væri fimb- ulkuldi. Við leit í bflnum fannst nokkurt magn kannabisefna. Gore, sem er nemandi í Harvardháskóla, hefur áður komist í kast við lögin, fyrir ölvunarakstur og ofsaakstur. Jóhannes Sigurjónsson á Húsavík Landsíminn Smitandi jólaljós „Þaö er orðið mjög jólalegt hér í bæ,“ segir Jóhannes Sigur- jónsson ritstjóri Skarps á Húsa- vík.Jóla- snjórinn hefur lagstyfir bæinn einsog hvítt teppi og síðan eru margir búnir að skreyta mjög fallega. Það hefur eiginlega smitandi áhrif. Nokkrir byrja með vegleg- ar skreytingar og síðan fylgja hinir. Sá sem fremst fer nú sem endranær er Benedikt Kristjáns- son sem býr við Lyngbrekku." En hvað með Húsavíkurhangi- kjötið.Jú, Norðlenska framleið- ir það hérá Húsavík og sá sem stjórnar framleiðslu þess hefur meira að segja verið valinn kjötmeistari ársins, Sigmundur Hreiðarsson. Sjálfur ætla ég hinsvegar að borða hreindýr á jólunum úrþví við fáum ekki rjúpuna. Það kemur frá Græn- landi en er verkað hjá Viðbót sem er nýtt fyrirtæki hér í bæ, rekið af bræðrunum frá Árbót í Aðaldal - sem afþeirri ástæðu gefa fyrirtæki sínu þetta óvenjulega nafn." Margteygt hugtak öðlaðist fasta merkingu með því að frumvarp sjávarútvegsráð- herra um línuívilnun varð að lögum. Þingmaður úr Vestmannaeyjum segir sér- tækri aðstoð handa Vestfirðingum ljúka með línuívilnun. Vestfirðingar segja breyt- inguna gagnast lítið fyrir fjórðunginn. Smábátaforingi segir Vestmannaeyinga leggja Vestfirðinga í einelti Vestfjarða- aöstoöinni lýkur meö línuívilnun „Með þessari ákvörðun lít ég svo á að aðkomu stjórnvalda með sértæk- um aðgerðum til trillubáta sé lokið og allri Vestfjarðaraðstoð líka." Guðjón Hjörleifsson Þingmaður Vest- mannaeyinga segir að Vestfirðingar hafi feng- ið stna síðustu „Vest- fjarðaaðstoð" með linuívilnun. Vestmannaeyingar hafa lýst megnri óánægju sinni vegna línuívilnunar, sem þeir telja að rýri hlut þeirra í auðlindinni. Guðjón Hjörleifsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins úr Eyjum, útskýr- ir hvers vegna hann studdi frumvarpið á þingi í grein í Eyjafréttum, undir yfirskrift- inni „Nú er allri Vestfjarðaað- stoð lokið“: „Með þessari ákvörðun lít ég svo á að að- komu stjórnvalda með sér- tækum aðgerðum til trillu- báta sé lokið og allri Vest- fjarðaraðstoð líka, ef svo mætti kalla. Nú er komið að því að þessir aðilar þurfa að taka þátt í þessu fiskveiði- stjórnunarkerfi sem komið er á og starfa í samræmi við það.“ Samkvæmt úttekt vest- firska blaðsins Bæjarins besta kemur lfnuívilnun Vestfirð- ingum ekki endilega til góða, þrátt fyrir allt. Ef tekið er mið af veiði síðasta árs virðist línuívilnun ekki tryggja mik- inn tilflutning aflaheimilda til Vestljarða. Miklar deilur hafa verið um línuívilnun, sem gengur út á að dagróðrarbátar, smá- bátar sem beita á línuna í landi, fái að landa 16 prósent- um meira en aflaheimildir þeirra segja til um. Þetta gild- ir um tegundirnar þorsk, ýsu og steinbít. Hugmyndin var samþykkt á flokksfundi Sjálf- stæðisflokksins og Framsóknarflokksins fyrir kosningar og var henni ætlað að styrkja smærri byggðir, sem margar treysta á smábátaflotann. I endanlegri mynd eru smábátar sem nýta sér upp- stokkunartækni undanþegnir ívilnun. Guðmundur Hall- dórsson Smábáta- foringi í Bolungavík segir sjávarútvegsráð- herra hafa eyðilagt línuívilnun. Frumvarp sjávarútvegsráðherra um línuíviln- un varð að lögum 15. desember og komast breyt- ingarnar til framkvæmda 1. febrúar varðandi ýsu og steinbít og 1. september, á fiskveiðiáramótun- um, varðandi þorsk. Samkvæmt endanlegri út- gáfu línuívilnunar er sett þak á ívilnun í þorski og má viðbót smábátanna ekki verða meiri en 3.375 tonn í óslægðum þorski. í umfjöllun BB er vísað til þess að í umræðunni hafi línuívilnun verið sögð klæðskerasniðin að vestfirsku atvinnulífi. Raunin sé hins vegar sú að tilfærsla verði á aflaheimildum innan Vestfjarða, með tilheyrandi hræringum á högum þeirra sem þar búa, auk þess sem hluti byggðakvótans verð- ur lagður af fyrir línuívilnun. „Hættan er sú að sá sem í dag er þokkalega ánægður verði ósáttur á morgun,“ segir BB. Guðmundur Halldórsson, bolvíski smábáta- foringinn sem mælti fyrir línuívilnun á landsfundi Sjálfstæðisflokks, segir að frumvarpið hafi verið gallað og sjávarúvegsráðherra hafl eyðilagt það. „Það sem gerðist á landsfundinum var að sjávar- útvegsráðherra var á móti málinu. Honum hefur svo tekist með góðri hjálp að eyðileggja frumvarp- ið. Það nær ekki þeim tilgangi sem til var ætlast.“ Guðmundur segir Vestmannaeyinga leggja Vestfirðinga í einelti í línuívilnunarmálinu. „Ég vil minna Guðjón Hjörleifsson og fleiri í Eyjum á það að það var loðnubann fyrir nokkrum ámm og þá voru loðnuskipunum í Eyjum afhentar fiskveiði- heimildir í botnflski sem að þau seldu allar í burtu. Sagan getur endurtekið sig. Vestmannaey- ingar gætu orðið næstir. Þessum ofsóknum ffá Vestmannaeyjum á Vestfirðinga er vonandi lok- ið.“ jontrausti@dv.is Paris Hilton Bakaði amerískar bökur og fékk meira áhorfen forseti Bandarikj- anna. skaut forsetanum ref fyrir rass með því að baka amerískar bökur og bjóða fram þjónustu sína á kossabás á sveitahátíð. Bandarískir sjónvarpsáhorfendur heillaöir yfir The Simple Life George W. Bush Ljóstraðiþvíupp að hann vildi drepa Saddam Hussein I sjónvarpsvið- tali við Diane Sawyer. Prime Time á ABC. Forsetinn sagði þar að lífláta ætti Saddam fyrir að hafa írösku þjóðina undir járnhæl sínum. Paris Hilton, hins vegar, Léttúðardrós skaut Bush ref fyrir rass Fleiri Bandarfkjamenn horfðu á þáttinn The Simple Life, eða Einfalt líf, heldur en einkaviðtal Diane Sawyer við George W. Bush Banda- ríkjaforseta eftir að her hans náði Saddam Hussein. Einfalt líf fjallar um 22 ára léttúðuga stúlku að nafni Paris Hilton. Hún vakti talsverða at- hygli Vestanhafs í kjölfar þess að kynlífsmyndband með henni í aðal- hlutverki fór eins og eldur í sinu um Bandaríkin. Paris er barnabarn mannsins sem stofnaði Hilton-hót- elkeðjuna og er forríkur erfingi. Frægð hennar liggur þó á öðrum sviðum. Hún hefur verið í kynferð- issambandi við Nicolas Cage, Ashton Kutcher, Oscar de la Hoya, Leonardo DiCaprio, Edward Fur- long og Jared Leto, svo nokkrir séu nefndir. 11,8 milljónir áhorfenda völdu að horfa á Einfalt líf en 11 milljónir sáu Bush lýsa handtökunni á Saddam í

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.