Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2003, Page 12
12 MÁNUDAGUR 22. DESEMBER 2003
Fréttir TtV
Impregilo er eitt af stærstu verktakafyrirtækjum heims. Kárahnjúkavirkjun er ekki eina umdeilda verk-
ið sem Impregilo hefur tekið að sér en athygli vekur að í öðrum verkefnum hefur ítalska verktakafyrir-
tækið verið sakað um mútugreiðslur, milljarða umframkeyrslu, vanefndir gagnvart launþegum auk þess
sem Impregilo er talið hafa beitt sér fyrir fangelsun verkalýðsleiðtoga.
Lesotho í Suður flfríku
Dagblaðið East African greinir frá því í ágúst 1999 að
Impregilo (ásamt fleiri alþjóðlegum verktökum í stórum
verkum í Úganda og Kenýu) sé hugsanlega viðriðið 2,5
milljón dollara mútumál í Suður-Afríku og Lesotho. Suð-
ur-afrískur ráðgjafi í verkinu játar að hafa fyrir hönd
Impregilo greitt Masupha Sole, fyrrverandi framkvæmd-
arstjóra Virkjunarnefndar Lesotho, 375.000 dollara.
Masupha Sole afþlánar nú 15 ára fangelsisdóm fyrir að
hafa þegið alls 2 milljónir dollara í mútum frá ýmsum
vestrænum fyrirtækjum. Impregilo neitar hins vegar að
hafa haft vitneskju um málið. Málið var sérstaklega
vandræðalegt fyrir World Bank sem var bakhjarl verks-
ins, en þeir höfðu þá nýverið samþykkt reglugerð um að
sniðganga verktaka sem gerst höfðu uppvísir af mútu- og
spillingarstarfsemi.
Impregilo hafi með
hjálp lögreglu yfir-
bugað 5000 óánægða
verkamenn, látið
handtaka stóran
hluta þeirra sem og
einnig ættingja verka-
jýðsforingjanna.
13. ágúst 1999 greinir Washington Post frá því
að starfsmenn undirverktakans Fastrack við tóm-
stundastöðina Coventry’s Leisure World and
Arena hafi farið f verkfall vegna samingsbrots af
hálfu yfirverktakanna Impregilo og Construction,
meðal annars vegna vanefnda á launum. Yfirverk-
takarnir tveir neituðu sökum og fór málið fyrir
dómstóla. Eftir dómsúrskurð var Construction og
Impregilo gert að borga Fastrack tæplega 173.000
sterlingspund: 120.601 pund vegna vanefndra
launa auk VAT-skatts, 43.910 pund í skaðabætur,
1.988 í vexti og 8.157 í gerðardómskostnað. Bæði
fyrirtækin neituðu að tjá sig um málið.
Aðkoma ftakska verk-
takafyrirtækisins Impregilo
að framkvæmdum við
Kárahnjúka hefur ekki verið
hnökralaus. Nokkur átök
hafa verið við verkalýðsfor-
ystu í landinu vegna kjara
starfsmanna og aðbúnðar.
Framkvæmdin sjálf er enn
umdeild. ftalska fýrirtækið
hefur talsverða reynslu af
umdeildum framkvæmd-
mn víða tnn heim og er víða gagnrýnt
fyrir framgöngu sína. Hér að neðan eru
nokkur nýleg dæmi:
Coventry í Englandi
Lahore í Pakistan
Dagblaðið Dawn gefur Impregilo falleinkunn í úttekt á virkjunarframkvæmdum fyrir-
tækisins í Lahore. Impregilo var ráðið til að reisa stíflu fyrir Vams- og orkumálayfirvöld
Pakistan og ekki líður á löngu áður en verkalýðsfélög kvarta undan slæmum aðbúnaði
verkamanna og sviknum launasamningum. 1998 tilkynnir svo Alþjóðlegt Samband Verka-
lýðsfélaganna í Brussel að Impregilo hafi með hjálp lögreglu yfirbugað 5000 óánægða
verkamenn, látið handtaka stóran hluta þeirra sem og einnig ættingja verkalýðsforingj-
anna. Þann 22. desember gaf forseti Pakistan, að beiðni Impregilo, út skipun um að allir
130.000 starfsmenn fyrirtækisins yrðu sviptir öllum stéttar- og verkalýðsfélagaréttindum
sínum og heyra þar með beint undir herinn. Verkinu átti að ljúka árið 2000 en það er
óklárað enn þann dag í dag. Impregilo lagði niður alla starfsemi á svæðinu árið 2001, flutti
vélar og mannafla heim og vísaði til svokallaðrar „Force Majeur" klausu í samningnum
sem kvað á um að orkumálayfirvöld Pakistan þyrftu sjálf að bera allan kosmað af töfum á
verki ef vinnuaðstæður og umhverfi væri verkamönnunum hættulegt. Impregilo kvað
hættuna stafa af hryðjuverkamönnum en þá var 11. september nýafstaðinn. Tap Pakistan
vegna þessa var um það bil 1 milljón dollara á dag, næstu mánuðina.
Ilisu-virkjunin
íTyrklandi
Kali Gandaki virkjunin í Nepal
Impregilo sá um að reisa Kali Gandaki virkjunina í Nepal og varð
þessi framkvæmd afar umdeild vegna umframkostnaðar sem sóttur var
í vasa heimamanna . Dagblaðið Nepali Times fjallar ítarlega um málið.
Fram kemur að áætlaður kostnaður við hlut Impregilo var 130 milljón-
ir dollara. Vegna óhagstæðra samninga, eða gloppóttra, sem orkumála-
yfirvöld Nepal gerðu við fyrirtækið gat Impregilo hins vegar farið fram
á viðbótarfé til ffamkvæmdanna hvenær sem þeim sýndist, svo lengi
sem ráðgjafi verksins, bandaríska fyrirtækið Morrison Knudsen
International, legði blessun sína yfir það. Sérfræðingar áætluðu að
framkvæmdirnar hefðu í mesta lagi getað farið 20 milljónir dollara fram
úr áætlun. Verkið fór 18 mánuði fram yfir tímamörk, framkvæmdirnar
tóku alls fimm ár og þegar Impregilo og Morrison Knudsen höfðu lok-
ið sér af hafði fyrirtækið eytt 180 milljónum dollara eða 50 milljónum of
mikið. Þetta eru 13 milljarðar króna í umframkostnað. í Ijósi þess að
fyrirtækin tvö gátu að hámarki beðið um 50.000 dollara viðbótarfé í
hverri einstakri umsókn sést að þau hafa verið iðin við kolann. Orku-
málayfirvöld gátu ekkert aðhafst vegna slæmrar lagalegrar stöðu en
Impregilo-menn skelltu engu að síður skuldinni á þá, fóru í mál og
kröfðust 5 milljón dollara í viðbót í skaðabætur fyrir tafir á verkinu.
Impregilo tapaði málinu.
Fyrirhuguð stífla á Tikris-fljóti veldur
harðdeilum á milli Tyrklands, íraks og
Sýrlands. Umhverfisverndarsamtök for-
dæma framkvæmdirnar sem útheimta
meðal annars flutning á 78.000 kúrdískum
íbúum á svæðinu. Það stefnir í harða
milliríkjadeilu um málið. Impregilo dreg-
ur sig út úr verkinu.