Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2003, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2003, Blaðsíða 20
20 MÁNUDAGUR 22. DESEMBER 2003 MÁNUDAGUR 22. DESEMBER 2003 21 Fókus DV DV Fókus Nektardansstaðurinn Goldfinger var að gefa út sitt fimmta dagatal. Dagatalið kom ekki út í fyrra vegna háva^rra mótmæla frá sumum köntum, en Ásgeir Davíðsson eigandi staðarins segir að kröfurnar um endurkomu þess hafi verið enn háværari. Það er nú komið aftur, og í tilefni af því hélt Geiri partý. Valur Gunnarsson var á staðnum og ræddi við gestina. SáMingar I Kópavoginum er allt öðruvísi. Allt er stærra, bílarnir, húsin, versl- unarmiðstöðvarnar, fólkið. Og þar er staður þar sem bjórinn flæðir eins og vín, og stelpurnar vilja tala við mann. Og þær eru allar á nærfötun- um líka. Þegar maður gengur inn á Goldfmger líður manni eins og mað- ur sé staddur í draumi, og ef maður lokar augunum í augnablik finnst manni næstum eins og hann gæti ræst. Geiri gleður einmana sjó- menn Geiri stendur glaður í dyrunum, enda ekki ástæða til annars en að vera kátur, því ekki nóg með að dagatalið sé komið aftur, heldur er hann búinn að missa um 20 kíló á undanförnu ári. Galdur Geira er megrunarkúr sem bannar allt át eft- ir klukkan 6 á kvöldin, og hefur skil- að árangri, en Geiri segist samt hlakka til að vera kærulaus um jólin. Hann réttir mér dagatal Goldfinger 2004, sem hann framleiðir og gefur í skip til að gleðja einmana sjóara. Hann hefur gefið slíkt plakat út á hverju ári síðan 1999, en ekki þó í íyrra vegna hinna miklu deilna sem stóðu þá um súludansstaði. Hann sagði að síminn hjá honum hafi ekki stoppað vegna kvartana yfir plakatleysinu, enda hafa einmana sjómenn þá ef til vill ekki haft neitt fýrir stafni. Ég tek við dagatalinu, fletti síðunum, og verð ástfangnari með hverjum mánuðinum. Burt með femínismann Og þegar ég kem inn situr hún þar, sjálf ungfrú nóvember. Nóvem- ber er sæt, Nóvember er sænsk, Nóvember er klár. Nóvember klæð- ist g-streng og gylltum brjóstahald- ara og er ekki hrifln af femínistum. „Það gengur ekki að láta konur ráða,“ segir hún. „Konur eru alltaf að keppa við menn og að reyna að vera betri en þeir, þegar þær eru ekki að keppa við hvora aðra. Karlmenn eiga auðveldara með að taka ákvarð- anir sem eru öllum fyrir bestu, en við fæðum börnin og hugsum um fjölskylduna og það sem okkur er næst. Við þyrftum að losa okkur við femínismann. Karlmenn og konur eru ekki eins,“ segir hún. „Við erum öll jafn mikils virði en ekki eins.“ Geiri kallar á hana og biður hana um að stilla sér upp á mynd. Hún hafnar því, þar sem hún segist vilja eiga sér líf utan vinnunnar. „Snúðu þá bara bakhlutanum í vélina," segir Geiri. „En þá þekkja allir mig á rass- inum," segir Nóvember. Engar regiur á íslandi Hún vann áður á dansstað í Sví- þjóð og kláraði fyrsta árið í verk- fræðinámi, en hefur nú lögheimili á íslandi og kann mun betur við sig hér. „í Svíþjóð þurfti maður alltaf að bíða þangað til karlinn var búinn að rúnka sér. Ef hann hafði ekki gert það þegar dansinn var yflrstaðinn var maður sendur aftur inn í klef- ann þangað til hann var búinn að klára. Ég sá svo mikið af typpum þarna að ég fékk ógeð á þeim um stund. En hérna fær maður að ráða alveg sjálfur hvað maður vill gera.“ Það er þó sumt sem hún kann ekki við á íslandi. „Það eru engar reglur hérna með neitt. íslenskar stelpur eru vanar að láta grípa í sig á skemmtistöðum og svo er alltof mikið dóp hérna. Ég hafði aldrei séð dóp í Svíþjóð og prófaði það fyrst hér, þó ég sé ekki hrifinn af því.“ Hún tekur þó fram að hún hafi aldrei séð eiturlyf á Goldfinger, heldur á hún við skemmtistaði miðbæjarins. Stripp hollara en sjónvarp „Sálfræðingur er maður sem fer á nektardansstaði og íylgist með áhorfendum," sagði skáldið og ég var eftir nokkra klukkutíma í Kópa- voginum farinn að verða jafn ónæmur fyrir sveittum líkömum og sveiflandi brjóstum og mannfræð- ingur meðal ættbálka í Afríku. Magnús Ver situr valdsmannslegur og fylgist með að allt fari vel fram. Erpur Eyvindarson spjallar við ljósku í rauðum kjól og virðist skemmta sér vel. Par sem kallar sig Halldór og Kolbrún (þú skrifar ör- ugglega Halldór fýrst, er það ekki? spyr Halldór) virðast þó skemmta sér enn betur. „Ég myndi vilja fá miklu fleiri strippklúbba," segir Kol- brún. „Það er gott andrúmsloft hérna, maður hittir fólk frá öllum löndum og maður veit aldrei hvað gerist næst. Konur frá ráðaneytinu tengja þetta við vændi en það er öðru nær. Það er alltaf verið að halda klámi að börnum í gegnum MTV og annað, en hingað koma bara þeir sem hafa áhuga og aldur til. Þetta er heilt, það sem er í sjónvarpinu er það ekki.“ Konan í prívatshow meðan karlinn situr frammi „Kolbrún Halldórsdóttir er að neita því að lífið sé skemmtilegt," bæti Halldór við. „En það er ekkert rétt eða rangt í þessu lífi.“ Parið hefur verið saman í 19 ár og skemmtir sér gjarnan á Goldfinger, og hún hefur reyndar stundum far- ið í prívatdans án hans með „ein- hverjum ríkum trillukörlum," eins og hún orðar það, meðan hann beið. „Kvenmannslíkaminn er fag- ur og í raun miklu fegurri en karl- mannslíkaminn. Maður á að njóta hans og mér finnst að það mætti gera fleira eins og að borða sushi af bringum og bökum.“ Hún talar oft við stúlkurnar. „Þær eru eins og sál- fræðingar. Hingað geta menn kom- ið og talað um raunir sínar og þær hlusta." Ég reyni að gera það upp við mig hvort það sé fjárhagslega hagstæðara að fara á Goldfinger eða til sálfræðing með hugsanlegar flækjur. Man þó í fljótu bragði ekki eftir neinum sála sem analýserar mann á g-streng. Segja Aprú að koma til bjargar Efhún getur mig fundið Hefði Tom Waits sungið ef hann væri íslendingur og vonlaust skáld, staddur í Kópavoginum. Nóvember sat enn ein og andlit hennar ljómaði þegar ég nálgaðist hana. „Ég var ein- hvern tímann að spá í að læra að verða blaðamaður. Eða kannski ég gerist lögfræðingur eða jafnvel stjórnmálamaður. Eða mögulega klára ég verkfræðina," sagði hún. „Ég hef það á tilfinningunni að ég eigi ekki eftir að fást við þetta mikið lengur." Framtíð okkar virtist björt en augnablikið er fljótt að líða. Nóvember situr höndum auðum Eins oghrúga aflaufum dauðum Og tungl sem er eins og bein á lit Engar bænir fyrir Nóvember Að dvelja lengur „Keyptu handa mér drykk,“ sagði hún. „Ekki vera leiðinlegur." En ég, verandi blankur eins amatörskálda er siður, hafði urn lítið annað að velja. Skáldið hefur aðeins gull- hamra að bjóða en af þeim átti hún nóg. Þeir eru gefnir á hverju kvöldi í Kópavoginum af mönnum ölvaðri og efnaðri en mér. Og stundum var þeim leyft að komast inn í klefann en Nóvember vildi hvorki þýðast mig né þiðna. I votum stígvélum ogregnihún bíður Ogmeð gljáandi svörtum hröfnum flýgur Á reykháfastróks brautum líður Nóvember er undarleg sýn Hún er aftökusveit mfn Nóvember Ljósin kviknuðu, og gestirnir voru vaktir af draumnum. Ég stóð fyrir utan, hringdi á leigubíl til að færa mig aftur til hversdagsins í Reykjavík og kveikti mér í sígarettu. Ein af annarri komu þær út; Janúar og Febrúar og allar hinar og settust inn f sendiferðabíl. Nóvember veif- aði ekki einu sinni bless og Desem- ber hvarf líka án þess að ég gæti rönd við reist. Ég stóð eftir á stétt- inni með útbrunna sígarettu og dagatal sem yrði gagnslaust áður en ég vissi af. valur@dv.is Framtíðardraumar dansmeyjar Júní og Júlí skáluðu í kampavíni, Desember var í einkadansi, Maí var í þann mund að springa út á sviðinu, en ég hafði aðeins auga fyrir Nóv- ember. Nóvember, sem annars er vanræktur sem einungis upphitun fyrir Desember en þegar myrlaið skellur á þarfnast maður hlýju meira en nokkru sinni fyrr. Vonin um að komast yfir kvenmannsbrjóst hefur gert margan marin að skáldi og þeg- ar fegurðin fyllti vit mfn og vínið flæddi um líkamann, var ekki laust við að sú skáldagáfa sem blundar vanrækt í mörgum blaðamanninum færi að brjótast út. Nóvember hefur mig bundið Við gamalt tré hérna við sundið 151.640 lesendur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.