Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2003, Side 27

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2003, Side 27
DV Fókus MÁNUDAGUR 22. DESEMBER 2003 27 wclonia Beckham heldur neistanum í sambandinu við David Fyrrum Kryddpían Victoria Beckham hefur viðurkennt að hún kryddi ástarlíf sitt með dónalegum símtölum til eiginmannsins David Beckham. Og stúlkan viðurkennir fúslega að textinn við nýjasta lag hennar, This Groove, fjallar um lostafull langlínusímtöl. David Beck- ham er eins og kunnugt er búsettur í Madríd en Victoria eyðir mestum tíma sínum í Bretlandi. Gríðarhár farsímareikningur „Lagið er um símasex. Samband okkar er þess eðlis að við erum oft langt frá hvort öðru. Við tölum örugglega 50 sinnum saman í símann á dag. Ég er viss um að fullt af fólki þarna úti skilur vel hvað ég á við,“ seg- ir hún. En þrátt fyrir að stelpan sé ánægð með þetta fyrirkomulag er þó einn augljós galli á gjöf Njarðar; kostnaðurinn. „Farsímareikningurinn minn í þessum mánuði var eitthvað um 130 þúsund krónur. Nei, reyndar er ég að ljúga því, hann var miklu hærri," segir Victoria sem þarf svo sem ekki að hafa miklar áhyggjur af því, laun Davids Beckham hjá Real Ma- Victoria Beckham Eyðirmestum tíma sin- um i Bretlandi á meðan eiginmaðurinn býr á Spáni.Afþeim sökum tala þau 50 sinnum saman i simann á dag og þykir ekki verra að klæmast aðeins. Lostafull lannlni drid eru stjarnfræðilega há og sjálf rakar hún enn inn örfáum krónum frá Kryddpíu-árunum. Vill rass eins og J-Lo I viðtali á BBC sagði Victoria líka að hún og David Beckham gætu bæði vel hugsað sér að hún væri með afturenda eins og Jennifer Lopez. „David myndi vilja að ég væri með meiri línur. I dag eiga allir að vera eins vaxnir og Jennifer Lopez. Það er alveg öruggt að ég myndi alveg vilja vera með alVeg eins rass og hún.“ Af David Beckham er það meðal annars að frétta að stemmningin á æfingasvæðinu hjá Real Madrid hefur breyst aðeins eftir að hann fékk OBE-orðuna hjá Elísabetu Bretadrottningu á dögunum. Nú kalla Ronaldo, Zidane, Raul og allar kempurnar hann ekki annað en „Yðar há- tign“ eða eitthvað í lík- ingu við það. David hef- ur að sögn bara gaman af þessu en kunnugir segja það oft furðulegt andrúmsloft þegar þjálfarinn grínast kannski með þetta og segir: „Yðar hátign! Þér verðið að leggja harðar að yður“... Beckham-hjónin Myndin er tekin þegar David fékk OBE-orðuna afhenta um daginn. Eftir að hann fékk hana kalla félagar hans i Real Madrid hann ekki annað en Sir David. f----------------------------------------------------\ Auglýsing Skv. 2. gr. laga nr. 35/1953 með síðari breyting- um, um bæjanöfn o.fl., og 7. gr. reglugerðar um störf örnefnanefndar, 22. febrúar 1999, ber ör- nefnanefnd að úrskurða um hvaða örnefni verða sett á landakort sem gefin eru út á vegum Land- mælinga íslands eða með leyfi þeirra, sé ágrein- ingur eða álitamál um það efni. Til nefndarinnar hefur verið skotið þeim ágreinings- eða álitaefnum hvort setja eigi á slík landakort: 1) örnefnið Jökuldalur eða Nýidalur, sunnan við Tungnafellsjökul; 2) örnefnið Locksfell eða Lokatindur, norðnorðvestur af Öskju; 3) örnefnið Wattsfell eða Vatnsfell, sunnan við Öskju. Hverjum þeim sem telur sig búa yfir vitneskju eða ábendingum, er að haldi komi, gefst færi á að kynna örnefnanefnd álit sitt. Ábendingum skal skila til örnefnanefndar, Lyngási 7, 210 Garðabæ, eigi síðar en 31. janúar 2004. Örnefnanefnd V____________________________________________________/ JRvið dauðans dyr, aftur Leikarinn Larry Hagman, sem er þekktastur fyrir hlutverk sitt sem JR í Dallas-þáttunum sívinsælu, hef- ur verið lagður inn á sjúkrahús vegna lifrarskemmda. Larry hefur lengst af ævinni verið iðinn við drykkjuna og þurfti hann meðal annars að gangast undir lifrar- ígræðslu árið 1995 þegar sú gamla var búin að fá nóg. Eftir það hefur hann að mestu haldið sig frá sopanum þar sem læknar sögðu honum að ef hann myndi ein- faldlega deyja ef hann héldi áfram uppteknum hætti. Fyrir nokkrum vikum fór þorstinn svo að segja til sín á ný og því fór sem fór. Larry liggur nú þungt haldinn á St. Vincent sjúkrahúsinu í Los Angeles og bandaríska þjóðin stend- ur á öndinni og býður spennt eftir því hver af- drif Larrys verða, rétt eins og þegar JR var skot- inn hérna um árið. Konur fíla klám Samkvæmt rannsókn sem framkvæmd var af aðilum frá Stanford háskólanum í Bandaríkj- unum hafa konur gainan af klámi. Rannsak- endurnir komust að þessari niðurstöðu eftir að þeir höfðu gert tilraunir á 20 konum þar tengdar við alls kyns mæl- ingatæki á meðan klámáhorfi þeirra stóð. Mældur var hjartsláttur, andardráttur, við- brögð húðarinnar og blóðflæði um kynfæra- svæðið á meðan konurnar horfðu á klám án hljóðs í 22 mínútur og svo aftur með hljóði í aðrar 22 mínútur. Niðurstöður rannsóknarinn- ar voru á þá leið að felstar konurnar urðu lík- amlega æstar eftir aðeins tveggja mínútna klámgláp, hvort sem horft var með eða án hljóðs.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.