Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2003, Side 29

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2003, Side 29
DV Fókus MÁNUDAGUR 22. DESEMBER 2003 29 HönnuSurnír þrir Þxr Ylfa Jónsdóttir, Signin Baldurs- dóttlr og Iðunn Andersen voru ánægðarmeO útkom- una a tiskusýningu sem þær héldu i Hinu húsinu á föstudagskvöldið. „Við gerðum þetta allt algerlega sjálfar og þetta var alfarið á okkar vegum,“ segir Ylfa Jónsdóttir sem á föstudagskvöld hélt tískusýningu í Hinu húsinu ásamt stöllum sínum, Sigrúnu Baldursdóttur og Iðunni Andersen. Þær eru allar annars árs nemar í fatahönnun við Listaháskóla íslands og var þetta fyrsta samsýning þeirra. Ylfa segir þær hafa haldið sýninguna til að koma sér á framfæri. „Við saumuðum þessi föt fyrir Jólabúð- ina á Laugavegi og svo vatt þetta bara svona upp á sig og við ákváðum að halda þessa sýningu. Það voru allir rosalega ánægðir með þetta framtak og við fengum mjög góð viðbrögð við sýningunni," segir Ylfa en föt- in eru seld í Jólabúðinni. Ylfa segir þær stöllur heldur ekki vera hættar. „Næst á dagskrá er vorsýningin á vegum skólans en við eigum eftir að gera eitthvað fleira sam- Ung hönnun í Hinu húsinu ÞærYlfaJónsdóttir, Sigrún Baldursdóttir og Iðunn Andersen héldu velheppnaða tlskusýningu I Hinu húsinu og hérá síðunni má sjá afrakstur hönnunar þeirra. Fötin fást i Jólabúðinni á Laugavegi. Það var að vanda mikið af fólki á Hverfisbamum um helgina og náði röðin fyrir utan staðinn langt upp eftir Smiðjustígnum þegar best lét. Á Hverjir voru hvar staðnum mátti sjá afar fagurt fólk; þau Garðar Gunnlaugsson Herra ís- lánd og Ragnhildi Steinunni Jóns- dóttur Ungfrú ísland. En það var líka venjulegt fólk. Þar á meðal voru Andri hljómborðsleik- ari í Irafári, söngkon- an Védís Hervör Áma- dóttír, knattspyrnu- maðurinn Veigar Páll Gunnarsson, sjón- varpsstjórinn fyrrver- andi Ámi Þór Vigfús- son, smiðurinn og sj ón varp smaðurinn Friðrik Weisshappel, fótboltamaðurinn Björgólfur Takefusa og útyarpsmaðurinn Ásgeir Kolbeinsson, sem starfar reyndar líka á Popptíví, og Gununi Gonzales plötusnúður. Þá sást líka til Hreiðars Más Sigurðssonar forstjóra Kaup- þings Búnaðarbanka, fótbolta- mannsins Eiðs Smára Guðjohnsen hjá Chelsea sem greinilega fékk snemmbært jólafrí vegna þess að hann er meiddur, og umboðs- mannsins Kenny Moys ásamt mikl- um fjölda glæsilegra meyja. Á Pravda sást til Ásdísar Ránar Gunnarsdóttur fýrirsætu og ekki langt frá var annar af erfmgjum Devitos-veldisins sem spígsporaði um með rós í hönd. Þarna voru líka Birkir Kristínsson fótboltamark- vörður og Marta María stílisti. Sölvi Blöndal í Quarashi var aftur á móti á Prikinu á föstudagskvöldið og sama kvöld sást til Magnúsar Þórs Jóns- sonar, Megasar, á 22. ölstofan var eins og oftast pakk- full bæði kvöldin um helgina. Eins og fyrr var menningar- lykt af gestum því þarna mátti sjá Hihni Snæ Guðna- son stórleikara, Friðrik Friðriksson leikara, Þórhall Gunnarsson sjón- varpsmann og Brynju konu hans, Pétur Guðmundsson fyrrum körfuboltamann, Amþór Helga- son, þá Kjartan, Jónsa og Georg í Sigur Rós, Friðrik Erlingsson, Frey Eyjólfsson útvarps- mann á Rás 2, Helga Bjömsson söngvara sem mætti bæði kvöldin, Katrínu Júlíusdóttur al- þingismann og Eirík Bergmann stjórnmálafræðing. Að auk var Ragga Gfsla mætt til leiks, Héðinn Halldórsson fréttamaður á Sjón- varpinu líka og að síðustu stjörnuparið Tinna Hrafnsdóttir og Sveinn Geirsson. Stjörnuspá Martha Ernstdóttir hlaupakona er 39 ára í dag. „Hún hefur bæði hæfileika og mátt til að vefja um sig undraverðri orku sem eflir hana og fólkið sem hún um- gengst. Djúpar ástríður hennar efla hana þegar fram í sækir," segir í stjörnuspá hennar. Martha Ernstdóttir W, Mnsbeúnn (20. jan.-18.febr.) vv Ef þú ert eitthvað slappur/slöpp skaltu fara hægt í sakirnar og láta þína nánustu dekra við þig. Þú ættir að lyfta þér upp með maka þínum, fjölskyldu eða félögum þegar þú hefur náð góðu jafn- vægi andlega og líkamlega. Fiskarnirn9. febr.-20. mars) Ef vandamál hvílirá herðum fiska mun lausnin á vandamálinu koma fijótlega af sjálfu sér en hér kemur fram að stundum leiðist þér daglegt líf þitt og leitar í meira mæli eftir nýrri áskorun. Hrúturinn (21. mars-19.april) Þú hefur unnið lengi vel að einhverju markmiði sem hefur blundað í þér og nú er ferlið hafið í átt að fram- kvæmd. Þú færð laun erfiðisins fyrr en þú gerðir ráð fyrir. Mikil gleði ríkir í kringum þig út desember mánuð en gleymdu ekki þeim sem sannarlega þarfnast nærveru þinnar. Nautið (20. april-20. mai) T Ö n Þú ert ævintýramanneskja og nýtur þess að hitta fólk í samskiptum þín- um en þú virðist hafa sérstakt lag á að fá hugmyndir frá fjandmönnum þínum sem og vinum. Fólk fætt undir stjörnu nautsins veit hvert það ætlar sér og kemst þangað með staðfestu og trúnni á að það geti framkvæmt drauma sína. Tvíburarnirp;. mai-21.júni) Þú virðist, á þessum árstíma sér í lagi, sjá gróðaleið sem færir þér það sem þú sækist eftir viðskiptalega séð. Ef breytingar verða að veruleika hjá stjörnu tvíbura gerast þær fyrir árslok. Krabbinn (22.jún/-22.júii) Gleymdu ekki að huga að eig- in líðan, draumum og ekki síst óskahlut- verki þínu í tilveru þinni. Þú býrð vissu- lega yfir öflugu innsæi sem þú mættir vel nota betur. Ljóni <5 (23. júlí-22. ágúst) Njóttu samverunnar með vin- um þínum og reyndu að virkja sjálfið eins og þú mögulega getur um þessar mundir. Eitthvað gott sem þú gerir ekki ráð fyrir mun gerast næstu daga sem ýtir undir góðar tilfinningar hjá fólki fætt undir stjörnu Ijónsins. Meyjan (23. ágúst-22. sept.) Þú berð heitar tilfinningar ( brjósti, ert mjög gefandi og átt auðvelt með að umgangast fólk en átt það til að halda aftur af þér þegar þú ert fær um að njóta stundarinnar. Q Vogin (23.sept.-23.okt.) Verk sem tengjast framtíð þinni og efla skilning þinn á tilgangi lífsins birt- ast hér þegar stjarna vogar er tekin fyrir en nýtt ár færir þér sérstaklega mikla gleði í hjarta. Öll verk þín hafa afleiðingar, sama hve smávægileg verkin eru. Hl Sporðdrekinn (24.okt.-21.n0v.) Fólk eins og þú, sem býr yfir ómældum styrk og geislar af vellíðan, hjálpar náunganum ómeðvitað. Ef þú gefur þér tíma til að skapa það sem veitir þér ánægju munu hlutirnir fara eins og þú óskar. Þér er lýst sem mann- eskju sem þráir að stjórna. / Bogmaðurinn (22.nov.-21.des) Mikil gleði og samstaða er ríkjandi í hópnum í kringum þig. Ef þú átt þér sannan draum sem þig þyrstir í að framkvæma ættir þú að ráðfæra þér við vin eða náinn félaga og viðkomandi mun gefa þér marktæk ráð sem vísa þér veginn að áfangastað Steingeititi (22.0es.-19.jan.) Taktu þér tak og æfðu þig að segja „nei" við óskum félaga þinna. Ekki staldra lengur við heldur gakk í þau mál sem þú hefur látið sitja á hakanum. Þú ættir umfram allt að íhuga framtíð þína og ákveða hvert þú ætlar þér bæði á til- finningalega sviðinu og því faglega. SPAMAÐIIR.IS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.