Nýtt dagblað - 10.09.1941, Síða 3
MtTT ÐAOBLAÓ
3
Mlðvifeudagur 10. september 1941.
L
Eigandi og útgefandi:
Gunnar Benediktsson.
Kitstjórar:
Einar Olgeirsson (ábyrgur)
Sigfús Sigurhjartarson.
Kitstjórn:
Hverfisgotu 4, sími 2270,
Afgreiðsla:
Austurstræti 12, sími 2184.
Víkingsprent h. f.
Tækiteri verkalýBsins
til kjarabóta
Samningar flestra verkalýðsfélaga
falla úr gildi um árainót, ef þeim
er sagt upp með nægum fyrirvara.
Víðast hvar mun þurfa að segja
samningunum upp með þriggja mán
aða fyrirvara eða nú um mánaðla-
mótin.
Það er því timi kominn fyrir
verkalýðsfélögin til að athuga alla
málavexti og ákveða sókn $ína í
baráttunni fyrir bættum kjörum
stéttarinnar.
Mdfei hefur verkalýðurinn haft
eins góða aðstöðu til að knýja
fram kjarabætur og nú, þcgar að
vinnuaflið er svo eftirsótt, að aldreý
liefur þekkst annað eins liér. En
hinsvegar hefur verið imjög dauft yf-
ir verkalýðshreyfingunni siðan um
nýár. Fundilr í félögunum hafa verið
fáir. Félagslegur undirbúningur und-
ir það að liagnýta liinar heppilegu
kringumstæður er þvi -lítill.
A þessu verður fljótt að ráða bót:.
Verkalýðsfélögin þurfa strax að fara
að halda íundi og skipulcggja bar-
áttu sína. Það má eigi svo til gangá
að vegna augnablikshagsmuna verka
manna við vinnuna nú, þá gleymist
að liugsa fyrir framtíðinni. Einmitf
nú þurfa allir verkamenn að gefa
sér tíma til að hugsa um framtíð-
ar- og heildarhagsmuni stéttarinn-
ar io'g vinna henni til handa
kjör, sem ekki verða aftur pf henni
tekin.
Verkalýðsfélögin þurfa að læra
af mistökunum, sem urðu i vetur.
Þau félög, sem saman heyra vcgna
vinnunnar, þurfa að heyja barátt-
una sameiginlega. Og bezt væri að
þau ræddu markmið baráttunnar i
sameiningu.
Það er vafalaust margt, sem til
greina kemur fyrir verkalýðsfélög-
in, að berjast Jfyrtijri í vetur, cn meðal
þýðingarmestu markmiðanna, sem
knýja þarf fram, er tvímælalaust
8 tíma vinnudagurinn. í baráttunni
fyrir auknum réttindum og aukinni
menningu alþýðunnar, þá er það
tvimælalaust eitt stærsta sporið, er
stigið verður innan auðvaldsskipu-
lagsins, að koma 8 tíma vinnudegi
á. — Nokkur verkalýðsfélög hafa
þegar komið 8 tfma vinnudegi á, en
hjá flestum er enn 9 til 10 tíma
vinnudagur.
011 þessi mál þurfa að takast
til rækilegrar yfirvegunar í verlka-
lýðsfélögunum sem fyrst. Islenzk
verkalýðshreyfing má ekki við því
að láta beztu tækifærin, sem liún
hefur til að bæta kjör stéttarinn-
ar ganga úr greipum sér.
Aldrei hefur hún liaft aðra eins
möguleika til að vinna sigra sina
skjótt og vel. En hún þarf að und-
irbúa sig vel til þess — og tíminn
til undirbúningsins gr nú.
cBœiaivóztuzifvn
VIÐ GRÖF NAPOLEONS.
Þegar Hitler kom til Parísar, eft-
ir sigurför þýzka hersins til
Frakklands, staðnæmdist hann við
grðf Napóleons, Þá birtist honum
vofa Napóleons er mælti:
„Hver ert þú?”
„Eg er sigurvegari heimsins”.
„Ertu búinn að sigra Rússa?”
„Nei, en eftir nokkrar vikur
verð ég búinn að því”.
„Ertu búinn að sigra Breta?”
„Nei, en eftir nokkra mánuði
verð eg búinn að því”.
„Leggstu hjá mér”, mælti vofan
og hvarf.
ÞINGVILJINN,
„Þingviljinn hefur verið þver-
brotinn”, segir Morgunblaðið. Auð
vitað er blaðið hneykslað út í.
fingurgóma, hvað annað með svo
einlægt þingræðis- og lýðræðis-
blað.
Það var ríkisstjórnin sem „þver
braut þingviljann” að dómi Morg-
unblaðsins, þegar hún ákvað að
loka áfengisútsölunum. Og rök-
semdir Morgunblaðsins, hverjar
skyldu þær vera?
Þær eru þannig: ,
Þegar Alþingi kom saman í júlí
mánuði til þess að staðfesta samn
ing þeirra Hermanns og Roose-
velts, báru fjórir þingmenn fram
svohljóðandi tillögu:
„Alþingi ályktar að skora á
ríkisstjómina:
1) Að loka áfengisverzlunum
ríkisins, meðan erlent herlið dvel-
ur í landinu.
2) Að vinna að því, við stjórn-
ir þeirra ríkja, sem herlið er kom-
ið frá hingað til lands, að þær
láti ekki herliðið fá áfengi né að-
stöðu til að afla þess, meðan liðið
dvelur hér á landi”.
Margir þingmenn gerðust til að
halda því fram, að á aukaþingi
þessu væri ekki rétt að taka nein
mál fyrir önnur en það sem þing-
ið var kallað til að leysa, og á
gmndvelli þcirrar ástæðu var sam
þykkt að taka tillögurnar ekki til
meðferðar, Af þessu dregur Morg
unblaðið þá merkilegu ályktun, að
það sé eindreginn vilji hinna um-
boðslausu þingmanna að áfengis-
útsölurnar séu opnar upp á gátt.
Það er ekki hægt að komast
mikið lengra í heimskulegum á-
lyktunum en þetta.
ÞJÓÐARVILJINN.
En úr því að Morgunblaðið er
nú að tala um þingvilja, því þá
ekki að minnast um leið á þjóð-
arviljann?
Haustið 1939 skrifuðu nær 23
þúsundir manna undir áskorun til
ríkisstjórnarinnar um að loka á-
fengisútsölum og hafa þær lok-
aðar meðan stríðið stæði. Undir-
skrifta var aðeins leitað í bæjum
og nokkrum stærri kaupstöðum,
Undirskriftunum var safnað á 4
eða 5 dögum. Undirtektir voru
slíkar, að um 80—90% allra
þeirra, sem til náðust, skrifuðu
undir, og mjög mikill meirihluti
allra kjósenda skrifuðu undir, á
Jieim stöðum, sem undirskriftanna
var leitað. Það er vissa fyrir því,
að í sveitum landsins, en þar var
undirskriftanna ekki leitað, er
krafan um lokunina ennþá almenn
ari en í kaupstöðunum.
Það er spursmál hvort þjóðar-
viljinn hefur nokkru sinni komið
greinilegar fram en í þessu máli.
MEÐAN ÞJÓÐARVILJINN VAR
FÓTUM TROÐINN.
Ríkisstjómin lét sér sæma að
fótumtroða þennan þjóðarvilja í
nær tvö ár —- og Morgunblaðið
Jiagði, En þegar stjórnin lætur að
þjóðarviljanum, þá rífur Morgun-
blaðið þögnina, til þess að ávíta
stjórnina harðlega fyrir að fara
að þjóðarviljanum í einu einasta
máli. Til þess að rökstyðja þetta,
vitnar það í 19 umboðslausa menn
sem kalla sig þingmenn, sem
lýstu því yfir, að þeir vildu ekki
segja álit sitt í málinu, og segir:
„Sjáið þingviljann, fyrir honum
verður þjóðarviljinn að víkja.
Morgunblaðinu hefur oft tekist
vel að gera sig hlægilegt, en sjald
an betur.
ÞVl LÆTUR MORGUNBLAÐIÐ
SVONA?
Sumir halda það sé af því að
þeir séu svo „þyrstir” Morgun-
blaðsmennirnir, eitthvað er til í
því, en ekki er það aðalástæðan.
Aðalástæðan er sú, að nokkrir
káttsettir auðborgarar hafa ákveð
ið að gera áfengisframleiðslu að
stórgróðaatvinnuveg fyrir sig.
Þeir ætla sér að framleiða áfengt
öl fyrir Islendinga, og þeir stefna
að því að fá lög sett sem
heimili þetta, Þessir menn óttast
aö lokunin verði til þess að auka
bannstefnunni fylgi og torveldara
verði að koma þessum gróðaplön-
um í framkvæmd eftir því sem
lengur er lokað.
Þetta er meginástæðan til þess
að Morgunblaðið gerir sig að at-
hlægi, „það verður margur af aur
um api”, en vonandi fer þjóðin
nú að vitkast svo, að hún láti
þá menn ekki lengi fara með völd
í landinu, sem segja: Eg elska
lýðræði, þegar þeir meina pen-
inga, og eg elska þingræðið, Jægar
þeir meina stórgróða.
ÞEIK SKULU SETJA FYRIR
MlNUM VIÐSKIPTUM. . . .
Verkamaður kom að máli við
Bæjarpóstinn í gær, og sagði með-
al annars: „Nú er maður þó
frjáls að því að verzla hvar sem
manni sýnist, því nú getur mað- ,
ur borgað út í hönd. Þá fer mað-
ur að verzla við þá, sem anglýsa
í þeim blöðum, sem maður les.
Eg man vel hverjir auglýsa í
Nýju dagblaði og þeir skulu setja
fyrir mínum viðskiptum”,
SVO VAR ÞAÐ NÚ EITT ENN ,
SEM HCN LÉT UNDIR HÖFUÐ
LEGGJAST.
Ákafur stuðningsmaður Chur-
chills kom að máli við Lloyd Ge-
orge og lýsti fjálglega ágætum
núverandi stríðsstjórna.r , Breta.
„Það er nú eitthvað a$pað, en
stjórnin, sem við höfðp^ í síð-
asta stríði” (Loyd Georgjet var þá
forsætisráðherra) mælti, hann;
„sú stjórn lét allar skyn^amlegar
ráðstafanir undir höfuð leggjast”.
„Hún lét undir höfuð leggjast að
taka upp skömmbun matvæla í
tæka tíð, hún lét undir höfuð
ieggjast að koma skynsamlegu
skipulagi á framleiðslu hernaðar-
nauðsynja”. Þannig hélt hann á-
fram langa hríð að telja upp það, |
sem stjórn Lloyd George hefði
látið undir höfuð leggjast, Gamli
] maðurinn hlustaði á allt þetta
Físbsölusnmn-
fll|[in$urlnn
Framh. af 2. síðu.
togara, sem talinn er á skrá I, svo
framarlega sem þessi fiskur hefur
ekki verið látinn á land á Islandt.
b. Þau skip, sem stríðsflutninga
ráðuneytið liefur heimilað að flytja
fisk frá íslandi.
c. Þau skip, sem um er rætt í
skrá G.
5. Matvælaráðuneytið tekur á-
byrgð á verðhækkun á salti og
hráolíu, sem notuð er til að afla
fisksins til sölu samkvæmt ákvæðum
þessa samnings, ef verðið á þess1-
um vörutegundum verður hærra en
svo að það nemi 6—2—0 sterlings-
pundum fyrir hverja smálest af salti
komna á land í Reykjavík oé
8—9—0 sterlingspund fyrir smálest
liverja af hráolíu, komna á land c.
með mestu þolinmæði, en þegar
hlé varð á ásökunum andstæð-
ingsins sagði hann með mestu
hægð. „Svo var það nú eitt enn
sem þessi stjórn lét undir höfuð
leggjast. Hún lét undir höfuð
leggjast að tapa stríðinu”.
HVERNIG GENGUR MEÐ ÞESS-
AR HUNDRAÐ ÍBÚÐIR?
Hundrað voru þær bráðabirgða-
íbúðirnar, sem bæjarstjómin sam-
þykkti að láta byggja. En hvað
líður framkvæmdum? Um þær
beyrist alls ekki neitt. Það eru þó
ekki nema þrjár vikur til flutn-
ingadags svo það er áreiðanlega
timi til kominn að fara að undir-
búa málið.
FISKSÖLU S AMNIN GURINN
Bæjarpóstinum barst svohljóð-
andi klausa út af fisksölusamn-
ingnum’ og lofi ólafs Thors um
hið fimmfalda verð, er fáist fyrir
fiskinn:
Samningurhm er smánarblettur fyr
ir islenzku þjóðina. Það' er ekki
nóg með að hann gengué i berhögg
við hagsmuni einnar stærstu stétt-
arinnar i landinu, heldur er farið
langt aftur í 17. öld með því að
selja verzlunrréttindi Islendinga í
hendur erlendra manna. ' .
Við samningsgerð hafa þeir, sem
að þeim stóðu, varið hagsmuni stór
útgerðarinnar, cn varpað hagsmun-
um smáútgerðarinnar fyrir borð. Enn
aukið misrétti í framkvæmd sanm
ingsins, heldur en það, sem hann
tekur til, hefur þegar komið fram í
yfirgangi togaraeigenda við sölu í
skip nú síðustu daga, og mun verða
svo oftar.
Það er ósatt að fiskverðið hafi
finunfaldast frá því fyrir stríð, sam-
kvæmt sanmingum. Þorskurinn kost-
aði ekki 7 aura fyrir stríð (1939),
lieldur 11 aura, ýsan ekki 7 aura,
heldur 18—25 aura.
Samningurinn er gjörræði, framið
í fullkomnu lieimildarleysi og án um-
boðs frá þehn, sem vöru þá franv-
leiddu og áttu, sem búið er að
selja til eins árs.
li. f. í Reykjavík og 9—9—0 sterlings
pund fyrir hverja smálest af hráolíu
sem látin er í latid á öðrum höfn-
um á íslandi. öll kaup á salti og
hráolíu, þar sem verðið fer fram
úr því verði, sem ábyrgzt er, skulu
lögð undir matvælaráðuneytið til
samþykktar. Þegar talið cr saman
það fé, sem greiða skal samkvæmt
þessari ábyrgð skal dregið frá:
I. Fyrir þeim fiski, sem neytt
|er á íslandi.
II. Fyrir þeim fiski, sem seldur
er til annarra landa en brezka rík-
isins. j
III. Fyrir þeim fiski, sem fluttur
ter til brezka rikisins á skipumj,
sem getur i 4. c. flokki hér að
framan.
6. Þar sem fiskverðíið i sampingn-
um er tiltekið í islenzkri mynt, þá
er það miðað við það gengi, seni
svarar því, að 26,09 krónur jafn-
gildi einu sterlingspundi; og samn-
ingsaðilar eru sammála um það, að
ef hið opinbera breytir genginu, skal
því verði sem greint er í islenzkum
krónum, þegar breytt á þá lund,
að tryggt sé, að sá fiskur, sem
kaupa skal samhvæmt samningun-
um, skuli kosta matvælaráðuneyt-
ið sömuupphæðj í sterlingspundum,
eftir breytingu gengisins, semhann
gerði áður en gengisbreytingin
komst á.
7. Allir útflutnmgstollar, gjölíd og
skyldur, sem á fiskinum hvila, að
undanskildum ferskum fiski og
ferskri síld, skulu greidd af íslenzk-
um seljendunv; og fari svo að út-
flutningstollar, gjöld og skyldur, er
greiðast af nýjum fiski og ferskri
sild, útfluttri frá íslandi, hækki frá
því sem er, þegar sanmingurinn
gengu^r í igildi, cru samnmgsaðilar á
emu máli um það, að þá liækkun,
scm verður, íncðan samningurinn er
i gildi, skuli matvælaráðuneytið unð
anþegið að greiða.
•b. orelöslur fyrir nýjan fisk, salt-
fisk, frosinn fisk og niðursoðinn
fisk, skulu fara fram samkvæmt þvi,
sem greint cr á viðkomandi skrám.
9. Fari svo að ófriðnum ljúki,
meðan sanmingurinn er í gildi, get-
ur hvor aðilinn sem vill, tilkynnt
hinum, að liann ætli sér að slíta
samningnum að tveitnur mánuðum
liðnum frá þeim degi cr sú til-
kynning kom fram.
10. Sanmingsaðilar cru sammála
um það, að samningurinn skuli öðl-
azt gildi, þegar samkoniulag hefur
náðst um frumdrætti samningsins,
og það samkomulag liefur verið und
irritað af báðum aðilum, og þeir
eru ennfremur sannnála um það, að
þessir frumdrættir samningsms skuli
gilda sem samþykkt, unz matvæla-
ráðuneytið hefur gert fonnlegan
sanming til undirskriftar fyrir báða
aðila.
Undirritað í Reykjavik, 5. dag
ágústmánaðar 1941.
Utbreíðíð
Nýtt dagblað
Maðurínn mính,
Eíríbur Magnússon
hennarí,
andaðíst þann 9 þessa mánaðar,
Sítíríður Þorgrímsdóttír
/