Nýtt dagblað - 10.09.1941, Blaðsíða 4
Dr. Clodius, formaður þýzku
viðskiptanefndarinnar til Tyrk-
lands, er nýkominn til Ankara á-
samt fylgdarmönnum sínum.
Er ekki farið dult með það í
Berlín, að nefndinni er ætlað að
ná samningum um kaup á mest-
öllum útflutningsvörum Tyrkja.
Jafnframt sendiför dr. Clodius
hafa Þjóðverjar aukið áróður sinn
í Tyrklandi. Fjögur blöð, sem réð-
ust á Breta og samninga Tyrk-
lands og Bretlands, hafa verið
bönnuð.
Sjóorasfa víd
Norður^Noreg
Brezk heískip réðust á þýzka
skipalest, er flytja átti birgðir til
þýzka hersins á MurmanSkvigstöðv
unum og sökktu fjórum skipunf.
Voru það beitiskipið „Bremsa",
1500 smálestir að stærð, hraðskreitt
og mjög vel vopnað, tundurspiilir,
vopnaður togari og eitt flutninga-
skip.
Háskólabíóíð
Eins og kunnugt er, hefur Há-
skólinn fengið leyfi til þess að
reka kvikmyndahús hér í bænum,
hyggjast forráðamenn skólans að
reisa hús við Austurstræti í þessu
skyni, þegar því verður viðkomið.
Nú hefur Háskólinn farið þess
á leit við bæinn að fá Isbjöminn
leigðan til þess að hefja þar kvik-
myndareksturinn.
Bæjarráðið hefur haft beiðni
þessa til meðferðar og mælir með
því við bæjarstjóm að orðið verði
við henni. Málið mun fá fullnað-
ar afgreiðslu á næsta fundi. bæj-
arstjómar.
Þegar er búið að gera teikning-
ar af fyrirhuguðum breytingum á
búsinu og gert er ráð fyrir að
þarna verði aðallega sýndar frétta
myndir, og hefur Háskólinn þegar
tryggt sér sambönd með slíkar
rnyndir,
Næturlæknir í nótt er Halldór
Stefánsson, Ránargötu 12, sími
2234.
Næturvörður er í Laugavegs og
Ingólfsapóteki.
fitvarpið í dag:
19.30 Hljómplötur: Lög úr óper-
um.
20.30 Erindi: Ágústnótt á Siglui-
arðarskarði. (Þórarinn Guðna-
son læknir).
2 .55 Einleikur á píanó (Fritz
Weisshappel): „Ástríðumar”,
eftir Sigurd Lie,
21.15 Hljómplötur: Fiðlulög (Hei-
fetz og Elman leika).
21.30 Frá garðyrkjusýningunni í
Reykjavík.
Læknablaðið 27. árg. 4. tölubl.
1941 er nýkomið út. Efni þess er
um Shock eftir Valtý Albertsson,
Um heilsuvernd, héraðsi, Magmis
Pétursson þýddi. Um útgáfu og
dreifingu fagrita, eftir Bjöm Sig-
urðsson, og úr erlendum lækna-
ritum.
í
Eiríkur Magnússon
kennari Iðtinn
1
Eiríkur Magnússon kennari and-
aðist að Vífilstaðahæli í gærmorg-
un eftir langa vanheilsu. Verður
þessa ágæta manns nánar minnst
hér í blaðinui síðar.
Farþegaskipin verða af-
greidd við Grófarbryggju
Hafnarstjórn og herstjóm Banda-
ríkjanna á íslandi hafa gert með
sér það samkomulag, að herstjórn-
in fái Hafnarbryggjuna að öllu leyti
til afnota fyrir skip sín.
Farþegaskipin verða hinsvegar af-
greidd við G rófarbryggjuna (Sprengi
sand). 1
Um þessar mundir er unnið af
mesta kappi að þvi að byggja
bryggju við austur lilið Ægisgarðs
og fæst þar mikið nýtt pláss fyrir
afgreiðslu skipa.
Aðalfundur Leikfélagsins
„Thunder Rock" fyrsta
leikritið í vetur
Aðalfundur Leikfélags Reykja-
víkur var haldinn í fyrradag. 1
stjóm félagsins voru kosnir: Val-
ur Gíslason formaður, Brynjólf-
ur Jóhannesson ritari, Hallgrím-
ur Bachmann gjaldkeri ,cn í vara-
stjóm: Alfred Andrésson,' Arndís
Björnsdóttir og Emilía Borg.
Leikfélagið hafði á síðasta leik-
ári 47 sýningar á 5 leikritum, en
auk þess 40 sýningar á ,Nitouche’
ásamt Tónlistarfélaginu.
Fyrsta leikrit, sem félagið sýn-
ir í vetur, verður „Thunder Rock”
eftir Robert Adrey amerískan höf-
und,
Ennfremur verður auðvitað
sýningum á „Nitouche” haldið á-
fram.
Sfyrjöldín í Rússlandí
Framh. af 1. síðu.
manns af rúmenska heraum á víg-
stöðvum þessum.
Sovétflugherinn hélt uppi áköfum
árásuan á herstöðvar Þjóðverja á
öllum vigstöðvunx i gær. Á sunnu-
dag voru eyðilagðar 71 þýzk flug-
vél, en 24 sovétflugvélar fórust. 1
gær voru tvær þýzkar könnunar-
flugvélar skotnar niður í nágrenni
Moskva.
Mitlar liilMr ð
Um hundrað brezkar sprengju-
flugvélar gerðu árásir á borgir
í Vestur-Þýzkalandi í fyrrinótt,
og urðu Kassel og Miinster fyrir
aðalárásunum,
Bretar gerðu einnig loftárásir
á hafnarmannvirki í Cherbourg
þessa nótt með miklum árangri.
Allar flugvélamar sem þátt
tóku í árásum þessum komust
aftur til bækistöðva sinna.
Churchíll
Framhald af 1. síðu.
Við vitum að Sovétríkin hafa
enn á að skipa her, sem er ein-
hversstaðar milli 10 og 15 millj-
ónir manna og útbúnað handa
honum eins og er, en þau hafa
þegar misst borgir, sem eru þýð-
iugarmiklar fyrir hergagnafram-
leiðsluna.
En það verður hlutverk þrí-
veldaráðstefnunnar í Moskva að
skipuleggja birgðir handa þessum
her, svo að hann þurfi aldrei að
skorta hvorki hergögn né vistir.
Til þess að það geti orðið,
verða þjóðir Bretlands og Banda-
rikjanna að leggja að sér við
framleiðslustörfin. Og það er
ckki nóg að skipuleggja fram-
leiðsluna, heldur verður einnig að
sjá til þess að hún komist til Sov-
étríkjanna í tæka tíð,
ÞRJÁR LEIÐIR.
Eins og nú er eru aðeins þrjár
leiðir opnar til birgðaflutninga til
Sovétríkjanna. Af þeim er leiöin
um íran stytzt og öruggust, þar
vantar aðeins járnbrautarvagna
til þess að hægt sé að halda uppi
stöðugum flutningum.
LlFÆÐIN SEM VERÐUR AÐ
TRYGGJA.
Til þess að tryggja þessa lífæð
hefur orðið að grípa til allharka-
legra ráða, en ég er viss um að
þingheimur er stjórninni sammála
um að þau hafi verið óhjákvæmi-
leg.
Þegar Frakkland gafst upp, átt-
um við aðeins 80 þús. til 100 þús.
manna her í hinum nálægu Aust-
urlöndum, Nú eigum við þar loft-
flota, sem er álíka stór og heima-
loftflotinn brezki í byrjun styrj-
aldarinnar og her, sem er um y4
milljón manna.
MESTA BLÓÐTAKAN SEM HER
SVEITIR HITLERS HAFA
ORÐIÐ FYRIR,
Hersveitir Hitlers hafa orðið
fyrir meiri blóðtöku þann tíma,
sem liðinn er af styrjöldinni í
Sovétríkjunum en á heilum árum
áður. Og herir hans eiga enn í
óskaplegum átökum við sterkan
og jafnvígan andstæðing.
I
ORUSTAN UM ATLANZHAFIÐ.
Churchill skýrði frá því að mán
uðina júlí og ágúst hefði skipa-
tjón Breta af völdum hernaðarað-
gerða aðeins verið þriðjungur af
skipatjóni því, er Möndulveldm
hafi orðið fyrir. Þessar tölu væru
því athyglisverðari ef þess væri
gætt að Bretar og bandamenn
þeirra ættu. tíu til tuttugu sinn-
um fleiri skip á höfunum. Hrós-
aði Churchill mjög brezku kaf-
bátunum. Síðan um áramót
hefðu þeir sökkt 17 herskip-
um andstæðinganna og 105 flutn-
ingaskipum eða 15 skipum í mán-
uði.
Churchill varaði alvarlcga við
ástæðulausu málæði um að orust-
an um Atlanzhafið hafi verið unn-
in. Hitler leggi nú aðaláherzluna
á að berja niður Sovétríkin og
Bretland, en síðan ætli hann að
snúa sér að Bandaríkjunum.
?
?
*»*
I
?
T
Y
Y
I
T
MANNSKAÐAVEÐRIÐ
eftir
PHYLLIS BOTTONE
2»
Þú hefur enga hugmynd um þaö, sagði Freyja alvar-
lega. Þú veizt ekki, hvað ég var mikið utan við mig.
Það var auðséð á móður hennar, að hún lét ekki sann-
færast; öllu heldur virtist hún þess fullviss, að hún
gæti alveg sett sig í spor Freyju, enda voru þær líkt
skapi farnar, þótt móðirin hefði aldrei þurft að beita
hugsiminni við sömu viðfangsefni og Freyja.
Þegar ég var ung, sagði móðir hennar og var ekki
laust við, að kenndi saknaðar í röddinni, þekktist það
ekki, að konur úr okkar stétt ynnu sjálfstætt verk.
Ég var einu ári yngri en þú ert nú, þegar ég var gift
Rudolph von Röhn. Finnst þér eggið ekki gott?
Jú, það er alveg ágætt, mælti Freyja ánægjulega.
En það er þetta, mamma, hugsaðu þér — ef það hefði
ekki verið, þá ættiröu hvorki Ólaf né Emil. Ertu trúuð
á ást við fyrstu sýn?
Bros móður hennar ljómaði úr gráum augunum. Það
kom í ljós röð af jöfnum, skjannahvítum tönnum. Hún
varð áberandi ungleg þegar hún brosti. í augum Freyju
var hún þójiyorki fríð né ungleg, aðeins eins og henni
fannst hún eiga að vera, að öllu leyti.
Ég man það vel, sagði frú Roth, þegar ég sá föður
þinn í fyrsta sinn. Hann haföi stungizt af hjólhestin-
um og í sorpkerru. Það var ein af þessum gamaldags
opnu kerrum, en það var samt enginn hægðarleikur aö
detta í þær! Ég var aö vökva narsissur úti á svölunum
heima. Hann var svo hlægilegur og dásamlegur. Hann
hirti ekkert um óhreinindin, ekki einu sinni eftir að
hann haföi reist hjólhestinn við — hann starði á mig
alveg eins og þaö væri eitthvaö nýtt, sem hann sæi í
smásjánni — þú veizt hvernig hann veróur þá á svip-
inn. Mig langaði til þess að strjúka óhreinindin úr
skegginu á honum — þaö var svart í þá daga — ég
minnist þess ekki, aö mig hafi langaö til þess aö
strjúka skeggiö á nokkrum öörum manni.
En þú varst þó gift áöur, mælti Freyja ásakandi.
Hún gat aldrei fyrirgefið móöur sinni þaö til fulls,
aö hún var tvígiít. Það er raunar ekkert út á ekkjur
aö setja, en Freyju fannst, aó pabbi hennar heföi ekki
endilega þurft aö kvænast ekkju.
Ég varó aó velja um Rudolph von Röhn og Ulrich
greifa Maberg, sagöi móðir hennar, ég átti ekki annars
úrkosta, og þá leizt mér betur á Rudolph.
Ég hefði ekki kært mig um að vera dóttir Ulrichs
greifa, mælti Freyja. Það er auövitaö þess vegna, sem
greifafrúnni er svona lítiö um þig gefið.
En hvaö þetta er allt undarlegt — ég á við þaö, aö
viö erum svo kunnug Mabergsfjölskyldunni og Ólafur
er ástfanginn af Soffíu — ef hann þá er það.
Og Fritz eiy hnlinn af þér, sagði móðir hennar og
brosti ertnislega, og á þvi er enginn vafi.
Freyja~~jreip~aðra brauðsneið og fór aö boröa af
mesta kappi. Það getur vel verið, en þaö þarf engu aö
breyta fyrir mér. Finnst þér það? Ég ætla alls ekki
aö’ fara að^giftast, ef ég þá geri þaö nokkurn tíma.
Svo‘ef“ég"nú líka aö læra læknisfræöi.
Heyröu, mamma. Mér finnst að pabbi ætti ekki aö
gefa Emil mótorhjól á undan mér — jafnvel þótt hann
eigi tuttugu og eins árs afmæli. Emil er bara stjúpson-
ur hans og pabbi veit hve tilfinnanlega mig vantar
mótorhjól, ég þarf miklu meira á því að halda heldur
en Emil.
Þaö er enginn mælir til, sem sýnir þörf manna og
nauösyn í þessum efnum, tautaöi móöir hennar, og þó
aö svo væri, þá mundi faðir þinn ekki fara eftir hon-
um. Hann hefur aldrei og mun aldrei gera upp á milli
sinna eigin barna og stjúpbarna. Hann hefur heldur
enga ástæ’öu til þess, því aö þeim eldri sonum mínum
þykir eins vænt um hann og hann væri faðir þeirra,
svo er guði fyrir að þakka.
Móðir hennar varð rauö í andliti og gröm, rétt eins og
þaö skipti Rudolph von Röhn einhverju rnáli, hvort
hann væri faö.ir þeirra, þó aö hann væri dauður fyrir
löngu.
Þegar öllu er á botninn hvolft, hélt móðir hennar
áfram og var nú aftur rólegri eins og henni hefði líka
oröið þaö ljóst hversu steindauður von Röhn var, —
þá hafðiröu nú ekki svo lítiö upp úr krafsinu á af-
mælisdaginn þinn, eöa hvaö finnst þér? Sjáöu fallegu
bókahillurnar, fullar af bókunum, sem faöir þinn gaf
þér, vísi til bókasafns um læknisfræöileg efni, sumt
voru meira aö segja hans eigin bækur. Ég hef oft hugs-
aö um þaö hvort ykkur er ljóst hvaö’ nafn fööur ykkar
I
?
Y
X
I
I
I
i
t
*
$
?
?
T
T
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
?
T
Y
Y
?
?
?
I
I
I
Y
?
?
Y
Y
T
?
?
Y
?
?
t
Y
|
f
T
T
Y
Y
x
I
I
Y
Y
1
T
Y
Y
I
I
I
Y
Y
Y
Y
Y
I
1
Y
t
Y
t
t
x
t
t
t
t
t
Ý
t
t
t
t
t
t
t
í
f
Ý
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
y
y
I
x
t
t
t
X
Z
?
?
!
t
t
t
t
t
?
?
f
X
y
t
y
t