Nýtt dagblað - 02.11.1941, Síða 2
NÝÍf DagblAÖ
Sunnudagur 2. nóvemebr 1941.
KIRKJAN
-- Ritstj. séra JaKob Jónsson --
Blóðvökvínn gehir bjargað lífí manna, er fá
faugaáföil í loftárásum. — Það þurfa um 1000
manns að gefa sig fram til að láia iaka sér Móð
félagsins verða í vetur sem
hér segir:
MIÐBÆIARBARNA-
SKÓLINN
TELPNAFLOKKUR:
MiÖvikud. kl. 7 til 7.45.
Föstud. kl. 7.30 til 8.15.
FIMLEIKAFLOKKUR KVENNA:
Þriðjud. og föstud. kl. 8.15 til 9.15.
H ANDBOLT A/EFING AR
KVENNA:
Miðvikudaga kl. 8—9.
ÍÞRÓTTALEIKFIMI:
Frjáls-íþróttamenn og skíðamenn
þriðjudaga og föatudaga kl. 9.15—
10.
KNATTSPYRNUMENN
(handb.).
Meistarafl. og I. fl. Mánudaga og
fimmtud. kl. 9—10.
ÖLDUNGAR
(handb.):
Miðvikud. kl.~ 9—10.
SUNDÆFINGAR:
í Sundhöllinni Mánud. og fimmtud.
— Nánari upplýsingar hjá sundkenn-
ara félagsins.
Fimleikaœjingar kurla byrja um miðja
næata vika í fimleikasal Aastarbæjar-
barnaskólans um verba þá auglýstar
nánar.
Æjingar I M iíbæjar-barnaskólanum
byrjuSa í gær. — Kennarar félagsins
eru þeir sömu og áSur.
K. R.-ingar, fjölmenniS á œfingarnarl
STJÓRN K. R.
Heíf og köfd
svid
allan dagínn
Kaffísalan
Hafnarstraeti 16
v. .ví—
Kaupíd
Nýff dagblað
>0ö0000<x>000000<50<
Þess hefur verið farið á leit,
við öll dagblöð landsins og Tím-
aim, að þau létu kirkjumálum
ákveðið rúm í té einu sinni í viku
hverri.
Nýtt dagblað hefur talið rétt
að verða við þessum tilmælum,
og það því fremur, sem séra Jak-
ob Jónsson mun annast ritstjórn
þessara þátta.
Blaðið tekur að sjálfsögðu enga
afstöðu til trúmála almennt, það
telur trúarbragðafrelsi meðal
sjálfsagðra mannréttinda og vill
ljá umræðum, um þessi mál frá
fleiri en einni hlið rúm.
Avarp
Útgáfumálanefnd þjóðkirkjunn-
ar hefur farið þess á leit við öll
dagblöð höfuðstaðarins og blaðið
„Tímann”, að í þessum blöðum
væri um liverja helgi sérstök
deild, helguð kirkjunni, hugsjón-
um hennar og starfi.
Islenzka þjóðin er í alvarlegri
hættu stödd. Jafnvel þó að ekki
sé barizt í landinu, hefur styrj-
öldin borizt hingað og mannfall
á sjó hefur þegar orðið mikið,
miðað við fólksfjölda. En til eru
aðrar hættur, sem steðja fremur
að þjóðarsálinni en lífi einstakl-
inganna. Ef þróunin heldur
áfram, eins og hún hefur hafizt,
getur svo farið að þjóðin van-t
ræki framleiðslu sína, vanrækji
skyldur sínar við íslenzk heimili
og skoði það sem sitt eðlilega
hlutverk að þjóna útlendingum-
Mun þá skapast hér undirlægju-
háttur sem helzt í hendur við
fordild lítihnagnans að líta á út-
lendinga sem fínni menn ensjálfa
sig. En hvers virði erum vér þá,
er vér höfum varpað fyrir borð
tungu vorri, þjóðarerfðum og
andlegu sjálfstæði? Og ef and-
legt sjálfstæði er að engu orðið,
hvar er þá siðferðisþrótturinn c®
lífsgleðin? Og hvar er þá hinn
stælti vilji þeirrar þjóðar, sem er
ein heild í lífsbaráttu sinni?
Sjálfstæðisbarátta íslendtinga,
er og hefur verið barátta fyrir
andlegum verðmætum þeirra. En:
sú barátta þarfnast manna, sem.
þora að horfast í augu við vanda
rnál tilverunnar og mynda sérlífs
skoðun, í stað þess að reka fyrir
straumi og vindi. Og þá er frem-
ur en nokrku sinni fyrr, þörf á
þeirri stofnun, sem sameinar ;
böm þjóðarinnar, án tillits til sér
mála stétta og flokka, undir '
merki einanr hugsjónar, sem öll-
um er lífsnauðsyn 'að keppa að. .
En það er lífshugsjón Jesú Krists
Takmark og hlutverk kirkjunn-
ar er það að mynda í landinu
sterkt samfélag þeirra manna,
sem miða líf sitt við Krist, og,
! í hans anda vilja heyja samskon-
ar baráttu og hann gegn fátækt,
sorg, sjúkdómum og synd.
Jak. J.
I dag er allra heilagra messa,
texti dagsins er: Op. Jóh. 7, 18
—17.
— Sjá sálm nr. 463.
Fermingar í Reykjavík
Um þetta leyti er verið áð
ferma böm í flestum söfnuðum.
Undirbúningur undir fermingar-
daginn fer fram bæði hjá prest-
inum og á heimilum bamanna.
Flesta foreldra mun langa til að
gera fermingardaginn barninu
minnisstæðan með einhverskonar
tilhaldi á heimilinu. Við því er
ekkert nema gott að segja. En
gætið þess foreldrar, að á yður
hvílir alvarleg skylda. Á þessum
degi má hátíð heimilisins sízt af
öllu vera í mótsögn við hátíðina
í kirkjunni. Stundum hefur það
komið fyrir að fermingarveizlan
hefur endað með drykkjuskap og
svalli. Til eru .þeir foreldrar sem
hafa lagt sig fram í að ala for-
dildina upp í bami sínu með hóf-
lausu pjatti í gjöfum og klæðn-
aði, en látið daginn líða svo til
kvölds að ekki væri eitt orð sagt
við barnið um helgi dagsins eða
þá alvöru, sem við hann er tengd.
Bezta ráðið, sem ég get gefið
foreldrunum er þetta: Hafið til-
haldið á heimilinu yö^r látlaust
og blátt áfram, en eins hlýlegt
yður er unnt. Þó að einhverjum
af vinum yðar kynni að langa í
áfengi, þá munið, að þér hafið
meiri skyldur við barnið yðar en
þá. Það getur líka verið vafasamt
að viðhafa nokkuð þaé á ferm-
ingardaginn, sem bamið sjálfí
kynni síðar að blygðast sín fyrir.
Sú venja þyrfti að komast á,
að fermingargjafir væm svo lát-
lausar, að það þyrfti sem minnst
að koma fram mismunur á efna-
hag fólksins. Mörg böm eiga vini
bæði meðal fátæklinga og efn-
aðra manna. En það er ekki víst,
að þau geti alltaf sett sig inn í
það, að litla Ijóðabókin eða smá-
hluturinn er gefinn af jafn góð-
um hug og reiðhjólið.
En meiri þýðingu en allt ann-
að hefur þó það, að á heimilinu
hafi farið fram í mörg ár undir-
búningur undir ferminguna sem
andlega hátíð. Sá undirbúningur
er fólginn í því, að foreldrar
bamsins hafi, meðan það enn var
ungt, leitt huga þess til guðs,
gengið með því inn í helgidóm
bænarinnar, og kennt því að
skilja þýðingu kristilegs lífs.
Enginn, sem kennir barninu
sínu að elska Krist, þarf nokkum
tíma að iðrast eftir því, — sú
elska felur í sér kærleika til guðs
og manna.
Þjóðfáninn og kirkjan
Biskupinn hefur óskað þess, að
þ;jóðfáninn yrði settur upp í 611-
um kirkjum landsin, og ennfrem-
■ur, að sálmurinn „Faðir and-
anna” verði sunginn í lok hverr-
ar guðsþjónustu, meðan á stríð-
inu stendur.
Gef þú að móðurmálið mitt,
minn Jesú, þess eg beiði,
frá allri villu klárt og kvitt,
krossins orð þitt út breiði
um landið hér til heiðurs þér;
helzt mun það blessun valda,
meðan þín náð lætur vort láð
lýði og byggðum halda.
K. P.
Blaðamenn voru kallaðir til
Bauða Krossins í gær og skýrði
Níels Dungal prófessor þeim frá
því að á morgun yrði hafist
handa um að safna blóðvökva.
Er þetta sérstaklega gert með
það fyrir augum að eiga forða af
þessu dýrmæta efni handa þeim,
sem slasast kynnu í loftárásum.
Því er svo háttað ,um ýms
meiðsli, sem menn verða fyrir,
er þeir klemmast undir hrundum
/eggjum eða slasast á svipaðan
hátt, að sjúklingurinn berst vej
Ðf fyrst eftir slysið, en svo
AVARP
Ekki er auðfundinn sá maður,
er staðið hafi síðari tíma kyn-
slóðum hjarta nær en Hallgrím-
ur Pétursson.
I nærfellt þrjár aldir hefur
tungutak barnsins verið helgað
stefjum hans, barátta starfsár-
anna vígð heilræðum hans, hel-
stríð háð með bænarorðum hans
og sigurorð hans yfir dauðanum
hljómað við hverja gröf.
Fár eða enginn hefur ávaxta-
samara arfi skilað þjóð sinni en
hann. Seint verður honum full-
þakkað og aldrei ofþakkað.
Of lítið hefur enn verið gert
til minningar um Hallgrím Pét-
ursson, sem samboðið sé þakk-
• arskuld þjóðarinnar við hann.
Hallgrímskirkja í Reykjavík á
að verða tjáning vorrar kynslóð-
ar á vitund hennar um það, hvers
minning hans er makleg.
Hún á að verða list steinsins,
svo sem hún getur tignust orðið
á landi voru, eins og list Hall-
gríms var fullkomin.
Hún á að verða vígð og helguð
þeim drottni, sem. Hallgrímur
vígði líf sitt og starf.
Islendingur! Hér átt þú hlut að
máli, hver sem þú ert og hvar
sem þú ert
Þú ert í skuld við Hallgrím
Pétursson, þú ert og að þínum
hluta ábyrgur fyrir því, að arfur
hans verði ávaxtaður í hendur
næstu kynslóða. Er sú ábyrgð
því meiri sem uggvænlegar horfir
um framtíð þjóðarinnar.
Hallgrimskirkja í höfuðstað
landsins skal reist til lúkningar
á þessari skuld, sem á .vorri sam
tíð hvílir. Þú vilt hjálpa til þess;
það er heitið á þig og þinn skerf.
Um jónsmessuleytið á liðnu
sumri, var fyrir forgöngu bisk-
ups skipuð allsherjarnefnd til
þess að hrinda þessu máli í fram
kvæmd.
Nokkur hluti þeirrar nefndar
hefur tekizt á hendur að safna
fé innanbæjar og utan meðal alls
almennings, þessi undimefnd heit
ir „Hin almenna fjársöfnunar-
nefnd Hallgrímkirkju í Reykja-
vík”.
í gær, laugardaginn 1. nóvem-
nokkru síðar tekur blóoþrýsting-
ur hans að minnka og sjúklingur-
inn getur dáið í höndum lækna
anna, ef þeir hafa ekki blóðvökva
til að sprauta í harua. Stafar
þetta af því að blóðvökvinn hef-
ur eftir meiðslin sloppið út úr
æðunum (en blóðkornin hinsveg-
ar orðið eftir) og svo kemur það
allt í einu í ljós, að sjúklingurinn,
er að deyja sökum þessa áfalls
(Schock), sem hann hefur orðið
fyrir.
Blóðvökvinn er þá eina „með-
alið” sem getur bjargað lífi
mannsins og það meðal fæst ekkí,
nema menn gefi það af fúsum
vilja meðan tími og heilsa leyfir.
Blóðvökvinn, sem tekinn er úr
mönnum, getur geymst allt að
tvö ár eftir að sett hafa verið í
hann efni, er drepa sýkla og
hindra storkun, en blóðkorniil
eru síuð frá honum, því ella
myndi hann ekki þola svo langa
geymslu og sjúklingamir þurfa
ekki á þeim að halda.
Það, sem Rauði Krossinn hefur
sett sér að safna af blóðvökva í
þessum tilgangi eru 100 lítrar,
en til þess þarf hann að fá um
300 lítra af blóði. En til þess að
fá þá þyrftu um 1000 manns að
gefa sig fram, til að láta taka
sér blóð. Yrðu teknir 1—2 pelar
úr hverjum manni og munar eng
an um það, því um 5 lítrar blóðs
eru í hverjum heilbrigðum manni.
Þess skal getið að enginn mað-
ur finnur neinn mun á sér við
þennan blóðmissi og enginn sárs-
auki fylgir þessari blóðtöku.
Framh. á 4. síðu.
ber þ. á. var hafizt handa með
þessa fjársöfnun.
Er þess vænst að því gjafafé,
sem að berst úti um land, veiti
sóknarprestar viðtöku. I hinum
stærri kaupstöðum verða trúnað-
armenn þeim til aðstoðar og verð
ur síðar nánar tilkynnt um hverj
ir þeir eru.
Reykjavík hefur verið skipt í
smáhverfi með 10—15 húsum í
hverju og starfar einn trúnaðar-
maður að fjársöfnuninni í hverju
hverfi. Tekur hann á móti gjöf-
um og gjafaloforðum.
„Hin almenna fjársöfnunar-
nefnd” hefur opna skrifstofu í
Bankastræti 11 (annarri hæð),
undir umsjón herra Hjartar
Hansson, umboðssala, þangað
geta allir trúnaðarmenn og aðrir,
sem að fjársöfnuninni starfa snú
ið sér, ennfremur þeir, sem vilja
leggja fram fé, en umboðsmenn
imir ná ekki til
Verður skrifstofan opin alla
virka daga kl. 1—6 e. h. og oft-
ar eftir samkomulagi
Þá hefur Ríkisútvarpið heitið
aðstoð sinni við móttöku gjafa-
fjár svo og þessi blöð: Alþýðu-
blaðið, Morgunblaðið, Nýtt dag-
blað, Tíminn, Vísir og Þjóðólfur,
Reykjavík, 1. nóvember 1941.
Benedikt G. Waage, kaupm.
Friðrik Hallgrímsson, dómprófast
ur, Frímann ólafsson, fulltrúi,
Guðjón Jónsson, kaupm., Guðni
Ámason, deíldarstjóri, Gunnar E.
Benediktsson, lögfræðingur, Jón-
as Guðmundsson fyi-rverandi al-
þingism., Lúðvík Þorgeirss. kaup-
maður, Magnús Jónsson, guðfræðí
prófessor, ófeigur J. Ofeigsson,
J læknir, Pálína Þorfinnsdóttir frú,
* Pétur GuðmimdBSon kaupmaður,
&ustarbærinn
DugKcga krakba og roskíd
fólk vanfar fil að bcra blad-
íd fíl kaupcnda í Ausfur~
bænutn,
Upplýsingar á aftfr, Ausfursfræfí 12. Símí 2lí»4