Nýtt dagblað - 02.11.1941, Síða 3
Sunnudagur 2. nðvemebr Í94Í.
Níí¥ ÖXéBEXS
Eigandi og útgeíandi:
Gunnar Benediktsson.
Eitstjórar:
Sigfús Sigurhjartarson (áb.)
Einar Olgeirsson
Bitstjórn:
Hverfisgötu 4, sími 2270,
Afgreiðsla:
Austurstræti 12, sími 2184.
Víkingsprent h. f.
Tryggíd maívæla-
framleíðsluna
Það verður aldrei of vel brýnt
fyrir Islendingum að láta ekki
núverandi yfirborðsvelgengni
blinda sig. Vér stöndum nú bezt
að vígi allra Evrópuþjóða ur.t
matvæli og aðra neyzluvöru, en
hvenær sem orustan um Atlanz-
hafið kemst í algleyming, þá er
oss hin mesta hætta búin. Þótt
iiutningum yrði með erfiðismun-
um haldið uppi til Bandaríkjanna
þá má gera ráð fyrir að her?
gagnaflutningurinn taki engan
smáræðishluta af því skiparúmi,
sem völ er á.
Menn verða yfirleitt að gera
sér ljóst, að um leið og stríðið
breiðist út og flestar þjóðir
heims verða að vígbúast af sama
kappi og Þjóðverjar nú, þá er
vinnuaflið tekið frá matvælafram
leiðslunni og í þarfir hernaðar-
ins, — en hungurvofan sem nú
hefur læst Evrópu í helgreipar
sínar, mun hefja göngur sínar
um aðrar álfur heims. Fyrir þá,
sem á eyjum búa, sem umluktar
eru kafbátum villimennskunnar,
er því bezt að tryggja sig í tíma.
Ekki er þess síz.t þörf, þegar vald
hafar landsins hafa verið svo
skyni skroppnir að sinna aldrei
endurteknum aðvörunum um að
birgja landið að vörum.
Verkamenn og millistéttir bæj-
anna annarsvegar og bændur
hinsvegar þurfa að taka höndum
saman um að tryggja matvæla-
framleiðsluna og vinnukraftinn til
liennar. Það verður að gerast
með samstarfi þessara stétta,
með fullu tilliti til réttinda hvor
annarar og með sameiginlega
hagsmuni þeirra fyrir augum.
Milljónamæringar Reykjavíkur,
— skuldakóngarnir fyrrverandf,
— hafa auðsjáanlega aðeins eitt
í hyggju þegar þeir láta hirðf
menn sína, embættismenn Fram-
sóknar, flytja tillögur um vinn-
una: að svifta verkamehn réttin-
um til að ráða kaupi sínu og
hneppa þá í slíkt þrælahald, að
milljónamæringarnir einir ráði
hvar þeir vinna. — Það er hart
að það skuli vera til menn, sem
kenna sig við framsókn, sam-
vinnu og vinnandi stéttir, og ger-
ast samt erindrekar milljónamær-
inganna til að sundra þeim fylk-
ingum verkamanna, millistétta og
bænda, sem þurfa að sameinast.
— Slíkt er ekki ábyrgðartilfinn-
ing gangvart þjóðinni, heldur
hlýðni hirðmannanna við drottn-
ara sína. Umhyggjan um mat-
vælaforða landsbúa hljómar líka
full hræsniskennt hjá þeim vald-
höfum, sem skipulagt hafa
birgðaleysið með innflutningshöft
um og fyrirhyggjuleysi sínu.
En neytendur í bæjunum mega
ekki láta það hindra sig í að
gera ráðstafanir um matvæla-
framleiðslu að slík þörf er notuð
að yfirvarpi til kúgunartilrauna
nú. Þörfin er jafn brýn, hvemig
sem hirðmennimir reyna að mis-
oBœiazföósUitÍMM
,.ÞAÐ ER TUNGUNNI TAM-
AST. ...”
Tíminn hefur undanfarið verið
að hefja Mannerheim, böðul
finnsku þjóðarinnar, upp til skýj-
anna og hóta Bretum öllu illu,
ef þeir yrðu ekki góðir við hina
blóðþyrstui, finnsku fasista. Nú
síðast smjattar svo Tíminn á lof-
inu um Lindberg, foringjann fyr
ir „fimmtu herdeild” Hitlers í
Bandaríkjunum.
Og svo þykjast þeir unna lýð-
ræðinu! Þá klígjar ekki, læri-
sveina Jónasar.
„ÞEIR ÁBYRGU”
Jónas skírskotar nú til allra
þeirra ábyrgu um að fylgja ekki
„ótætis kommúnistunum” í því að
eyðileggja þjóðfélagið. Um leið
sýnir hann fram á, að Alþýðu-
flokkurinn og meirihluti Sjálf-
stæðisflokksins séu þegar komn-
ir á „línu kommúnistanna”. —
Aumingja Jónas, — skyldi hann
verða að sitja einn eftir með ól-
afi Thors sem „ábyrgur” — fyr
ir öllum svívirðingum þjóðstjóm-
arinnar — og hafa ekki einu
sinni fengið að vera ráðherra!
,PERSONALITY NUMBER ONE’
Jónas ver miklu rúmi í Tím-
anum í að óskapast yfir því, að
að Árni frá Múla hafi hlotið
slíkt heiti erlendis. öfundin skín
út úr hverri línu. Gamli maður-
inn minnist angurvær þeirra daga
er hans hjartkæru Danir kölluðu
hann „Islands stærke Mand”.
Svo flæktist hann úr vistinni frá
Dönum réð sig á skip Hambros
og tók að skamma Dani. Nú sýn
ast honum rotturnar yfirgefa
brezku fleytuna og eltir þær —
til Ameríku — og hefur nú í hót
unum við Breta. — En enginn
virðist kunna að meta liðhlaup-
in. Það er alltaf Hennann — eða
jafnvel Árni frá Múla, sem út-
lendu blöðin tala um. — Er ekki
von að gömlu, metnaðargjörnu
karlhrói sárni? Að verða pró-
......................
nota hana. Og það er aðeins ein
leið til að bæta úr herini:
Fullkomið pólitískt samstarf
verkalýðs, millistétta og bænda
að því að tryggja matvælafram-
leiðsluna.
Og það eru þessar sömu stétt-
ir, sem geta leyst vandamál dýr-
tíðarinnar með samstarfi sínu
um aðgerðir gegn stríðsgróða og
braskinu.
Það eru líka þær, sem eiga að
taka höndum saman um að verja
mannréttindi og efnalega afkomu
gegn ásóknum frá hinum nýríku
milljónamæringum þessa lands.
Og það eru þessar stéttir, sem
sameiginlega verða að verja þjóð-
frelsi þessa lands, sem milljóna-
mæringarnir alltaf eru reiðubúnir
til að selja hæstbjóðanda.
Pólitísk samvinna verkamanna,
millistétta, bæjanna og bænda —.
það er knýjandi þörf fyrir þjóði
ina.
Nú reynir á hvert nokkrir
stjórnmálamenn þjóðstjórnar-
flokknna átta sig á því, — eða
hvort Thorsurunum hefur tek-
ist að drepa úr þeim allan kjark
eða stinga þá svefnþorni svo þeir
rísi ekki aftur upp af þjóðstjórn-
ardvalanum.
Þá verður þjóðin sjálf að taká
til sinna ráða.
ventukarl í hominu hjá Thors-
urunum var ekki beinlínis draum
ur hans í æsku!
En meðal annarra orða: Hvem
ig væri að íhuga hvað Jón Sig-
urðsson hefði gert.
BORGARALEGT LÝÐRÆÐI OG
SÓSlALISTISKT LÝÐRÆÐI.
Herra ritstjóri!
Eg hef tekið eftir að blað yð-
ar talar all oft um borgaralegt
lýðræði og sósíalistiskt lýðræði.
Mér skilst að hér sé um tvö hug-
tök að ræða, sem séu ekki að
oilu leyti eitt og hið sama.
Viljið þér vera svo góður og
svara eftirfarandi spumingum í
Bæjarpóstinum ?
1. Hvað er borgaralegt lýð-
ræði ?
2. Hvað er sósíalistiskt lýð-
ræði?
3. Hver er munurinn á borg-
aralegu og sósíalistisku lýðræði ?
Svar ritstjóra:
BORGARALEGT LÝÐRÆÐI
Hið borgaralega lýðræði nú-
tímans á fyrst og fremst rætur
sínar að rekja til stjórnarbylting
arinnar miklu í Frakkalndi árið
1789, helztu einkenni þess em:
1. Almennur kosningaréttur
og kjörgengi, þ. e. jafn réttur
þegnanna til þess að hafa áhrif
á hvernig löggjafarþing og stjórn
ir bæjar- og sveitarfélaga er skip
að.
2. Ritfrelsi, þ. e. réttur þegn-
anna til þess að láta skoðanir sín
ar í ljósi á prenti.
3. Málfrelsi, þ. e. réttur þegn-
anna til að haida skoðunum sín
um fram í ræðu
4. Félagafrelsi, þ. e. réttur þegn
anna til þess að mynda félög i
hverjum þeim tilgangi, sem lög
leyfa.
5 .Fundafrelsi, þ. e. réttur. þegn
anna til þess að koma saman
til funda óvopnaðir, í hvaða lög
legum tilgangi sem er
6. Atvinnufrelsi, þ. e. réttur
þegnanna til að stunda hvaða at
vinnu sem þeir óska.
7 Trúarbragðafrelsi.
SÓSÍALISTISKT LÝÐRÆÐI
Hið sósíalistiska lýðræði á
fræðilegar rætur sínar að rekja
ti! kenninga Marx og Engels, það
verður ekki framkvæmt nema í.
sósíalistisku þjóðskipulagi og hef
ur því enn hvergi verið fram-
kvæmt nema í Sovétlýðveldunum
þó er það að sjálfsögðu ekki full
mótað þar enn, þar sem hið sós-
íalistiska þjóðskipulag er aðeins
22 ára gamalt.
Helztu einkenni hins sósíalist
iska lýðræðis em:
1. Atvinnulýðræði, þ. e. full-
komin yfirráð hins vinnandi fjölda
yfir náttúrugæðum, framleiðslu-
ækjuin og rekstrarfé.
2. Það felur í sér þau 7 ein-
kenni hins borgaralega lýðræð-
is og tryggir framkvæmd þeirra.
is sem að framan ero talin og
tryggir framkvæmd þeirra.
MUNURINN A SÓSÍALISTISKU
I.ÝÐRÆÐI OG BORGARALEGU
LÝÐRÆÐI
Af því sem að framan er sagt
verður ljóst, að sósíaliskt lýðræði
er borgaralegt lýðræði að við-
bættu atvinnulýðræði, en at-
vinnulýðræði er skilyrði fyrir því
Skáldsaga i
Réttur kemur út
Gunnar Benediktsson rithöfund
ur er staddur hér í bænum þessa
dagana og leit inn á skrifstofu
blaðsins í gær.
— Iivað er tíðinda? spyrjura
vér.
—Ekkert tíðinda.
— Dvelurðu lengi í bænum?
— Ekki veit ég það, svarar
Gunnar. Hugmynd mín er að
dvelja hér eina eða tvær vikur
ef ekkert sérstakt kallar mig aust
ur á Bakka. Aðalerindi mitt er
að sjá um útgáfu Réttarheftis-
ins, sem er nú orðið á eftir tím-
anu:n, vegna þess, hve erfið veðr
átta í haust hefur tafið mig við
uppskerustörfin. En heftið ætti
þó að koma einhverntíma í þess-
um mánuði.
— Hvað getur þú sagt okkur
að borgaralega lýðræðið njóti sín
í framkvæmd. í auðvaldsþjóðfé-
ögum hlýtur hið borgaralega lýð
ræði ætíð að vera ýmsum tak-
mörkum háð í framkvæmd, en
þær takmarkanir hverfa þegar
atvinnulýðræðið er tekið með.
Hér eru dæmi til skýringar.
1 auðvaldsþjóðfélögum er kosn
ingaréttur þegnanna skertur
með því að hópar manna, sem
ráða yfir fé og framleiðslutækj-
um, kaupa sér beint og óbeint
aðstöðu til þess að ráða hverjir
eru í kjori, og beita síðan • fjár-
hagslegri aðstöðu sinni til þess
að hafa áhrif á atkvæði manna
við kosningar, og á atkvæði full-
trúanna í ýmsum málum eftir
kosningarnar.
Slíkir hagsmunahópar eru ekki
til í sósíalistisku þjóðfélagi og
er þar með þessi takmörkun lýð-
ræðisins þurrkuð út.
Ritfrelsið í auðvaldsþjóðfélög-
um er takmarkað af fjárhags-
legri aðstöðu einstaklinganna, að-
stöðu þeirra til þess að hafa að-
gang að prentsmiðjum og fleira>
Hið atvinnulega lýðræði þurrkar
þessar takmarkanir burtu, og
tryggir fullkomna framkvæmd
lýðræðisins á þessu sviði.
Það er óþarfi að taka fleiri
dæmi, ekkert hinna 7 atriða hins
borgaralega lýðræðis getur notið
sín til fulls í auðvaldsþjóðfélagi,
stéttaskipting þess og ólík fjár-
hagslega aðstaða þegnanna verð-
ur alltaf heimill á framkvæmd
þeirra atvinnulýðræði og jöfn að-
staða þegnanna er ófrávíkjanlegt
skilyrði fyrir því að hin dýrmætu
réttindi hins borgaralega lýðræð-
is fái notið sín.
BARÁTTAN UM HIÐ BORG-
ARALEGA LÝÐRÆÐI.
Hið borgaralega lýðræði með
ölluum þess takmörkunum, er
iýrmætasti menningararfurinn,
sem 19. öldin lét oss í té.
Hin villimannlega stefna, sem
kölluð er nazismi, hefur svift
þessum arfi frá milljónum manna
að fjölda þjóða. En einnig í þeim
löndum, þar sem nazisminn hefur
ekki náð völdum, er hinu borg-
aralega lýðræði ógnað, og eru
dæmin deginum ljósari hvað þetta
snertir hér heima.
Baráttan virðist þvi vera á því
stigi nú, að um tvennt sé að
velja, að glata hinum dýra arfi,
hinu borgaralega lýðræði, eða að
'vuka hann og fullkomna með þvt
að nota hann^til þess að innleiða
atvinnulýðræði.
iæstu daga
í þessum mánuði
um ritstörf þín? Er ekki von á
neinu riti frá þér á næstunni?
Jú, alveg á næstunni. Eftir helg
ina kemur út skáldsaga, sem ég
hef haft í ígripum í nokkur ár.
— Hún gerist hér í Reykjavík
haustið 1932 og grípur atvinnu-
leysisbaráttan mjög inn í söguna
og sagan endar að kvöldi hins
fræga 9. nóv. Innan skammg
Gunnar Benediktsson.
kemur lika út leikritið, sem Leik
félag Reykjavíkur var að taka
til æfingar fyrir tveim árum, en
sparkaði í, þegar Finnagaldurinn
brauzt út. En sennilega kemur
það ekki út fyrr en á næsta ári.
— Það er naumast, að þú ert
farinn að gefa þig að skáldskap.
En á maður ekki von á ritgerða-
safni frá þér? Þú hefur máske í
hyggju að efna til þess í vetur?
— Engin fyrirheit vil eg gefa
um það. Eg hef byrjað á annari
skáldsögu og hef helzt í hyggju
að gefa mig að henni í vetur.
— Er hún líka frá verkalýðsbar
áttunni ?
— Ekki er- hún það nú. Hún er
um ungan, róttækan rithöfund og
auðvitað ofsóttan, sem er að
skrifa sína eigin sögu og sérstak
lega að klastra í hana botninum,
sem lífið sjálft skrifar aldrei fyrr
en komið er í eindaga fyrir mann
að skrifa það upp.
— Þú ert alveg hættur að
flytja hér fyrirlestra. Nú mundi
margur þiggja hjá þér fyrirlestra
um einhverja þætti ástandsins.
Oft hefur mér dottið það í hug
en það eru ýmsir erfiðleikar á
því og ekki sízt nú viðvíkjandi
húsnæði og maður dvelur í burtu
úr bænum og hefur alltaf í mörg
horn að líta. Þó hef ég heit-
strengt með sjálfum mér, að þókn
ist réttvísinni að stinga mér inn
þessa 15 daga áður en langt um
líður, að nota þann tima til að
skrifa erindi um réttvísina á Is-
landi. Það er ákaflega skemmti-
legt efni. Eg býst við að réttvís
in á íslandi sé einhver frumleg-
asta réttvísi í víðri veröld. Og
þá múndi ég reyna að hafa ein-
hver ráð til að koma því munn-
lega á framfæri, þegar ég kæmi
út. Annars er ég enn ekki kom-
inn til rólegheita með vetrarstarf
ið og ekki gott að segja nema
eitthvert nýtt verkefni komi í koll
inn á mér.
— En hvenær myndum við þá
mega eiga von á því, að þú verð
ir settur inn, það er að segja, að
þú komir út aftur?
Það veit enginn, nema sá, sem
allt veit. Það er ekki hægt að
reiða sig á neitt í þessum heimi.
En vinnið meðan dagur er, og nú
þarf ég að hraða mér með efnið
í Rétt. Verið þið blessaðir.