Nýtt dagblað - 02.11.1941, Blaðsíða 4
Næturlæknir er í nótt Björgvin
Finnsson, Laufásveg 11, sími
2415.
Næturvörður er í Laugavegs-
apóteki og Ingólfsapóteki.
Helgidagslæknir: Daníel Féld-
sted, Laugaveg 79, sími 3272.
Næturlæknir á mánudag: Dan-
íel Féldsted, Laugaveg 79, sími
3272.
ÚTVARPIÐ I' DAG:
10.00 Morguntónleikar (plötur) :
a) Fiðlusónata nr. 1 í g-moll eftir Bach.
b) Píanósónata r B-clúr eftir Mozart.
c) Cellósónata í C-dúr og píanósón-
ata , Op. 49, nr. 2, eftir Beethoven.
11.00 Messa í Dómkirkjunni (séra Bjarni
Jónsson). — Sálmar: 26, 463, 573, 154,.
574.
12.10—13.00 Hádegisútvarp.
TilbrigÖaþættir.
18.30 Barnatími (Sig. Thorlacius skóla-
stjóri).
19.25 Hljómplötur: „Þyrnirósa", ballett
eftir Tchaikowsky.
19.50 Auglýsingar.
20.00 Fréttir.
20.20 Hljómplötur: Hyliingarganga úr
„Sigurði Jórsalafara", eftir Grieg.
20.30 Upplestur: „Konungsbrúður”,
saga eftir Helga Hjörvar; síðari hluti
Höf. flytur).
21.10 Orgelleikur í Dómkirkjunni (Páll
Isólfsson) : Tónverk eftir Buxtehude.
21.35 Hljómplötur: Casals Ieikur á cello.
21.50 Fréttir.
22.00 Danslög.
23.00- Dagskrárlok.
ÚTVARPIÐ Á MORGUN:
12.00—13.00 Hádegisútvarp.
15.30—16.00 Miðdegisútvarp.
18.30 íslenzkukennsla, 1. fl.
19.00 Þýzkukennsla, 2. fl.
19.25 Þingfréttir.
19.50 Auglýsingar.
20.00 Fréttir.
20.30 Um daginn og veginn (Vilhj. Þ.
Gíslaspn).
20.50 Hljómplötur: íslenzkir söngvarar.
21.00 Ávarp: Um ungbarnaeftirlit og
líknarstöðvar (Katrín Thoroddsen
læknir).
21.20 Útvarpshljómsveitin: Þýzk þjóðlög.
Einsöngur (séra Garðar Þorsteinsson):
Lög eftir Grieg o. fl.
21.50 Fréttir.
Dagskrárlok.
Hafið þið seinkað klukkuimi?
Þegar klukkan var 2 í nótt var
henni seinkað um eina klukku-
stund þannig, að hún var þá 1.
Leikfélag Keykjavíkur sýnir
leikritið Á flótta í kvöld, og hefst
sala aðgöngumiða kl. 1 í dag.
Operettan Nitouclie verður sýnd
kl. 2i/2 í dag. Sala aðgöngumiða
hefst klukkan 1 í dag.
Ameríska herstjórnin á Islandi
tiikynnir: Skotæfingar fara fram
dagana 3„ 5., 6. og 12. nóvem-
ber, á svæðinu norðan Sandskeið-
is og sunnan Geitháls—Þingvalla-
vegar. Veginum verður lokað.
Helgi Hjörvar flytur síðari
hluta sögu sinnar: „Konungsbrúð
ur” í útvarpinu í dag kl. 20,30.
Katrín Thoroddsen talar í út-
varpinu á mánudaginn kl. 21
„Um ungbarnaeftirlit og líknar-
st.öðvar”.
Frú dr. Irmgard Croner flytur
fj rirlestur fyrir ahnenning í 1.
kennslustofu Háskólans, mánu-
daginn 3. nóv. kl. 8 e. h, stund-
víslega. Efni: Bilder aus Goethes
Leben.
Skátar opna athyglisverða sýn-
ingu í Miðbæjarbamaskólanum
ki- 2y2 í dag á ýmiskonar frí-
stundavinnu. Aðgangur verður
ókeypis og mun sýningin verða
opin aðeins í dag.
Skákkeppni milli Austurbæjar
og Vesturbæjar verður í Good-
templarahúsinu kl. 1 í dag.
Sósialisfar
Sósíalistar! Munið að koma
á skrifstofu -félagsins, sem er
opin dag hvern lil. 4—7 eða
afgreiðsíu Nýs dagblaðs, sem
er opin á hverju kvöldi og í
dag kl. 4^2—6.
Það er mjög áríðandi að
gera grein fyrir listum, sem
ýmsir félagar hafa.
STJÓRN SóSlALISTAFÉ-
LAGS REYKJAVlKUR.
Slys
Seint í fyrrakvöld varð maður
fyrir brezkum bíl á Hatnarfjarð-
arveginum. Meiddist hann nokkuð
á höfði og var fluttur á Land-
spítalann. Heitir hann Kristján
ólafsson, til heimilis á Sjafnar-
götu 6.
Verkalýðurinn mótmælir
Fundur í Félagi Bliliksmiða í
Reykjavík, haldinn 1. nóv., sam-
þykkti í einu hljóði eftirfarandi
mótmæli:
„Fundurinn mótmælir mjög
ákveðið frumvarpi því, er fraro
er komið á Alþingi og gengur í
þá átt, að koma lögfestingu á
kaup launþega í landinu.
Ennfremur mótmælir fundur-
inn hverskonar tilraun, sem mið-
ar að því að skerða núverandi
athafna- og ákvörðunarfrelsi
stéttarfélaganna.
44 menn.bjairgasí
Framh. af 1. síðu.
Fregn frá Washington hermir,
að tundurspillirinn hali sökkt
tveimur kafbátum þýzkum áður
en honuux var sjálfum sökkt með
tundurskeyti.
Bandaríkjablöð eru mjög hörð
í dómum sínum um árásina.
Knox, f lotamálaráðherra Banda
ríkjanna, lét svo um mælt í gær,
að Bandaríkjamenn væru þegar
orðnir þátttakendur í bardðgun-
um, og muni berjast þar til yfir
líkur.
Mackenzie King, forsætisráð-
herra Kanada, er kominn til
Washington til viðræðna við
Roosevelt Bandaríkjaforseta.
Tveggja barna mððir hverf
ur að heiman. — Finnst
hjá setullðsmanni
Á fimmtudagskvöldið var leit-
aði maður nokkur aðstoðar til
þess að finna konu sína, sem
hafði ekki komið heim til sín í
sólarhring. Lögreglan fann kon-
una í skúr, sem Hestamannafélag
ið Fákur á inni við Elliðaár.
Hafði hún dvalið þar með brezk-
um setuliðsmanni. Þessi kona er,
tveggja bama móðir og virðist
það nokkuð langt gengið, þegar
íslenzk móðir hverfur frá böm-
um sínum og leggst út með er-
lendum hermanni.
Rauðí krossinn
Framh. af 2. síðu.
Er nú heitið á þegnskap fólks
jg fyrirhyggju fyrir sjálfum sér
og öðrum að gefa sig fram til
þessara „blóðfóma”. Auðvitað á
aðeins heilbrigt og hraust fólk
að gera það, á aldrinum 16—50
ára, jafnt karlar sem konur. Er
heitið á menn að gefa sig fram
við Rauða Klrossinn með því að
hringja á skrifstofu hans milli
kl. 10—12 og 2—4. Fær það svó
síðar bréflega tilkynningu um
hvenær það skuli koma til blóð-
gjafarinnar, en hún fer fram dag
lega milli kl. 9—1 i hjálparstöð
Rauða Krossins í Austurbæjar-
bamaskólanum.
Blóðtakan tekur um 15 mínút-
ur og verður því svo fyrir komið
að menn þurfa ekki að bíða til
að komast að. Þess er vænst, að
atvinnurekendum verði ljúft að
gefa starfsfólki sínu frí til þess-
arar líknarstarfsemi.
Þess er rétt að geta, að þó vér
Islendingar yrðum svo heppnir
að verða ekki fyrir loftárásuim,
þá kemur blóðvökvinn, sem feng-
ist á þennan hátt, einnig að
gagni við ýms slys, svo sem bíl-
slys eða þegar menn verða und-
ir einhverju, sem ofan á þá hryn
ur og menn fá taugaáföll. Það
er því langt frá því að blóði
manna væri til einskis fómað,
þó loftárásir yrðti ekki.
En því miður er ekki rétt
að gera ráð fyrir því að vér Is-
lendingar sleppum við þann voða.
Og blóðsöfnun Rauða Krossins
er eitt af þeim undirbúningsverk-
um, sem þarf að fara fram til
þess að reyna að draga sem mest
úr hörmungum þeirra.
Tónlistarfélagið og Leikfélag Reykjavíkur.
„Nltouche11
SÝNING KL. 2,30 { DAG
ASgöngumi&ar aeldir eftir kl- I ' dag.
Leikfélag Reykjavíkur.
„Á
Sýning í kvöld klukkan 8
Aégöngumlbar etUdtr irUU.it dafi.
49
MANNSKAÐAVEðRIÐ
eftir
PHYLLIS BOTTOHE
ei er veturinni svo haröur, aö voriö sigrist ekki á hon-
um aö lokum. Sjálf laut hún engu lénsskipulagi og
bóndabærinn á Wetterstein var engum háöur.
Freyju hafði langaö til þess aö verja þessum leyfis-
dögum þar, ásamt Hans, en Hans sagöi: Bíddu svolítiö
lengur, þangaö til snjóa hefur leyst og blómin fara aö
sýna sig. Þegar beitilandið er gróiö og allar skepnur
komnar út, þá mun þér finnast fallegt þarna uppi,
og mig langar til þess aö líti sem bezt út, þegar þú
kemur þangað í fyrsta sinni.
Freyja gat vel skihö þaö, aö Hans kveiö dálítiö fyrir
því aö hún hitti fjölskylduna. Honum þótti fjarska
vænt um móöur sína og bræöur, bæöi Karl, eldra bróö-
urinn og Mikjál, þann yngra, sem var fáviti, en mjög
góöur viö allar skepnur. Hans vissi, aö þau voru harla
ólík fjölskyldu Freyju.
Þar var einnig frænka Hans, sem hvorki var læs né
skrifandi. Hún bjó hjá þeim og hjálpaöi móöur hans viö
voru á aö hún mundi ekki giftast. Reyndar haföi hún,
heimilisstörfin. Hún hafði skarö í vör og allar likur
þvi miöur, mætti ef til vill segja, eignazt dreng meö
fjárgæzlumanni nokkrum.
Öllum þótti vænt um Franz litla, sem nú var sex ára
aö aldri, og þaö tók enginn til þess, aö faöirinn haföi
hlaupizt á brott, án þess aö geta um hvert hann færi.
Hægindastöll var enginn til á bænum. Mataræöi var
eins, dag frá degi, þegar fólkiö rabbaöi saman, var um-
ræöuefniö ætíö hiö sama, en þaö var til útvarpstæki
og á þáö var hlustaö á kvöldin.
Hans hafði skýrt henni frá því, aö hann kynni vel
viö sig á Wetterstein, enda væri hann þar borinn og
barnfæddur og heföi vanizt því lífi, sem þar er lifaö,
en hami bjóst viö áö henni mimdi þykja þaö nokkuö
erfitt, einkum á vetrum.
Freyja sneri sér viö á klettinum sem hún stóö á og
leit beint niöur í garöinn umhverfis Mabergshöllina.
Mismunurinn er alls ekki svo mjög mikiil, sagöi hún
viö sjálfa sig.
Vinnan og viöfangsefnin eru næsta lík á bóndabænum
og í höllinni. Á bænum þarftu aö vinna öll verk sem
fyrir koma; í höllinni þarftu áö sjá um, aö verkin veröi
unnin. Þú átt kýr — en. mjólkar þær ekki sjálf. Þú
hefur dúfur — og lætur einhvern annan hreinsa dúfna-
húsiö. Þú átt akra og skóga, en einhver annar plægir
akrana og heggur viöinn. Eigi að síöur er meira en nóg
að gera í Mabergshöllinni. Þaö var Freyju ljóst.
Allan veturinn mundi hún þurfa aö líta eftir því,
aö dúfimum yröi ekki kalt og sjá um, að þær fengju
nóg aö éta, svo áö þær gætu notiö lífsins í gömlu
dúfnahúsunum.
Á hverjum morgni, þegar Freyja vaknaöi, mundi
hún sjá þær laga á sér fjaörirnar og spígspora fram og
aftur í snjónum á svölimum og glettast hver við
áöra. — Á hverju hausti mundi Freyja hafa umsjón
meö viöarhögginu og hleöslu hárra kasta af brenni.
Hún og Fritz mundu hvetja hvort annáö meö sífelldri
árvekni og umhyggju viö gripahirðingu, akrana, hey-
annir, skógarhögg, framræslu og afurðasölu; þess á
milli gætu þau iökaö íþróttir, eftir því sem viö ætti á
hverjum tíma árs. Jafnvel sérþekking Freyju mundi
koma að liði, en ekki falla í gleymsku, þó aö hún gæfi
sig ekki einvöröungu að læknisstörfum. Þaö var eng
inn læknir nær en í þorpunum niðri í dalnum og þang-
aö var illfært á veturna.
Hjúin á Maberg uröu sjaldan veik, en slysfarir gat
alltaf áö höndum boriö, einnig fæöingar, ellilasleika og
dauösföll.
Freyja mundi einnig eignast börn, glöö og hamingju-
söm, ókvíöin framtíðinni, — ekki börn sem frá upphafi
vega yröu ofsótt og niöurlægö, sakir þess aö þau ættu
móöur af Gyöingaættum og kommúnista aö fööur.
Því fór fjarri, aö Freyju þætti ekki vænt um Fritz.
Henni þótti mjög vænt um hann. Hann var æskuvinur
hennar og fyrsti karlmaöur, er dáði hana sem konu
og gerði henni ljóst, að hún væri. fögur og glæsileg.
Henni var óljúft aö laumast frá honum, eins og hún
hafði gert áöan. Hún ásakaöi sjálfa sig fyrir að bregö-
ast honum þannig,, en henni fannst hún vera tilneydd.
Hun vajtfj að vera ein með Hano — það mátti enginn
>^<*<>Cw300OOC!OOOOOOOOOOOOOO'OOOOO0,OOO,OOO