Helgarblaðið - 24.04.1992, Blaðsíða 9
Helgar 9 blaðið
Hvöttu
börnin
tilað
drekka
mengað
vatn
Bandaríski herinn fann við
rannsókn á árinu 1988 ban-
væn eiturefni í grunnvatni
við vatnsból Keflavíkur og
Njarðvíkur og víðar í ná-
grenninu. Vatn var drukkið
lir vatnsbólunum allt til
haustsins 1991 þegar tekið
var í notkun nýtt vatnsból
sem herinn borgaði fyrir.
Ríkið gerði þá þannig samn-
ing við herinn að afsalað var
endiu-kröfurétti á hendur
Bandaríkjastjóm. Vatnsból-
ið, sem kostaði 540 miljónir
króna, var talið nægar bætur
um alla eilífð. Um svipað
leyti og herinn komst að
þessari mengun tóku
skólamenn á Suðumesjum
þátt í átaki til að hvetja böm
og unglinga til að drekka
meira vatn í stað
gosdrykkja.
Vegna þrýstings heima fyrir í
Bandaríkjunum voru herstöðvar
kannaðar með tilliti til TCE- og
PCE-mengunar, sem er algeng
mengun í flugherstöðvum. Þetta var
einnig gert utan Bandaríkjanna
enda talið ótækt að láta bandaríska
hermenn drekka eitrað vatn. Þessi
rannsókn var því að undirlagi
Bandaríkjamanna sjálfra og tengist
ekki olíuslysi á svæðinu.
TCE (triklóretylene) og PCE
(perklóretylene) eru í hópi 15 eitr-
uðustu klórsambandanna, að sögn
Einars Vals Ingimundarsonar um-
hverfísverkfræðings. PCE má alls
ekki fmnast í drykkjarvatni, svo
hættulegt er það, enda er það sann-
aður krabbameinsvaldur. Það skipt-
ir ekki máli í hve litlum mæli það
finnst - það er alltaf yfir hættu-
mörkum. TCE veldur ýmsum alvar-
legum sjúkdómum, svo sem hjarta-
göllum.
Á Suðumesjum hefúr hlutfall
Potters-sjúkdómsmyndar (Potters-
syndrome) verið óvenjuhátt. Alls
hafa sjö tilfelli verið skráð síðustu
tíu ár en böm haldin sjúkdómnum
fæðast nýmalaus og deyja. Eðlilegt
er talið að eitt af hveijum 100.000
fæddum bömum fái sjúkdóminn en
hlutfallið á Suðumesjum er nær því
að vera eitt bam á hveija 500
fædda, sem er óhugnanlega hátt
hlutfall, að sögn Einars Vals. Rann-
sóknir hafa ekki verið gerðar á því
hvort TCE geti valdið þessu en ráð-
gert er að ræða þetta mál á alþjóð-
legri læknaráðstefnu sem haldin
verður hér í sumar.
Vegna þessa máls hefur Sigríður
Jóhannesdóttir, varaþingmaður Al-
þýðubandalagins á Reykjanesi, lagt
fram þingsályktunartillögu þar sem
- ef tillagan fæst samþykkt - ríkis-
stjóminni er falið að gangast fyrir
rannsókn á jarðvegi og gmnnvatni
við Keflavíkurflugvöll í þeim til-
gangi að leiða í ljós hvort þar hafi á
liðnum ámm farið niður eiturefni.
Efnin sem herinn rannsakaði fyrir
fjórum ámm em einungis tvö en
ekkert er vitað um önnur eiturefhi
sem kynnu að fyrirfinnast á svæð-
inu.
Eins og sést á kortinu hér við
hliðina hefúr mælst alvarleg TCE-
mengun við fyrmm vatnsból Njarð-
víkur, við vatnsból hersins og við
Leifsstöð. Vatnsból hersins var
strax tekið úr notkun og vatnsból
Njarðvíkur síðastliðið haust. PCE-
mengunin er ekki eins víðtæk en
hún fannst þó í kringum vatnsból
Njarðvíkur og við Leifsstöð. Þar
hafa starfsmenn kvartað yfir höfúð-
verk og öðmm óþægindum. Flug-
stöðin hefur jafnvel verið talin þjást
af húsasótt. Erfitt er að sanna hvort
þessi eiturefni, sem íúndist hafa,
eða önnur sem kynnu að vera þama
á svæðinu, eiga sök á sjúkdómum
eða vanlíðan; til þess þarf að gera
ítarlega rannsókn.
Töldu enaa
hættu á rerðum
Ellert Eiríksson, bæjarstjóri i
Keflavík, sagði að vatnið í vatns-
bólunum hefði ekki verið orðið
hættulegt þegar hætt var að nota
það, þrátt fyrir sannaða mengun í
gmnnvatninu, enda hefðu þama
farið fram nákvæmustu rannsóknir
á vatni hérlendis. Vatnið hefði ver-
ið mengað í vatnsbóli Njarðvíkur,
en ekki yfir hættumörkum. Um 75
tonn af olíu fóm niður nálægt
vatnsbóli Keflavíkur fyrir nokkmm
ámm en sú mengun er allt annars
eðlis en TCE- og PCE-mengun þar
eð olían eyðist á náttúmlegan hátt.
Hin eiturefnin em þrávirk og breyt-
ast ekki.
Sigríður gagnrýndi harkalega þá
leynd sem virðist hafa hvílt yfir
þessu og telur það í hæsta máta
óeðlilegt að á þeim tíma sem menn
vissu að vatnið væri mengað hafi
kennarar á svæðinu tekið þátt í
átaki heilbrigðisráðherra til að
hvetja ungt fólk til að drekka vatn í
staða annarra drykkja. Sem kennari
sagðist hún hafa hengt upp vegg-
spjöld og hvatt nemendur sina til að
drekka vatn úr menguðum vatns-
bólum án þess að hafa hugmynd
Yatnsbó®
K^ftavjku©
Ytri-
Njarðvík
Keflavíkurflugvöllur
atnsból Njarðvikur
mengun
í grunnvatni
Gamlir (?)
ruslahaugar
Keflavík
J ®
-væöi
®
® |§f :''i ® ®
Á kortinu sést TCE-mengunin á Kefla-
víkurflugvelli. Ljósustu svæóin sýna
mengun sem mælist minni en 5 mg/l
en dekkstu svæ&in sýna mengun sem
mælist yfir 100 mg/l. Hversu mikió þar
yfir þetta mælist er ekki víst, mælitæk-
in mæla þa& ekki.
PCE-mengunin ó Vellinum er ó minna
svæ&i en hún er alvarlegri eigi a& sí&-
ur. Hún er ekki merkt inn ó korti& en
er ó svæ&i milli Leifsstö&var, gömlu
ruslahauganna og Vatnsbóls Keflavik-
ur. Hitt svæ&i& þar sem PCE-mengun
fannst nær fró vatnsbóli Njar&víkur og
teygir sig fyrst i vestur og si&an i su&ur
i ótt a& vatnsbóli hersins.
hersins v£)
um þessa mengun. Hún gagnrýnir
einnig að þessi mál hafi ekki verið
tekin upp þar sem fólk sendi bömin
sín í berjamó á svæði sem em mik-
ið menguð af TCE og PCE og
hugsanlega einhverju öðm og eins
sé fólk nú að byggja yfir sig á mjög
menguðum svæðum.
Sýnu alvarlegast finnst henni þó
að Islendingar hafi á einhverjum
leynifúndum, einsog hún orðar það,
G. Pétur
Matthíasson
afsalað sér kröfúrétti á hendur
bandarískum yfirvöldum en hún
mælti fyrir fyrirspum Auðar
Sveinsdóttur um þetta mál á Al-
þingi fyrr í mánuðinum.
í svari Jóns Baldvins Hannibals-
sonar utanríkisráðherra kom ffarn
að samkvæmt samningi sem var
gerður við herinn 17. júlf 1989 eigi
íslenska ríkið ekki endurkröfurétt á
hendur Bandaríkjunum, nýja vatns-
bólið og nýja vatnsveitan séu nægar
bætur. Hinsvegar benti hann á að
íslenskir rikisborgarar eða fyrirtæki
gætu þrátt fyrir samninginn átt
bótarétt á hendur íslenska ríkinu.
Sigríður benti á að í Þýskalandi
hefðu fúndist 300 svæði með svip-
aðri mengun og hér, sömu upplýs-
ingar fengjust frá Suður- Kóreu,
Mið-Ameríku og Filippseyjum. Til
hreinsunarstarfs á svæðum banda-
ríska hersins væri nú varið gríðar-
legum fjármunum og hefði Banda-
ríkjastjóm stofnað sjóð til að fjár-
magna hreinsunina. Hún sagði að
nú væri talið að Bandaríkjamenn
myndu veija þúsundum miljarða
dollara til verksins. Það er réttur til
hluta þessa hreinsunarstarfs sem Is-
lendingar hafa afsalað sér. Yfirvöld
hinna þjóðanna ganga mjög hart
ffam í því að fá þessi svæði hreins-
uð til þess að eiturefni berist ekki í
grunnvatnið. En nauðsynlegt er að
hreinsa sjálfan jarðveginn.
Ekki óyggjandi
rannsokn
Jón Baldvin taldi samninginn ffá
1989 mjög góðan enda hefði ekki
verið sannað óyggjandi að um
mengun frá einum aðila væri að
ræða, það er að segja hemum. Ell-
ert sagði að niðurstaðan hefði verið
að íslensk efnalaug á hersvæðinu
hefði orðið völd að mengunin en
hún hætti starfsemi fyrir nokkrum
áratugum. Eigi að siður hljóta
bandarísk heryfirvöld að bera
ábyrgð á allri mengun innan svæð-
isins. Jón Baldvin sagði á Alþingi
að það hefði verið talið vænlegra að
semja á þennan hátt heldur en að
láta reyna á málið fyrir dómstólum.
TCE og PCE em í leysiefnum sem
gjaman em notuð til að leysa upp
fitu og til að hreinsa vélarhluta -
einkennandi mengun fyrir banda-
ríska herinn, sagði Einar Valur.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem ís-
lenska ríkið afsalar sér bótaréti á
hendur hemum vegna mengunar.
íslensk stjómvöld afsöluðu sér öll-
um bótarétti á hendur Bandaríkjun-
um þegar herinn afhenti íslending-
um svæði það sem notað var á
Langanesi. Landeigendur á Heiðar-
fjalli hafa sjálfir þurft að reka mál
sitt fyrir bandarískum dómstólum
og virðast hafa gert það ffekar í
óþökk yfirvalda hér en hitt.
Eiður Guðnason umhverfisráð-
herra vildi ekkert segja um meng-
unarmálið á Suðumesjum þar eð
þingsályktunartillagan væri til um-
sagnar hjá ráðuneytinu. Yfirvöld
virðast litlar áhyggjur hafa af þess-
ari mengun á flugvallarsvæðinu og
kom ffam í máli utanríkisráðherra
að hann teldi að grunnvatnsmeng-
unin hefði verið svo rækilega könn-
uð að litlar líkur væri taldar á því
að til þess kæmi að krafist yrði bóta
vegna skaðaverkana af mengunar-
völdum sem raktar yrðu til hersins.
Rugla saman
Það kom einnig glögglega í ljós í
umræðunum á Alþingi að þing-
menn frá Suðumesjum rugla saman
menguninni á svæðinu. Menn gera
ekki greinarmun á þeirri mengun
annarsvegar sem Sigríður er að tala
um, það er að segja TCE- og PCE-
menguninni sem mælst hefúr í
grunnvatninu á svæðinu, og hins-
vegar olíumengun. Það gæti skýrt
af hverju þingmenn Suðumesja
segja að þetta mál hafi verið á allra
vitorði þegar Sigríður telur svo ekki
hafa verið.
Sigríður sagði að þessi mál væra
mun alvarlegri heldur en mengunin
á Heiðarfjalli þar eð í nágrenni
flugvallarsvæðisins væri tíu þúsund
manna byggð.
Hver niðurstaða þingsályktunar-
tillögunnar um mengunarrannsókn-
imar verður er óvíst. Tillagan er
komin til nefndar eftir fyrri um-
ræðu og nú hafa aðilar utan Alþing-
is hana til umsagnar. Þegar sá ffest-
ur rennur út gæti nefndin afgreitt
málið til síðari umræðu. Hafi
stjómarmeirihlutinn hinsvegar ekki
áhuga á því að ræða þetta mál frek-
ar er eins líklogt að tillagan komist
ekki affur á dagskrá. Málið hefúr
raunveralega þegar verið afgreitt af
íslenskum stjómvöldum á þann veg
að þar eð íslensk efnalaug hafi
hugsanlega verið mengunarvaldur
sé vænlegast að sætta sig við 540
miljóna króna vatnsból sem bætur.
Verði hinsvegar sýnt ffarn á að
mengun frá hemum hafi valdið
fósturskaða á borð við Potters-
sjúkdómsmynd eða öðrum sjúk-
dómum er ólíklegt að Suðumesja-
menn sætti sig við eitt vatnsból.
Aðrar bætur yrðu þá sóttar í
ríkiskassa Islands, ekki vestur.
Föstudagurinn 24. april