Helgarblaðið - 24.04.1992, Qupperneq 19
Helgar 19 blaðið
Urvalsdeild hjá enskum
Eftir sjö ára baráttu virðist
allt stefina í það að í ágúst
verði sett á fót úrvalsdeild
í enska fótboltanum með
þátttöku tuttugu og tveggja
liða.
Það hefur löngum verið
kappsmál forráðamanna íjár-
sterkustu liðanna, Liverpool,
Everton, Arsenal, Manchester
Untied og Tottenham, að bijóta
upp hið hefðbundna ijögurra
deilda fyrirkomulag í enska
boltanum og koma á fót sér-
stakri úrvalsdeild. Með því telja
wmismiSMsmssmMm
menn að áhugi á boltanum
muni aukast, að ógleymdu því
sem mestu máli skiptir; að fá
meiri peninga í kassann. Þótt
liðin verði í byijun tuttugu og
tvö er gert ráð fyrir að þeim
verði fækkað um tvö fyrir
keppnistímabilið 1994-1995.
Eins og gefur að skilja hafa
verið skiptar skoðanir um ágæti
úrvalsdeildarinnar meðal enskra
enda hefur málið verið að þæ-
fast fyrir þarlendum síðan
1985.
Þótt enskir séu að jaftiaði
ekki ginnkeyptir fyrir breyting-
um breytinganna vegna hefur
andstaðan gegn þessu nýja fyr-
irkomulagi þó verið mest meðal
smærri félaganna sem óttast um
sig og sína þegar frægustu og
stærstu liðin hverfa í úrvals-
deildina. Þá er viðbúið að kast-
ljós fjölmiðlanna beinist fyrst
og síðast að úrvalsdeildinni en í
minna mæli að þeim liðum sem
standa þar fyrir utan. Hvort það
verður reyndin mun tíminn
leiða í ljós en hitt er næsta víst
að með tilkomu úrvalsdeildar-
innar verða ríku stórliðin lík-
lega enn ríkari.
Michael Thomas,
leikmaðurinn knái
meb
Liverpool, mun
væntanlega leika
meb liði sinu i úr-
valsdeildinni en
hann var keyptur
frá Arsenal í ryrra
fyrir 1.5 miljónir
punda.
Fimm
fengu
styrk
Stjórn Afreks- og styrktarsjóðs
Reykjavíkur hefur ákveðið að veita
fimm íþróttamönnum ljárhagsstuðning
vegna undirbúnings fyrir ólympíuleik-
ana í sumar.
íþróttafólkið fær hvert um sig 120 þús-
und krónur en það eru þau Bjami Friðriks-
son júdó, spjótkastaramir Sigurður Einars-
son og Einar Vilhjálmsson og hlaupa-
drottningin Marta Emstsdóttir.
Án efa munu þessar krónur, sem að
ósekju hefðu mátt vera mörgum sinnum
fleiri, koma sér vel. lþróttafólkið undirbýr
sig nú af kappi fyrir leikana sem haldnir
verða í Barcelona á Spáni í sumar.
Stjóm Afreks- og styrktarsjóðsins er
skipuð fiilltrúum frá íþrótta- og tómstunda-
ráði og íþróttabandalagi Reykjavíkur.
Islendingar hafa löngum bundift miklar
vonir vi& Einar Vilhjólmsson á álympiu-
leikum.
Gubmundur Gu&mundsson leikma&ur og þjálfari Víkinga.
Spenn-
andi
úrslita-
keppni
Úrslitakeppnin í handboltanum
stendur nú sem hæst og er
keppni þegar hafin í undanúr-
slitunum á milli FH og ÍBV og
Víkings og Selfoss. Til þessa
hefur keppnin verið spennandi
og tvísýn og ljóst að þetta nýja
fyrirkomulag á úrslitakeppn-
inni hefur heppnast vonum
framar.
í átta liða úrslitunum réðust úrslitin
ekki fyrr en í þriðja leiknum að undan-
skilinni viðureign Víkings og Fram þar
sem þeir fyrmefndu afgreiddu þá blá-
klæddu snyrtilega í aðeins tveimur
leikjum. Bikar- og deildarmeistarar FH
áttu í hinum mestu erfiðleikum með
Stjömuna úr Garðabæ. Þeir töpuðu
fyrsta leiknum í Kaplakrikanum en
með miklu harðfylgi, þar sem leik-
reynslan vó þungt, náðu þeir að sigra í
næstu tveimur leikjum og tryggja sér
sæti í undanúrsiitunum. Andstæðingar
þeirra í íjórðungsúrslitunum, ÍBV,
gerðu sér lítið fyrir og unnu KA- menn
sannfærandi í þriðja leik liðanna fyrir
norðan. Þessi úrslit komu Eyjamönnum
að sjálfsögðu ekkert á óvart en trúlega
hefur þeim eitthvað sviðið fyrir norðan,
sem höfðu lagt allt kapp á að komast
lengra en raun varð á.
I viðureign Selfoss og Hauka þurfti
þriðja leikinn þar sem Haukar gerðu
sér lítið fyrir og unnu Selfyssinga með
eins marks mun í öðmm leik liðanna
sem fram fór á heimavelli Hauka í
Hafnarfirði.
Þótt veðmálin séu FH-ingum og Vik-
ingum í vil í fjórðungsúrslitunum em
andstæðingar þeirra engin lömb að
leika sér við og líklegt að úrslitin ráðist
ekki fyrr en í þriðja leik. Óneitanlega
yrði það saga til næsta bæjar ef Selfoss
og IBV spiluðu til úrslita um Islands-
meistaratitilinn í handboltanum en ann-
að eins hefur nú gerst.
Ekki öll nótt úti enn
Svo kann að fara að argent-
ínski knattspymusnillingurinn
Diego Maradona taki fram
skóna á nýjan leik þegar hann
losnar úr fimmtán mánaða
keppnisbanninu sem hann var
dæmdur í eftír að upp komst
um eiturfyfjaneyslu hans.
Fyrir skömmu lét kappinn hafa það
eftir sér að það gæti vel farið svo að
hann keppti á ný í fótbolta og þá fyrst
og fremst til að uppfylla ósk yngri
dóttur sinnar, Yanina, sem aldrei hefur
séð foður sinn leika listir sínar á knatt-
spymuvellinum.
Ennfremur hefur getum verið leitt að
því að Maradona hafi áhuga á að spila
innanhússbolta í Bandaríkjunum eftir
að hann lýsti því yfir að hann hefði hug
á að flytjast þangað frá Argentinu. En
þar býr goðið um þessar mundir og er á
kafi í veðreiðum eftir að hann eignaðist
sinn eigin veðhlaupahest.
Ef að líkum lætur ætti Maradona
brátt að verða laus allra mála eftir eit-
urlyfjaruglið sem kom eins og þmma
úr heiðskim lofti á keppnistímabilinu
1990-1991 þegar hann lék með ítalska
stórliðinu Napoli. Með því liði varð
hann ítalskur meistari en hápunkturinn
á ferlinum var þegar hann Ieiddi lands-
lið Argentinu til sigurs í heimsmeist-
arakeppninni 1986.
Diego Maradona þungur á brún
enda hefur hann átt á brattann
ab sækja eftir ab hann hrökklab-
ist frá ítaliu hér um áriá.
Föstudagurinn 24. apríl