Helgarblaðið - 24.04.1992, Blaðsíða 21
Helgar 21 blaðið
Æska
landsins
atvinnulaus
Skólafólk á við tvennan
vanda að glíma nú á vor-
dögum. Annars vegar eru
það prófin sem líkt og
venjulega vekja upp kvíð-
ann hjá þeim sem eru illa
undirbúnir. Hins vegar geta
nemendumir sjálfir lítið
gert við hinu vandamálinu
sem nú blasir við - atvinnu-
leysinu sem sjaldan hefúr
verið jafiimikið og nú í vor.
Nýjustu atvinnuleysistölur, sem
vinnumálaskrifstofa félagsmála-
ráðuneytisins hefur sent frá sér,
sýna að 3800 manns voru án at-
vinnu í marsmánuði en sú tala er
tvöfalt hærri en á sama tíma síðasta
vor.
Þeir sem hafa með atvinnumál
ungs fólks að gera eru ekki bjart-
sýnir á sumarið og segja að búast
megi við að mikill fjöldi skólafólks
muni mæla götumar í reiðileysi.
Hjá Atvinnumálaskrifstofu
Reykjavíkurborgar var skráning
skólafólks hafín 1. apríl sl. og hálf-
um mánuði síðar höfðu 2238 nem-
endur skráð sig á skrifstofunni. Til
samanburðar höfðu um 6-700 nem-
dendur skráð sig á sama tíma í
fyrra.
Gunnar Helgason, forstöðumaður
skrifstofunnar, sagði að búast mætti
við að illa gengi að fmna atvinnu
fyrir allan þennan íjölda.
- Það gefur auga leið að vinnu-
markaðurinn er mjög þröngur. Það
sést best á því að atvinnuleysið á
almenna vinnumarkaðinum er tvö-
falt meira núna en íyrir ári. Reykja-
víkurborg hefur alltaf gert ráðstaf-
anir til að útvega skólafólki atvinnu
á sumrin. Fram að þessu hefur það
gengið þolanlega, en með þennan
Qölda sé ég ekki að dæmið gangi
upp, sagði Gunnar.
Hjá Atvinnumiðlun námsmanna
sagði Ásta Snorradóttir að búast
mætti við að 1000 manns skráðu
sig hjá miðluninni.
-1 fýrra gátum við útvegað um
400 manns sumarvinnu. Núna verð-
um við hinsvegar vör við samdrátt
á vinnumarkaðinum og fyrirtæki,
sem alltaf hafa ráðið fólk í sumara-
fleysingar, ætla ekki að gera það
núna. I stóru íyrirtækjunum eru
biðlistamir orðnir geysilangir, sums
staðar eru allt að 2-300 manns á
lista, sagði Ásta.
Ámi Guðmundsson, æskulýðs-
fulltrúi Hafharfjarðar, sagði að
reynt yrði að finna atvinnu handa
öllum sem þess óskuðu.
- Við réðum við þetta á síðasta
ári. Nú finnst mér hinsvegar að
sjávarútvegsfyrirtækin muni ekki
ráða eins mikið af sumarfólki og
undanfarin sumur, þannig að útlitið
er ekki mjög bjart, sagði Ámi.
Heimir Sverrisson, 18 ára
nemandi í Iðnskólanum í
Reykjavík, sagðist vera heppinn
að hafa vinnu í sumar. -:Eg hef
starfað í Miklagarði í allan vetur
með skólanum, þannig að ég er ör-
uggur með vinnu, ‘ sagði Heimir.
Aðspurður um hvemig jafhöldr-
um hans gengi í atvinnuleit, sagði
hann að sínir kunningjar væru
búnir að fá einhveija sumarvinnu.
- Ég held að almennt sé at-
vinnuástandið mjög slæmt hjá
ungu fólki. Það er t.d. miklu erfið-
ara en í fyrra. Það bjargar stómm
hópi nemenda að þeir hafa haft
einhveija vinnu i vetur, sagði
Heimir og tiltók að hann vildi ekki
vera í spomm þeirra sem væm
ekki búnir að finna sér vinnu.
Helga Jónsdóttir er 17 ára nemi í Fjöl-
brautaskóia Garðabæjar.
- Það var búið að gefa mér vilyrði fyrir vinnu
í sumar. Fyrir stuttu kom síðan í ljós að ég fengi
ekki vinnuna, sagði Helga.
- Núna vonast ég til að fá vinnu fyrir norðan,
en ef það gengur ekki veit ég ekki hvað ég á að
gera af mér í sumar. Ég geng hringinn í leit að
vinnu frekar en að hanga heima og gera ekki
neitt, sagði Helga.
Aðspurð um hvort jafnaldramir væm í sömu
erfiðleikum, sagði hún það misjafnt.
- Margir em búnir að finna sér sumarvinnu
og oflar en ekki er það í gegnum einhvem
klíkuskap. Aðrir sem standa í sömu spomm og
ég fá sennilega vinnu hjá bænum, en þar er
varla boðið upp á mannsæmandi laun, sagði
Helga.
Alda Kristín Sölvadóttir, 16
ára nemandi i Klébergsskóla á
Kjalarnesi, sagði að hún færi út á
land í sumar.
- Ég var að vinna í fiski í
Gmndarfirði síðasta sumar og ég
fer þangað afiur núna. Ég hef eitt-
hvað kíkt eftir vinnu héma á höf-
uðborgarsvæðinu en það er gjör-
samlega vonlaust, það er allsstaðar
sagt nei, sagði Alda.
Aðspurð um sína jafnaldra,
sagði hún að þetta væri vonlaust
hjá ruörgum. Eitthvað af fólki færi
í fisk út á land eða í skógrækt.
— Þau óheppnu verða bara að
hanga heima hjá sér eða ráfa um
götumar og í besta falli sjá foreldr-
amir fyrir þeim. Ég myndi ekki
viija vera í spomm þeirra sem em
atvinnulausir og eiga ekki góða að,
sagði Alda.
Félaa járniðnaðarmanna
Félagsfundur
verður haldinn þriðjudaginn 28. apríl 1992 kl.
20:00 að Suðurlandsbraut 30, 4. hæð.
Dagskrá:
1. Félagsmál.
2. Sameining lífeyrissjóða MSÍ og SBM.
3. Kjaramál.
4. Kjörfulltrúa á 15. þing MSÍ.
Mætið stundvíslega.
Stjórnin.
REYKVIKINGAR!
NÚ ER KOMINN TÍMI
NAGLADEKKIN AF
FYRIR SUMARDEKKIN
SUMARDEKKIN Á
M