Helgarblaðið - 29.05.1992, Blaðsíða 2
Helgar í— blaðið
Olís
og græðir
Landgræðsla ríkisins
fékk heldur betur að-
stoð við uppgræðslu
landsins í gær. Oli Kr.
Sigurðsson, forstjóri
Olís, afhenti þá Sveini
Runólfssyni land-
græðslustjóra þríggja
miljóna króna ávísun
Starfsmahur Land-
græ&slunnar vinnur
með fræ sem munu
bæta landið i sumar.
Mynd: Kristinn.
frá fyrirtækinu, sem er fyrsta
greiðslan af mörgum sem
Landgræðslan á eftir að fá frá
Olís á næstu fjórum árum.
Fyrir skömmu tók Olís þá ákvörð-
un að 20 aurar af hveijum seldum
bensínlítra skyldi renna til Land-
græðslu ríkisins. Oli Kr. Sigurðsson
sagði að þama væri um fjögurra ára
áætlun að ræða. „Við hjá Olís ætlum
að Landgræðslan fái greiddar frá
okkur 10-12 miljónir á hverju ári.
Miðað við fjögur ár má búast við að
Landgræðslan fái um 50 miljónir í
sinn hlut af bensínsölu OIís,“ sagði
Óli og bætti við að það væru við-
skiptavinir Olís sem gæfu þessa gjöf,
þeim bæri að þakka fyrir þetta fram-
tak. Olís sæi bara um að safna þessu
saman.
Sveinn Runólfsson sagði, þegar
hann tók við fyrstu þremur miljónun-
um, að Landgræðslan mæti rausn 01-
ís mikils. „Við lítum á þetta sem
hvatningu um að halda starfi okkar
áfram af fullum krafti. Verkeftiin
ffamundan eru mörg og árangur næst
ekki nema landsmenn taki höndum
saman til að vemda landið.“
Styrkur Olís til Landgræðslunnar
hefur mikið að segja fyrir starf henn-
ar á næstu árum. Á fjárlögum þessa
árs fær Landgræðslan aðeins 200
miljónir króna sem nýta þarf bæði i
rekstur og uppgræðslu. Miljónimar
ffá Olís munu eingöngu renna til
uppgræðslu og heftingar gróðureyð-
ingar víða um land.
Sveinn Runólfsson sagði að
stærsta verkefnið á döfinni væri upp-
græðsla lands á Hólsfjöllum fyrir
norðan. Þar væri að skella á svipað
ástand og var á Suðurlandi um alda-
mót. Ef ekkert yrði að gert myndi
svæðið í kringum Hólsfjöll líta út
eins og eyðimörk innan fárra ára.
C
c
I-
Samviskusöm og syndandi
Þeir sem koma í sundlaug-
ina á Akureyri veita strax at-
hygli fagurlega skreyttum
flísavegg sem er jafnlangur
lauginni og hálfur þriðji
metri á hæð. Heiðurinn af
þessu verki á Soffia Ama-
dóttir hönnuðm- og var það
ásamt níu öðrum listskreyt-
ingum op-
inberra
bygginga
valið tíl
kynningar
sem nú
stendur
yfir í Asmundarsal en verður
síðan send út um landið.
Það er Listskreytingasjóðiu-
ríldsins, Arldtektafélagið og
Bandalag islenskra lista-
manna sem standa að sýn-
ingunni. Soffia vildi sem
minnst um þetta verk sitt
tala en gat þó ekki neitað þvi
að hún hefði orðið bæði glöð
og hissa þegar henni var tíl-
kynnt um valið.
Hverra manna ertu?
Ég er nú ffá Akureyri. Mamma heit-
ir Jóna F. Axfjörð og er komin út af
Snorra á Húsafelli. Pabbi heitir Ámi
Valur Viggósson og rekur sínar ætt-
ir beint til Ófeigs altaristöflumálara.
Hann hefur líka stundum á orði að
einn af forleðrum hans hafi verið
Grímur grautarhaus, hvar sem hann
er nú að finna í ættartölunni. Við er-
um sjö systkinin og ég er elst.
Heimilishagir.
Ég bý á Týsgötunni með honum
Gérard Chinotti og sonunum Sigga
og Brósa.
Aldur, menntun og fyrri störf.
Ég er að komast á besta aldur, held
ég, og er útskrifuð úr Myndlista- og
handíðaskólanum sem grafiskur
hönnuður. Ég hef náttúrlcga unnið í
fiski, verið bankamær og trygginga-
stúlka, húsmóðir og kennari. Svo
má segja að ég hafi búið á auglýs-
ingastofunni Augliti í nokkur ár.
En hvað ertu að gera núna?
Fyrir tæpu ári flutti ég suður og hef
síðan unnið sem grafiskur hönnuður
á Islensku auglýsingastofunni. I frí-
stundum leik ég mér að letri, mála
og læt mig dreyma um það ásamt
tveimur góðum konum að endur-
nýja íslenska minjagripastofninn.
I hvaða stjörnumerki ertu?
Ég er meyja og rísandi fiskur sem
segir kannski allt um mig. Mcyjan
er samviskusöm og nákvæm en
fiskurinn syndandi út og suður. Sem
sagt ein kássa.
Hver vildir þú vera ef þú værir
ekki þú?
Klausturmunkur á miðöldum, sitj-
andi við skriftir frá morgni til
kvölds.
Ertu með einhverja dellu?
Já, ég er með algjöra leturdellu; ligg
í bókum sem fjalla um kalligrafíu,
þ.e. skrifletur, og æfi mig síðan á
hinum ýmsu leturgerðum. Á ís-
lensku er gjaman talað um skraut-
skrift en mér finnst orðið ekki ná
merkingunni nógu vel. Mér finnst
skemmtilegast að tengja saman í
einu verki mynd og texta með hefð-
bundnum leturgerðum.
Hvaða bók lastu síðast?
Ég er alltaf með margar í takinu og
fiestar tengjast þær skrifdellunni.
Á hvaða plötu/disk hlustaðirðu
síðast?
Killing an Arab með The Cure.
Hver er þinn uppáhaldsmálari?
Sá eini, sanni -snillingurinn Mo-
digliani.
Ertu sú sem þú sýnist?
Nei, ég býst ekki við því.
Áttu þér draum?
Já, að fá að skrifa og skrifa og
skrifa...
Hvað er hamingja?
Meyjan í mér segir traust heimili,
fjárhagslegt öryggi og allt það.
Fiskurinn segir; Lifðu í sjöunda
himni í stórri fjölskyldu!
Ert þú hamingjusöm?
Það fer eftir því hvar ég er stödd í
rússibananum.
Er þér meinilla við eitthvað?
Jájá. Ég kemst til dæmis aldrei
óblótandi í vinnuna á morgnana því
ég þoli ekki slóða í umferðinni.
Ekki frekar en afdankaða minjagripi
og geitunga, svo eitthvað sé nefnt.
Hver er þinn helsti löstur?
Nöldur.
En kostur?
Hvað ég er blíðlynd og góðhjörtuð
-eða þannig.
Ertu misskilin?
Já, stundum áttar fólk sig alls ekki á
því hvað ég er blíðlynd og góðhjört-
uð.
Fer herinn?
Ég bara veit það ekki.
Hvernig líst þér á ráðhúsið í
Reykjavík?
Mér fmnst það hreint ekkert merki-
legt.
Hvernig finnst þér að fólk eigi
helst að vera?
Blíðlynt og góðhjartað.
Kanntu brauð að baka?
Ja, ég kann að baka nokkrar kökur.
Hvernig heldurðu að sé að búa
með þér?
í hreinskilni sagt þá býst ég við að
það sé stundum erfitt. En það er
hægt!
Hvað er það sem þú hefur ekki
glóru um?
Eitthvað í sjálfri mér og svo ýmis-
Iegt fleira.
Hvenær varðstu hræddust um
dagana?
Ég er það alltaf.
Hvað er fegurð?
Það er einhver fegurð í öllu.
Hvernig myndirðu verja stóra
vinningnum?
Ég myndi íjárfesta þannig að ég
gæti lifað og skrifað áhyggjulaus
það sem eftir væri.
Hvernig viltu verja ellinni?
Við að rannsaka gamlar bækur, læra
og skrifa.
En ef þú misstir nú sjónina?
Þá yrði ég náttúrlega að skrifa
blindraletur.
Þráinn á
fyrsta
Þráinn
Bertelsson
var kjörinn
formaður
RithÖfunda-
sambands
íslands á að-
alfundi sam-
bandsins sl.
laugardag. Þráinn fékk 116 at-
kvæði en Sigurður Pálsson 96.
í framboðsræðu sinni sagði
Þráinn að sig hefði dreymt
draum nóttina fyrir aðalfund.
Dreymdi hann að hann væri á
siglingu með hópi rithöfunda
og var hópurinn á öðru farrými
skipsins. Uppgötvaði þá ein-
hver að Ieiðsögumennina vant-
aði og reyndust þeir allir
staddir á fyrsta farfymi. Var
Þráinn þá beðinn að fara upp á
fyrsta farfymi og biðja þá að
koma niður á annað farfymi til
hópsins, því gott væri að hafa
þá til taks ef eitthvað bjátaði á.
Þráinn fór upp að áeggjan
hópsins en þegar þangað kom
horfðu fararstjóramir undrandi
á hann og þögn sló á mann-
skapinn. Kona í hópnum, sem
Þráinn sagðist hafa þekkt
ágætlega, kom í gættina og
sagði honum að þama gæti
hann ómögulega verið, það
væri svo pínlegt. Fyrir hvem?
spurði Þráinn og við það vakn-
aði hann. Þegar úrslit höfðu
verið tilkynnt kom Þórarinn
Eldjám, stjómarmaður í Rit-
höfundasambandinu, til Þráins,
rétti honum höndina og sagði:
„Velkominn á fyrsta.“
Nýr for-
maður
ABR
Guðrún
Kr. Óladótt-
ir, varafor-
maður
Starfs-
mannafé-
lagsins
Sóknar, var
kjörin for-
maður Alþýðubandalagsins í
Reykjavík á aðalfundi þess i
vikunni. Guðrún tekur við for-
mennskunni af Gunnlaugi
Júlíussyni, hagfræðingi Stctt-
arsambands bænda.
Auk Guðrúnar em í stjóm-
inni Guðrún Ágústsdóttir,
Hallur Páll Jónsson, Ingólfur
H. Ingólfsson, Ingibjörg Jóns-
dóttir, Dýrleif D. Bjamadóttir
og Tryggvi Þórhallsson.
Föstudagurinn 29. maí