Helgarblaðið - 29.05.1992, Page 3
Helgar 3 blaðið
Hreint loft í heila viku
Tóbaksvamanefnd hefur látió útbúa veggspjald þar sem bent er á óþægindin af tóbaksreyk sem
þeir ver&a fyrir sem ekki reykja. Þai er ekki sjálfgefió ab þeir sem ekki reykja sætti sig vii óbeinar
reykingar.
Fiðlutón-
leikar á
Suðvestur-
landi
Hildigunnur Halldórsdóttir
fiðluleikari og Michael Mun-
son píanóleikari munu halda
píanótónleika víðsvegar um
Suðvesturland núna um mán-
aðamótin.
Hildigunnur lauk masters-
prófi frá Eastman School of
Music í New York i Banda-
ríkjunum nú í vor og Michael
lauk doktorsprófi frá sama
skóla.
Á efhisskrá tónleikanna
verða verk eftir Bolcom,
Brahms, Fauré og Ravel.
Fyrstu tónleikamir verða í
Vinaminni á Akranesi í kvöld,
föstudag, kl. 20.30. Á morgun
laugardag verða tónleikar í
Njarðvíkurkirkju ytri kl. 17.
Þriðju tónleikamir verða í
Hafharborg í Hafnarfirði á
mánudag kl. 20.30. Á mið-
vikudag halda þau austur fyrir
Qall og verða með tónleika i
Hveragerðiskirkju kl. 20.30.
Tónleikaröðinni lýkur svo í
Aratungu í Biskupstungum
fimmtudaginn 4. júní kl.
20.30.
Hjóla-
skauta-
völlur í
Laugardal
Hjólaskautar hafa nú tekið
við af venjulegum skautum á
Skautasvellinu í Laugardal.
Aðgangur að vellinum er
ókeypis. Oskað er eftir að not-
aöir séu hjálmar, olnboga-,
úinliða- og luiéhlífar.
Hægt er að fá hjólaskauta
leigða á staðnum. Leigugjald-
ið er 300 krónur auk 200
króna skilagjalds. Innifaldar í
leigunni eru hlífar.
Hjólaskautavöllurinn er op-
inn mánudaga til fostudaga kl.
10.30 til 19 en á laugardögum
og sunnudögum er lokað
klukkan 18.
Skútuvogi 10a - Sími 686700
Alþjóðlegi tóbaksvarnadagur-
inn 31. maí er að þessu sinni til-
einkaður reyklausum vinnustöð-
um. Það færist í aukana að fólk
hætti að reykja á vinnustöðum
eða að minnsta kosti reyki ein-
unigs á ákveðnum reyksvæðum.
Enda er það líka réttur þeirra
sem ekki reykja að fá að vinna í
reyklausu umhverfi. Þá eykst
áhugi atvinnurekenda á reyk-
leysi vegna þess að það er ódýr-
ara.
Tóbaksvamanefnd hefúr sent
forráðamönnum á vinnustöðum og
trúnaðarmönnum upplýsingar um
reyklausa vinnustaði. Þar er bent á
skaðsemi óbeinna reykinga. Tób-
aksreykur í umhverfinu ógnar
heilsu þeirra sem ekki reykja. Þá
sýna rannsóknir að þar sem unnið
er með hættuleg efni eða þar sem
rykmengun er einhver (til dæmis
asbest-mengun, steinryk, bómull-
arryk eða komryk) sé hættan á til
dæmis lungnakrabbameini marg-
fold miðað við það að aðeins annar
mengunarþátturinn væri til staðar.
Reykingar margfalda hættuna.
Ahrif reykinga á vinnustaði em
margvísleg. lnnanhúss í þróuðum
löndum er tóbaksreykur algengasti
mengunarvaldurinn og verður að
sérstökum áhættuþætti í þröngu
skrifstofuhúsnæði. Tóbaksreykur í
umhverfinu getur leitt til lungna-
krabbameins, bráðra öndunarfæra-
sjúkdóma hjá bömum, langvinns
hósta, langvinnrar og endurtekinn-
ar eymabólgu, skertrar lungna-
starfsemi bæði hjá bömum og full-
orðnum. Tóbaksreykur í umhverfi
eykur astmaeinkenni hjá astma-
sjúklingum. Hann hefúr ertandi
áhrif á augu, háls, nef og berkjur.
Bömin fæðast minni, með minna
þroskuð lungu þegar móðirin hefúr
verið mikið í tóbaksreyk á með-
göngunni. Obeinar reykingar eru
hættulegar.
Efnahagslegt álag
Reykingar, beinar og óbeinar,
kosta sitt. Þær kosta líka sitt fyrir
fyrirtækin. Þegar Air Canada
bannaði reykingar í öllu flugi
komst flugfélagið að því að það
gat sparað 42 miljónir króna á ári
vegna þes að ekki þurfti að þrífa
öskubakka og vegna þess að stór-
hreingeming þarf nú ekki að fara
ffam nema á níu mánaða ffesti í
stað sex mánaða áður. Viðhalds-
kostnaður minnkar verði vinnu-
staður reyklaus þar eð reykingam-
ar auka kostnað vegna óþrifnaðar
af ösku og stubbum, litabreytinga
og óhreininda á veggjum, glugga-
tjöldum, húsgögnum og fleim.
Það fer líka tími í reykingar og
ekki síst þá valda reykingar oft
árekstmm og óánægju meðal
starfsmanna. Starfmaður sem líður
fyrir óbeinar reykingar en kann
ekki við að segja sitt álit eða fær
engu breytt er ekki hamingjusamur
starfsmaður.
Fjarvistir em líka tíðari meðal
reykingamanna. Þannig reiknuðu
yfirvöld í Kanada það út að reyk-
ingafólk væri 33-45 prósent meira
ffá vinnu en þeir sem ekki reykja.
Þá má ekki gleyma því að reyk-
ingar takmarka hæfhi starfsmanna
til að leysa ýms verkefni og þær
valda dauða og fötlun fyrir aldur
ffam.
Innibyrgð óánægja
Þótt innibyrgð óánægja margra
starfmanna sem ekki reykja geti
verið mikil vegna þeirra sem
reykja þá er ekki þar með sagt að
opið stríð sé rétta leiðin. Tóbaks-
vamanefnd bendir fólki á ýms at-
riði sem þurfi að hafa í huga vilji
menn koma á reyklausu starfsum-
hverfi. Það þarf að fræða fólk um
skaðsemi reykinga. Starfsmenn,
sem og yfirmenn, verða að koma
sér saman um tilhögunina, hvort-
tveggja þeir sem reykja og þeir
sem eru reyklausir. Veita þarf að-
lögunartíma, menn breyta ekki
venjum sínum á einni nóttu. Fylgja
þarf stefnunni fast eftir og það þarf
að gera áætlun. Áður en Iagt er
upp er ráðlegt að kanna hug starfs-
manna og hjálpa þeim reykinga-
mönnum sem vilja hætta eða tak-
marka reykingar sínar á vinnustað.
Til uppörvunar hefúr nefndin
hannað viðurkenningarskjal sem
vinnustaðir geta sótt um séu þeir
sannanlega reyklausir.
Tóbaksvamadagurinn er 31. maí
en 1. júni verður hinn árlegi reyk-
lausi dagur. í heila viku er síðan
átak sem kallast „hreint loft í heila
viku“. Þar er lögð áhersla á að
vekja athygli fólks á þessum mál-
um. Auk reykinganna verður at-
hygli fólks vakin á annarri lofl-
mengun til að fá fólk til að hugsa
um á hvem hátt það geti stuðlað að
hreinna og ómengaðra andrúms-
lofti. Vikan stendur ffá 31. maí til
5. júní.
Mikið úrval - mikil gæði - gott verð!
20% staðgreiðsluafsláttur of öllum
hnýttum teppum.
Sértilboð ú Kilim-teppum (flatofin teppi).
Tyrknesku teppin eru eftirsóknarverð
eign öllum þeim sem kunna að
njóta sannrar listar. , c \\ |i| g
nw"'*'
SKIPHOLTI 50c
05 REYKJAVÍK
SÍMI 6 2 6 7 1 0
Föstudagurmn 29. mal