Helgarblaðið - 29.05.1992, Page 18
Eldri borgarar
i léttum æf-
ingum i vist-
legu umhverfi
Sundhallar
Reykjavíkur.
Þeir sem ekki
gótu verib
meö i lauginni
gerbu sinar
æfingar á
bakkanum.
Mynd: Kristinn.
a' .
■: ■ ■
Stressið hverfur og
vellíðanin eykst í sundi
Um síðustu helgi voru
stofnuð, í anddyri
Laugardalshallarinn-
ar, samtökin Íþrótíir
fyrir alla.
Kjörorð samtakanna er
„Heilbrigt líf- hagur
allra“. Formaður hinna
nýju samtaka er Sigrún
Stefánsdóttir.
Það var að frumkvæði
íþróttasambands íslands
sem samtökin voru stofn-
uð og er markmið þeirra
og tilgangur að efla al-
menningsíþróttir, þátttak-
endum til ánægju og
heilsubótar. Stofhfélagar
hinna nýju samtaka voru
um 150 og þar á meðal
eru bæði einstaldingar, fé-
lög og samtök. Meðal
þeirra er Félag áhuga-
manna um íþróttir aldr-
aðra sem í vikubyijun
stóð fyrir hinum árlega
sunddegi aldraðra í Sund-
höll Reykjavíkur.
Að sögn Emsts Back-
mans íþróttakennara hafa
eldri borgaramir, 67 ára
og eldri, verið að æfa
sund í allan vetur og hefur
þátttakan verið vonum
framar. Þegar núverandi
eldri borgarar vom á sín-
um yngri árum stóð þeim
ekki öllum til boða sund-
kennsla, enda ekki að-
staða til þess í öllum bæj-
um og sveitarfélögum á
öðmm og þriðja áratug
aldarinnar. Sem dæmi má
nefha að Sundhöll
Reykjavíkur var ekki tek-
in í notlcun fyrr en árið
1937.
Emst segir að það verði
bæði að leiðbeina og
kenna eldri borgurunum
þegar þeir koma i sund-
laugina í fyrsta sinn. Til
að venja fólkið við vatnið
og vinda ofan af vatns-
hræðslunni er oftast nær
byijað að kenna fólkinu
baksund. „Það geri ég
meðal annars vegna þess
að i baksundinu er minni
hætta á því að fólkið fái
vatn upp í vitin við öndun
en í bringusundinu."
Fyrir utan sjálfa sund-
kennsluna er sundlaugin
kjörinn staður fyrir fólk
sem á erfitt með að hreyfa
sig. Þegar í vatnið er kom-
ið er viðkomandi aðeins
einn sjötti af þyngd sinni.
„Vamið er mjúkt, það gef-
ur eftir en hefur þó mikla
mótstöðu. Vöðvamir
mýkjast og stressið hverf-
ur með þeirri vellíðan sem
því fylgir,“ segir Emst.
Glæsilegt
hjá Milan
ítalska stórliðið AC Milan lék við
hvern sinn fingur í síðasta leik sínum í
deildinni sl. sunnudag, þegar liðið gjör-
sigraði Foggia á útivelli 2:8. Milan hafði
þegar tryggt sér meistaratitilinn en
bónusinn var fólginn í því að komast í
gegnum deildina án taps og það tókst
svo sannarlega.
Alls skoraði liðið 74 mörk í deildinni og
fékk aðeins á sig 21 mark. Það vann 22
leiki og gerði 12 jafhtefli. Hins vegar tap-
aði Milan aðeins tveimur leikjum á tíma-
bilinu; gegn Juventus í bikarkeppninni og
gegn brasilíska landsliðinu í æfingaleik
um miðja síðustu viku.
Það blés þó ekki byrlega fyrir meistur-
unum á troðfúllum leikvanginum í Foggia
þótt þeir næðu að skora fyrsta mark leiks-
ins. Skömmu fyrir leikhlé skoruðu leik-
menn Foggia tvö mörk og náðu foryst-
unni. í seinni hálfleik valtaði Milan-liðið
hreinlega yfir andstæðinginn með því
skora hvorki fleiri né færri en sjö mörk.
Það hreif svo áhangendur liðsins að þeir
gátu ekki setið á sér og þustu inn á völlinn
skömmu fyrir leikslok í sigurvímu.
Þótt allt Milan-liðið léki vel í leiknum
gladdi það aðdáendur hollenska landsliðs-
ins hve Ruud Gullit er orðinn góður af
meiðslunum, en hann gekkst undir hné-
uppskurð í síðasta mánuði. Gullit og fé-
lagar hans, þeir Marco van Basten, sem
varð markahæstur í ítölsku deildinni með
25 mörk, og Frank Rijkaard eru væntan-
lega komnir í æfingabúðir landsliðsins
sem býr sig nú af kappi undir Evrópumót
landsliða sem hefst í Svíþjóð eftir tæpan
hálfan mánuð.
Af öðrum tíðindum úr ítalska boltanum
er það helst að Juventus hefúr fest kaup á
framheijanum Vialli ffá Sampdoria fyrir
rúman miljarð króna. -grh
Handboltinn á þröskuldi atvinnumennskunnar
Á nýafstöðnu ársþingi Hand-
knatdeikssambands íslands
var Jón Ásgeirsson kjörinn for-
maður HSI í stað Jóns H.
Hjaltalíns sem verið heíúr for-
maður sambandsins í átta ár.
Jafnframt var samþykkt á þing-
inu að afiiema áhugamanna-
reglur sambandsins.
Þrátt fyrir þessa samþykkt verður
ekki tekin upp atvinnumennska í
íþróttinni að sinni því málinu var
vísað til milliþinganefhdar til frekari
umfjöllunar. Astæðan fyrir því að
skrefið í atvinnumennskuna var ekki
stigið til fúlls er sú að menn vilja
skoða málið enn frekar og þá sér-
staklega með tilliti til þess sem keis-
arans er, skattsins. Eins og dæmið
lítur út i dag yrðu íþróttafélögin
skattskyld eins og hver önnur fyrir-
tæki ef atvinnumennskan yrði inn-
leidd af fúllum krafti. Þau greiða
hins vegar enga skatta af veltu sinni
á meðan áhugamennskan er við lýði.
Ennfremur var vísað til milli-
þinganefndar tillögu þess efnis að
félög geti metið hvert ár sem leik-
maður er í þjálfún uppá 15 þúsund
krónur. Þar er einnig gert ráð fyrir
því að við verðlagningu hans við fé-
lagaskipti verði tekið mið af stöðu
hans í liðinu og afrekaskrá. Hins
vegar var sett hámark á verðgildi
leikmanns og nemur það 1,2 miljón-
um króna.
Af öðrum málum sem samþykkt
voru á þinginu má nefha að leik-
mannahópurinn fyrir hvem leik var
stækkaður úr 12 í 14. Það þýðir að á
leikskýrslu geta þjálfarar liðanna
hafl tvo menn í hveija stöðu, en eins
og kunnugt er þá eru sjö leikmenn í
hveiju liði.
Aftur á móti var felld tillaga um
að leyfa tvo erlenda leikmenn í liði.
Atkvæðagreiðslan um þessa tillögu
var eilítið skondin því það þurfti að
framkvæma hana tvisvar. í fyrra
sinnið voru greidd atkvæði með
handauppréttingu þar sem 19 voru á
móti en 18 með. Þá var krafist leyni-
legrar atkvæðagreiðslu og þá fóru
leikar þannig að 22 voru á móti en
19 með.
Þá samþykkti HSÍ-þingið að
koma á úrslitakeppni í 2. deild en þó
ekki með sama sniði og hið vel-
heppnaða fyrirkomulag sem reynt
var í fyrsta skipti í vor í 1. deild
karla og kvenna. Þess í stað verður
það þannig að eflir deildarkeppnina
fara sex efstu liðin í úrslitakeppni
þar sem allir keppa við alla. Deildar-
meistaramir í 2. deild taka með Ijög-
ur stig í úrslitakeppnina, liðið í öðm
sæti tekur með sér 2 stig og liðið í
þriðja sæti tekur með sér eitt stig.
EIÐISTORG 11
SELTJARNARNES
HRAÐFRAMKOLLUN - SIMI 611502
SUMARTILBOÐ!
♦ 50% AFSLÁTTUR AF FRAMKÖLLUN 5. HVERRAR FILMU
♦ 15 X 21 STÆKKUN FYLGIR HVERRI FRAMKÖLLUN
♦ ÞÚ KAUPIR TVÆR FILMUR í PAKKA OG FÆRÐ 12 MYNDIR ÓKEYPIS
♦ SJÓNAUKAR (ÚRVALI
♦ SUPER VHS UPPTÖKUSPÓLUR
♦ ÓDÝRAR EINNOTA MYNDAVÉLAR
OPNUNARTÍMI:
Mánudaga til föstudaga 10-18.30 og laugardaga 10-16
Gæðaframköllun