Helgarblaðið - 29.05.1992, Síða 19
Helgar 19 blaðið
Trjágróður sem stendur sig á landi hér
ísland er talið vera á mörkum hins
mögulega þegar um tijárækt er að
ræða. Þetta er ekki allskostar rétt
Hér á eftír langar mig tíl að tína til
nokkrar trjátegundir sem dafna
bærilega víðast hvar um landið.
Þetta er dálítíð handahófskenndur
listi og langt frá því að vera tæm-
andi, en ættí að gagnast þeim sem
eru að velta fyrir sér að hefja trjá-
rækt á nýjum íbúðasvæðum ellegar
í sumarbústaðalöndum og til sveita
Almur - Ulnius glabra
Hægvaxta tré með breiða kxónu. Harðger
og vindþolinn urn allt Suðurland frá Hval-
firði til Homafjarðar.
Þolir skugga í uppvextinum en þarf frjóa
mold og góðan aðbúnað til að bytja með.
Álmur er ákjósanlegur í stórgerð limgerði,
hann þolir klippingu afar vel og myndar
þéttan vegg sé hann klipptur árlega og jafn-
vel tvisvar á sumri.
Gefið álmtrjám gott rými á allar hliðar,
a.m.k. 50 fermetra fyrir hvert tré. Þau verða
mjög gömul og byija fyrst að setja svip sinn
á umhverfið eftir nokkra áratugi. Aldar-
gamlir álmar kring um miðbæinn í Reykja-
vík gera sitt til skapa þann virðuleikablæ
sem okkur finnst að höfuðborgin eigi að
hafa og tengja hana við sögu fyrri aldar.
Blágreni - Picea engelmannii
Hægvaxta grenitré sem með tímanum
verður 20-30 metra hátt.
Er grannslegnara en sitkagreni og hentar
því betur í garða. Dafnar best í uppsveitum
og norðanlands en þrífst þó allvel sem garð-
tré á höfuðborgarsvæðinu og þolir sjávar-
seltu betur en fram hefiir verið haldið.
Sitkagreni - Picea sitchensis
Stórvaxið og harðgert grenitré sem þrífst
vel nálægt sjó um alit land. Hér á landi verð-
ur sitkagreni stærst og fyrirferðarmest allra
grenitrjáa. Það vex hratt og sitkagrenilundir
fara að verða áberandi í landslagi um áratug
eftir gróðursetningu. Sitkagreni hentar afar
vel í skjólbelti, skógrækt og útivistarlundi en
miður í litla heimilisgarða við hús í þéttbýli.
I heimilisgarðana er blágreni heppilegra.
Sitkagreni þolir klippingu afar vel ef með
þarf. Það þrífst í allskonar jarðvegi.
Síberíulerki - Larix sibirica
Síberíulerki er harðgert barrtré sem lauf-
gast á vorin en fellir barr á haustin. Barrið er
í fyrstu skínandi ljósgrænt en dökknar þegar
á líður sumarið. Á haustin fær lerki afar
skærgula og fallega haustliti.
Síberíulerki er grannvaxið og snoturt tré
með mikla aðlögunarhæfileika. Það þrífst
með afbrigðum vel norðanlands og austan
og er ein þýðingarmesta trjátegundin í ný-
skógum landsins. Það dafnar samt ágætlega
um allt Suðurland en vegnar þar betur eftir
því sem fjær dregur sjó. Síberíulerki verður
fallegt garðtré en í litlum görðum þéttbýlis-
ins verður að stýra því og forma það til með
klippingu í tæka tíð þegar með þarf.
Gráölur (Gráelri) - Alnus incana
Lágvaxið reklatré með fallega krónu.
Þarf sólríkan stað og frjóa, ögn raka mold.
Gott garðtré sem dafnar vel um allt Suður-
land. Bætir jarðveg. Blöð falla græn til jarð-
ar á haustin. Vaxtarlag gráölurs minnir við
fyrstu sýn á falleg bjarkartré og hann er í
mögrum tilvikum heppilegra tré í Iitla garða
heldur en birki.
Grænölur (Grænelri) - Alnus crispa
Smátré eða runni frá Álaska. Grænölur á
efalaust eftir að setja svip sinn á íslenskt
landslag í framtíðinni.
Mjög blaðfallegur og harðger. Dafnar vel
á eyrum og lítt grónu raklendi og getur sáð
sér þar Iíkt og birki. Á rótum elris lifir
geislasveppur sem býr í haginn fyrir trén og
bætir jarðveginn.
Sitkaölur (Sitkaelri) - Alnus sinuata
Smátré en oftast runni frá Alaska. Blað-
stór og myndarlegur. Hraðvaxta og harðger.
Talinn vænlegur kostur til landgræðslu hér-
lendis.
Dafnar vel á lítt grónu deiglendi, svo sem
skriðum, jökulaurum og áreyrum innan um
alaskalúpínu, eyrarrós og sigurskúf.
Bætir jarðveg og býr í haginn fyrir land-
nám „eðlari" tijáa sem smám saman sá sér
inn í elrikjarrið og vaxa upp úr því og yfir
það.
Þroskar fræ og hefur sáð sér hér á landi.
Reyniviður - Sorbus aucuparia
Snoturt lítið tré eða laglegur hávaxinn
runni með fjaðurskiplum laufblöðum og
hvítum blómsveipum í júní. Rauðir beija-
klasar á haustin. Vex villtur á Islandi og
dafnar ágætlega víðast hvar. Elstu reyniviðir
sem menn þekkja til hér á landi standa við
tvo bæi í Hörgárdai á Norðurlandi. Þar voru
þeir gróðursettir um 1826. Það er eðli reynis
að bolir hans og krónur verða varla eldri en
sextíu ára. Hinsvegar endumýja trén sig
með nýjum greinum sem þau senda upp frá
rótarháísinum þegar gömlu bolimir býrja að
feyskjast.
Reynitrén gömlu í Hörgárdalnum hafa
endumýjað sig á þennan hátt að minnsta
kosti þrisvar síðan þau voru gróðursett og
em að því leyti sömu trén og á sömu rótum
sem upphaflega voru gróðursettar.
Kjörlendi reyniviðar er í fijósömum
slökkum í skógarhlíðum og giljum þar sem
grunnvatn er á hreyfingu undir rótum hans.
Selja - Salix caprea
Harðgerð og vindþolin víðitegund sem
myndar státlegt einstofna tré með breiðri
krónu. Einkar falleg þegar hún blómgast,
snemma á vorin. Laufblöðin eru lóhærð, allt
að því silfúrgrá á sumum einstaklingum.
Dafnar best á frjósömu deiglendi, svo sem
á skurðbökkum og við lækjarfarvegi. Mjög
hraðvaxta og hraust í uppvextinum.
Gljávíðir - Salix pentandra
Stórvaxinn runni eða margstofna tré sem
getur orðið tíu metra hátt. Blöðin slétt og
gjáandi, fagurgræn og leðurkennd. Gljávíðir
hefur verið í ræktun á Islandi á aðra öld og
er enn ein vinsælasta víðitegundin sem not-
uð er í Iimgerði. Hann þykir mjög fallegur
og gróskumikill og enda þótt hann kali tals-
vert árlega kemur það ekki að sök, því að
hann nær sér upp aftur og stendur með sinu
græna laufskrúði langt ffarn á haust, löngu
eftir að annar trjágróður hefur fellt lauf.
Gljávíðir þolir klippingu mjög vel og á hann
sækja engar meinvættir.
Gljávíðirinn er dæmigerður þéttbýlis- og
borgarvíðir sem oftar en ekki virkar eins og
framandi aðskotahlutur í sumarbústaðalönd-
um. Þar dafnar hann sjaldnast vel.
Strandavíðir
- Salix phylicifolia ‘Strandir’
Afar harðgerður og blaðsnotur gulvíðir
sem ættaður er úr Steingrímsfirði í Stranda-
sýslu. Lætur hvergi deigan síga og er harð-
ger um land allt. Afber særok og vindgnauð
runna best!
Strandavíðirinn er mjög Iipur limgerðis-
planta sem þolir mikla klippingu. Laufskrúð
hans er grannslegið, gjáandi og dökkgrænt.
Limgerðum úr strandavíði er hægt að halda
næfurþunnum,
þéttum og jöfn-
um í áraraðir.
Með klippingu
má einnig móta
hann til í marg-
vísleg form og
„figúrur“.
Strandavíðir
stendur ekki síð-
ur fyrir sínu sem
stakstæður runni
hvar sem er. Hann er mjög heppilegur sem
frumgróður í görðum nýrra byggingasvæða.
Brekkuvíðir -
Salix phylicifolia ‘Brekka’
Brekkuvíðir er af mörgum talinn vera
náttúrulegur blendingur gulvíðis og Ioðvíðis
og er af íslenskum uppruna. Hann er harðger
um land allt og stundum eini kosturinn, fyrir
utan strandavíði, sem til greina kemur þegar
velja þarf skjólgróður í nýja garða.
Brekkuvíðir er blaðsnotur og þéttvaxinn.
Laufin eru glansandi fagurgræn, breiðegg-
laga og formfost. Ungar greinar eru gljáandi
gulgrænar. Hann þolir klippingu mjög vel. í
limgerði er best að klippa hann um mitt
sumar og aftur á útmánuðum. Vetrarklipp-
ingin losar hann við það maðka- og lúsafár
sem margir garðeigendur tengja við hann
vegna óréttmætra blaðaskrifa fyrir nokkrum
árum. Brekkuvíðir verður fallegur og hraust-
legur fái hann góða umönnun og ríflega
áburðargjöf. Þolir vind og sjávarseltu afar
vel.
Hafliðason skrifar
SIEMENS
Með SIEMENS heimilistœkjum verður lífið léttara!
Traustir umboðsmenn okkar eru víðs vegar um landið!
• Akranes: Rafþjónusta Sigurdórs, Skagabraut 6.
• Borgarnes: Glitnir, Fálkakletti 13.
• Borgarfjöröur: Rafstofan Hvítárskála.
• Hellissandur: Verslunin Blómsturvellir, Munaðarhóli 25.
• Grundarfjörður: Guðni Hallgrímsson, Grundargötu 42.
• Stykkishólmur: Skipavík, Hafnargötu 7.
• Búðardalur: Versl. Einars Stefánssonar, Brekkuhvammi 12.
• ísafjörður: Póllinn hf., Aöalstræti 9.
• Blönduós: Hjörleifur Júlíusson, Ennisbraut 1.
• Sauðárkrókur: Rafsjá hf., Sæmundargötu 1.
• Siglufjörður: Torgið hf., Aðalgötu 32.
• Akureyri: Sír hf., Reynishúsinu, Furuvöilum 1.
• Húsavík: öryggi sf., Garðarsbraut 18a.
• Þórshöfn: Norðurraf, Langholti 3.
• Neskaupstaöur: Rafalda hf., Hafnarbraut 24.
• Reyöarfjörður: Rafnet, Búðareyri 31.
• Egilsstaðir: Raftækjav. Sveins Guðmunds., Kaupvangi 1.
• Breiðdalsvík: Rafvöruv. Stefáns N. Stefánss., Ásvegi 13.
• Höfn í Hornafiröi: Kristall, Hafnarbraut 43.
• Vestmannaeyjar: Tréverk hf., Flötum 18.
• Hvolsvöllur: Kaupfélag Rangæinga, Austurvegi 4.
• Selfoss: Árvirkinn hf., Eyrarvegi 29.
• Garöur: Raftækjav. Sigurðar Ingvarssonar, Heiðartúni 2.
• Keflavík: Ljósboginn, Hafnargötu 25.
C CO
o|
OxO
1=8
o S
Q Q'
u
QÍ
=?o
Q^
3
Q.
Föstudagurinn 29. mal