Helgarblaðið - 26.06.1992, Page 18

Helgarblaðið - 26.06.1992, Page 18
Helgar 18 blaðið Hetjan Hannes Hlífar Manila 25. júní Ekki leikur minnsti vafi á þvi að frammistaða Hannesar Hlíf- ars Stefánssonar á 30. ólymp- íuskákmótinu í Manila á Fil- ippseyjum á langstærstan þátt i góðu gengi íslenska liðsins á mótinu. Hannes hlaut 7 vinn- inga úr 9 skákum og náði þriðja og síðasta áfanga að stórmeistaratitli. Og til viðbót- ar þeim merka áfanga sem býðir sjálfkrafa útnefiningu þegar stig hans ná 2500 Elo- merinu, sem er aðeins tima- spursmál, þá fékk hann bronsverðlaim fyrir þriðja besta ámagur sem fyrsti vara- maður. Þetta Ólympíumót er án efa það erfiðasta sem undirritaður hefur tek- ið þátt í. Hvem einasta andstæðing ber að taka með fullri alvöru enda sáust aldrei auðveldir íslenskir sigr- ar cf undan er skilin fyrsta umferðin þegar við áttum í höggi við Ira. Eff- irfarandi lokaniðurstaða er um margt athyglisverð: 1. Rússland 39v 2. Úzbekistan 35v 3. Armenía 34 l/2v 4. Bandaríkin 34v 5. Lettland 33 I/2v 6. ísland 33 l/2v 7. Króatía 33 l/2v 8. Georgía 33v 9. Úkraína 33v 10. England 33v 11. ísrael 32 l/2v 12. Bosnía-Herzegóvína 32 l/2v 13. Þýskaland 32 l/2v 14. Tékkóslóvakía 32 l/2v 15. Sviss 32 l/2v Alls vora þátttökuþjóðimar 102 talsins. Úr lokaniðurstöðunni má lesa ýmsar upplýsingar. Hinar fjöl- mörgu nýju sveitir frá gömlu Sovét- ríkjunum settu mikinn svip á rnótið eins og sjá má. Islenska sveitin getur fagnað þeim áfanga að hafa náð bestum árangri V- Evrópuþjóða og 6. sætið cr betri niðurstaða en 5. sætið í Dubai. Mótspyrnan var harð- ari. Því miður var sveit Letta hærri á stigum en sú íslenska. Fimm efstu þjóðir komast í heimsmeistara- keppni landsliða sem fram fcr í Luz- em á næsta ári. Þó er alls ekki loku fyrir það skotið að íslenska sveitin fái þátttökurétt þar því alls kyns upplýsingar þess cfnis hafa borist mönnum hér. Arangur einstakra manna Arangur manna á fyrstu fjóram borðum var hvorki betri né vcrri cn búast hclði mátt við. Þar áttu allir sína góðu spretti og á stundum var taflmennska æði gloppótt. Jóhann lljartarson hlaut 6 1/2 v. úr 12 skákum sern cr mjög viöun- andi á 1. borði. Þar var við margan frægan kappann að kljást. Margcir Pétursson hlaut 5 1/2 v. af 10 mögulegum. llann vann m.a. góðan sigur á Sokolov. Undirritaður hlaut 5v. úr 9 skák- um. Af einhverjum ástæðum tókst mér ekki að fylgja eftir frísklegri taflmennsku í fyrstu skákunum. Jón L. Amason hlaut 7 v. af 11 mögulegum. Jón vann afar mikil- væga sigra á lokasprettinum og ásamt Hannesi átti hann stærstan þátt í góðri frammistöðu sveitarinn- ar. Hannes fékk 7 v. af 9 mögulcgum eins og áður sagði og Þröstur Þór- hallsson hlaut 2 1/2 v. úr fimm skákum. Hann verður að leggja meiri rækt við byrjanarannsóknir, vilji hann hreppa stórmeistaratitil. Þeir þremenningar, Gunnar Eyj- ólfsson, sérstakur aðstoðamiaður, dr. Kristján Guðmundsson og Askell O. Kárason er fremur ólíkir einstak- lingar. Gunnar er þcirrar gerðar að hann hlýtur alltaf að vekja athygli hvar á sviði sem hann stendur. Það er enginn vafi á því að margir sveit- armeðlimir, t.d. Hannes, höfðu mjög mikið gagn ýmsum æfingum Gunn- ars. Eg keypti nú ekki alla hans hug- myndafræði; aldrei heldurkveikt elda við Úlfljótsvatn. Kristján Guð- mundssonar var liðstjóri í Qórða sinn. Þetta getur verið erfitt hlutverk en hann komst vel frá því. Askell Ö. Kárason, fyrrverandi stjómarmaður i Skáksambandi ís- lands, sat þing FIDE og annaðist fréttafluming frá mótinu. Áskell er glaðbeittur náungi sem lætur sér ekki allt fyrir brjósti brenna. Skáklegur undirbúningur liðsins var af skomum skammti fyrirþetta mót en það var bætt á staðnum með vel skipulegri dagskrá. Aðstæður vora allar til mikillar fyrirmyndar og mótið frábærlega skipulagt af heimamönnum. Skóksýning Kasparovs og Kramniks Þá víkur sögunni að sigursveit Rússa sem hafði innanborðs tvo menn sem gjörsamlega stálu sen- unni frá öllum öðram. Gam' Ka- sparov hélt enn eina stórkostlega skáksýningu hér í Manila. „Hann varð fýrir lest,“ var viðkvæðið þegar hver skákhetjan á fætur annarri steinlá fyrir þessum ógurlega manni. Kasparov hlaut 8 1/2 v. úr 10 skákum en það segir ekki alla sög- una um gæði skákanna. Stigahæsti FIDE-meistari heims, V. Kramnik, var útnefndur stór- meistari í miðju móti og fagnaði 17 ára afmæli sínu daginn eftir að mót- inu lauk. Hann vann átta skákirog gerði jafntefli við undirritaðan. Þeg- ar er farið að tala um þennan unga mann sem hugsanlegan arftaka Ka- sparovs. Ef velja á skák frá mótinu vandast málið dálítið. Það er af mörgu að taka. Sigurskákir Hannesar voru all- ar fremur langarog að þessu sinni sem oftar gefum við heimsmeistar- anurn orðið. Þetta er skák úr 12. um- ferð úr viðureign milli Rússa og Bo- sníu- Herzegóvínu: 12. umferð: Kasparov - Nikolic Slavneski gambíturinn l.d4 d5 2. c4 c6 3. Rc3 e5 (Slavncski gambíturinn gafst Ni- kolic ekki vel á þessu móti. í 5. um- fcrð tapaði hann fyrir Jan Timntan.) 4. dxe5 d4 5. Re4 Da5+ 6. Bd2 Dxe5 7. Rg3! (Uppbygging Kasparovs ersára- einfold en bráðsnjöll. Með nokkram sjálfsögðunt leikjum nær hann öfl- ugum sóknarfærum.) 7.-Dd6 8. RO Rf6 9. Dc2 Be7 10. 0-0-0 0-0 11. e3 dxe3 12. fxe3! (Á þennan hátt hefur engum dott- ið í hug að tcfla áður. Eftir aðeins 12 leiki liggur sóknaráætlun hvits fyr- ir.) 12,-Dc7 13. Bc3 Bg4 14. Bd3 Rbd7 15. Bf5! Bxf5 16. Rxf5 llfe8 17. Rxg7! (Fyrsta sprcngjan.) 17.-Kxg7 18. Df5 Rf8 19. h4!! (Djúphugsaður leikur sent byggir á eftirfarandi hugniynd: 19. -Dc8 20. Dg5+ Rg6 21.1 Id6! Bxd6 22. Dxf6+ KfX 23. Dxd6+ IIc7 24. h5 Dc6 25. hxgó! Dxd6 26. gxh7 og vinnur.) 19. -b6 20. g4! Dc8 21. Dxc8 Haxc8 2. g5 (Svartur hefur náð drottningar- uppskiptum en sókn Kasparovs helduráfram.) 22. - R8h7 23. e4 Hcd8 24. Hdfl KI8 25. gxf6 Bxf6 26. e5 Bg7 27. Hhgl e5 28. Kc2 He6 29. Ilg4 Bh8 30. b4 b6 31. bxc5 bxc5 32. Ilbl (Opna b-Iínan ræður úrslitum) - og Nikolic gefst upp. Helgi Ólafsson I- I ilÍIAiii fi A á Afi A A # A A Á vísan að róa Mjög góð aðsókn hefur verið að tónleikum Bubba Mort- hens sem haldnir hafa verið víðs vegar um landið í boði VISA-lsland. 1 kvöld verður kappinn með tónleika á Akranesi og á morg- un, laugardag, í Valsheimilinu við Hlíðarenda. Til marks um aðsóknina komu hátt í 700 manns i íþróttahöllina á Akur- eyri, um 300 manns í félags- heimilið á Blönduósi, svipaður fjöldi í félagsheimilið í Hnifs- dal og 500- 600 manns í Kefla- vík i fyrrakvöld. Bjartmar með nýjan geisladisk I byrjun næsta mánaðar er væntanlegur á markaðinn nýr geisladiskur úr smiðju Bjart- mars Guðlaugssonar sem ber heitið Engisprettufaraldur, Har- aldur! Diskurinn hefur að geyma 11 ný lög sem tekin voru upp í maí og júní í hljóðveri Rúnars Júlíussonar sem jafnffamt er útgefandi. Auk Bjartmars koma ífam þeir Tryggvi Hiibner, sem leikur á gítara, bassa og hljómborð, Rúnar Júltusson á bassa, Matthías Hemstock á trommur en sjálfur Ieikur Bjartmar á munnhörpu auk þess sem hann sér um allan söng. í tengslum við útkomu disksins verða haldnir sér- stakir útgáfutónleikar sem auglýstir Bjartmar Gublaugsson verða síðar. I næsta mánuði mun Bjartmar gera víðreist um landið en hann er á forum til Danmerkur til náms í byrjun ágústmánaðar. Kominn með doktorsgráðu í lífinu „Við skulum vona að hún falli,“ sagði Þorgeir Þor- geirsson rithöfúndur um 108. grein hegningarlag- anna en sú grein er nú í uppnámi eftir að Mannrétt- indadómstóll Evrópu dæmdi Þorgeiri í hag gegn íslenska ríkinu. Þorgeir var dæmdur fyrir meiðyrði á grundvelli greinarinnar fyrir skrif um meint harðræði lögreglunnar í Reykjavík á árinu 1983. Þorgeir fór með málið alla Icið fyrir Mannréttindadómstólinn og rak það sjálfur. „Ef maður flylur mál í langan tíma þá stillist maður fljóllega inná það að rcikna frekar með tapi en sigri,“ sagði Þorgeir og taldi það svona öruggara en bætti við að auðvitað hefði hann ekki haldið þetta út svona lengi nema hann hefði haft trú á því að hann gæti farið með sigur í mál- inu. Þorgéir er mjög sáttur við niður- stöðu dómsins og telur hann mjög góðan. En undirtektimar hér heima koma honum á óvart og honum finnst fólk ekki hafa fengið áhuga á málinu fyrr en nú. „Hvort sem ég hefði unnið málið eða tapað því þá er þetta ómetanleg reynsla,“ sagði Þorgeir. Honum líður einsog hann hafi lokið doktorsprófi. „Ég nennti aldrei að klára próf í skóla og hljóp úr einum skóla í annan og lauk aldrei neinu, en þetta met ég sem doktorspróf í einhverju, senni- lcga bara lífinu sjálfu,“ sagði Þor- geir. Hann taldi ekki gott að segja til um hvaða þýðingu dómurinn hefði hér heima en hinsvegar gladdi það hann að heyra að Þorsteinn Páls- son dómsmálaráðherra hygðist skipa þriggja manna nefnd til að kanna hvort ekki væri rétt að gera Mannréttindasáttmálann að lögum hér á landi einsog fjölmörg önnur ríki hafa gert. Þorgeir yrði býsna glaður ef af því yrði þar eð það hefði mikla þýðingu fyrir fólk í landinu að fá Mannréttindasáttmálann svona til hliðar við stjómarskrá íslands sem er veik á þessu sviði. Og óskaði hann Þorsteini til hamingju með þessa afstöðu sína. Þá taldi Þorgeir að hvort sem 108. greinin héldist inni eða ekki þá yrði Hæstiréttur að dæma mun varlegar í málum er snertu greinina heldur en hingað til. s k ú m u r KALLI OG KOBBI Þú ináít vera hreykin af mér. Eg ætla að gefa spítalanum allan núnn hoi> til slímgjafa. Hættu að láta svona ógcðslcga. Það þarf enginnp að fá slíkt gefið á spítala! .Hugmyndimar sem þú færðlj Föstudagurinn 26. júnf

x

Helgarblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarblaðið
https://timarit.is/publication/259

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.