Dagblaðið - 26.01.1976, Síða 8
8
Oagblaðift. Mánudagur 26. janúar 1976.
Gerðardómur í hitaveitumálum Suðurnesja:
VATNSLEYSUSTRÖND VERÐUR
VATNSLAUS UM SINN
„Þessar miklu tafir hafa án
efa kostaft stórfé,” sagöi Jón
Tómasson, forsvarsmaöur
landeigenda i Svartsengi i
viðtali við Dagblaðiö. „Og i
raun og veru er niðurstaða
gerðardómsins ekki langt frá
þvi, sem við bjuggumst við
allan timann.”
t stórum dráttum varö niður-
staða gerðardómsins, sem sett-
ur var í málinu i júli i fyrra, á þá
leið, að Hitaveitu Suðurnesja
var gert að greiða landeigend-
um 87 milljónir fyrir land og
jarðhitaréttindi i Svartsengi.
„Gjöf bændanna á Vatns-
leysuströnd var auðvitað mjög
virðingarverð, en sá galli fylgdi
þeirri gjöf, að verulegur kostn-
áður var framkvæmdum þar
samfara,” sagöi Jón ennfrem-
ur. „Hitaleiöslan ein var álitin
kosta um 300 milljónir og svo
þurfti að bora þar borholur, sem
kosta 50 til 60 milljónir hver
hola.”
Taldi Jón, að bezta leiðin hefði
verið valin, enda væru
framkvæmdir komnar nokkuð
langt á leið og sagði hann það
sorglegt, að áróöursöfl hefðu
getaö tafiö málið svona lengi þvi
að timatapið hefði án efa kostað
bæjarfélögin á Suðurnesjum
stórfé.
„Við munum nú endurskoða
framkvæmdaáætlun okkar með
tilliti til niðurstöðu dómsins,”
sagði Jóhann Einvarðsson,
bæjarstjóri i viðtali við
Dagblaðið. „Með gjöf bændanna
á Vatnsleysuströnd i huga er
veriðað athuga möguleika á þvi
að koma vatni til þeirra.
011 töf er dýr,” sagði Jóhann
ennfremur. „Við Svartsengi eru
tilbúnar fjórar holur og nú er
ekkert þvi til fyrirstööu að hafn-
ar verði framkvæmdir þar.” HP
Það var talsvert fjölmenni i
Bláfjöllum i gærdag, þegar
blaðamaður DB kom þangað.
Veðrið var milt og uppi i fjöllun-
um var komin þoka, en skiðafæri
virtist með ágætum. Tjzkufólkið i
skiðasportinu var þarna margt
mætt til leiks með „græjur”
sinar, skiði, búninga og jafnvel
vélsleða, sem það hafði dregið
aftan i lúxusjeppum sinum upp i
fjöllin með þetta einstaklega
smekklega nafn.
Þarna má lika sjá margt fjalla-
ljónið, sem virtistekki láta neinar
mishæðir aftra sér, heldur rennir
sér niður brekkurnar eins og ekk-
ert sé mannskepnunni óyfir-
stiganlegt.
Opnun Bláfjallanna hefur ann-
ars gefið höfuðborgarbúum ein-
stakt tækifæri til skiðaiðkunar, og
áreiðanlega er einn dagur þar
efra á við fjölmörg glös af vita-
minum. Við látum annars mynd-
irnar tala. —
Þær Þóra IVl agnúsdóttir og
Hólmfriður Guðjónsdóttir sögð-
ustfara á skiði um hverja helgi.
ÞEIR VILJA
RENNA í KR0SS
FÆTURNIR
— heimsókn í Blófjöll í gœr
< - m.
Alls kyns vandamál skjóta upp
kollinum þegar skiöaútbúnaöur
er flókinn en hér sést Böftvar
Valtýsson lijálpa dóttur sinni
Katrinu aft laga festingarnar.
Þeir Gylfi og ómar komu ak-
andi á þessum myndarlegu vél-
hjólum upp I Bláfjöll. Sögftu þeir
félagar, aft þessi tegund, Harley
Davidson SX 175, væri sérstak-
lega vel til þess fallin aft aka i
snjó.
í ránsferð
þó vakt-
maður vœri
um borð
Óboðna gesti bar að garði i
b.v. Þormóð goða i Reykjavik-
urhöfn i fyrrinótt milli kl. 3 og
4. Létu hinir óboðnu gestir það
ekki aftra sér, þó vélar i' skip-
inu væru i gangi og vaktmaður
um borð. Var vaktmaðurinn
við vinnu og heyrði ekki til
komumanna.
Hinir óboðnu gestir fóru um
loftgöt niður i vélarrúm og
þaðan um skipið. Sprengdu
þeir upp 4 hurðir, skemmdu
þær mikið svo og karma
þeirra. Virtust þeir hafa verið
i leit að peningum, m.a. i skip-
stjóraibúðinni og i klefum
skipverja. Klefi stýrimanns-
ins þar sem lyfjakassinn er
var látinn i friði. ASt.
Ráðizt að
mjólkurbúð
Rúða var brotin i mjólkur-
búð að Skaftahlið 29 aðfara-
nótt laugardagsins. Ekki varð
séð að neinu hafi þar verið
stolið og ekki voru unnar aðr-
ar skemmdir en rúðubrotið.
ASt.
Mikið um
árekstra —
tvö slys
Mikið var um árekstra i
bænum um helgina einkum á
föstudags- og laugardags-
kvöld. A sunnudag urðu siðan
12 árekstrar á ti'mabilinu frá
1—8. 1 flestum tilfellum var
hálka og erfið færð orsökin.
Ekki var lögreglunni kunn-
ugt um slys á fólki i þessum ó-
höppum nema i einu tiiviki.
Rákust saman fólksbifreið og
strætisvagn á mótum Hverfis-
götu og Ingólfsstrætis. Far-
þegi i strætisvagninum var
fluttur i slysadeild.
Þá slasaðist piltur á skelli-
nöðru litillega er hann rakst á
fólksbil á mótum Ægisgötu og
Vesturgötu. ASt.
Kjúklingur í
Nýgrilli
mikil
freisting
Maturinn i Nýgrilli i Breið-
holti virðist mjög freistandi, ef
dæma má eftir þvi að þar var
brotizt inn tvær nætur i röð.
Fyrra innbrotið var aðfara-
nótt föstudags. Þá var stolið
þaðan tveim kjúklingum, sem
tilbúnir voru til framreiðslu.
Nóttina eftir var aftur vegið i
sama knérunn. En nú fannst
ekkert tilbúið til áts. Í1)áðum
tilfellum var rúða brotin og
þannig komizt inn. Aðrar
skemmdir voru ekki unnar. Er
helzt hallazt að þvi að þarna
hafi unglingar verið að verki.
ASt.