Dagblaðið - 26.01.1976, Blaðsíða 15
nagblaðifi. Mánudagur 26. janúar 1976.
15
íþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
I
ARMANN HHDUR
SÍNU SIRIKI
— sigraði ÍS 93-81. Fram gleymdi búningunum í Rvík og
leikurinn tafðist um 30 mín.
Ármenningar haida sinu striki i
1. deild körfuboltans — á laugar-
daginn sigraði iiðið stúdenta
nokkuð öruggiega 93-81. En þetta
var alltaf baráttuleikur og Ár-
menningar máttu aldrei slaka á
— slfkt má reyndar ekkert lið
gegn stúdentum.
Staðan i hálfleik var 48-39
Armanni i vil — mest fyrir tilstilli
stúdenta sjálfra. Þeir fóru illa að
ráði sínu — hvað eftir annað
sendu þeiriboltann i hendur Ar-
menninga og auk þess varð vita-
skotanýting þeirra slæm — og
þegar þannig er ástatt getur liðið
ekki búizt við sigri. Sami munur
hélzt lengst af i siðari hálfleik —
eftir 5 minútur var staðan 58-49 og
10 minútur 68-59. Þá var Birni
Magnússyni visað af velli með 5
villur. A 16. minútu var Birni
Christansen einnig visað af velli
með 5 villur og allt Armannsliðið
hafði 4 villur. Þannig mátti ekki
miklu muna — minnstur varð
munurinn 5 stig — 78-73, en
stúdentar höföu ekki bolmagn til
að minnka muninn enn frekar og
Ármann seig aftur framúr og
sigraði 93-81.
Guðsteinn Ingimundarson átti
mjög góðan leik fyrir Armann —
sinn bezta i vetur. Hann skoraði
24 stig. Jimmy Rogers skoraði 23
stig og Jón Sigurðsson 19 stig.
Bjarni Gunnar skoraði 38 stig
og var hreint óstöðvandi fyrir IS
— en góðum leik hans var ekki
fylgt eftir af öðrum og þvi fór sem
fór. Steinn Sveinsson og Jón
Héðinsson skoruðu 14 stig hvor.
1R átti aldrei i erfiðleikum með
Val — öruggur sigur IRinga 103-
84. Aðeins i byrjun var jafnræði
með liðunum — en það var
einungis vegna Þóris Magnússon-
ar —sem átti afburða góðan leik i
byrjun og hitti mjög vel. Þörir
hélt liði sinu á floti i byrjun en var
siðan sveltur úti á kanti og IR seig
fram úr. Þegar 11 minútur voru
af leik var staðan 28-24 1R i vil —
siðan 40-25 og i hálfleik var staðan
53-39.
Þessi munur hélzt i siðari hálf-
leik — án þess að Valur næði
nokkurn tirjia að ógna IRingum
verulega Stigahæstur IRinga var
Agnar Friðriksson með 26 stig,
Jón Jörundsson skoraði 19 og
Birgir Jakobsson var með 18 stig.
Þórir Magnússon var lang-
drýgstur Valsmanna með 35 stig
— Rikarður skoraði 22 stig.
Suður i Njarvikúm áttust við
heimamenn og Fram. Eitthvað
hafa leikmenn Fram veriö utan
við sig — búningarnir gleymdust i
Reykjavik. Ekki leizt Frömurum
á að leika berrassaðir og reyndu
að fá búninga úr Keflavik — ekki
tókst það og senda varö búninga
úr Reykjavik. Leikurinn tafðist
við þetta um hálftima — og þurftu
þvi hinir fölmörgu og dyggu
stuðningsmenn UMFN að biða —
óþreyjufullir. Þegar leikurinn
loksins gat hafizt — ,og leikmenn
Fram i búningum — stóðu hinir
ungu leikmenn Fram nokkuð i
UMFN i byrjun. En það var ekki
nema i byrjun og UMFN seig
fram úr. Staðan i hálfleik var 39-
28. Njarðvikingar héldu áfram að
auka muninn i siðari hálfleik og
lokatölur urðu 73-54.
Kári Marisson var langbeztur
Njarðvikinga — hefur aldrei verið
betri. Vel spilandi leikmaður og
skemmtileg gegnumbrot hans
gleðja augu áhorfenda. Geir
Thorsteinsson var beztur i vörn-
inni en eitthvað virtist Stefán
Bjarkason vera ósáttur við sjálf-
an sig. Hjá Fram var Þorvaldur
Geirsson drýgstur og skoraði 10
stig. En lið Fram er ungt og á
framtiðina fyrir sér.
Gunnar Þorvarðarson var
stigahæstur UMFN með 16 stig —
Stefán með 15 og Kári 14. Jónas
Jóhannsson varð enn fyrir óláni
— á laugardaginn datt hann illa
og braut tönn. Reyndar kom hann
inn á siðar en var greinilega
brugðið.
I 2. deild heldur Grindavik sinu
striki — sigraði Skallagrim úr
Borgarnesi 79-71. Þannig er
Grindavik enn ósigruð — og bar-
áttan stendur milli Grindvikinga
og Þórs frá Akureyri um sæti i 1;
deild. h halls/emm
Foreman sló Lyall
niður í Las Vegas
Gorge Foreman steig skrefinær
keppni gegn sjálfum meistara Áii
þegarhann rotaði Ron Lyali i Las
Vegas um helgina.
En sannariega virtist heims-
meistarinn fyrrverandi þurfa að
hafa fyrir sigri sinum — tvivegis
lá hann i gólfinu, áður en sigur
hafðist. Foreman virkaði svolitið
þungur enda var þetta fyrsta
keppni hans eftir ósigurinn fyrir
Ali i Zaire fyrir 15 mánuðum.
Eftir sigur sinn gegn Lyall er
Foreman nú aðaláskorandi Ali
um titilinn. Ali, sem á að berja
Coopman frá Belgiu i febrúar,
mun sjálfsagt reyna að forðast
keppni við Foreman i bráð. Þvi
ætlar Foreman að keppa eins
mikið og mögulegt er á næstunni
og þannig geti Ali ekki neitað hon-
um um keppni.
En hvaö um það — keppnin i
Las Vegas i gær var skemmtileg
fyrir hin 4.500 áhorfendur sem
fylltu Cesar hótelið i Las Vegas.
Lyall byrjaði vel — vann fyrstu
lotuna á stigum og kom Foreman
i veruleg vandræði. En bjallan
bjargaði honum.
Dæmið snerist alveg við i ann-
arri lotu— þá lumbraði Foreman
á Lyall — næstum að vild. Svo
virtist sem Lyall ætlaði ekki að
endast lotuna — króaður af i
hominu en bjallan bjargaði.
Þriðja lotan var nokkuð jöfn —
og greinilega var farið að draga
af mönnunum tveimur — en
áhorfendur kunnu að meta slags-
Meistari Jón!
— hélt upp á 20 ára
keppnisafmœli með sigri
Jón Þ. Ólafsson hélt upp ú 20 ára
afmæli sitt I stökkum án atrennu
með þvi að veröa tsiandsmeistari
i langstökkj án atrennu. Gott hjá
Jóni — en hann brá sér austur á
Laugarvatn vegna afmæiisins og
það var einmitt á Laugarvatni,
sem liann hóf keppni sina i stökk-
um án atrennu. Jón stökk 3.11
mctra.
Islandsmeistari i hástökki án
atrennu varð Friðrik Þór Óskars-
son, sem stökk 1.63. Óskar
Jakobsson stökk einnig sömu hæð
— en þurfti fleiri tilraunir. Þriðji
var Jón Þ. — stökk 1.60.
Friðrik Þór sigraöi einnig i þri-
stökkinu — stökk 9.41.
1 langstökki kvenna án atrennu
sigraði Lára Sveinsdóttir sem
stökk 2.53.
Það sem öðrum þræði setti svip
sinn á mótið var svipleysi þess.
Aðeins þrir þátttakendur voru frá
Reykjavikursvæðinu — Friðrik,
Jón og Óskar. Nokkur óánægja
hefur rikt með að skilja meistara-
mótið án atrennu frá hinu eigin-
lega meistaramóti innanhúss —
auk þess sem áhugi FRI á þessu
móti virðist i lágmarki. Ekkert
var gert til þess að koma þátttak-
endum austur — þátttaka i sam-
ræmiviðþað. h.halls
málin og hvöttu mennina óspart.
Þegar kom að fjórðu lotu virtist
hafa dregið af báðum. Þeir byrj-
uðu rólega en svo kom Lyall góðu
höggi á Foreman sem féll — stóð
strax upp aftur. Eitthvað virtist
Foreman ruglaður og Lyall réðst
ge'gn honum aftur af miklu offorsi
— og aftur mátti meistarinn fyrr-
verandi liggja i gólfinu. En Lyall
tókst ekki að fylgja þessu eftir —
ég hugsaði um Joe Luis og hvern-
ig honum tókst sifellt að ná sér og
vinna — sagði Foreman eftir leik-
inn. Þetta hreif þvi i lok lotunnar
var komið að Lyall að liggja i
gólfinu — en bjallan glumdi.
Það var ljóst þegar kom að 5.
lotu að.hún yrði lokah "an. Og svo
reyndist vera. Foreman kom
vinstri handar höggi á Lyall og sú
hægri fylgdi — Lyall lá i gólfinu
og 2 minútur og 28 sekúndur
liðnar af 5 lotu. Foreman hafði
sigrað — en naumt var það.
hhalls
Jón Sigurðsson á fullri ferð i leik Ármanns og ÍS — Birgir örn Birgis
blokkerar — og leiðin greiðfær. DB-mynd Bjarnleifur
Átta ísfirðingar á
afmœlismóti í júdó
' Fyrsti hluti afmælismóts JSÍ
fór fram i iþróttahúsi Haga-
skólans s.l. sunnudag. Keppendur
voru 44 frá 6 félögum. Keppt var í
öllum þyngdarflokkum karla og i
tveimur þyngdarflokkum ung-
linga 15-17 ára. Meðal keppenda
voru nú i fyrsta sinn 8 tsfirðingar
sem stofnaö hafa judodeild i
ibróttafélaginu Reyni i Hnifsdai.
Úrslit urðu sem hér segir:
Léttvigt
1. Jóhannes Haraldsson UMFG
2. Sigurður Pálsson JFR
3. Eysteinn Sigurðsson A
4. Styrmir Sigurðsson A
Léttmillivigt
1. Ómar Sigurðsson UMFK
2. Gunnar Guðmundss. UMFK
3. Niels Hermannsson A.
4. Magnús Helgason Isaf.
Halldór Guðbjörnsson keppti ekki
vegna smámeiðsla.
Millivigt
1. Viðar Guðjohnsen A
2. Jónas Jónasson A
3. Birgir Bachmann JFR
4. Hilmar Jónsson A
Hjólmar sigraði!
Hjálmar Aðalsteinsson, KR,
sigraði á opnu móti Arnarins i
borðtennis um helgina. Hann
sigraði Jón Sigurðsson, Keflavik,
i úrslitaleik 3-2.
Jón byrjaði mjög vel — vann
tvær fyrstu loturnar 21-16 og 21-
19. Menn bjuggust þvi við að Jón
yrði ekki i erfiðleikum með að
draga i land. En Hjálmar var á
ööru máli og vann þrjá næstu leiki
— 21-17, 21-18og 21-17. h.halls
Hér vantaði marga sterka
millivigtarmenn s.s. Halldór
Guðnason, Garðar Skaptason og
Kára Jakobsson.
Léttþungavigt
1. Gisli Þorsteinsson Á
2. Benedikt Pálsson JFR
3. Sigurjón Ingvarsson Á
4. Finnur Finnsson Isaf.
Þuivgavigt
1. Svavar Carlsen JFR
2. Kristmundur Baldursson
UMFK
Þeir skora
mest
Markhæstu leikmenn i ensku
knattspyrnunni eru nú.
1. deild
21 — Ted McDougall, Norwich
20 — Alan Gowling, Newcastle
18 — John Duncan, Tottenham
og Dennis Tueart, Manch. City.
2. deild
17 — Derek Hales, Charlton
14 — Les Bradd, Notts County.
Mike Channon, Southampton og
Poul Cheesley, Bristol C.
3. deild
19 — Fred Binney, Brighton
17 — Alan Buckley,' Walsall,
Mick Cullerton, Port Vale.
George Evans, Cardiff
4. deild
26 — Ronnie Moore, Trannere
21 — Brendan O’Callaghan,
Doncaster,
19 — John Ward, Lincoln.
Judo
Byrjendanámskeið eru að hefjast.
Innritun á mánudögum og fimmtu-
dögum milli kl. 7 og 8 e.h. að
Brautarholti 18, 4 hæð. Sími 16288.
Judofélag Reykjavikur