Dagblaðið - 06.03.1976, Page 5
5
Dagblaðið. Laugardagur 6. marz 1976.
Varahlutaverðið:
HELMINGSMUNUR
EFTIR SÖLUSTAÐ
VARAHLUTIR
VERÐ/UMBOÐ
VERÐ/ANNARS
STAÐAR
Gúmmísett í framhemla
Volvo P-144
Gunnar Ásgeirsson h/f:
Kr. 3.081
Blossi h/f: Kr. 1.900
Hljóðkútur í Volks-
wagen 1300
Hekla h/f: Kr. 8.700
G.S.
varahlutir:
Kr. 5.500
Hemlaklossar í Hillman
Hunter
Egill Vilhjálmsson h/f:
Kr. 3.420
Blossi h/f:
Kr. 1.890
Vatnskassahlíf á Ford
Escort
Sveinn Egilsson h/f:
Kr. 8.600
G.S.
varahlutir:
Kr. 5.020
Straumloki í Cortinu
Sveinn Egilsson h/f:
Kr. 4.375
Blossi h/f:
Kr. 3.800
Vatnskassahlíf á Fiat-
128
Davíð
Sigurðsson:
Kr. 9.100
G.S. varahlutir:
Kr. 6.920
Dínamóanker í Land-
Rover
P. Stefánsson h/f:
(síðast) Kr. 3.900
Blossi h/f:
Kr. 3.650
Vatnsdæla í Volvo P-
144 (með SKP legum)
Gunqar Ásgeirsson h/f:
Kr. 6.525
G.S.
varahlutir:
Kr. 2.875
Allt upp undir helmingsmismunur
er á sams konar bílavarahlutum hér í
borginni eftir því hvar þeir eru
keyptir, skv. lauslegri athugun sem
DB gerði á varahlutaverði á ýmsum
stöðum í gær.
Varahlutirnir virðast áberandi
dýrari hjá bílaumboðunum en hjá
öðrum fyrirtækjum sem flytja þá inn.
Sem kunnugt er kaupa bílaverk-
smiðjurnar fjölda hluta í bíla sína að
frá öðrum fyrirtækjum og selja jafn-
framt umboðum og öðrum fyrir-
tækjum þá hluti sem varahluti. Einn-
ig er nokkuð um fyrirtæki sem sér-
hæfa sig við framleiðslu varahluta í
ýmsar gerðir bíla og selja þá á al-
mennum markaði.
Varahlutir, — það er ekki sama hvar
keypt er, verðlagið getur verið býsna
mismunandi. Þessi mynd er úr
verzlun GS-varahluta (DG-mynd
RagnarTh. Sig.).
Tvö umfangsmikil fyrirtæki á sviði
varahlutaverzlunar eru tekin hér
sem dæmi. Annars vegar er Blossi h/f
við Skipholt, sem selur eingöngil
hluti sams konar og notaðir eru til
framleiðslu viðkomandi bíla, og hins
vegar eru G.S. varahlutir, sem eink-
um selja varahluti frá fyrirtækjum
sem sérhæfa sig í framleiðslu vara-
hluta í ýmsar gerðir bíla. Athugun
leiddi eftirfarandi niðurstöður í ljós:
Það skal tekið fram að verðmis-
munur á sumum hlutum var minni
en dæmin hér að. ofan gefa til kynna
og í einstaka tilvikum var hann eng-
inn, en þá var um nýkomna hluti að
ræða sem nýlega höfðu hækkað veru-
lega erlendis.
—GS.
ÞAÐ ER EKKISV0 EINFALT
MÁL AÐ LÆRA Á BÍL
„ökukennari minn ráðlagði mér
að sækja þetta námskeið og mér
finnst þetta alveg bráðnauðsynlegt,”
sagði Halldóra Pálsdóttir í samtali
við DB. Hún er nemandi í Fræðslu-
miðstöð ökukennarafélags íslands
ásamt um það bil 20 öðrum ungling-
um sem ætla að gangast undir öku-
próf.
Umferðarfræðslan fer fram tvö
kvöld í viku, þ.e. á þriðjudögum og
fimmtudögum frá kl. 8 til 11. Hver
nemandi kemur tvö kvöld og eftir
þann tíma á hann að hafa nókkra
yfirsýn yfir umferðarreglurnar. Að
sjálfsögðu þarf meiri undirbúmng
fyrir prófið en það þurfa nemendur
að sjá um upp á sitt eíndæmi og lesa
sér til.
Kjartan Jónsson, sem er formaður
stjórnar ökukennarafélagsins, sagði
að þessi fræðslumiðstöð hefði verið
stofnuð um það leyti er hægri um-
ferðin var innleidd á íslandi. Áður
höfðu þeir kynnt sér fræðslustarfsemi
á þessu sviði í Svíþjóð og fyrir-
Það er alveg bráðnauðsynlegt að kynna sér helztu hluti velarinnar og her er það
Kjartan Jónsson sem sér um frasðsluna.
Bremsukerfið verður að vera í lagi ef ekki á illa að fara, hér er skýrt fyrir
nemendunum hvernig það virkar.
myndin er fengin þaðan. Kjartan
sagði að stofnanir eins og Fræðslu-
miðstöðin væru mikið notaðar er-
lendis af fólki sem vildi rifja upp
umferðarreglurnar og hressa upp á
þekkingu sína á þessu sviði. „Það er
upplagt að koma hingað t.d. þegar
fólk endurnýjar ökuskírteini sitt og
rifja upp og bæta við nýrri þekk-
ingu,” sagði Kjartan. KP
„Hér fáum við öll gögn til prófsins og
það er mjög þægilegt að fá þau á
einum stað og þurfa ekki að flækjast
um bæinn og útvega sér þau,” sagði
Halldóra Pálsdóttir.
Sigríður,Eiður örn, Helga og Inga voru ánægð með kennsluna og töldu hana
ómissandi.
Gödar
Garnalt
Bókamarkaóiatin
Í HÚSI IÐNADARINS VIÐ
INGÓLFSSTRÆTI